Krían fyrir mynd kvenna?

ShockingSvampur þó þetta er vond athugasemd. Krían er ekki leiðindafugl og verðskuldar ekki að vera skotin. Ef þú ferð nógu oft í gönguferð til að sjá hana og hitta þá hættir hún að áreita þig. "Gargið" hennar hljómar sem fegursti söngur í mínum eyrum. Þessi mesti fluggarpur heims á skilið virðingu fyrir afburða hæfileika sína. Engin flugvél eða flugmaður stenst samanburð við hana í flugtækni.  Annars lætur krían  sér á sama standa um okkar álit. Hún ver sitt svæði og í æðarvarpi gefur hún aðvörun þegar rebbi er á ferðinni.

Gæti annars verið ágæt fyrirmynd fyrir okkur konur í lífinu þó ekki væri nema til að vara sig á "rebba."


mbl.is Krían komin á Nesið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband