Jón Kristjánsson aftur í ráðherrastól!

Ýmsir kostir í stjórnarmyndun eru í stöðunni. Heyrist að Framsókn ætti að verja Vinstri græna og Samfylkingu falli utan stjórnar. Ekki yrði það mjög stórt hlutverk því illa kynni þessum tveimur flokkum að ná  viðunandi stjórnartaumum. Lítilsvirðing fyrir Framsókn og yrði til aðhláturs fyrir þjóðina. Nei, þá er betri kostur núverandi stjórnarsamstarf með því skilyrði að flokkurinn marki  innanflokkstefnu sína. Tap Framsóknar í Norðausturkjördæmi er umhugsunarvert þótt uppbótarmaður hafi fengist, ágætismaður. Austurlandskjördæmi hefur lengst af verið vígi  Framsóknar, sem klippt var burt með framboðslista efstu sæta einungis að norðan.

Nú er tækifæri til að jafna leikinn með því að Jón Kristjánsson fyrrv. ráðherra setjist aftur í ráðherrastól. Hann stóð sig mjög vel enda mikill málafylgjumaður. Kemur málum sínum fram hávaðlaust, er ekki umdeildur í fjölmiðlunum,  vinsæll, vinsamlegur og  hógvær í framkomu. Alltaf tilbúinn að taka gagrýni á málefnalegan hátt.

Undirrituð leggur til að Jón Kristjánsson verði ráðherra hálft kjörtímabilið þá taki Bjarni Harðarson þingmaður við sem þá hefur fengið þjálfun sem þingmaður.

Undirrituð fær ekki séð að svona stór kjördæmi eins og nú  geti gengið upp. Þá verða flokkarnir að koma sér upp kosningareglum, sérstaklega í landfræðilega stórum kjördæmum. Framsóknarflokkurinn hefur ennþá meira fylgi úti á landi. Nauðsynlegt að dreifa þingmönnum um kjördæmin vegna mismunandi hagsmuna byggðarlaga. Félagshyggjuflokkur eins og Framsókn ætti ekki að vera í vandræðum með slík mál.

Vonandi vinnur Jónína Bjartmarz kæru sína til blaðamannafélagsins vegna árása á tengdadóttur hennar.

Það yrði aðhald fyrir fjölmiðla til að stilla reiði sinni í hóf gagnvart einstökum þingmönnum og flokkum.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband