Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011

Jóhanna forsætisráðherra: Ræna eldri borgara?

Smáglufa fyrir Jóhönnu, forsætisráðherra að geta rænt eldri borgar frekar með lagasetningu er helst eiga skuldlausar eignir. Ekki nægilegt fyrir hana að hafa skert kjör þeirra u 20%, fjrámagnstekjur 20%,  skattlagt  verðbætur á verðtryggðu sparifé, 20%. Hefur góðan stuðning innan raða Vinstri grænna, Árni Þór Sigurðsson þingmaður þeirra lét út sér á fundi hjá eldri borgurum, '' þeir lægju svo vel við höggi gætu illa varið sig'', auðvelt að taka af þeim fjármuni sína.

Velferðarstjórnin kann ekki að skammast sín.ShockingHalo

 

 

 


mbl.is Tryggingagjald lækki en auðlindagjald hækki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Stökkva vatni á gæs''

Þýðingarlaust að eyða púðri á Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra um það sem betur mætti fara ; líkt og að stökkva vatni á gæs. Eitt markmið heldur hún sig við, inngöngu í ESB, löngu lagt til hliðar vinsældir sínar sem talsmaður minnihlutahópa í samfélaginu, hefði farið betur að hún hefði víkkað þær vinsældir sín út i að standa með þjóð sinnu á erfiðum tímum; nei allt aukaatriði nema ESB.

Nú hefur hlaupið á snærið hjá velferðarstjórninni, fækkað um tvo í stjórnarliðinu að Sögn Össurar Skarphéðinssonar; allt mun auðveldara með stefnu stjórnarinnar. En verður það mjög lengi; ögrandi ummæli fyrir þá þingmenn er eftir standa og fylgja aldrei inngöngu í ESB?


mbl.is Grafalvarleg staða ráðherra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fræg leikkona fellur frá

Frábær leikkona látin, ógleymanleg í aðalhlutverkinu myndarinnar, ''Á hverfanda hveli'', þar lék hún á móti Villiam Clark Gabel  er kallaður var ''The king of Hollywood''. Hún var skapmikl leikkona lék  af mikilli innlifun, myndin er um borgarastyrjöld Suður- og Norðurríki Bandaríkjanna. Blessuð sé minning Elizabetar Taylor.Halo



mbl.is Elizabeth Taylor látin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hangir á hálmstrái

Steingrímur J. Sigfússon gerir ekki mikið með úrsögn Guðfríðar og Atla úr þingflokknum í '' málgagni sínu Rás 2'' enda verður allt gert til að sussa niður ágreininginn. Fólkið eða hagur þess er aukaatriði; aðalatriði að halda völdum. Telja má að Steingrímur hangi á hálmstrái í sínum flokki en eins og áður hefur verið nefnt er hann hálfur inni í Samfylkinguna ásamt Árna Þór, þingflokksformanni og Katrínu Jakobsdóttur, menntamálaráðherra?

Enn eru ekki öll kurl komin til grafar gæti komið hreyfing á Ásmund Daðason og Jón Bjarnason þegar sjávarútvegsmál og innganga ESB verða rædd frekar. Guðfríður Lilja Grétarsdóttir kemur senn á þing. Þá gæti skorist alvarlega í odda í Vinstri grænum og Steingrími nægi ekki að sitja undir pilsfaldi Jóhönnu Sigurðardóttur, forsætisráðherra?

Ekki of sagt að Steingrímur hangi í hálmstrái sem formaður flokksins.

 


mbl.is Úrsögn nýtur ekki mikil stuðnings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkandi vextir í vestrænum heimi

Harmakvein frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum á fundi í Kína; vestræn ríki og Japan verða að lækka skuldir, fyrirsjáanlega eru hækkandi vextir. Liggja verður fyrir trúverðug skilyrði um lækkun á skuldum í nánustu framtíð sagði aðstoðarforsjtóri AGS.

Hvernig getur ríkisstjórninni dottið til huga að þjóðin greiði Icesave III í erlendum gjaldeyri það er óhugsandi; hækkandi vextir munu hækka Icesaveskuldinar  um mörg hundruð milljarða.

Ekki kemur til greina annað en fella Icesave III 9. apríl n.k.;  eru hreinir og klárir þjóðarhagsmunir ef horft er til erfiðrar stöðu umræddra stórþjóða - og íslensku þjóðarinnar.


mbl.is Vestræn ríki verða að minnka skuldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Uppgjör: Ísland efnahagslega sjálfstætt eða innganga í ESB?

Hlaut að koma að uppgjöri hjá Vinstri grænum er hafa undir forystu formannsins verið ''skósveinar''  Samfylkingaunnar;Steingrímur vill greiða Icesave III þótt það snúist um efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar,viðurkenna jafnframt að þjóðin greiði skuldir einkabanka /óreiðumanna. Steingrímur samþykkir óhóflegar skattaálögur á þjóðina er ekki ná takmarki sínu nema standi í vegi fyrir afkomu smærri og lítilla  fyrirtækja. Steingrímur vill halda áfram samningum um ESB þótt liggi nánast fyrir að íslenskur landbúnaður leggist af og veiðiheimildir ákveðnar í Brussel. Steingrímur hlýtur að vita að greiða á Iscesavesamninginn  til að þóknast ESB; þá liggur fyrir að þjóðin fær inngöng, það er aðalmálið.

Minnsta áhættan vegna Icesave er að greiða ekki, þá falla kröfur í íslenskum krónum og verður þjóðinni hagkvæmara enn að greiða í erlendum gjaldeyrir sem er mun áhættusamara vegna þess að krónan getur lækkað er gerir skuldina ófyrirstíganlega.

Engin furða þótt Bretar vilji fá sæstreng fyrir rafmagn frá Íslandi vitandi að þjóðin mun fyrr eða síðar missa efnahagslegt sjálfstæði vegna skulda.


mbl.is Segja sig úr þingflokki VG
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Göngum ekki fram hjá

Þeir komu til Jeríkó. Og þegar Jesús fór út úr borginni ásamt lærisveinum sínum og miklum mannfjölda sat þar við veginn Bartímeus, sonur Tímeusar, blindur beiningamaður. Þegar hann heyrði að þar færi Jesús frá Nasaret tók hann að hrópa: „Sonur Davíðs, Jesús, miskunna þú mér!“ Margir höstuðu á hann að hann þegði en hann hrópaði því meir: „Sonur Davíðs, miskunna þú mér!“
Jesús nam staðar og sagði: „Kallið á hann.“
Þeir kalla á blinda manninn og segja við hann: „Vertu hughraustur, statt upp, hann kallar á þig.“
Blindi maðurinn kastaði frá sér yfirhöfn sinni, spratt á fætur og kom til Jesú.
Jesús spurði hann: „Hvað vilt þú að ég geri fyrir þig?“
Blindi maðurinn svaraði honum: „Rabbúní, að ég fái aftur sjón.“
Jesús sagði við hann: „Far þú, trú þín hefur bjargað þér.“
Jafnskjótt fékk hann sjónina og fylgdi honum á ferðinni. 
Biblían Mrk 10.46-52

 

Hvert sem litið er má finna fólk  í nauðum, margir ganga fram hjá skeyta ekki um náungann; allir þurfa einhvertíma á hjálp að halda,verum viðbúin að hjálpa öðrum, göngum ekki fram hjá.

Reynum að fylgja Kristi er aldrei  gengur fram hjá þeim er bágt eiga,  sýnum hjálpsemi og kærleika í samskiptum okkar.Halo

 


Umönnun aðeins líkamleg - félagslegar þarfir sniðgegnar?

Er það ný atvinnubótastefna að ákveða bætur handa fyrrverandi vistheimilisbörnum er hafa verið beitt kúgun og smán; vistheimilisnefndir/sérfræðingar á himinháum launum að meta hvað hver fær? Kostnaður við matið  meiri en ''smánarbæturnar.'' Verður meðferð þessara barna nokkurn tíma hægt að meta til fjár; væri ekki nær að útvega þeim jafnframt betri viðverustað í tengslum við ættingja sína eftir því sem hægt er. Hverjum ætti að þykja vænna um börnin en þeim sem næst þeim standa?

Meðferð barna/unglinga á  vistheimilum var lengi ''leyndarmál'' er ekki mátti segja frá; en gæti ekki víða verið pottur brotinn þar sem ummönnun fer fram. Kom fram í Kastljósi RÚV í vikunni, að umönnun  á mörgum öldrunarheimilum væri ábótavant; ekki mátti nefna hver þau væru. Samt spor í áttina að rannsókn hefur farið fram og liggur nú hjá landlækni en sem ''leyndarmál''. Jafnframt kom fram að vel væri hugsað um heimilisbúa hvað mat og hreinlæti varðar en margir hverjir tækju of mikið af lyfjum, alt að því níu lyf á hvern heimilismann.

Félagslegu  hliðinnni var ábótavant mikil vanhugsum ef félagsleg umönnun  heimilisfólks er ekki til staðar; þá koma fram geðræn vandamál/hegðunarvandamál er ekki ætti að leysa með lyfjagjöf að ástæðulausu . Hvorki ummönnun aldraðra eða barna á vistheimilum verður bætt með fébótum; virðist þurfa eftirlit að staðaldri og umbætur gerðar reglulega eftir þörfum.

Óviðunandi að fólk er ekki getur borið hönd fyrir höfuð sér fái ekki mannsæmandi aðbúnað í þjónustu félagslegrar  umönnunnar. Peningaleysi verður ekki eingöngu um kennt heldur vöntun á kærleika er ekki  verður numinn í háskóla; heldur siðferðileg /kristin innri tileinkun í hjarta hvers og eins.

Góða helgi WounderingHalo

 


mbl.is Nefndarmenn fá meira en þolendur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enda Kenny vill bjarga þjóð sinni - en Jóhanna forsætisráðherra?

Ólíkt meiri reisn yfir forsætisráðherra Írlands, Enda Kenny, reynir að verja írska skattborgara fyrir björgun þarlendra banka; en íslenska forsætisráðherranum Jóhönnu Sigurðardóttir. Nú reynir á ESB að sýna reisn sína og jöfnuð að lækka vexti á bankabraskinu; Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur ekki gefið sig út fyrir að vera bjargvættur gjaldþrota ríkja hinsvegar hefur ESB boðað jöfnuð og réttlæti hvað sem það merkir í raun.

Athyglisvert fyrir Íslendinga að fylgjast vel með hvernig Enda Kenny, forsætisráðherra Íra tekst í viðureigninni við ''góðgjarna'' ESB-risann.

Lán í óláni fyrir okkur að hafa átt Davíð Oddson sem seðlabankastjóra er þorði og framkvæmdi; - bjargaði þjóðinni frá gjaldþroti með falli bankanna, 2008. Mun reynast þjóðinni farsælla vegarnesti en innganga í ESB.

Nema núverandi forsætisráðherra takist með ofursköttum og greiðslum Icesave, að koma þjóðinni endanlega á vonarvöl;- aðeins eitt takmark Ísland til Brussel.WhistlingHalo


mbl.is Ósanngjarnt að skattborgarar greiði allt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórnin dragbítur á atvinnulífið- Landsvirkjun fær samt lán.

Athyglisvert, Landsvirkjun fékk 8 milljarða kr. lán í Búðarhálsvirkjun án stuðnings ríkistjórnarinnar,  hefur lánstraust; hvernig ætti annað að vera? Vatnsorkan er góður fjárfestingakostur er gefur góða ávöxtun þegar til framtíðar er litið. Hins vegar mun fyrirtækjum smærri og áhrifaminni en Landsvirkjun ganga verr að fjármagana sig vegna skattastefnu ríkisstjórnarinnar; engar horfur eru á breytingum, ríkisstjórnin mun seint greiða leið fyrirtækja til atvinnusköpunar.

 Stefnan virðist vera að ná ''rússnesku tangarhaldi'' á atvinnulífinu er síðan á að miðstýra; skref í átt að þjóðnýtingu er aldrei hefur leitt af sér annað en kúgun og fátækt almennings. Hvort sem Icesave III verður samþykkt eða ekki, verður  sama stefna ríkisstjórnarinnar. Nema ef Icesave III verður samþykkt, gæti orðið auðveldara yrði fyrir Samfylkinguna með hjálp ESB að neyða Íslendinga til inngöngu; reikna má með að Steingrímur J. Sigfússon verði þar liðtækur skósveinn; gæti jafnvel gengið í Samfylkinguna með hluta Vinstri grænna ef svo ber undir?SidewaysHalo

 

 

 

 


mbl.is Fjárfesting fari í 18-20%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband