Stjórn Glitnis biðjist afsökunar

FootinMouth Hagfræðingur  ( Jón Daníelsson) í Bretlandi sagði  á  Bylgjunni í morgun að viðbrögð stjórnar GLITNIS hefði skaðað traust á Íslands samkvæmt breskum fjölmiðlum. Stjórn bankans ætti  að biðjast afsökunar að hafa siglt bankanum í strand.
 
Ennfremur sagði Jón að bankar á Norðurlöndum yrðu ekki ánægðir ef Seðlabankar þeirra lánuð ísl. bönkum sökum þess þeir væru í samkeppni við þá og í svipuðum erfiðleikum. Jón Daníelsson taldi að aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins væri ekki slæmur kostur í þeirri stöðu er nú er uppi. Hann taldi einnig að yfirlýsing með inngöngu í ESB hefði  ekki nokkra þýðingu á þessari stundu. Fram kom í umræðunni (Bylgjan) að yfirlýsing um inngöngu í ESB yrði aðeins til að sundra þjóðinni á ögurstundu.að. Tvímælalaust ætti að auka veiðiheimildir þar sem nóg væri að fiski og meira mætti veiða bæði í ýsu og þorski.

Norrænn björgunarhringur?

Ljós í myrkrinu ef rétt reynist að fá lán hjá frændum okkar. Erfið og þung spor en engum er betur treystandi en Geir og Davíð. Góð baktrygging að hafa stjórnarandstöðuna? í bakspeglinum - alla vega Vinstri græna er hafa lýst yfir vilja til a axla ábyrgð

Vonandi verður ESB-aðild slegin úr af borðinu fyrst um sinn allra helst alveg enda einskis að vænta þaðan.Woundering


mbl.is Rætt við norræna seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Drottningarviðtal við Bubba - hvar er trúbadorinn?

Skemmtiþáttur vetrarins hljóp af stokkunum í kvöld á Ríkissjónvarpinu með Bubba sem heiðursgest. Þátturinn var yfirkeyrður einhvern veginn  með hjáróma glamri.  Þáttastjórnandinn hló í sífellu "tannburstahlátri" allt eitthvað svo yfirborðslegt með ísköldu málmbjölluhljóði - en hinn raunverulegi Bubbi með gítarinn og vasaklútinn  ekki mættur á svæðinu?Gasp

 


Stjórnvöld vonandi í góðu jafnvægi?

Þrautalending gæti orðið að leita til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins  ekki ástæða til að taka ákvörðun nú um samninga við ESB er  ekki hafa  náð tökum á eigin vandamálum. Þjóðin er beðin að halda ró sinni ekki síður þurfa ráðamenn að vera í jafnvægi og taka réttar ákvarðanir; - ekki stinga höfðinu í sandinn og ákveða samninga við ESB. Engin rök til þess því efnahagslegt jafnægi er ekki í augsýn.

Það yrði álíka niðurlæging eins og þegar skrifað var undir konungseinveldið hér í Kópavogi árið 1662.


mbl.is Tekist á um ESB-tillögu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barnaleg ályktun jafnaðarmanna

ErrmGott væri fyrir unga jafnaðarmenn að fá Ólaf Ragnar Grímsson forseta til að haldi fyrirlestur um fullveldisdag okkar 1. des til útskýringar á baráttu þjóðarinnar fyrir sjálfstæði sínu;hann gæti farið yfir sviðið og kynnt fyrir þeim hvernig þjóðin reis úr sárafátækt til velmegunar nútímans er spratt af útgerð og stórvirkjunum.

Áframhaldandi velmegun verður ekki nema  auðlindir verði nýttar áfram til þess kortir ekki hugvit eða menntun. 


mbl.is Krefjast þess að Davíð víki
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldskírn ESB

Nú reynir á styrk og samstarf ESB í eigin ranni eins og USA. Samkvæmt fréttum er undirmálslán USA fléttuð saman og "flutt út til Evrópu" síðan vafin samin í "hlutabréfavafninga" Evrópu (og víðar?)erfitt að fóta sig í þeirri flækju.

Eitthvað fyrir hagspekingana í Háskólanum að útskýra fyrir okkur almúgann!

Umræddir vafningar minna einna helst á netaflækjur á grásleppuvertíð eftir langa brælu. Nánast útilokað að greiða ekki skorið nema í ýtrustu neyð; þeir sem ekki gera það hafa alltof háan "netakostnað".

Er ekki skynsamlegt að bíða aðeins með samninga við ESB meðan þessi hyllega "hlutabréfaflækja " er greidd - sjá hvað þeir þurfa að "skera" niður í fjármálakerfinu?


mbl.is IMF: Evrópa verður að sýna viðbrögð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samningar um efnahagsmál - ekki á hnjánum inn í ESB!

ShockingHvers vegna þarf að blanda inngöngu ESB inn í efnahagsmálin á viðkvæmu stigi þegar helstu samtök sitja við samningaborðið að  bjarga efnahag landsins? Er ástæða til að taka svo viðkvæmt mál á dagsskrá þegar  nauðsyn er á samstöðu - ekki síst meðal þjóðarinnar sjálfrar.

Geir Haarde er ekki í stjórnakreppu getur myndað stjórn með Vinstri grænum ef Samfylkingin ætlar að skjóta sér undan merkjum drepa umræðu efnahagsvandans á dreif; nota sér erfiðar aðstæður og hefja samningaviðræður á hnjánum/ skríðandi til Brussel.Sideways


mbl.is Aðeins í örugga höfn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Saman í göngutúr - saman í leik og starfi

Happy Full ástæða að hafa  hófstillta umræðu fyrir börn/foreldra á heimili og skólanum. Börn eru næm á líðan foreldra sinna/kennara finna ef  þau eru kvíðin og áhyggjufull. Foreldrar í návist barna þurfa (alltaf) að skoða hug sinn með jákvæðum hugsunum  koma kyrrða á hugann þá verða börnin róleg. Vera í návist barnanna taka þátt í leik og starfi þeirra -  þau verða glöð  gaman að deila áhugamálum með pabba og mömmu - eða afa og ömmu.
 
Laga matinn saman um helgina (ekki kaupa pitsu alltaf) fá sér göngutúr saman í náttúrunni  endalausri fegurð og kyrrð í sköpunarverki Guðs; - fallegt veður verður á morgun til að skoða náttúruna saman - verðmæti sem mölur og ryð fær ekki grandað.
Halo Góða helgi.
 
 
 
 

mbl.is Taka undir tilmæli um hófstillta umræðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þorsteinn Már áfram formaður Glitnis?

Happy Þorsteinn Már Baldvinson hefur jafnað sig eftir erfiða ákvörðum  er áreiðanlega hefur tekið á taugarnar þar við bætist álag fjölmiðla án þess tími hafi verið til hvíldar. Það er erfitt fyrir duglegan og heiðarlegan sjómann að horfast í augu við fjárhagsvandræði Glitnis. "Engin er verri þótt hann vökni" - sjómenn eru vanir vondu sjólagi er oftar en ekki  lífshættulegt. Þorsteinn Már verður vonandi formaður Glitnis áfram enginn betri eftir slíkan brotsjó er hann gekk i gegnum við erfiðleika Glitnis.

mbl.is Hvetur hluthafa Glitnis til að samþykkja tilboð ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Hagfræðin grýttur vegur - röð misktaka"?

Halo Samnefnari Guðfræði og Hagfræði á sér samhljóm. Sá sem vill fylgja Kristi í einu og öllu er alltaf háður mannlegum breyskleika hversu vel sem hann leitast við að fylgja honum. Þá er að hafa þolinmæði  að ganga þrönga veginn þótt grýttur sér; rísa á fætur og halda áfram.
 
Eins er með Hagfræðina þótt hagfræðispekingurinn leggi alltaf sitt allra besta fram með hagfræðikenningum og reiknilíkönum þá eru útfærslan alltaf háð mannlegum mistökum, getur allt eins leitt til ófarnaðar þegar útkoman hefur farið í gegnum marga "glóbalhlutabréfavafninga"þvers og kruss um lönd og láð; þarfnast eflaust endurskoðunar eftir slíka ferð.Sideways

mbl.is Ummæli Gylfa Magnússonar óábyrg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarslit?

Sideways Ef rétt reynist að lausn Samfylkingarinnar á efnahagsvandanum er að reka Davíð Oddsson þá er Geir forsætisráðherra nánast neyddur til að slita stjórnasamstarfinu og taka upp stjórnarsamstarf líklega helst við Vinstri græna. Versti kosturinn væri að efna til kosninga á þessum óvissutímum.
Yfirtaka Glitnis var óumflýjanleg til að gera bröskurum grein fyrir að ekki sé hægt að seilast í ríkiskassann  hvert skipti þegar í óefni er komið. 

mbl.is Íhuguðu að slíta stjórnarsamstarfinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldsneytisskortur í sjónmáli?

Blush Þrátt fyrir lækkun eldsneytis hækkar verðið innanlands vegna gengislækkunar. Við bætist fréttir af innlendum olíumarkaði að skortur sé í sjónmáli vegna gjaldeyrisskorts. Ekki eru til nema í mesta lagi mánaðarbirgðir. Þá er bara að kaupa sér góðan göngugalla fyrir veturinn og versla gangandi fyrir þá sem það geta. Vonandi batnar hagur okkar en augljóslega verður erfitt árferði þótt batinn komi hægt og hægt.

mbl.is Olíuverð lækkar á heimsmarkaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umræða um þjóðstjórn skynamleg?

SidewaysGetur tæplega talist óeðlilegt eða inngrip í stjórnmál þótt Davíð Oddsson hafi slegið fram umræðum um þjóðstjórn á ríkisstjórnarfundi þar sem hann var staddur til að greina frá ástandi hagstjórnar og bankamála. 
 
Samstarf allra fyrirtækja, samtaka og einstaklinga er afar nauðsynleg nú um stundir í bankakreppunni. Varla skynsamlega umræða af menntamálaráðherra að gera úlfalda úr mýflugu  í  fjölmiðlum þótt Davíð hafi varpað fram hugmynd um þjóðstjórn- til að brýna ríkisstjórnina til samvinnu og dáða. Sideways

mbl.is Seðlabankastjóri þekki sinn stað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Fóbían og hefndarþorstinn í seðlabankanum".

Fóbían um illsku og hefndarþorsta Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra gagnvart Baugi  hefur skinið skært í sviðsljósinu  vítt og breytt um samfélagið með hjálp fjölmiðla og einstaklinga;  gert hann  vanhæfan í starfi sínu  í vandamálum Glitnis Nýjasta stirni Framsóknar Höskuldur Þór Þórhallsson skrifar grein (Fréttablaðið í dag) um vanhæfi Davíðs. Hann segir: “ Ákvörðunin hefur gríðlegar afleiðingar fyrir þá menn sem hann [Davíð]  hefur átt í stríði viðundanfarin ár”. Segist Höskuldur finna stoð í lögum um vanhæfi Davíðs. Tilgreinir rök sín með tilvísun  í hæfisreglur stjórnsýslulaga.(nr?)

 

Hvernig ætlar Höskuldur að sanna að Davíð hafi verið óhæfur vegna haturs þegar hann var ráðinn Seðlabankastjóri? Nær væri að horfa á þá staðreynd að bankakerfið er löngu vaxið upp fyrir höfuð á íslenska hagkerfinu og ef fleiri bankar eiga í erfileikum þá ræður ríkið einfaldlega ekki við  stuðning um fjárþörf.

 

Áreiðanlega hafa vandamál Glitnis verið ígrunduð vandlega – líklega í ljósi þess að fleiri vandamál kynnu að vera í farvatninu. Nú hefur seðlabankastjórnin (og forsætisráðherra ) fundað með forsvarmönnum Landbankans og Kaupþings. Má draga þá ályktun að enn séu stórvandamál framundan. Ekkert er óeðlilegt að forætisráðherra sé kallaður til og skýrt hvernig málin standa. Umrætt Glitnisvandræði voru að sjálfsögðu kynnt öllum stjórnmálaflokkum og sýnir hvað vandinn er alvarlegur og djúpstæður.

 

Höskuldur telur nauðsynlegt að aðeins veljist fagmenn til starfa í seðlabankanum. Nógir eru hagspekingarnir í Seðlabankanum. Samt ramba bankarnir á barmi gjaldþrots. Sérhæfir hagfræðingar á sviði fjármála eiga að sjálfsögðu rétt á sér og eru mikill styrkur fyrir stjórnum peningamála. Seðlabankastjórinn þarf að hafa víðtæka reynslu úr atvinnu- fjármálalífi þjóðarinnar. Tvímælalaust hefur Davíð Oddson þá reynslu -og menntun sem lögfræðingur og getur ekki talist vanhæfur sem seðlabankastóri. Umrædd  reynsla er gagnast vel til   að vega og meta fræðilegar ráðleggingar með skynsemi og innsæi þegar ákvarðanir eru teknar.

 

Umrædd fóbía er merki um þroskalitla umræðu er þjónar ekki þeim tilgangi að varpa réttu ljósi á þá hagstjórn – og bankakreppu sem nú stendur. Sorglegt að vel menntaður og efnilegur stjórnmálamaður; og Höskuldur Þór Þórhallsson skuli falla í slíka  gryfju rétt nýbyrjaður í stjórnmálum.



Davíð sjálfsagður í Þjóðstjórn.

Ef rétt reynist að Davíð hafi viðrað hugmynd um þjóðstjórn þá er fjármálakerfið í meiri kröggum en komið hefur fram. Davíð Oddson, seðlabanalstóri er sá maður sem hefur hugrekki og vitsmuni til að taka á erfiðum málum og verður sjálfsagður þjóðstjórnina. Núverandi stjórnarflokkar ættu að eiga þar  þar fulltrúa (Geir og Ingibjörgu). Þá mætti hugsa sér Ögmund Jónasson og jafnvel Guðjón A. Kristjánsson. Einhvern ábyrgan staðafastan Framsóknarmann en dettur enginn í hug svona í skyndi fyrir þetta blogg. Þá mætti hugsa sér formann bændasamtakann, fulltrúa frá verkalýðshreyfingunni og einn frá sjávarútvegsmönnum. Þessar uppástungur eru með fyrirvara og gætu breyst við nánar íhugun.Sideways

 


mbl.is Seðlabankastjóri viðrar hugmynd um þjóðstjórn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kristinn H. Gunnarsson - talsmaður Baugsveldis?

Undirrituð hefur  haft samúð með Kristni Gunnarssyni vegna þess að oft virðist sem hann hafi tæplega haft málfrelsi í þeim flokkum sem hann hefur fylgt. Enga samúð er hægt að hafa með málflutningi Kristins í Kastljósi í kvöld um að Seðlabankinn hafi ólöglega tekið Glitni eignarhaldi við mjög slæmar aðstæður. Hvernig getur nokkrum manni dottið í hug, að ekki hafi verið kannaður vilji beggja stjórnaflokkanna auk þess var stjórnarandstaðan samþykk yfirtöku Glitnis? Málið er í eðlilegum farvegi og eflaust verður leitað formlega eftir samþykkt Alþingis en  breytir ekki stöðunni  að málefni Glitnis gátu ekki beðið eftir umræðu og afgreiðslu Alþingis er hefði getað leitt þjóðarbúið í strand með skelfilegum afleiðingum er hefði gert út um trúverðugleika fjármálakerfisins um ófyrirsjánanlegan tíma.

Skýrt kom fram í máli Péturs Blöndal í umræddum þætti að ríkistjórnin geti tekið skjótar ákvarðanir ef mikill vandi steðjar að eins og í Glitnismálinu. Þessa ákvörðun varð að taka áður er markaðir opnuðust á mánudagsmorgun um það er ekki nokkur vafi.

 Nú hefur Kristinn Gunnarsson fengið tækifæri til að losa sig alveg frá þingmennsku og gerast talsmaður Baugsmann áreiðanlega vantar þá sárlega slíkan mann sem allra fyrst; ekki munu margir sækjast eftir þeirri stöðu eins og málum er komið. Næg verkefni eru til staðar. Sigurður Guðjónsson formaður Glitnis (fyrrverandi?) sagði á Stöð2 í kvöld, að fyrir hendi væru mjög góð veð þótt Seðlabankinn tæki ekki mark á þeim. Nú er bara að hefjast handa fyrir Kristinn H. Gunnarsson að kynna  sér málin svo Baugsmenn geti keypt bankann aftur áður en hluthafafundur skellur yfir í næstu viku.


Barnanleg nauðvörn Bónusforstjórans - "Mýrarljós í fjármálakreppunni"?

Sideways Enn heldur Jón Ásgeir Jóhannesson áfram að persónugera fjármálavandræði sín í Davíð Oddssyni seðlabankastjóra í örvæntinga sinni eða "barnaskap." Hluthafar verða að axla sína ábyrgð og taka á sig taprekstur í óraunhæfri fjárfestingu að því er virðist. Annars er hætt við að mat í fjárfestingum yrðu ekki nægilega ígrundaðar.

 Hvað með almenning í landinu á hann að taka á sig töp í fjárfestingum stóreignamanna? Hefur nóg með sig í kreppunni. Jón Ásgeir virðist ekki hafa mikla samúð með sauðsvörtum almúganum þegar á að lána eða "gefa" stóran hluta þjóðartekna í Glitni sem ekki var  nein tygging fyrir að næði landi í vandræðum sínum. 

Það er sauðsvartur almúginn sem heldur uppi Bónusverslunum með viðskiptum sínum sem greidd eru út í hönd. Ráðlegg Jóni Ásgeiri að ávaxta þann gróða með mikilli yfirvegun.Sideways


ENGA - VINSTRI STJÓRN!

Versta sem gæti komið fyrir í kjölfar núverandi fjármálaheimskreppu yrði vinstri stjórn hér á landi.

Man vel eftir síðustu vinstri stjórn fyrir u.þ.b. 25árum en hún er versta stjórn sem hefur setið við völd hér á landi að mati undirritaðrar. Minnistæður er skattaafslátturinn sem þeir lægst launuðu áttu að fá. Þeir sem voru snjallastir að "fela tekjur sínar" fengu bæturnar. 

Þá var nýsköpunarstjórnin (Sjálfstæðismenn og Sósíallistaflokkurinn) betri hún kom afli í sjávarútveg og atvinnulíf sem varð undirstaða  núverandi velmegunar.

 

Það væri áhugavert fyrri sagnfræðinga  að skoða þessi tímabil í stjórnmálum þjóðarinnar ekki síður en Hafskipsmálið.

 

Undirrituð hefur alltaf haft þá skoðum að Samfylkingin væri sá flokkur sem hún gæfi síst atkvæði sitt svo er enn. Fyrst og fremst vegna undirlægjustefnu sinnar í Evrópumálum gagnvart ESB.

Samt sem áður er æskilegt að núverandi stjórn sitji áfram út kjörtímabilið og reyni að leysa vandamálin. Annað stjórnarmynstur hefði tæplega nægilegan styrk til að halda velli í moldviðrum fjölmiðlanna sem ekki eru nægilega málefnalegir heldur virðast fremur fjalla um málin  í æsifréttastíl.

 


Ef Glitnir hefði orðið gjaldþrota - hvert væri lánshæfismat ríkisins þá?

Hvert hefði lánshæfismat ríkisins orðið ef það hefði bjargað Glitni með lánum (þriðjung þjóðartekna)  og fleytt bankanum með afborganir ef til vill í þrjá mánuði? Illskást fyrir ríkið að eignast meirihluta. Ríkið hefur ekkert grætt á yfirtöku bankans ennþá þótt hlutabréf hafi hækkað lítillega í verði; hver vill kaupir hlutabréf í Glitni og hvar fæst fjármagn til þess? Enn er tækifærið fyrir hendi áður en hluthafafundur Glitnis skellur á.Sideways

Eina sem Jón Ásgeir getur gert er að axla ábyrgð á fjármálum sínum í stað þess að ráðast með örvæntingu á Davíð Seðlabanksstjóra í von um að drepa umræðuna á dreif um hans eigin vanda - og hluthafana í fyrirtækjum Baugs.  Sideways


mbl.is Jón Ásgeir: Sagði að þetta yrði feigðarför
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankarnir eru hluti af frjámálakerfi/fjármálabraski um allan heim?

Nú dynur yfir fjölmiðlaumræðan um vandræði Glitnis en fáum ber saman: "Harkalegar aðgerðir", "Bankarán Íslandssögunnar","persónuleg óvild Jóns Ásgeirs Jóhannessonar  í Baugi og Davíðs Oddssonar seðlabankastóra", Þorsteinn Már Balsvinssorn formaður Glitnis "hálfgrátandi og svefnlaus", allt að því neyddur til að skrifa undir samning við Seðlabankann. Erfitt fyrir venjulegt fólk að skilja hvað gerðist og hvað verður næst.

 Það sem raunverulega átti sér stað þegar reynt er að lesa úr fréttum fjölmiðla: Glitnir var á barmi gjaldþrots vegna þess að geta ekki staðið í skilum á gjalddögum og leitaði til Seðlabankans til að fá 6% (83 milljarða) af þjóðartekjum í lán en niðurstaðan varð að ríkið keypti 75%hlut í bankanum.

Stoðir  í eigu Baugs? fóru í greiðslustöðvun, fá frest til að selja eigur til að forða gjaldþroti. Það sem verra er að Stoðir eiga a.m.k. 30% í Glitni en Landsbankinn er svo stærsti lánardrottin Stoða. Kallast víst á fagmáli "hlutbréfavafningar/fléttur" sem á mannamáli skilst sem hlutbréf ýmissa fyrirtækja fléttuð saman á marga vegu út og suður um allan heim eftir atvikum, því við erum líka hluti af fjármálabraski rétt eins og eðlilegum fjármálaviðskiptum í heiminum

Undirrituð dregur þá niðurstöðu af framgreindum fréttum og umræðum að ekki eru öll kurl komin til grafar ennþá. Ef Landsbankinn verður  að afskrifa lánin hjá Stoðum hvað þá? Hvað verður um eignir Stoða í Glitni?  Er Landsbankinn næsti höfuðverkur Seðlabankans og þess vegna þótti ekki ráðlegt að lána Glitni 83 milljarða úr ríkiskassanum?Frown

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband