5.12.2008 | 05:29
Verðmætasköðun í auðlindum og tækniframförum
Það er þjóðhagslegur veruleiki að auka aflaheimildir í sjávarbyggðum allt í kringum landið ekki síst smærri byggðum þar sem útgerð - og landbúnaður gæti dafnað af miklum krafti þjóðinni til gjaldeyrisöflunar. Undanfarna áratugi hefur þessum greinum verðið gert erfitt fyrir um rekstur; óskiljanlegt í landi þar sem fyrrnefndar greinar ættu að bera uppi stærsta hlutann af atvinnu og byggðaþróun - þar sem ferðamennska hefði jafnframt en betri skilyrði til að dafna samtímis.
Hver hefur árangurinn verið vegna markvissrar eyðingar minni byggða landsins til sjávar og sveita? Hér á höfuðborgarsvæðinu standa auðar nýbyggingar engum til gagns - svo ekki sé minnst á íbúðir með myntkörfulán er ekki standa undir eigin virði - þar við bætist atvinnuleysi í stórum stíl - ekki síst hjá menntuðu ungu fólki er nú hefur misst vinnuna í verslunargeiranum;en munu innan skamms tíma verða sprotafyrirtæki framtíðarinnar í alþjóðaviðskiptum á sviði tækniframfara á mörgum sviðum.
Þegar "Nýa Ísland" rís úr rústum brasks með verðlaus hlutabréf á það framtíð á eigin gæðum, verðmætasköpun og menntun - ekki síst úti á landsbyggðinni.
Sýktri síld landað í Eyjum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook