Bloggvinur Morgunblaðsins?

Er bloggvinur Morgunblaðsins ætlaði að lesa þar Staksteina í morgun en komst ekki inn á lykilorði mínu. Mbl. hefur lokað fyrir bloggvini sína nema þeir gerist áskrifendur blaðsins; kostar þá kr 3.890 pr. mán. að vera bloggvinur.

Er það ekki nokkuð langt gengið að við  bloggarar Mbl þurfum að greiða fyrir vináttuna? Hingað til hefur verið hægt að lesa Staksteina og forystugreinar sem bloggvinur.

Kaupi yfirleitt alltaf Morgunblaðið en ekki hægt stundum vegna ferðalaga þá er það keypt í lausasölu þegar kostur er.WhistlingHalo

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband