25.2.2011 | 19:51
Samfylkingin vegur að réttarríkinu?
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra og formaður Samfylkningar ætlar að hafa forgöngu um að Alþingi samþykki lög um stjórnlagaráð til endurskoðunar á stjórnarskránni. Ákvörðunin er þvert á dóm Hæstaréttar og má telja hana siðlausa árás á á dóminn; - til þess fallið að rýra álit á réttarkerfinu í landinu.
Er engin réttarvitund til staðar hjá Samfylkingunni?
Ögmundur Jónasson getur ekki annað verið andvígur enda yfirmaður dómsmála í landinu; ætla þingmenn Vinstri grænna að samþykkja umrædd lög, láta Samfylkinguna kúga sig til hlýðni einu sinni enn?
Fáheyrt gerræði Alþingis er vill telja þjóð sína fremsta meðal vestrænna lýðræðisríkja; ef fer sem horfir.
Alþingismenn hafa guggnað | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook