24.10.2019 | 14:59
Stjórnunarvandi á hjúkrunarheimilum.
Ófaglært ungt fólk er uppistaða í aðhlynningu á hjúkranaheimilum. Besta fólk en vantar leiðbeiningar og skipulagningu,mæting er upp og ofan, þá er ekki brugðist við og gert það nauðsynlegasta.Margt af þessu unga fólki er ópersónulegt, að það nálgast að vera útbrunnið í starfi.
Alltaf þarf að mata einhvern, það gert á tilgangslausum hlaupum fram og aftur við matborðið ein og ein skeið í einu; fólk er yfirleitt nokkuð sjálfbjarga; getur meira og minna hjálpað sér sjálft og hvert öðru;en það má helst ekki - af hverju?
Foræðishyggjan óskapleg - ekki má heyrast hósti né stuna þá er komið með írafári og manni borðin fylgd inn til sín - ekkert að og fólkið sem þarf á þjótstuna situr með sárt ennið?
þvotturinn er sér kapítuli út af fyrir sig þó hann sé yfirleitt merktur. Hann er tekinn, þegar hann kemur, þá settur í skápana án án þes að við sjáum.- ef vantar þvott þá á að gefa lýsingu sem er send í tölvupósti -sem enginn les - ef það er ekki nægilegt á að hafa samband við einhvern yfirmann sem ekki er einu sinni í húsinu.
Ef vantar á vaktina er er ekki skipulagt hvað þarf að að vera forgangi - enginn skipuleggur vinnuna allt verður miklu erfiðara.
Launin þykja lítil - er ekki geri ég lítil úr því - samt verða menn að fylgja skyldum sínum. Kaupið er nánast orðin fóbía og hefur áhrif á áhugaleysi fólks- sem ekki er neitt sjálfsagt.
Aldrei hefur verið eins góð aðstaða; nú lyftur fyrir sjúklinga sem áður þurfti að bera af minnst fjórum í einu. Þetta er kerfislegur vandi er gerir vinnuaðstæður nánast óbærilegan; kerfið stjórnar sér sjálft.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:35 | Slóð | Facebook
23.10.2019 | 22:32
Vandinn í heibrigðiskerfinu
Að mörgu leyti hægt að taka undir með Ásmundi þingmanni um stjórnunarvanda í heilbrigðiskerfinu en fleiri yfirstjórnir bæta ekki vandan.
Við þurfum ekki fleiri yfirstjórnir heldur verður að færa stjórnina nær veruleikanum á hverri vakt.
Þekki breytinguna þegar mötuneytið í Fossvogi var flutt niður á Lansann; allt kerfið sett undir einn hatt; of margir stjórnendur sem stjórnuðu með misvísandi tölvupósti utan úr bæ; man eftir einum stjórnanda er vann á Mbl skrifaði um stjórnun
Starfsfólkið í eldinum hvern dag hefur lítil samskipti milli vakta; nema í tölvupóstum sem enginn nennir að lesa.
Hér var ekki um stóra einingu ræða en gefur vísbendingu um að mannleg samskipti eru nauðsynleg en ekki fyrirskipanir utan úr bæ.
Hef um nokkurt skeið setið hinu megin við borðið sem sjúklingur á mörgum deildum; sami vandinn er óbreyttur verra ef nokkuð er.
-Nei,það þarf að bæta öll mannleg samskipti og vaktstjórinn hafi yfirsýn hvernig á að skipuleggja daginn-
22.10.2019 | 16:08
Vegafæði eða íslensk framleiðsla.
Nýjasta skúbbið frá Landsþingi Vinstri grænna; alls ekki borðað lambakjöt ekki vænlegur flokkur til að styðja íslenskan landbúnað. Er betra að lifa á innfluttu káli og baunum. Hver heldur því fram að grænmetið sé vistvæn fæða" fremur en lambakjöt frá okkur sjálfum er lifir frjálst úti á heiðum landsins.
Dvaldist á sjúkrahúsi með konu er hafði alvarlega sýkingu í lifur vegna þess hún borðaði grænmeti, innflutt þokkabót; lét sér ekki segjast fékk vegafæði hvern dag utan úr bæ.
Ekki veit ég hvernig konunni farnaðist en á grænmeti ætlaði hún að lifa eða deyja.
Mikil var trú þín kona.
Eða áróður um að kolefnisjafna þetta of hitt svo sem forarmýrar er enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi.
Þannig var ástandið heima hjá mér;hættið þessu bulli og látið skynsemina ráða.
Ekki minni líkur að ósonlaginu verði lokað með vísindalegu hætti.
Ekki var minna hlægileg minningarathöfnin um Okið; boðaði heimsenda fyrr en síðar. Fjölmiðlar gleyptu agnið, þvílík uppakoma.Hefur Okið ekki horfið áður fyrir ekki svo löngum tíma?
Væri ekki skynsamlegra að snúa sér að mengun í borginni og ferðamannaskipum er kom nú í röðum til landsins vegna þess að aðrar þjóðir vilja ekki mengun þeirra?
21.10.2019 | 18:08
Stjórnarskráin - grunnlög þjóðar
Að endurskoða stjórnarskrána;virðist vera markmið svokallaðra vinstri flokka; helst að rífa plaggið í tætlur á einu bretti.
Þyrnir í augum þessa fólks er einungis að breyta breytunnar vegna; grunn lög þjóðar eru undirstaða lýðræðis;svo mun vera áfram.
Hverju ætlar fólk að breyta,hætta við hlutfallskosningar og færa allt til Reykjavíkur; er ekki nóg að stjórnkerfið hafi þar aðsetur.
Enginn þingmaður er í Washington; af hverju; þar situr allt stjórnkerfi ríkja USA.
Hvernig ætlar fólk að hafa eignarhald á auðlindum;verða þær þjóðnýttar með réttlátum hætti, eða fáum við enn einn "orkupakann"?
Nei,en það er markmið félagshyggjunnar; eins og ríkiskerfið hefur nú reynst í Sovét að ekki sé minnst á þúsund ára ríkið er lagði alla Evrópu í rúst.
Betra er að fara hægt í sakirnar og í upphafi endirinn skoða.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:30 | Slóð | Facebook
19.10.2019 | 15:29
Sameinuðu þjóðirnar leggja áherslu á fæðuöryggi (FAO).
Matvælaskortur er vaxandi áhyggjuefni um allan heim; yfir einn milljarður búa við alvarlegan fæðuskort og enn annar milljarður þjáist af bætiefnaskorti. Fæðuöryggi verður ekki slitið úr samhengi við þróun landbúnaðar; alls ekki er önnur staða hér á landi.
Sameinuðu þjóðirnar miða við að hvert land geti búið sem mest að sínu er dragi út togstreitu og átökum út af fæðuskorti. Þjóðir sem búa að sínu eru betur í stakk búnar til að mæta náttúrhamförum, sjúkdómum eða styrjöldum er upp kunna að koma.
Íslenskur landbúnaður er í skotlínu tækifæris sinna; þjóðin verður að halda vöku sinni.Stjórnmálin sleppa að mestu umræðum og lítið tillit tekið til aðvörunar FAO um fæðuöryggi;að allir tryggi öryggi sitt fyrir eigin lýðheilsu.
Ábyrg fisveiðistefna er einn af þeim þáttum er FAO legur áherslu; sem er í nokkuð góðu ástandi hér miðað við aðrar fiskveiðiþjóðir.
Hafa engir stjórnmálflokkkar vaknaðaf af Þyrnirósarsvefni um matvælaöryggi; er samt annað mál; að trygga öryggi íbúa gagnvart fæðu úr nærumhverfi. Innflutning matvæla verður að minnka og fækka heildsölum er beita þrýstingi til meiri og meiri innflutnings.
Vinstri grænir á Landsþingi sínu fara mikinn um veganfæði; þar vanti áherslur; en leysir alls ekki yfirvonandi matvælaskort framtíðarinnar.
Hvers vegna eru þingmenn kærulausir um ofangreind mál?
Enginn tekur ábyrga umræðu; hvaða þingflokkuar hafa tekið á þessum málum?
Hvar eru Miðflokkurinn og Framsókn!?
18.10.2019 | 21:07
Eigið góða helgi og sunnudag.
Eigið öll góðan sunnudag:
BÆAN UM SJÖ GJAFIR HEIKAGS ANDA: Skilningur Andi skilnings, veittu mér ljós, svo að ég megi þekkja og elska sannleika trúarinnnar og að ég eigni mér hann.
Bæanakver Kaþólska kirkjan á Íslandi
Sigríður Laufey Einarsdóttir
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook
17.10.2019 | 23:24
Árásir á ísl. landbúnað - forsetinn láti rödd sín heyrast sem allra fyrst!
Hart er sótt að landbúnaði hér á landi þrátt fyrir loforð um gull og græna skóga. Ranglát gagnrýni að sauðfjárrækt sé dýr, hægt að flytja inn ódýrari vörur;r óvægin umræða um loflagsmál en engar áhyggjur af fæðuöryggi þjóðarinnar.
Sama umræða er um framleiðslu svínakjöts,alfuglakjöts, nautakjöts og mjólkauafurða ;Rafmagn ætti að leggja til á hagstæðu verði;er forsenda fyrir að ylrækt blómgist
Byggðasjónarmiðin er samtengd ferðaþjónustunni hér á landi hvar eru talsmenn landbúnaðar á Alþingi?
Forseti Íslands þarf að taka á þessum málum; löngu kominn tími til að hann láti rödd sína heyrast um landsbyggðina!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.10.2019 kl. 21:13 | Slóð | Facebook
16.10.2019 | 23:33
Ísland versus Bandaríkin eða kína?
Kína og Bandaríkin eru tvö stærðu hagkerfi heims og gætu skilist að og beitt hvort fyrir síg áhrifum á viðskiptin um allan heim. Kínverjar gætu seilst til áhrifa á ferðamennsku hér á landi og vilja nota Norður skautið fyrir siglingar;hvenær verður Ísland álitið mikilvægt í því ferli?
Bandaríkin hafa brugðist við þeim vanda með auknum hernaðarumsvifum í Keflavík; Ísland hefur ekki langan tíma til að ákveða sig? , varaforsetinn kom hingað til lands og lagði áherslu að Ísland notaði ekki svokallaðan 5G-búnað frá Huawei.
Mörg spil verða á lofti en telja verður að Ísland fylgi vestrænu hagkerfi. Tolla stríð Kína og USA hefur sín áhrif?
Donald Trump, forseti USA hefur hafið tollastríðið; skiptir miklu máli að hann verði endurkjörinn;að hann verði ekki skotinn niður í þessu ógnvekjandi viðskipta stríði sem ógnar framtíðinni norðurslóðum og öllum heiminum?
15.10.2019 | 19:59
Heilbrigðiskerfið -Heibrigðiráðherra
Þörf umræða að brjóta til mergjar vinnufyrirkomulag frá augum þess er hefur kynnst veruleikanum sem sjúklingur; hef dvalið á fimm stofnunum á stuttum tíma.
Sérhæfingin alls ráðandi -allt er komið undir einn hatt-sjá um matinn,aðhlynningu ófaglærðra - þá sjúkraliðar og hjúkrunarfræðingar.
Starfsfólkið gerir sitt besta, er undir miklu álagi,séð með augum sjúklings- og starfsmanna - nánast sem stjórnleysi þeirra í milli; ef fólk veikist þá er lítil sem engin skipulagning hvað sé nauðsynlegt að gera þann daginn.
Nóg er álagið þó skipulagsleysi og stjórnleysi bætist ekki við. Eiginlega allt komið í kerfi -lítil samskipti milli fólks -má segja að kerfið sé eins og grimmt dýr sem engum þyrmir.
Fer ekki dýpra í sérhæfinguna en er til staðar upp allan skalann. Sjúklingar er fara t.d. í krabbameinsskurð, hálfgert færiband - sjúklingurinn orðinn verkefni - lítil samskipti, margir fara inn skelfingu losnir;en það er engin miskunn -þarf að ganga fljótt fyrir sér.
Verðugt verkefni fyrir heilbrigðisráðherrann og aðstoðarmanns hans -að huga að betri skipulagningu,þá yrðu störfin léttar - nóg er álagið samt?
Launin eru lítil, bætir ekki úr skák, að stjórnleysið virðist vera "fíllinn í stofunni"- nánast óbærilegt bæði fyrir starfsfólk og - sjúklinga.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.10.2019 kl. 00:15 | Slóð | Facebook
14.10.2019 | 11:34
Sameining sveitafélaga?
Sameining sveitarfélaga hefur lengi verið í burðarliðnum einu sinni nefnt "þriðja stjórnsýslustigið".Þó nokkur reynsla hefur komið í ljós -minnist þess hvernig Bakkafirði/Skeggjastaðahrepppi var eytt.
Kom til Bakkafjarðar sem kennari, 1990. Þá var þar blómlegt byggðalag. Skóli,heilsugæsla,verslun, pósthús og öflug björgunarsveit,fiskvinnsla og uppbygging Hraungerðis til verkunar grásleppuhrognum -fiskvinnslan á brauðfótum - Fiskvinnslan endaði með að flytja fisk frá Hafnarfirði til Bakkafjarðar.
Gott vegasamband orðinn veruleiki milli Bakkafjarðar og Vopnafjarðar- öll bankastarfsemi - í Vopnafirði - allt virtist stefna í rétta átt.
Rannsaka þarf afskipti ríkis, stjórnsýslunnar í Sjávarútvegi áhrif sameiningu kirkjunnar þar sem elsta kirkjan á Austurlandi varð eiginlega lögð niður
-Hvaða áhrif höfðu pólitísk öfl á þetta sorglega ferli?
Tag Friends Check in Feeling/Activity |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.10.2019 kl. 00:16 | Slóð | Facebook
13.10.2019 | 22:13
Hláturgas - bakterían Paracoccus lokar ólonlaginu á suðurpólnum?
Fróðlegt að hlusta á viðtal fyrv. forseta Ólafs Ragnars Grímsson um loftlagsmál.
Lagði hann áherslu á vísindin þyrftu meira rími í umræðunni.
Rakst á fróðlegan pistil í "Lifandi Vísindum",um svokallað hláturgas sem er um 10% af losun manna á gróðurhúsalofttegundum og 300sinnum öflugri en koltvísýringur.
Takist að draga úr hláturgasi leysist annað vanda mál,gatið á ósonlaginu yfir suðupólnum lokast mun hraðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:21 | Slóð | Facebook
11.10.2019 | 23:17
Göngum hægt um gleðinnar dyr
Get fallist á skoðun Styrmis - heimilin voru sett hjá. Hvers vegna? Bankarnir eig sína sök- hvöttu ungt fólk til að taka stór húsnæðislán, lækkuðu vexti margir tóku meira; keyptu sér nýja bíla og hvaðeina, sonur minn tók aðeins það sem þurfti - lenti ekki í vandræðum en þau eru ekki með há laun.
Jóhanna og Steingrímur gerðu ekki sitt besta eins og frægt er orðið; Steingrímur undir pilsfaldi hennar.
Katrínu haldið niðri alltof lengi; finnst ún vera hryggurinn í núverandi stjórn.
Jóhanna setti á alræmdan auðlindaskatt sem bitnaði á eldri borgurum er áttu stórar eignir en strýpuð ellilaun.
Þekkti marga sem voru á vandræðum, ekki var hægt að selja þessar eignir enginn gat keypt þau.
Eftir að krónan féll;Urðu þeir sem tóku áhófleg lán urðu hreinlega gjaldþrota.
Sama sagan gerðist í USA þrátt fyrir miklar aðvaranir.
Unga fólk fætt um alda mótin eru sparsamt og gætið en eru ekki bankarnir byrjaðir sama leikinn?
Það eru bankarnir sem þurfa eftirlit- minnistæður áróður þeirra fyrir hrun, hringjandi í eldri borgara til að kaupa hlutabréfVeit. Viss um einn gjaldkera er var skipað til verka af æðstu stjórn annars yrði hún rekin - svo var henni kennt um;var færð í annan banka varð syndahafurinn í kerfinu eftir hrunið.
Minnir þetta ekki á kerfi fasista/nasista, er komu á svoleiðis kerfi; síðar viðurkennt sem hrein kúgun; Skyldi eftir ftir sig rjúkandi rústir um allan Evrópu ogallan heim.
Þar voru Japanir verri en nasistar ef marka má réttarhöldin í Tokyó. þar komu saman mestu friðarsinnar frá öllum helst löndum;USA,Rússlandi,Bretlandi,Japan og fleiri löndum.
Eru ekki svipuð kerfi að eyðileggja alla mannúð -dökka hliðin tölvunnar eyðileggur mannleg samskipti
Kerfið sjálfvirk ófreskja,mikla sérhæfingu, fíllinn í stofu heimilanna, heilbrigðiskerfið,- að ekki sé minnst á Sjúkratryggingar og tryggingastofnun ríkisins.
Þekki það af eigin reynslu sárri reynslu.
Göngum hægt um gleðinnar dyr.
.
Eigið góðan sunnudag minnumst ljóðlína vökumanna Davís fra Fagraskóg:
"þá kalla þeir á drottin
gegnum kvalabál.
Himnaríki opnast
eldskírðri sál -
Styggið ekki vökumenn
er stara í myrkið"
5.10.2019 | 19:57
" Blessaða sjón!"Því úr blágresi brosir mér enn bani..."
Hef ekki skilið við þjóðskáldið Mattías. Kom frá jarðaför eins og oft vill verða; Við eldri borgarar kveðjum samtíma fólk oftar en þeir yngri sem er eðlilegt. Aldrei er farið að jarðarför öðruvísi en að sjá kvæði Mattíasar eða trúarhátíðir jól og páska. Er í minni kvæði hans
"Ég kveiki á á kertum mínum-"--
Hann braust til mennta bláfátækur varð mikill prestur og þjóskáld með einlægt kristið hjarta.
Það vita fáir að hann ógnaði kirkjuvaldinu með frjálslyndi sínu. Þeir vildu á tímabili taka af honum hempuna - en það þorðu ekki gegn honum vegna vinsælda þjóðarinnar.
Var sókn sinni á Akureyri ómissandi sálusorgari og menningarlegur leiðtogi í samfélaginu enda byggðu akureyringar Sigurhæðir, vildu bæta aðstæður hans með stóra fjölskyldu og hafa frið við ljóðagerðina
Það er óhugsandi að Akureyrabær sýni skáldinu óvirðingu að koma ekki að rekstur hússins hins vegar varpaði hann ljóma yfir Akureyri og gerir enn.
- Verður Davíðs eða Nonnahús næst?!
Það er menningarleg skylda ykkur Akureyringa, að hafa forystu á þessum málum - ekki síður til fyrirmyndar komandi kynslóðum; kenna þeim þeim að virða skáldjöfra og samfélagslega leiðtoge sem sannarlega var Mattías Johcumson.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.10.2019 kl. 22:22 | Slóð | Facebook
4.10.2019 | 03:35
"eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár"..........
Hvað er Akureyrabær að hugsa; hvers vegna selja burtu heimilið í minningu þjóðskáldsins, Mattíasar Johcumsonar. - kær eign síðustu þriggja kynslóða.
Allir sitja með farsíma, vita hvað Trunmp, forseti USA er vondur maður enda er vel futt í vafasömum "fréttum".
Blessuð börnin á grunnskóla, jafnvel unga fólkið í Háskóla, komið með margar prófgráður veit of lítið ð um þjóðmenningu?
Unga kynslóðin þekkir þjóðsönginn afar vel,hvert mannsbarn,er leikinn heima og erlendis.á öllum íþróttaviðburðum, vita vita ekki hver orti þjóðsönginn.
Helst vill RUV leggja niður þjóðsönginn, aðeins leikinn á sunnudagskveldum - og morgunbænina. Sjaldan kvöldsagan lesin eftir þjóðskáld er farin eru fyrir stapann, "listin"" vel kynnt af RUV í öllum fréttum og "Krakkarúv", allt gott um það - verða "fræg" Á RUV en aldrei þjóðareign.
Kominn tími á að RUV dragi saman reksturinn - er að vissu leyti þröskuldur í góðri allhliða list og þjóðarmenningu.
Svo mörg eru þau orð. Góða nótt.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 13.10.2019 kl. 22:23 | Slóð | Facebook
1.10.2019 | 00:34
Heimildarmynd skömmu eftir seinna stríð.
Heimildarynd var sýnd í sjónvarpinu seint í gærkveldi, dramatísk mynd sett á svið skömmu eftir seinni heimsstyrjöld. Hlutverkin eru tveir menn annar ungur lögfræðingur hinn hermaður er var sendur 17ára í til fangabúða nasista. Lögfræðingurinn fullur haturs til þjóðar sinnar þegar réttarhöldin í Nurnberg afhjúpaðu Holokost hryllingin; dráp sex milljóna gyðingum vítt og breitt um Evrópu, alls féllu um áttatíu milljónir samtals.
Þessir tveir pólar tókust á,sá sem lék hermanninn var þögull búinn á sál og líkama en vildi sam sem áður frið - hatur gæti ekki haldið áfram.
Átökum þeirra lauk með að þeir fara saman að til Nurnberg; urðu þar sammála að friður um allan heim væri yrði lausin.
Japanir voru verri en nasistar ef eitthvað er var, hafði dreymt um heimsyfirráð í margar aldir, sá heimildarmynd af réttarhöldunum í Tokyo eftir seinna stríðið.
Þeir voru afar grimmir, vildu ekki semja um stríðslok við USA og Evrópu fyrr en Bandaríkin höfðu varpað vetnissprengju á Hirosima. Vsr boðin friður eftir fyrri sprengjuna en neituðu, þá kom önnur sprengja á Nakasai.
Japanskeisari tók loks af skarið og samdi um frið við vestrænar þjóðir sem hefur reynst farsælt.
Man ekki eftir seinni heimsstyrjöld en skynjaði hræðslu langt fram eftir aldri við sprenguflugfélar er flugu yfir Fljótsdalshérað eftir árásina í Seyðisfirð.
Við höfum gott af að rifja upp seinni heimsstyrjöld, - um rústir allrar Evrópu (Afríku, Asíu o.fl þjóða)með tilheyrandi hörmungum, hungri og sjúkdómum.
Kristin trú getur stutt okkur - við reynt að vona það besta, Guð hjálpi okkur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.10.2019 kl. 22:19 | Slóð | Facebook
29.9.2019 | 19:53
Fjámagnið á landsbyggðina?
Vondur málflutningur hjá Eyþóri Arnalds, borgarfulltrúa (dtod2) að halda fram að Reykjavík sé afskipt í vegagerð- fari mest allt á landsbyggðina.
Landsbyggðin hefur alltaf verið afskipt í vegagerð í svo lengi menn muna.
Hins vegar fer fjármagnið mest í hringveginn vegna ferðamannaiðnaðrins - þjóðinni + Reykjavík til hagsbóta.
Skil ekkert í Eyþóri - hann er oftast rökfastur +i málflutningi.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:56 | Slóð | Facebook
29.9.2019 | 16:35
"STORMUR Í VATNSGLASI"
Ekki linnir árásum á Trump,forseta USA, flestir fjölmiðlar reyna að draga af honum skóinn.
Varla líður svo dagur án þess að RUV flytji fregnir af forsetanum; stundum í "slaðurtón" "hafa heyrt" ;stundum beinan áróður frá Demókrötum
-. Það er ekki meiri spilling í Rebúblikkum en Demókrötum.
Demókratarnir virðast hafa sterkustu fjölmiðlana með sér í hinum Vestræna heimi.
Samt sem áður er líklegt að Trump verði endurkjörinn.
Þegar Abrahm Lincoln var kosinn forseti,var hann líklegur að afnema þrælahald með lögum er hann gerði; og varð að gjalda með lífinu.
Um það má lesa í sögu USA ,forsetinn var oftar en ekki kallður" the stubit donkey" "the old ape" ; hann varð gjalda þrælalögin með lífinu.
Abraham Lincoln var mjög umdeildur forseti.
Sama má segja um Kennedy, forseta USA hann var myrtur - vann hörðum höndum að kosningarétti þeldökkra. Auðnaðist ekki að fá lögin samþykkt - en voru lögleidd af Lyndon B Johnson þáverandi varaforseta.
Þess má geta að Kennedy var demókrati en Lincoln rebúbklikkari.
kritum
![]() |
Hefur ekki áhyggjur af kosningaafskiptunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:25 | Slóð | Facebook
28.9.2019 | 16:30
Sjálfstæðisfokkurin stýfði eigin fjaðrir- flýgur ekki langt "fjaðralaus"
Stjórnmálin eru í vondum málum. Er flokksbundin í Sjálfstæðisflokknum - veit samt ekki hvað skal kjósa..
Sjálfstæðisflokkurinn hefur stýft eigin fjaðrir með orkupakkanum og ætla að elja ríkiseignir með engri undatekningu.
Hann flýgur ekki langt fjaðralaus. (og beinlaus)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:56 | Slóð | Facebook
18.7.2018 | 18:06
"ó borg mín borg - mín Höfuðborg"
Er á ferð í bænum (Kópavogi), bjó hér syðra í þrjátíu ár að vissu leyti eins og að koma heim. Átti erindi niður á Klapparstíg en hef tímadunda fötlun á erfitt um gang og með merki fatlaðra á bílnum. Hvergi var laust almennt bílastæði og ekkert bílastæði fyrir fatlaða. Eftir langa leit gat ég lagt á bílastæði við Hallgrímskirkju eina bílastæðið fyrir fatlaða var við Landspítalann.
Hvað er borgarstjórn að hugsa hef heyrt því fleygt að 16 wc- klósett verði í 101 fyrir allar tegundir kynvera svo allir geti sinnt nauðþurftum sínum.
Hvenær kemur bílastæði fyrir fatlaða í 101, hundrað og einn?
Hver er þjónusta fyrir fatlaða í Höfuðborg allra landsmanna til að geta verslað í miðbænum?
https://www.youtube.com/watch?v=jyIG1dNe788
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.9.2019 kl. 00:45 | Slóð | Facebook
28.4.2018 | 23:21
Blogggið í ólagi
Bloggið virkar ekki veit ekki hvers vegna
villa
ennþá er bloggið í ólagi hvað er að