Nýsköpunarstjórn - ef Rússarnir lána?

Nýsköpunarstjórn Sjálfstæðisflokks og Sósíalistaflokks (1944) lagði línurnar að nútíma velmegun  með togarakaupum til eflingar sjávarútvegi og atvinnulífi.  Rökrétt að Vinstri grænir fari  í stjórnarsamstarf til endurreisnar eftir fjármálakreppuna ef Samfylkingin leggur á flótta úr ríkisstjórnarsamstarfinu.
 
Ekki gott hljóð í þingmönnum Samfylkingar í Kastljósinu í kvöld.  Sama má segja um Valgerði Sverrisdóttir Framsókn er málaði  flokkinn sinn út í horn með gagnrýni sinni á seðlabankann.
 

Aðför að seðlabankanum

Rauði þráðurinn í Kastljósi kvöldsins (RÚV) var að koma seðlabankastjórninni frá að hálfu Samfylkingarmanna, augljóslega ætlað til þess að skjóta Samfylkingunni undan merkjum í hamförunum í fjármálakerfinu?  Undantekning var Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri Landsbankans er útskýrði vandmálin á mannamáli eins og Davíð Oddson seðlabankastjóri gerði í gær.

Annað óveður í nánd eða óskastaða Samylgingarmanna að hverfa úr ríkisstjórnarsamstarfinu ,þannig skyldi undirrituð  máflutningi fyrrnefndra manna? Auðvitað er þeim það frjálst en þá er bara að ganga út; en  skæting út í seðlabankann mun almenningur tæplega telja nógu trúverðugt til að leggja flótta. Var þessi "rauði þráður" til að gæta hagsmuna þjóðarinnar eða þeirra sem hafa farið ógætilega með fjármuni bankanna?

En samt sem áður verða málin leyst með þeirri stefnu  er forsætisráðherra, þingið og seðlabankinn hafa markað. Angry

 


"Hnattvætt spilavíti"?

Internetnið hefur valdið hröðum samskiptum um allan heim við erum öll nágrannar/glóbal en því fylgja bæði kostir og gallar. Ef til vill eiga þessi hröðu samskipti einhverja sök, að lítil þjóð  vel tölvuvædd, er orðin "skrímslið" í hnattrænum fjármálaheimi; togar með sér banka í fallinu um alla Evrópu og víðar. Umrædd hröð tækniþróun líklega  valdið stærstu bankagjaldþrotum allra tíma er líkja má við eitt allsherjar  hnattvætt "spilavíti" þar sem reglumeistarar fást við að finna leiðir til að sniðganga lög og reglur?

 

Breskur blaðamaðurinn  sagði um helgina, "Veislan er búin á Íslandi, eyjunni sem reyndi að kaupa heiminn." Stærstu fjölmiðlar Bretlands stóðu á öndinni en hefðu getað litið sér nær í eigin ranni - og víðar í heiminum. Nú getur blaðamaðurinn beint sjónum sínum að vanræðum breskra banka er ekki eru minni en þeirra íslensku.

 

Lán í óláni,  að auðveldara virðist vera  fyrir stjórnvöld hér að ná utan um fjármálavandann sökum smæðar  þjóðarinnar. W00t

 


"ESB fjarri íslenskum veruleika - eftir brotsjóinn"

ESB-umræðan um inngöngu mun líklega eiga erfitt uppdráttar þegar brotsjónum og storminum slotar er við rísum úr "öskustónni". Meðvitund um að geta lifað og búið að sínu mun vekja nýtt gildismat á krónuna - og mannlífið. Ekki ráðlegt að treysta á annað en ríkulegar auðlindir ;  getum verið sjálfstæð lítil þjóð norður í Atlandshafi með trú á landið og það sem það gefur okkur. Happy
mbl.is Atburðir síðustu daga kalla á skýrari rök ESB-sinna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Neyðin kennir naktri konu að spinna"

Þá hefur tekist að slökkva verstu eldana hægt að hefja endurreisn fjármálakerfisins. Telja verður  Kaupþingsbanka öruggan - fyrst um sinn. Getum hjálpað til með að versla sem mest íslenskt  velta fyrir  okkur hvað ekki er nauðsynlegt að kaupa. Mun koma í ljós að hægt er vera án margra hluta en  skorta ekki neitt;  uppgötvum ný tækifæri og gleðjumst yfir að baka pitsuna okkar heima um helgina - eigum ef til vill afgang af helgarpeningum. Við erum orðin ábyrgir fjármálstjórar heimilisins.
 
Get sagt litla sögu af sjálfri mér fyrir 30árum. Keypti mér bíl er nauðsynlegt var vegna aðstæðna (ódýran) fékk lán hjá tryggingarfélagi með góðum vöxtum. Vinnan var stopul og tekjurnar stóðu ekki undir þeim skilmálum sem gengið hafði verið að. Þrisvar varð ég að semja um skuldbreytingu. Setti mér markmið hvern mánuð í peningamálum greidda alltaf eitthvað; átti meira segja stundum svolítinn afgang skorti aldrei  neitt. Það var gleðidagur þegar skuldinni lauk  eftir fimm ár en síðan hef ég aldrei tekið bílalán - gat  ekki  verð örugg um tekjur svo bágt var atvinnuástandið þá úti á landi. Happy

mbl.is FME tekur Glitni yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Logn á eftir storminum

Mikilvægast sem Davíð sagði eða gaf í skyn var að möguleiki væri að lækka vextina ef hægt værir að semja við vinnumarkaðinn stuttan tíma senn þá gætu vextir lækkað, krónan styrkst og verðbólga minnkað; aðgerðir seðlabankans valda því tímabundið, að lánshæfismat ríkisins lækkar en þegar umheimurinn sér að aðgerðir seðlabanka og ríkistjórnar bera árangur mun verða viðsnúningur eftir nokkrar vikur eða mánuði.Joyful

mbl.is Ríkið borgi ekki skuldir óreiðumanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð seðlabankastjóri fái stórriddarakrossinn

Halo "Nú veit þjóðin hvar Davíð seðlabankastjóri keypti ölið"eftir viðtalið í sjónvarpinu í kvöld. Hann ætlar ekki að láta almenning í landinu greiða skuldir sem stofnaðar voru á  glæfralegan hátt.

Davíð Oddsson ætti að fá stórriddarakrossinn fyrir að standa vaktina í seðlabankanum með þrautseigju og útsjónarsemi þrátt fyrir óskaplegan árróður sennilega að undirlagi "fjárglæframanna" .

Forseti  vor ætti að afhenda Davíð  krossinn við hátíðalega athöfn á Bessatöðum í lok áramótaræðu sinnar n.k. áramót.


"Fjármálahryðjverkin koma sífellt í ljós"

Hvenær verða öll kurl komin til grafar? Hafa nokkrir fjárglæframenn í heiminum "veðsett" innstæður sparifjáreigenda á svipuðum nótum og sjóðurinn hjá Glitni? Ef satt er þá er fjármálakerfi heimsins undirlagt af frjálshyggjunni þar sem frelsið er skilgreint, að allt megi framkvæma hvort sem það er siðlegt eða löglegt - en upp koma svik um síðir:


mbl.is Ernst&Young tekur yfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Sovét-Ísland óskalandið hvenær kemur þú"?

Nú höfum við fengi fyrsta bjarghringinn frá Rússlandi auðvitað ber að þakka stuðninginn. Undirrituð efast  um að Pútín hafi aðeins umhyggja fyrir okkur frekar en þegar þeir ætluðu inn í Kúbu um árið; líka til pólitískir vafningar er erfitt er að greiða. Skilaboð til Bush forseta svona undir rós að hann eigi ekki vísa undirgefi okkar- góð skilaboð án orða?

Landið okkar er vel í sveit sett í miðju Atlandshafi með miklar auðlindir.

Er óskaland Jóhannesar úr Kötlum loksins komið? Undecided


mbl.is Guðni og Pútín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins dauði er annars brauð

Það "jákvæða við krosseignahlutabréfavafningana" sem nú liggja eins og flækja um allan heim er, að þegar farið er að greiða úr  eiga aðrir bankar um sárt að binda -  eins dauði er annars brauð í "skrímslaheimi fjármálanna."

Nú lýsa Norðmenn yfir aðstoð til okkar - ekki eingöngu "frændsemin" - Glitnir er líka í Noregi það skyldi aldrei vera að fall Glitnis hér hafi áhrif á þann norska - að hlutabréfavafningarnir orki tvímælis sem fjárfesting?

 

Fjármálakerfi okkar Litla Íslands orðið stærðar "fléttuvafningur" er teygir anga sína víða - við skörum fram úr  í viðskiptum bæði jákvæðum og neikvæðum?

 

 


mbl.is Norðmenn reiðubúnir að veita Íslandi efnahagsaðstoð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eins og logi yfir akur

Frown Fjármálakreppan æðir yfir sem flóðbylgja yfir öll lönd höf ; keðjuverkandi "hryðjuverk" eins og logi yfir akur er setja mun mark sitt alla 21. öldina engan óraði fyrir slíku óslökkvandi báli. Viðbúið að hinn vestræni heimur verði að setja sér ný markmið í lífsafkomu - eyðsla og óhóf víki.

 

Ný viðmið þar sem afkoma framleiðslu fyrirtækja stórra og smárra verði undirstaða undir fjármálakerfi framtíðarinnar - alla vega vegvísir á grýttri braut.Woundering


mbl.is Atlantic Petroleum lækkar um 17,87%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfélag - nýtt gildismat - kristileg gildi

Þá hefur böndum verið komið á fjármálkerfi/skrímsli þjóðarinnar. Skrímslið  hefur gegnsýrt samfélagið á flestum sviðum undanafarinár - þótt sárt sé að sjá eftir Landsbankanum  Allt hefur verið gert til að hvetja landann til að kaupa sem mest. Eyða og spenna er það sem allt hefur snúist um; hundrað% lán, kaupa bíla og aftur meiri bíla, eiga flottasta bílinn, rífa húsin af grunni byggja ný; til að vera meiri og betri þjóðfélagsþegn og tekinn gildur í samfélagi græðginnar og frjálshyggjunnar.
 
Afurð þessa nýja græðgis/neyslu þjóðfélags lætur ekki á sér standa. Kaupæði, slagsmál og fyllerí eru mikilvægustu gildin er rífa niður samfélagið innan frá og ógna  siðferðilegum gildum er allt mannlíf byggist á ; eftir stendur óreiða/anomy í öllu mannlífi er ógna heimili og fjölskyldu, hornsteini þjóðfélagsins. Listin er að einhverju leiti snúin upp í andhverfu sína eftir fréttum um erfiðleika Sinfónýjuhljómsveitarinnar er notið hefur styrkja frá Stoðum er rekin á peningum sem ekki er innstæða fyrir.
 
En aldrei er öll von úti. Upp úr rústunum mun rísa nýtt samfélag þar sem gildin verði á verðmæti sem mölur og ryð fær ekki grandað, samfélag þar sem fjölskyldan/stórfjölskyldan verður í fyrirrúmi. Þá er mikilvægt að hafa kristin gildi að leiðarljósi þar sem kærleikur og umburðarlyndi verða kirkjan okkar óháð steinsteypu og glamúr.

mbl.is „Allt gengur sinn vanagang“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geir þarf ekki upplýsingafulltrúa - góður eins og hann er

Cool Geir H. Haarde forsætisráðherra, þú þarft ekki upplýsingafulltrúa þótt þú sért ógreiddur og illa fyrir kallaður eins og fram kemur hér í blogginu. Þá er bara verið að dylja vandann ef einhver sléttgreiddur snáði með gullstrípur í hárinu kemur til þess gylla fyrir  okkur aðstæður- minnir á snáðana á Stöd2 í markaðsfréttum er hafa komið fram með miklum leikaratilburðum að tala upp pappírspeninga langt umfram það sem nokkurt fyrirtæki gæti borið; hvað þá þjóðarbúið!Sideways

ESB í vandræðum

W00t Sjálft ESB þróaða ríkjasambandið er  "spannar alla félagslega og fjármálalega þætti undir kontróll" innan sinna vébanda veit ekki sitt rjúkandi ráð eins og myndin af Micolas Sarkozy Frakklandsforseta ber með sér. Aðallega stærstu ríki ESB eru í sviðsljósinu: Frakkland, Ítalía, Þýskaland ráða ferðinni: engin smáríki koma þar upp á borðið með tillögur um aðgerðir. Hverju halda menn að litla Ísland myndi ráða ef það væri aðili að ESB? 

 

Svar: Engu: Við erum auðvitað velkominn inn með okkar ríkiulegu auðlindir til lands og sjávar; auðlindir Evrópu eru ekki miklar miðað við fólksfjölda  gott að auka við þær með aðild Íslands.

- Þá er skárra að fara í gjörgæslu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Police


mbl.is Neyðarfundur boðaður í Frakklandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður forsætisráðherra

Sleeping Nú á Geir H. Haarde skilið góða hvíld eftir erfiða törn til að bjarga því sem bjargað varð.    Vonandi verða ESB-sinnar ekki látnir vaða uppi með bænahróp til Brussel er gæti  sundrað þjóðinni þegar mikilvægt er á samstöðu; til hvers ESB reynir að bjarga eigin skinni virðist ganga verr en hér á landi?

Geir hefur nú sterka stöðu sem forsætisráðherra þótt óábyrgir spunameistarar reyni að sverta hann í augum almennings.  Happy


mbl.is Höfum meira andrými
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Nú er kominn tími Jóhönnu Sigurðrardóttur félagmálaráðherra"

Gulltryggja verður lífeyrissjóðina af ríkinu Þá verði gerðar ráðstafanir til að frysta íbúðarlán (ekki bílalán); gera íbúðarlánasjóði kleift að yfirtaka lánin. Nú er mikilvægasti tími Jóhönnu Sigurðarsóttur félagsmálaráðherra kominn hún þarf að taka forystuna í húsnæðismálum.
mbl.is Verða að fallast á skilyrði sjóðanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bíti höfuðið af skömminni.- ábyrgir gjörða sinna.

Afar mikilvægt að fá formlega yfirlýsingu um að innstæður sparifjáreigenda eru tryggðar; og að bankarnir verða nú að axla ábyrgð og minnka starfsemi sína erlendis. Hefði verið mikil skömm ef ríkið gæti ekki tryggt innstæður. Mikið verk er ennþá óunnið að koma á heilbrigðu fjármálakerfi bæði hérlendis og erlendis. Vonandi verða stjórnendur bankanna að lækka seglin og þeim verði ekki tryggð ofurlaun. Að laun þerra verði tengd ábyrgð  af þeim afleiðinum er yfirgangur þeirra um allan heim hefur leitt til stórvandræða. Þeir verði sjálfir að bíta höfuðið af skömminni af gjörðum sínum.

mbl.is Ekki þörf á aðgerðapakka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Endurvekja klaustur kirkjunnar á nútíma forsendum

Halo Hans heilagleiki páfinn vill það besta en hvað er til ráða? Það vantar guðfræði, guðfræði sem færir allan almenning nær guði í daglegu lífi. Til þess þarf trúarlegt uppeldi með  enn meiri náungakærleika að leiðarljósi.

Allir kristnir menn ættu að sameinast undir merki hans heilagleika páfans og endurvekja stofnanir á kristilegum grundvelli: Klaustur þar sem væru skólar og kyrrðarstundir fyrir fjölskyldur börn og fullorðna, stofnanir fyrir fíkefnaneytendur og sálsjúka og eldri borgara. 

Telja má líklegt að fyrirtæki og einstaklingar myndu styrkja framangreinda starfsemi en kirkjan verður að gefa tóninn.Smile


mbl.is Páfi hefur áhyggjur af trúleysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir töpuðu í Glitni?

Almenningi er meiri vorkunn en kónginum að tapa 160 þús. pr. mann. Vonandi hefur forseti vor ekki átt inni hjá "vinum sínum Baugsmönnum" í GLITNI? Almenningi á Íslandi kemur víst ekkert við hverjir töpuðu þar eða ekki má segja frá? Stöð2 gæti reynt  að upplýsa hverjir töpuðu í þættinum Mannamáli eða 60mínútum nú á þjóðin bankann??

mbl.is Svíakóngur tapar á fjármálakreppunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Útiloka fjárhættuspil - og spilafíkla í bankakerfinu"!

AngryNú er komið að því að Baugur axli ábyrgð ásamt  krossxkrossxkrosseignatengslunum/Stoðir/Exista/Kaupþings og o.fl. geti ekki endalaust spilað "póker" rétt eins og þeir séu haldnir spilafíkn. Stjórnvöld verða að setja öll spil upp á borðið í björgunaraðgerðum. Ef Kaupþing er í vanda þá verði þeim settur stóllinn fyrir dyrnar  selji eignir sínar erlendis til bjargar bankanum hér á landi - eða að um hann verði stofnað almenningshlutfélag?

Skárra er að leita til Alþjóðgjaldeyrisvarasjóðsins þar er Ísland aðili en ætla að fara að flytja heim lífeyrissjóð landsmanna sem á ekki að vera í áhætturekstri heldur að vernda lífeyrir eigenda sinna.

Ekki nægilegt að útvega fjármagn til bjargar hagkerfinu. Útiloka verður brask með "hlutabréfavafninga" og innstæður  sem virðis vera að gera þjóðina gjaldþrot án þess og nokkur þurfi að axla ábyrgð.


mbl.is Vill ekki tryggja viðskiptaskuldir fyrirtækja Baugs við birgja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband