Af hverju skrökvar Kolbrún Bergþórsdóttir?

Af hverju gerir Kolbrún  Bergþórsdóttir Jóni Sigurðssyni, fyrrverandi ráðherra upp ósannindi í blaðinu í dag? Segir Jón hafa sagst vera í leiðinni í mat en samkvæmt upplýsingum fréttamanns stövar2 væri hann kominn á fund, var hann ekki  samt á leiðinni í mat hefur annað komið í ljós?Fjölmiðlar/fréttamenn gera mikið af að tilkynna fyrirfram um "hitt og þetta", sem á að gerast á morgun jafnvel koma með fullyrðingu um niðurstöður af atburðum fram í tímann. Ágiskun kemur á undan veruleikanum- og sannleikanum. Veruleiki formanns Framsóknar er annar en hvað fjölmiðlar og Kolbrún Bergþórsdóttir vilja fá fram. Hvernig á formaður Framsóknar að lýsa yfir, að hann segi af sér, jafnvel þótt það sé líklegt? Yfirlýsing um afsögn getur ekki komið nema eftir fund með flokknum, opinberri yfirlýsingu eins og að sjálfsögðu gerðist..

Kolbrún virðist ekki skilja á milli hvað verður og niðurstöðu sem síðar kemur í ljós. Gat hún búist við að Jón  Sigurðsson væri svo fákunnandi stjórnmálamaður ( eða ósannindamaður), að hann lýsti yfir afsögn án fundar með sínum flokksmönnum?

Kolbrún gengur svo langt að brigsla Jóni um ósannindi og bregður  fyrir sig ritingargrein úr Biblíunni sér til stuðnings, tekur lokaorð úr ritningargrein.  Betur færi á að Kolbrún  íhugaði  ritningargreinina í heilu lagi: “Ef þér eruð stöðugir í orði mínu, eruð þér sannir lærisveinar mínir og munuð þekkja sannleikann, og sannleikurinn mun gjöra yður frjálsan” eða: "Reiði Guðs opinberast af himni yfir öllu guðleysi og rangsleitni þeirra manna, er kefja sannleikann með rangsleitni”.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband