2.12.2010 | 20:54
Ari Teitsson bóndi sigurvegari kosninganna.
Ekki er allur refilstígur stjórnlagakosninganna kominn í ljós enda má telja kosningarnar meingallaðar þótt bara sé nefnt misvægi atkvæða; er aldrei í sögu þjóðarinnar hefur verið eins hróplega ranglátt. Reykjavíkursvæðið hafði algjöra yfirburði er ekki þekkist meðal þeirra er vilja telja sig með lýðræðisþjóðum; má þar nefna Bandaríkin þar sem íbúar Whasington hafa engan öldungadeildarþingmann vegna setu þingsins þar. Meira segja ''í sæluríki Samfylkingar ESB'' er misvægi atkvæða.
Nú ber svo við að landsbyggðin hér á landi er svipt lýðræðislegri þátttöku með umræddum reglum um kosningu til stjórnlagaþings; þéttbýlið réði alfarið kosningunni. Lítið eða ekkert rætt við aðra nýkjörna þingmenn allra síst þeirra þriggja er komust inn utan af landi.
Fréttamiðlar þar með taldir ríkisfjölmiðlar keppast að mæra Þorvald Gylfason sem sigurvegara kosninganna ekki minnst á misvægi atkvæða lengur.
Ef einhver er sigurvegari kosninganna er það Ari Teitsson, bóndi; þjóðin á þar væntanlega fulltrúa sinn þegar landbúnaður/atvinnurekstur verður ræddur varðandi nýja eða endurbætta stjórnarskrá.
Ekki nóg að koma oftast fyrir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook