28.9.2017 | 12:22
"Enginn verður óbarinn biskup"
Katrínu Jakobsdóttur vantar festu og einurð í málflutningi sínum; ekki nóg að brosa framan í sviðsljósið í einni skoðanaskönnun; hugrekki til að taka á málum og þola gagnrýni annars verður hún ekki góður stjórnmálamaður.
Hafði ágæta möguleika að mynda stjórn/taka þátt í stjórnarsamstarfi eftir síðustu kosningar en skorti kjark til samstarfs og samninga og verða að slá af kröfum sínum.
![]() |
Ég hef oft upplifað miklar sveiflur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.9.2017 | 13:25
Stjórnleysið veldur uppnámi í landinu.
Stjórnarslitin hafa nú þegar valdið fyrirsjáanlegri hækkun verðbólgu og vaxta er bitnar hvað mest á fjölskyldum og fyrirtækjum í landinu.
Málefni bænda óleyst þeir sjá fram á að hætta búskap, markaðamál afurðastöðvanna í upplausn þar sem lítið eða ekkert hefur verið unnið af viti í þeim málum.
Cosko sýndi framtaka sagaði lambakjötið með nýjum hætti enda rokseldist kjötið.
Veikt stjórnarfar veikir gengi þjóðarinnar erlenda lánastofnanir halda nú þegar að sér hendinni og dregur úr framkvæmdum, atvinnuleysi gæti orðið veruleiki.
Vonandi tekst að mynda sterka stjórn eftir kosningar er tekur strax á óleystum vandamálum fyrrv. stjórnar.
![]() |
Horfur breytast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook
26.9.2017 | 15:52
Stjórnarskráin haldi velli
Þvílíkur barnaskapur að ímynda sér að breyta stjórnarskránni fyrir kosningur - nóg er óvissan í stjónmálum og fer best á því að stjórnarskráin haldi velli í ringulreiðinni.
Píratar og Samfylging virðast vilja hafa stjórnarskrána einfallt plagg sem auðvelt er að breyta eftir því sem vindurinn blæs hverju sinni.
Stórnarskráin er margoft brotin þegar lög eru sett frá alþingi; ganga þvert gegn henni, þó er vitnað til hennar þegar þing er rofið.
Er það ekki vanda málið frekar en að rjúka til og breyta stjórnarskránni?
Vonandi verður meiri festa í stjórnarháttum eftir kosningar - rökræða um málin í þinginu og hætta leiðinlegu karpi sem valda almennri óvirðingu fyrir Alþingi.
![]() |
Hótaði að taka þingið í gíslingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2017 | 11:44
Sigurður Ingi stendur af sér storminn.
Í viðtalinu fræga í Kastljósi við þáverandi forsætisráðherra Sigmund Davíð Gunnlaugsson þar sem hann var spurður út í eignir konu sinnar gerði hann þau mistök að ganga út enginn vafi að þá varð trúnaðarbrestur hjá framsóknarfólki/þjóðinni er seint eða aldrei mun gróa um heilt.
Breytir ekki stöðunni þó rökstyðja megi óvandaða fréttamennsku.
Nú þegar Sigmundur fer á stað í nýjum flokki þá er honum hollast að setja fortíðina að baki sér og temja sér skapstillingu þó móti blási.
Hvað Framsókn varðar þá stendur hún af sér storminn en verður að halda fast á sínum málum fyrir kosningar.
Sigurður Ingi sýndi sterka forystu þegar hann tók við sem forsætisráðherra eftir upphlaupið er varð Sigmundi að falli.
Sigurður Ingi Jóhannsson nýtur trausts sinna manna (jafnvel út fyrir flokkinn) og mun standa af sér storminn.
![]() |
Þorsteinn fer úr Framsóknarflokknum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.9.2017 | 10:07
ER RÚV Í KOSNINASLAG?
Í allan morgun á RÚV var endurtekið í hverjum fréttatíma :Samkvæmt skoðanakönnun vilja flestir Katrínu Jakobsdóttir næsta forsætisráðherra. Nú virðist eiga að nota skoðanakannanir sem aldrei fyrr; að hafa áhrif á komandi kosningar augljóst hverja RÚV ætlar að styðja.
Undirritaðri hugnast ekki Katrín Jakobsdóttir sem forsætisráðherra enda sýndi hún ekki persónulegan pólitískan styrk eða forystuhæfileika við síðustu ríkisstjórnar myndun, fékk þó til þess gullið tækifæri.
Ef hún flýtur upp í forsætisráðherra stólinn má eiga von á skatthækkunum, auðlindagjaldi á eldri borgara, aukinni verðbólgu er veldur vaxtahækkununum á heimilin í landinu, ekkert verður gert til að gera líferissjóðskerfið skilvirkara.
Sparifé eldri borgara/landsmanna verður mergsogið með vöxtum á höfuðstól/verðbætur og vexti; auk þess mun verða dregið af lífeyri eldri borgara, ávinninur til sparnaðar enginn.
![]() |
Katrín nýtur stuðnings flestra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook
24.9.2017 | 16:02
Sigmundur farinn
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson farinn úr framsókn rökrétt ákvörðun hann hefur skorðið á klofningin, Þórunn kemst án kosningaslags í Norðausturkjördæmi enda fer vel á að kona skipi efsta sætið -auk þess hefur Þórunn staði sig vel á þingi.
Hvert leið Sigmundar liggur liggur er erfitt að spá um; líklega býður hann sig fram í borgarstjórn að ári með Sveinbjörgu og fleirum gæti kostað Framsókn mann þar.
![]() |
Sigmundur Davíð hættir í Framsókn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.9.2017 | 21:52
Dæmi um eignaupptöku: Lífeyrir skertur v. fjármagnstekjuskatts
Eldri borgari sem á sparifé og greiðir 18% í fjáragagnstekjuskatt leggst skatturinn bæði á vexti og verðbætur; ef raunvextir eru 3% fara 2,34% á í skattinn, eftir verða 0,64% í vexti.
Því næst er lífeyrir eldri borgarans skertur til viðbótar; enginn ávinningur að eiga sparifé; auk þess má alltaf reikna með verðbólgu.
Ofangreint dæmi kemur eins út fyrir öryrkja. Eldri borgarar og öryrkjar eru rændir eignum sínum.
Framagreint dæmi á einnig við alla þá sem eiga sparifé og eru ekki orðnir sextíu og sjö ára nema laun þeirra eru ekki skert.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:56 | Slóð | Facebook
18.9.2017 | 22:33
Eignaupptaka eldri borgara - brot á stjórnarskrá?
Almennt tjá stjórnmálamenn í fjölmiðlum, að ekki sé áhugi fyrir kosningum; en hver eru rökin? Stjórnarslitin komu eins og þruma úr heiðskíru lofti sumir undrandi margir ánægðir með fráfarandi atkvæðalitla stjórn.
Komandi kosningar gætu sýnt góða þátttöku ekki síst vegna þess að allir eru þreyttir á óstöðuleika jafnvel stjórnleysi.
Flokkur fólksins gæti skorað hátt nýr tónn þar sem fólk er minna má sín getur fundið sig enginn vafi.
Eldri borgara geta tæplega treyst núverandi flokkum sem lofa öllu fögru fyrir kosningar svo er málið dautt. Að vaða ofan í vasa eldri borgara og taka af fjármunum þeirra er þeir hafa greitt skatta og skyldur af er brot á stjórnarskrá. (Stjórnarskrá Íslands sjöundi kafli, 72. Grein)
Hvergi kemur sú hugsun fram, að ellilífeyrir sé aðeins trygging fyrir eignalaust fólk. Ef jafna á laun allra ellilífeyrisþega taka inneignir þeirra; þá gildir það einnig um launþega til þess þarf breytingu á stjórnarskrá.
Hvers vegna ekki að taka af þeim hæst launuðu og jafna það út svo allir hafi sömu tekjur, - sleppa menntun og reynslu og setja upp rússneska rúllettu eða N - kóreskt fyrirkomulag?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.4.2018 kl. 22:11 | Slóð | Facebook
17.9.2017 | 21:42
Kynferðisbrotafólk ævilangt á sakaskrá?
Fjölmiðlar erlendis og hérlendis hafa birt misvísandi fréttir um að barnaníð hafi fellt ríkisstjórn Íslands; og birt myndir samtímis af Bjarna Benediktssyni, forsætisráðherra.
Oftar en ekki blása fjölmiðlar út mál til að ná eyrum almennings með hæpnum forsendum. Undirrituð er ekki að mæla með að umræddur barnaníðingur fái með uppáskrift valinkunnra manna uppreisn æru sinnar ævilangt.
En koma ekki lögfræðileg, kristileg siðfræði og mannréttindi til greina í framangreindri umræðu. Lög um uppreisn æru eiga alls ekki við í nútímanum; hvaða álitmál koma til greina þegar umræddum lögum verður breytt?
Læknar eru sviptir starfsleyfi um lengri eða skemmri tíma jafnvel ævilangt vegna brota í starfi; þarf einnig að gilda um barnaníðinga.
Lögfræðingur er fremur slík lögbrot á að hljóta sama dóm og læknar.
Allir er fremja kynferðisbrot á börnum (og nauðganir)eiga að sitja í fangelsi fyrir brot sín. Ekki gengur að umræddir sakamenn fái uppreisn æru og þar með hreint sakavottorð.
Gera ætti að skyldu að umræddir sakamenn séu undir eftirliti geðlæknis/læknis um lengri eða skemmri tíma. Að þeir verði alla ævi á sakaskrá en geti unnið önnur störf eftir eftir því sem við verður komið með stuðningi umræddra lækna.
Framan greindar hugmyndir eru ekki tæmandi en gætu ef til vill lyft umræðunni í víðari samhengi kristilega, siðferðilega og löglega.
Umræddir menn verða ekki sviptir tækifærinu til lifa og starfa á öðrum vettvangi; það er mannréttindabrot.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 18.9.2017 kl. 12:55 | Slóð | Facebook
16.9.2017 | 10:15
Um hvað snúast komandi Alþingiskosningar?
Um hvað snúast komandi Alþingiskosningar? Dæmdur veikur barnaníðingur fær uppreisn æru eftir afplánun dóms,samkvæmt núgildandi lögum; er sannarlega þurfa breytinga við.
Samkvæmt fjölmiðlum síðustu daga snýst málið um að faðir forsætisráðherra hafði skrifað undir náðunarbeiðnina tók síðan snöggum breytingum þegar Björt framtíð stökk úr stjórnarsamstarfinu um miðja nótt vegna trúnaðarbrests en hver var "trúnaðarbresturinn"?
Birgitta píratadrottning geystist fram á sviðið með brauki og bramli; lýsti yfir að hún gæti starfað með öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokknum.
Sama staða var komin upp og eftir Kastljósupphlaupið fræga um Panamaskjölin og Sigmund, þáverandi forsætisráðherra en missti nú marks; fáeinar hræður mættu á Austurvelli til að fylgja eftir upphlaupinu.
Snúast komandi kosningar um að stjórna landinu með brauki og bramli; eða vill þjóðin stjórn með festu og hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:18 | Slóð | Facebook
15.9.2017 | 10:44
Björt hleypur á brott?
Nú hriktir í stjórnmálunum óvíst hvað verður en um hvað snýst brotthlaup Bjartrar framtíðar eru þau að skjóta sér undan merkjum og ábyrgð að leysa stór mál sem liggja fyrir þinginu eða nota tækifæri að hlaupast á brott vegan lítils fylgis í skoðanakönnunum? Ekki getur forsætisráðherra borið á ábyrgð á gjörðum föður síns, Benedikt Sveinssyni.
Hér virðist reynt að nota tilfinningamál í barnaníði til að koma höggi á forsætisráðherra.
Lög um uppreisn æru eru eldforn; voru notuð til að dæmdir sakamenn fengu uppreisn æru; yrðu fullgildar þegnar eftir afplánun . Nú eru nýir tímar umrædd lög orðin úreld að því er virðist.
Eftur stendur spurningin hvenær á dæmdur maður að fá full réttindi sem þjóðfélagsþegn eftir að hafa setið af sér sakir?
14.9.2017 | 21:01
Þingmaður óvirðir Alþingi
Verulega ósmekklegt af Steingrími J. Sigfússyni, þingmanni Vinstri grænna, að kalla Bandaríkjaforseta viðrini úr ræðustól Alþingis í eldhúsdagsumræðum í gærkveldi. Skömmu seinna birtist hann í ræðustól þingforseta,æðstu virðingarstöðu þingsins; þingmaðurinn sýndi þingi og þjóð óvirðingu með framkomu sinni.
Hvernig er hægt að búast við almennri virðingu fyrir þinginu þegar umræddur þingmaður gengur þar um í "skítugum skóm" - óvirðir bæði þing og þjóð?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:10 | Slóð | Facebook
17.11.2016 | 13:25
Sjómenn búa við slysahættu í starfi -
Óskiljanlegt, sífelldar árásið á kjör sjómanna þeir búa við slyshættu í starfi og engin ástæða að draga úr rétti þeirra ófáir hafa slasast alvarlega og hlotið örkuml oftar en ekki - og fjölskyldur misst ástvini sína af slysförum. Þá hefur skattafrádráttur sjómanna vegna fæðis fjarri heimili verið litinn öfundar augum ekki síst af þeim sem njóta fríðinda sjálfir. Ríkisstarfsmenn fá dagpeninga greitt fyrir bíla sína; þingmenn fá það sama en auk þess fríar tannviðgerðir sem er óskiljanlegt.
Það er lámark að virða störf sjómanna að verðleikum og láta þau hlunnindi sem þeim ber lagalega og siðferðilega í friði.
![]() |
Augljós skerðing á réttindum sjómanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2016 | 22:06
Vinstri stjórn - eða Vinstri græn, Sjálfstæðisflokkur - og Framsókn?
Samkvæmt ritúali Vinstri grænna mun Katrín reyna stjórnarmyndun til vinstri niðurstaðan úr þeim viðræðum gæti ráðið framtíð Katrínar sem stjórnmálamanns í bráð og lengd. Samþykki hún áframhaldandi aðildarviðræður við ESB án þess að þjóðaratkvæði fari fram mun það veikja hana verulega og reynast henni erfitt. Leiksýningin mun halda áfram ef Katrín reynist föst fyrir þá munu flokksbrotin heltast úr lestinni eitt af öðru.
Þá stendur Katrín eftir og ræður för líklega með alla þungavigtarmenn á sínu bandi í flokknum er vilja ganga til samninga við Sjálfstæðisflokkinn. Þriðja flokkinn þarf svo sterkur meirihluti náist og stjórnin standi á föstum grunni: að líkindum mun það verða Framsókn (Björt framtíð?); en Katrín verða forsætisráðherra í umræddri stjórn.
![]() |
Viðræðurnar hefjast í fyrramálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2016 | 22:44
Fær Katrín "Draumprinsinn"?
Nú reynir á pólitíska hæfileika Katrínar að koma að stjórn landsins ef hún er klók þá reynir hún fyrst myndun stjórnar með vinstra liðinu og Viðreisn en ólíklegt hún fari í minnihluta stjórn þar sem píratar verja hana falli.
En líklega verður það fyrst útspilið en Katrín hlýtur að vera of skynsöm til að standa eftir sem valdalaus forsætisráðherra í minnihlutastjórn.
Eftir það getur hún hafið viðræður við Bjarna Ben. aftur - og þau komi sér saman um þriðja flokkinn til samstarfs í ríkisstjórn. En framangreint er aðeins ágiskun.
![]() |
Katrín á fund forseta á morgun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2016 | 22:25
Forsetinn hvetur til umburðalyndis
Barac Obama vel meðvitaður um stöðu sína sem forseti og virðir lýðræðið þjóðinni til fyrirmyndar. Donald Trump er verðandi forseti í lýræðislegri kosningu; Bandaríska þjóðin verður að sameina sig um hann - næstu fjögur árin.
![]() |
Biður fólk að gefa Trump tækifæri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2016 | 16:33
Engin ESB -stjórn -
Verða að teljast góðar fréttir hvað sem verður ekki hægt að dragast með ESB sinna og allt snúist um hvort kíkja eigi í pakkann blekkingu sem fáir telja marktæka. Eina rétta væri að þjóðin kysi um hvort hún vill inn eða ekki en það hugnast tæplega ESB sinnum /Viðreisn/Björt framtíð ; varla er sú atkvæðagreiðsla tímabær nú.
Katrín Jakopsdóttir leggur tæplega í annan leiðangur með ESB- sinnum reyndist ekki vel hjá Vinstri Velferðarstjórninni- Jóhanna reyndi að smala andstæðingum sínum, villiköttunum í Vinstri grænum til baka en tókst ekki og uppskar afhroð í kosningunum, 2013.
![]() |
Stjórnarmyndunarviðræðum slitið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.11.2016 | 15:53
"Bíður Kartín eftir draumaprisinum"?
"Lánleysi af Katrínu Jakobsdóttur, formanni Vinstri grænna að reyna ekki samstarf við Sjálfstæðisflokk að vísu þurfti þriðja flokkinn sem hefði líklega orðið Framsóknarflokkurinn; þessir þrír flokkar hefðu getað skapað sátt í samfélaginu náð fram sterkum áherslum í velferðarmálum og atvinnumálum.
Hvenær eru stjórnmál spilling eða ekki spilling erfitt að segja en líklega fylgjast þessar andstæður að hverjir sem stjórna Katrín segist ekki vilja vinna með spilltum flokkum nær engum árangri að leika "óspillta mey" og bíða eftir draumaprinsinum hann mun seint finnast. Er hún að glata tækifærinu til að að koma að stjórn landsins til að stofna einhverja moðsuðu með svokölluðum vinstri flokkum og pírötum ?
![]() |
VG hafnar Sjálfstæðisflokki |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 15.11.2016 kl. 03:29 | Slóð | Facebook
14.11.2016 | 12:20
Áfram strákar
Ekkert himinhrap þó strákarnir töpuðu leiknum við Króata varla hægt að ætlast til að vinna alla leiki. Gott að setja markið hátt en eitt tap annað slagið er ef til ágætt til að komast niður á jörðina. Króatar voru betri í leiknum markvissari á í markaskorun; áttu sigurinn skilið.
Ef til vantar ísl. liðið fleiri aðferðir við markaskorunina en aðaltrixið, að fyrirliðinn kasti boltanum inn á teiginn til að skora ?
![]() |
Getum unnið þá heima |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Pepsi-deildin | Breytt s.d. kl. 12:59 | Slóð | Facebook
13.11.2016 | 22:12
Mómæli gegn Donald Trump - "Arabíska vorið"
Mikil munur er á arabíska vorinu sem svo er kallað og mótmælum fólks gegn Donald Trump verðandi forset Bandaríkjanna. Arabíska vorið breyttist í alvöru hryllingsmynd það sem öfgahópar óðu um gráir fyrir járnum sprengdu og skutu allt er á vegi þeirra varð; heilu borgirnar í rústum óviðráðanlegur straumur flóttafólks norður til Evrópu og þaðan eins langt og komist verður.
Mótmælin gegn Donald Trump eru ekkert í líkingu við lýsinguna á arabíska vorinu er það ekki munurinn á lýðræðisríki og ríkjum í Austurlöndum þar sem einræði og kúgun ríkir; og er fylgt eftir af stjórnvöldum?
Undirrituð hefur þá á skoðun að Bandaríkin standist mótmælin gegn Trump, sem teljast eðlileg þar sem mjótt var á munum þeirra Donald Trump og frú Hillary Clinton. Heilbrigt lýræðinu að Donald Trump fái mótbyr sem forseti hann mun gefa eftir og leggja sig fram verða maður sátta og samlyndis; er það ekki hið virka lýðræði að ná niðurstöðu án vopanátaka? Lýðræðinu er hollt að fólk takist á með rökum en ekki vopnavaldi líkt og gerðist í arabíska vorinu.
Lýðræðið er skást, sagði hinn margreyndi og margfrægi stjórnmálamaður Winston Churchill, fyrrv. forsætisráðherra Breta.
![]() |
Heitir því að flytja milljónir úr landi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 14.11.2016 kl. 05:28 | Slóð | Facebook