Bloggfærslur mánaðarins, mars 2011
2.3.2011 | 12:19
Bakari fyrir smið?
Allir fjölmiðlar hafa staðið á öndinni í morgun og undanfarna daga vegna ákæru á hendur Baldri Guðlaugssyni, ráðuneytisstjóra, sérstaklega RÚV, ekki verið að mæla því bót að ráðuneytisstjórar brjóti lög. En málið verður hjákátlegt í samanburði við bankastjóra einkabanka er hreinsuðu mest allt fémætt úr bönkunum, enginn hlotið ákæru hvað þá dóm á tveimur og hálfu ári. Allt virtist í stakasta lagi fram á síðasta dag í fjármálakerfinu, matsfyrirtækin/greiningadeildir lýstu ánægju sinni skömmu áður; allt á uppleið; enginn sætir ábyrgð hvorki þeir er beinlínis sögðu ósatt þar með talin matsfyrirtæki og greiningadeildir bankanna.
Vonandi er ekki verið að hengja bakara fyrir smið.
![]() |
Neitar að hafa búið yfir innherjaupplýsingum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.3.2011 | 02:09
''Ungir til dáða gamlir til ráða''
Gott að ungir og aldnir hittist og uppfræði hverjir aðra, í hraða nútímatækni hafa margir þeir sem eru á efri árum ekki átt þess kost að kynnast tölvutækni. Unglingar í dag læra á tölvur strax í bernsku muna ekki eftir öðru. Með samskiptunum opnast nýr heimur fyrir eldri borgurum þeir geta fylgst miklu betur með líðandi stund. Athafnaþrá unglinga nýtur sín í uppfræðslunni, þeir njóta sinna eigin verka- annars er voðinn vís: Of lengi má ungur maður hóglega lifa, þá verður aldrei úr honum dugandi bóndi segir gamall málsháttur''.
Kjarni allra spakmæla um æsku og elli kristallast í einu þeirra: Ungir til dáða, gamlir til ráða, en dáð merkir hér að vinna verk. Hér kristallast spakmælið ef til vill með öðrum hætti þar sem sá eldri verður neminn um stund en það breytir ekki gildi spakmælisins; eflaust fá hinir ungu reynslu og kynni af þeim eldri sem verður þeim dýrmætt vegarnesti.
![]() |
Kenna eldri borgurum á tölvur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:57 | Slóð | Facebook
1.3.2011 | 10:50
Ríkisstjórnin: Halda kosningafylgi- en hagsmunir almennings?
Öll rök hníga að skattur ríkisins af bensíni verður lækkaður, gengur ekki lengur að ríkisstjórnin komist upp með andþjóðfélagslega stefnu gegn heimilum og fyrirtækjum í landinu; -með ofur sköttum. Skattar eru langt yfir hættumörkum fyrir almenning nú þegar; nú lét Steingrímur, fjármálaráðherra hafa eftir sér í fjölmiðlum í morgun að frekar ætti að leita leiða að nýjum orkugjöfum ; ráðherrann virðist ekki vera í neinni tengingu við ástandið í efnahagsmálum; hvernig er hægt að láta sér detta í hug langtíma verkefni á nýjum orkugjöfum mitt í efnahagsþrengingum - er auk þess eru alþjóðlegt verkefni?
Skynsamlegur samdráttur er skárri leið en það vilja ríkisstarfsmenn ekki; Þeir eru að stærstum hluta fylgjendur vinstri stjórnarinnar. Staðreyndin er hins vegar að Steingrímur er hræddur við fylgishrun ef hann fer ekki eftir skattaráfgjöfum sínum; - frekar mega þrengingar fólks og fyrirtækja eiga sig.
![]() |
Eldsneytisverð í hæstu hæðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.3.2011 | 04:56
Þjóðin stendur ekki undir Icesaveskuldinni!
Háskólamennirnir Ólafur Ísleifsson,lektor, Þórólfur Mattíasson, prófessor, Gylfi Magnússon, lektor fyrv. viðskiptaráðherra (Mbl í gær bls14) sendu frá sér yfirlýsingu þegar átti að greiða Isesave II, að allt færi á versta veg ef þjóðin greiddi ekki;- ekkert gerðist. Vilhjálmur Egilsson grenjaði eins og venjulega; - umhugsunarvert þegar virtir háskólamenn taka undir grátinn, hætta sínu fræðilega áliti með beinlínis pólitískum yfirlýsingum, munu þeir njóta trausts sem slíkir í framtíðinni?
Nú má telja 60 til 80% af fjölskyldum berjist í bökkum, að halda heimilum sínum á floti eiginlega ekkert eftir nema fyrir salti í grautinn með útsjónarsemi. Vaxtabætur eru ekki leiðin, hitta seint eða aldrei í mark til þeirra er þurfa kjarabætur; leiðir aðeins af sér hærri skatta en enga kjarabót?
Fyrr eða síðar mun brjótast út almenn reiði vegna sífellt hærri skatta vilja stjórnvöld fá fólk æðandi út í mótmæli líkt og í löndum Afríku?
Þingið þarf að lögleiða lægstu laun til að bjarga stórum hluta af umræddum fjölskyldum. Síðan Geta Vilhjálmur Egilsson og Gylfi Arnbjörnsson samið um laun handa þeim er meira hafa. Forysta verkalýðshreyfingarinnar stendur ekki undir nafni sem hagsmunasamtök þeirra er minna hafa. Ef lægstu laun yrðu lögleidd þá yrðu þeir sem hærri laun hafa að stilla kröfum sínum í hóf. Engin önnur lausn er á launakröfum eins og ástatt er í þjóðfélaginu.
Er ekki komin tími til að velferðarstjórn Jóhönnu,forsætisráðherra geri tilraun að standa undir nafni?
![]() |
Icesave þýðir hærri skatta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |