Morgunblaðið - nýtt eignarhald

Tveir fyrrverandi eigendur gjaldþrota banka hafa nú keypt Morgunblaðið og hlýtur að vekja spurningar um trúverðugleika starfandi blaðamanna. Geta blaðamenn starfað óháðir gagnvart eigendum sínum? Eins og kunnugt er var samþykkt af fyrrverandi stjórnarmeirihluta frumvarp frá
Alþingi um fjölmiðlalög. Sterkur áróður stjórnarandstöðu/Samfylkingar og neitum undirskriftar forsetans gerði út um áðurnefnd lög. Allt í nafni frelsir og frjálshyggju.
 
Viðunandi lagarammi um eignarhald á fjölmiðlum er tæplega til staðar; gerir trúverðugleikann vafasaman. Undirrituð hefur ekki forsendur til að álíta ramman í kringum umrætt eignarhald ólöglegan en orkar tvímælis hvort það er siðferðilega rétt.
 
Eftir stendur blogg Morgunblaðsins, "dómstóll götunnar", getur tjáð skoðanir um menn og málefni á eigin ábyrgð. Hætt er við gagnrýnin blogg rati síður til birtingar á Mbl. Frekar  "froðublogg" er ekki  hafa  teljandi áhrif á lesendur blaðsins þegar fram í sækir. Huggun harmi gegn samkvæmt sögunni hefur ritfrelsi og málfrelsi ætíð fundið nýjan farveg; oftar en ekki kostað blóð og tár -  og á sér  enn stað hjá einræðisríkjum nútímans.Errm

Kvöldbæn á sunnudegi

BænHalo Drottinn, vér þökkum þér fyrir dag þinn og fyrir gjafir náðar þinnar. Þú hefur á þessum degi nært oss og gjörvalla kirkju þína með heilögu orði þínu og sakramenti. Varðveit oss í samfélagi þíns heilaga Anda, svo að vér, styrkt og upplýst, sigrumst á freistaranum og eignumst þolinmæði til þjónustu kærleikans. Gef oss þann frið sem heimurinn kann ekki að veita. Lát ljóma þessa dags lýsa yfir önn og erfiði vikunnar. Lát senn birta af degi gleðinnar þegar vér lofum þig að eilífu í ríki þínu. Happy

(Þjóðkirkjan)

 

 




Davíð Oddsson yrði góður forseti

Góðra gjalda vert að vilja hughreysta þjóðina allir hafa rétt á að taka sinnaskiptum. Herra forsetinn er sá maður sem þjóðina tekur mark á. En ekki verður litið framhjá  að hvert mannsbarn veit að forsetinn var stuðningsmaður "útrásarinnar", studdi Baug "leynt og ljóst".Afnam fjölmiðlalögin í nafni frelsis og frjálshyggju. Allt skyldi verða frjálst en varð um leið hömlulaust með hörmulegri afleiðingu fyrir þjóðina um langa framtíð.

 

Getur tæplega verið frambærilegt fyrir þjóðhöfðingja að koma svo fram til að hugga lýðinn - ekki trúverðugt frekar en þegar Aron smíðaðið gullkálfinn forðum - hann varð að víkja.

 

Forsetinn ætti að draga sig í hlé við fyrst tækifæri; best væri að Davíð Oddsson tæki við og yrði forseti.

 


 

Biblían:

Postulasaga : 30- 43

 

30Að fjörutíu árum liðnum birtist honum engill í eyðimörk Sínaífjalls í logandi þyrnirunna. 31Móse undraðist sýnina, gekk nær og vildi hyggja að. Þá hljómaði rödd Drottins: 32Ég er Guð forfeðra þinna, Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs. En Móse skelfdist og þorði ekki að hyggja frekar að. 33En Drottinn sagði við hann: Leys af þér skó þína því að staðurinn, sem þú stendur á, er heilög jörð. 34Ég hef séð áþján fólks míns á Egyptalandi og heyrt andvörp þess og er ofan kominn að frelsa það. Kom nú. Ég sendi þig til Egyptalands.
35Þennan Móse, sem Ísraelsmenn höfnuðu með því að segja: Hver skipaði þig höfðingja og dómara? hann sendi Guð sem höfðingja og lausnara með fulltingi engilsins er honum birtist í þyrnirunnanum. 36Það var Móse sem leiddi þá út úr Egyptalandi og gerði undur og tákn á Egyptalandi, í Rauðahafinu og á eyðimörkinni í fjörutíu ár, 37þessi sami Móse sem sagði við Ísraelsmenn: Spámann eins og mig mun Guð láta koma fram úr hópi ættmenna ykkar. 38Það var hann sem var í söfnuðinum í eyðimörkinni, ásamt englinum sem talaði við hann á Sínaífjalli, og með feðrum vorum. Hann tók á móti lifandi orðum að gefa okkur. 39Eigi vildu forfeður vorir hlýðnast honum heldur hrundu honum frá sér og þráðu í hjörtum sínum Egyptaland. 40Þeir sögðu við Aron: Ger okkur guði sem geta farið fyrir okkur því að ekki vitum við hvað orðið er af Móse þeim sem leiddi okkur brott af Egyptalandi. 41Og á þeim dögum smíðuðu þeir kálf, færðu skurðgoðinu fórn og glöddust yfir verki handa sinna. 42En Guð sneri sér frá þeim og lét þeim eftir að dýrka her himinsins eins og ritað er í spámannabókinni:
Ekki færðuð þér mér sláturdýr og fórnir
árin fjörutíu í eyðimörkinni, Ísraelsmenn.
43Nei, þér báruð tjaldbúð Móloks
og stjörnu guðsins Refans, myndirnar sem þér smíðuðuð til þess að tilbiðja þær.
Ég mun herleiða yður austur fyrir Babýlon.

 


mbl.is Forsetinn hvetur til samstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Baugsleiksviðið - gamblað með ævisparnað fólks"?

Yfirtaka GLITNIS kom öllu “þessu” af stað síðan er alheimskreppa við vorum ekki gjaldþrota sagði Jón Ásgeir Jóhannesson eigandi Baugs í Silfri Egils í dag; en hvað með veðin sem Baugur kom með til að fá lán hjá ríkinu þegar ekki var hægt að standa í skilum?: Bílalán, viðskiptavild (óefnisleg verðmæti)  eignir sem ekki var hægt að veðsetja o.fl. Hvers vegna má almenningur ekki vita hvað var í “veðpokanum” sem seðlabankanum var boðið

Hver trúir því að Jón Ásgeir sé kominn hingað til að bjarga atvinnu fólks? Einhver Green miljónamæringur kominn í spilið enn ein "svikamillan"  á leiksviði Baugs Groub. Tek undir með Agli í Silfrinu að betra væri að láta Breta hafa GLITNI og  eignir Baugs upp í skuldir handa sparifjáreigendum í Bretlandi.

 

.Allt fjármagn úr bankanum sogað til að kaupa og “gambla” með fyrirtæki. Hvað með peningasjóð Glitnis?, fólki talið trú um að þar væri best að “ávaxta” sparnaðinn þar. Fólk tók út peningana sína af öruggum innlánsreikningum. Síðan "keypti" Baugur hlutbréf í peningasjóðnum með “pappírspeningum” til að fjármagna útrásina. Dæmi: Jón Jónsson og frú eiga  fimm milljónir á innlánsreikningi (ævisparnað) Glitnis, leggja þær inn í peningasjóðinn. Á móti eru  sett “pappírshlutabréf” og flutt út í  “útrásina miklu” Baugsfyrirtækin geta  ekki staðið í skilum missa bankann sinn,  það sem verra er að   Jón Jónsson og frú misst ævisparnaðinn sinn.

 

Framangreind hugleiðing er upplifun mín úr fréttum af fjárhagserfiðleikum og  gjaldþroti á “Litla leiksviði Baugs” og "stóra leiksviði heimsins".Frown


Hallgrímur Pétursson: Morgunbæn

Morguæn Hallgríms Péturssonar: Halo

 

 

 

 

 

 

 

Í náðarnafni þínu
nú vil ég klæðast, Jesús.
Vík ég að verki mínu
vertu hjá mér, Jesús.
Hjarta, hug og sinni
hef ég til þín, Jesús.
Svali sálu minni
sæta nafnið Jesús
ég svo yfirvinni
alla mæðu, Jesús,
bæði úti og inni
umfaðmi mig Jesús.

 

Góða helgiHappy


Stöð2 - óvandaður fréttaflutningur

Ekki góður fréttaflutningur Á Stöð2 í kvöld bendir til að  ríki ójafnvægi eftir fall efnahagskerfisins. Sama má segja um hagspekinginn Jón Daníelsson tæplega alveg hlutlægur. Undirritaðri tókst ekki að skilja rök og samhengi hans að vilja reka Davíð Oddsson seðlabankastjóra enda var hagspekingurinn ekki í umræðu þar sem fleiri hliðar á málinu væru dregnar fram;máflutningurinn  líktist frekar "æsifréttastíl" ekki samboðið virðingu háskólamenntaðs manns,  Hann virtist ekki gera sér grein fyrir að til þess að lækka vexti þarf samkomulag við launafólk (ein hlið af fleiri)að stilla launakröfum í hóf. Undirrituð veit ekki hvað gerist á bak við tjöldin en álíta má að reynt sé að ná samræmdum aðgerðum með stjórnvöldum og stjórnarandstöðu. Sideways

 


mbl.is Ekki gagnrýni á Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðlaus aðför Breta

Með ólíkindum að "vinaþjóð" ráðist á okkur  í nafni hryðjuverkalaga og rústi stærsta banka þjóðarinnar sem talið var að stæði vel. Sáttahönd getur ekki verið fyrsta skrefið í sáttargjörð og sleppa sáttaferlinu sem að lokum verður sáttargjörð. Forsætisráðherra okkar taldi lögsókn vera sú leið sem leysti ágreiningin með siðlegum hætti.
 
Hafi Gordon Brown Breta látið til skarar skríða gegn Íslandi til að afla sér vinsælda sem forsætisráðherra er það ekki sæmandi þjóð er vill láta taka sig alvarlega meðal siðmenntaðrar þjóða.
Ekki verður hjá því komist fyrir Ísland en að sækja rétt sinn á hendur Bretum reyna að rétta hlut sinn til að halda virðingu sinni í samfélagi þjóðanna.
 
 
Með virðingaleysi sínu hafa Bretar sýnt að þeir hafa gleymt lífsnauðsynlegri hjálp Íslands í heimstyrjöldinni síðari þegar siglt var með fisk til þeirra yfir hafið á neyðarstundu. Sýndu Íslendingar  hugrekki og fórnfýsi,  misstu fjölda manns og  skip er skotin voru niður af Þjóðverjum;samt var siglt linnulaust allan stríðstímann. Frown

mbl.is Viðræður við sendinefnd Breta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Egill Helgason í hlutverki Gróu frá Leiti"?

Ef Egill Helgason þáttastjórnandi/álitsgjafi vill vera trúverðugur í starfi sínu  getur hann ekki tekið að sér hlutverk Gróu frá Leiti í málflutningi  sínum eins og átti sér stað Kastljósinu í gærkveldi þegar mál vikunnar voru rædd. Það bar Davíð Oddsson á góma og tók Egill undir þá gagnrýni  með  tilvitnun í tvo hagspekinga er hefðu hringt í hann orðlausir  eftir viðtalið við Davíð í Kastljósinu, áttu ekki orð yfir framkomu hans. Óviðeigandi málflutningum þar sem orð hagspekinganna þurftu ekki að koma fram; nægilegt að þeir tjái sig orðlausir í síma við Egil Helgason.
 
Hagspekingar eru góðra gjalda verðir en ekki þeim til framdráttar að vitnað er til þeirra  eins og alvitrir séu þurfi  engan rökstuðning við sitt mál. Undirrituð er ekki alltaf sammála Gylfa Magnússyni hagspekingi en hann flytur sitt mál vel og röklega vekur til umhugsunar um að hver  og einn geti spurt röklegra spurninga.
 
Það er krafa til Ríkissjónvarpsins að þar sé gætt hlutleysi þótt mismunandi skoðanir geti komið fram. Vaknar sú spurning hvort ekki þurfi fleiri en einn ritstjóra til að meiri breidd komi fram í umræðu Kastljóssins. Umfram allt er hættulegt að búa til álitsgjafa sem helst ekki má mótmæla komi jafnvel  fram í eigin persónu er á að vera nægilegt í umræðunni.

Ísland "stórasta kreppulandið"

Alþjóðlegt krísuástand segir Katsu aðstoðarforstóri Alþjóðabankann gæti haft róandi áhrif ef Íslandi verði komið til hjálpar. Smáþjóð hefur áhrif á allan heiminn með falli bankanna jafnframt einskonar "píslavottur" fyrir ríki heims? Vonandi verður IMF bakland okkar er skásti kosturinn. Bretar verða að svara fyrir harkalegar aðgerðir gagnvart bönkunum hér á landi. Woundering

 


mbl.is Rússar og IMF sameinist um lán
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæn Dietrich Bonhoeffers um styrk í þrengingum

Halo Dietrich Bonhoffer þýskur guðfræðingur var tekinn af lífi í síðari heimsstyrjöld af nasistum. Hann skrifaði dagbók í fangabúðunum sem urðu vakning fyrir lifandi guðfræði þar sem Guð var ekki hátt upp hafin heldur mitt á meðal okkar í sorg og í gleði. Okkar fjármálakreppa er léttvæg miðað við þjáningar Bonhoffers í fangabúðum nasista:

Drottinn, Guð, mikil raun hefur komið yfir mig, áhyggjur eru að yfirbuga mig, ég veit ekki, hvert ég á að snúa mér. Guð, ver mér náðugur og hjálpa mér. Gef mér styrk til að standast þá erfiðleika, sem þú leiðir mig í, og lát ekki óttann ná tökum á mér. Annast þá, sem mér eru kærir, eins og faðir annst börn sín. Miskunnsami faðir, fyrirgef mér allar mínar syndir gegn þér og gegn mönnunum. Ég treysti á náð þína og fel líf mitt í hendur þér. Gjör við mig, hvað sem þú vilt og það, sem er gott fyrir mig. Hvort sem ég lifi eða dey, þá er ég hjá þér og þú hjá mér, Guð minn. Drottinn, ég vænti komu ríkis þíns og frelsunar þinnar.

 

Amen. Góða helgiHalo

 

 

 

 

 


Konur bankastjórar í fyrsta sinn

Konur komnar í "hreingerninguna" hjá Landsbankanum og GLITNI. Gott mála að konur skuli hafa menntun og reynslu,  að geta tekið  sér endurreisnina. Karlmenn hafa tæplega góða ímynd sem bankastjórar nú um stundir. Óska kvenbankastjórunum til hamingju og velfarnaðar í krefjandi starfi; þær munu vekja meiri athygli í starfi vegna þess þær eru konur, en þær  hafa byrinn með sér, draga upp seglin og sigla gegnum brim og boða. Happy

mbl.is Birna verður væntanlega bankastjóri Glitnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Landbúnaður - matvælaöryggi - kaupum innlendar vörur.

Mikilvægt  að íslenskur landbúnaður styrki stöðu sína ekki síst nú þegar erfiðleikar í fjármálum þjóðarinnar eru ógnar miklir. Nú er vonandi öllum ljóst að landbúnaður í eigin landi er okkar forðabúr nú og um alla framtíð. Augljóst að tryggja verður áframhaldansi framleiðslu með öllum ráðum - greiða niður áburð ef annar kostur er ekki í stöðunni.

Til þess þarf ekki að koma ef  hægt verður að lækka vexti þá má ætla að krónan styrkist þrátt fyrir núverandi erfiðleika. Nú reynir á samstöðu og þolinmæði allrar þjóðarinnar. Við núverandi aðstæður geta allir lagt sitt af mörkum með innlendum innkaupum sem allra mest.


mbl.is Bændur hafa áhyggjur af stöðu sinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Rússar -Sovét -Íslands óskalandið"?

Köld staðreynd að Bretland "vinir okkar" hafa sett okkar stærsta og stöndugasta banka á hliðina Þjóðin komin í þá  stöðu að ganga til samninga við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn eða leita til "vina" okkar Rússa sem nú rétta okkur hramminn í gervi úlfsins -  þekktu ævintýri um Rauðhettu litlu. Ekki hægt að fullyrða að endir umræddrar sögu  verði eins farsæll og í ævintýri Rauðhettu litlu;    allt  eins gæti ævintýrið endað með að þjóðin yrði gleypt af Birninum - eða keypt?
 
Tæpleg hægt að horfa fram hjá að Rússar eru herveldi og sækjast eftir sem mestum yfirráðum  í Evrópu selja þeim eldsneyti og hafa þar viðskiptaleg tök. Að hjálpa Íslandi er góðra gjalda vert en er um leið eftirsóttur konfektmoli vegna auðlinda (olíuauðlinda) og legu landsins er hentar vel fyrir Rússneska kafbáta og flugvélar til að hafa aðsetur.
 
Sú staða virðist blasa við að betra er að búa að sínu og byggja sig upp á þeim forsendum með Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Frown

Varaformaður Samfylkingarinnar segi af sér - annars stjórnarslit

Skynsamlegt  fyrir  Samfylkinguna að taka upp ábyrga stefnu og skipa nýjan stjórnarmann í seðlabankann; axla ábyrgð á erfiðu ástandi í þjóðfélaginu. Ekki viðundandi að flokkurinn sem er í samstarfi í ríkisstjórn skjóti sér undan erfiðum málum með framangreindum hætti. Það veikir ríkisstjórnina sem þarf samstöðu og styrk innan frá til að vera trúverðug gagnvart þjóðinni. 

Virðist vera upplausn og stjórnleysi innan flokksins  bæði vegna yfirstandandi erfiðleika í fjármálum þjóðarinnar og  vegna veikinda og fjarveru formannsins. Tveir kostir eru í stöðunni að skipa nýjan stjórnarmann í seðlabankann eða Samfylkingin lýsi vantrausti  á varaformanninn Ágúst Ólaf Ágústsson  og Össur Skarphéðinsson staðgengill Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur taki við.


Ábyrgðarlaus afsögn stjórnarmanns seðlabankans - verða stjórnarslit?

 Afsögn fulltrúa Samfylkingar, Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur úr stjórn seðlabankans  virðast vera misráðin aðgerð  til þess eins að valda jafnvel stjórnarslitum. Tilgangurinn ekki augljós á örlagastundu eins og nú. Umræddur fulltrúi veltir sér upp úr fortíðinni sem hún segir mistök í stjórn seðlabankans en horfist ekki í augu við vandann sem blasir við; öllu heldur er hún frekar að skjóta sér undan merkjum  sem ekki er trúverðug staða fyrir Samfylkinguna.
 
Hvað verður næst kemur nýr fulltrúi frá Samfylkingunni ef ekki þá er stjórnarsamstarfið í hættu? Samfylkingin getur ekki dansað frítt spil í alvarlegum aðstæðum í ákvarðanatöku stjórnar Seðlabankans. Hvaða fiskur liggur undir steini eru sterkir hagmunaðilar innan Samfylkingarinnar í spilinu- til hvers? Hvað með hagsmuni almennings í landinu?
 
Ekki verður vandamál fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hefja samstarf við Vinstri græna miðað við þá ábyrgu afstöðu  sem Steingrímur Sigfússon tók í viðtali Kastljóss í kvöld. Vonandi verður ekki stjórnarkreppa aðeins til að auka vandann.Woundering

"Framsókn leitar blórabögguls"

Framsóknarmenn  greinilega málþrota reyna að skella skuldinni á Seðlabankann hvernig komið er. En hér getur enginn undan litið með atburði síðustu viku. Kapítalistinn í heiminum hefur borið skipbrot. Auðveldara fyrir þá "skepnu" að leggja undir sig lítið þjóðfélag eins og okkar og dregið flesta undir merki græðgi og frjálshyggju, allt er leyfilegt í nafni "frelsisins". Stjórnvöld og seðlabankinn hafa unnið ötullega að gera fallið eins lítið og mögulegt er. Samt verða allir að horfast í augu við erfiðleika og vinna sig út úr skuldum með samningum er verða í boði.
 
 
Framsókn á sinn þátt í hvernig komið er ef um stjórnleysi er eingöngu um að kenna. Endurreisnin er ekki hafin þangað til ætti FRAMSÓKN  að axla sín skinn og sína ábyrga afstöðu á erfiðum tímum.
 
 

mbl.is Faglegan Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfélagsgildi er mölur og ryð fær ekki grandað

 Ríkissjóður hefur nú tekið yfir þrjá stærstu banka landsins,  ekki sér fyrir endann á gjörningaveðri fjármálann. Virðist vera að bankarnir hafi breyst úr   einkavæðingunni  í "óstöðvandi skrímsli” er teygja sig  langt út fyrir íslenskan veruleika, leika þann leik að sá græðir mest er nær að gefa hinum "náðarhöggið í hnattrænu  “pókerspili fjármálanna”.

 

“fjármálskrímslin”hafa gegnsýrt samfélagið á mörgum sviðum undanfarin ár. Almenningur hvattur til að kaupa sem mest, taka hundrað% lán, kaupa hlutabréf, kaupa nýja  bíla, eiga flottasta bílinn, rífa húsin af grunni, byggja ný; til að vera meiri og betri þjóðfélagsþegn, tekinn gildur í samfélagi frjálshyggjunnar og  græðginnar.

 

 Aukaafurð  "græðgiþjóðfélagsins" er kaupæði, slagsmál og fyllerí  er rífur niður samfélagið innan frá, ógnar   gildum er  siðlegt mannlíf byggist á. Eftir stendur óreiða í samfélaginu er setur  fjölskyldur og heimili í uppnám,  sjálfan  hornstein samfélagsins. 

 

 Ekki er ástæða til að örvænta vonin um betri lífsgildi stendur eftir og mun lýsa upp nýjan veruleika. Upp úr rústunum mun rísa  samfélag þar sem gildin eru verðmæti sem  mölur og ryð fær ekki grandað, samfélag er setur heimili/fjölskyldur í  forgang. Þá er mikilvægt að hafa kristin gildi að leiðarljósi þar sem kærleikur og umburðarlyndi verða kirkjan okkar óháð efnislegum verðmætum.Halo

 


Hagfræðingar verði trúverðugir?!

Ber mikla virðingu fyrir vel menntuðu fólki;  tel það auðlind hvers samfélags.  En háskólagengnir hagspekingar hafa gengið fram með´þeim hætti í fjölmiðlum,  ómögulegt er að henda reiður á hvað er rétt ekki rétt, satt eða ósatt. Ekki trúverðugt af hagfræðispekingum að þeir varpi rýrð á stjórnvöld án þess að það sé rökstutt með frambærilegum hætti. Allra síst í miðjum hríðarbylnum; eiga hafa siðferðilegan styrk til að halda jafnvægi.
mbl.is „Hér hreyfist ekki neitt"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ungs manns æði"

Ágúst Ólafur Ólafsson fylltist örvæntingu á morgunvakt Rúv. er braust út  í að  reka seðlabankastjórnina. Þegar stór áföll verða í samfélögum brýst út óreiða/anomy allt er í upplausn. Varaformaður annars stjórnarflokksins hefur líklega miss jafnvægið og er það óheppileg staða þar sem ábyrgð hans er tvöfalt meiri vegna veikinda formannsins.; mikilvægt  fyrir þá er halda um stjórnvölinn að halda ró sinni - nógir eru erfiðleikarni samt.

"Hryðjverk fjármálaheimsins - að höggva mann og annan"

Sigurjón Þ. Árnason bankastjóri útskýrði gölluð/siðlaus viðskipti heimsins (Rúv í gær) með einföldu dæmi: Jón Jónsson kaupir sér líftryggingu þúsund manns kaupa trygginguna/hlutabréfið í þeirri von að að hann deyi ekki. Ef hann deyr þá tapa þúsund manns "hlutabréfum sínum".

Minn skilningur samkvæmt þessu er að metnaður fjármálaheimsins er svipaður útrás  Egils Skallagrímssonar forðum; "að höggva mann og annan".


mbl.is FME yfirtekur Kaupþing
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband