26.9.2008 | 16:33
Á að reka Seðlabankastjórnina!?
Hvernig getum við almenningur búið við yfirlýsingar frá hagfræðispekingi, að stjórn seðlabankans eigi að fara frá þvert ofan í yfirlýsingar ráðgjafa ríkistjórnarinnar, Tryggva Þórs Herbertssonar? Hvorki Seðlabankinn eða Ríkisstjórnin geta sætt sig við þessi orð sem marglesin eru í fréttum á öllum útvarpsstöðvum í dag! Tæplega stjórnvöldum (-eða almenningi) í hag að grafið sé undan túrverðlugeika efnahagslífsins og stjórnvalda án þess að skýringar komi fram. Hvaðahagsmunir eru í húfi að að bera fram framagreindan brottrekstur á seðlabankastjórninni - eru það hagsmunir almennings í landinu - eða eru það hagsmunir bankanna sem grafa undan gegni krónunnar sér í hag í hvert skipti sem ársfjórðungsuppgjör er hjá þeim. Ef svo er - þá hvers vegna? Nú reynir á ráðgjafa Ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans að koma með skýr skiljanleg svör til að halda trúverðugleika sínum.
Ólafur Ísleifsson: Setja á stjórn Seðlabankans af | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:14 | Facebook