Trínitatis: "Hvað stoðar þig allt heimsins góss og gæði"

"Hvað stoðar þig allt heimsins góss og gæði og gull og silfur,skart og dýrleg gæði " (Trínitatis, sunnudagurinn næsti eftir hvítasunnu er í dag)  

 

 

Sálmur 179.

Hvað stoðar þig allt heimsins góss og gæði
og gull og silfur, skart og dýrleg klæði,
er ber þú utan á þitt dauðlegt hold?
Hvar liggur það, þá líkaminn er dauður
og langt frá öllu prjáli hvílir snauður
í myrkri mold?

Veist þú þá ei, að dómsins lúður dynur,
þá djásnið fölnar, veldisstóllinn hrynur
og gullkálfurinn hjaðnar eins og hjóm?
Veist þú þá ei, að ekkert gildi hefur
öll auðlegð heims og neina bót ei gefur
við Drottins dóm?

Vor auðlegð sé að eiga himnaríki,
vor upphefð breytni sú, er Guði líki,
vort yndi' að feta' í fótspor lausnarans,
vor dýrðarskrúði dreyrinn Jesú mæti,
vor dýrlegasti fögnuður og kæti
sé himinn hans.

Sb. 1886 - Valdimar Briem


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband