10.5.2008 | 13:46
Hvítsunnudagur - sálmur 174...
Send mér eld í anda eilífðar úr heimi,
Drottinn. Lífs af lindum
ljós þitt til mín streymi.
Grafist gamlar sorgir.
Gleymist dagsins mæða.
Sé mín þrá og sigur
sókn til þinna hæða.Kraft af krafti þínum,
Kristur, lát mig finna.
Sólarsýn mér veittu,
svölun orða þinna.
Hlekkir sundur hrökkvi,
húmi létti' af jörðu,
þegar naprast næðir,
nótt að degi gjörðu.Helga þú mitt hjarta
helgum anda þínum.
Öndvegi þú eigir
innst í huga mínum.
Minnstu ei á mínar
mörgu, stóru syndir.
Þvoi þær í burtu
þínar kærleikslindir.Kom þú, Kristur hæða,
kom í dýrð og veldi.
Hjarta heimsins skírðu
himnakrafti' og eldi.
Boðskapur þinn breiðir
blessun löndin yfir.
Þúsundfaldar þakkir
þér, sem í oss lifir.
Gleðilega hvítasunnu.
E. M. Jónsson (Afritað af kirkjuneti Þjóðkirkjunnar)
Sb. 1945
Stjórnmál og samfélag | Breytt 11.5.2008 kl. 10:54 | Slóð | Facebook
10.5.2008 | 09:28
Strandsiglingar - hagkvæmur kostur?
Þótt gjaldtaka á vörubílum væri hækkuð eru ekki líkur til að flutningar út á land verði ódýrari eða geti haldið upp vegaframkvæmdum til þess er umfangið ekki nógu stórt. Tillaga Ármanns á fullan rétt á sér til að athugunar á hagkvæmni sjóflutninga jafnvel með ríkistyrkjum. Þótt íbúar séu fáir úti á landi þá hlýtur að verða að horfa til þess vanda sem olíuhækkun hefur; þótt ekki sé nema á nauðsynjavörum að verðlag sé sambærilegt við Reykjavíkursvæðið.
Ritstjóri 24stunda virðist ekki horfa með þeirri yfirsýn að landið allt sé undir þar sem að öllum líkindum verði ódýrara að hefja strandsiglingar þótt með ríkisstyrkjum væri ef til vill til að byrja með.
Undirritaðri er ekki kunnugt um hvernig rekstur 24stunda er háttað en gerir ráð fyrir að það sé rekið fyrir auglýsingatekjur. En hverjir greiða auglýsingarnar þegar upp er staðið? Eru það ekki þeir sem lesa blaðið - kaupa vöruna og standa því óbeint undir rekstri 24stunda?
Vonandi stendur Ármann Kr. Ólafsson fast á hugmynd sinni um strandflutninga hér á landi; og það verði varanlegur kostur til framtíðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:35 | Slóð | Facebook
9.5.2008 | 15:48
Sameiginlegt helgihald katólskra og lúterskra.
Sameiginlegur fundur Katólsku kirkjunnar og Þjóðkirkjunnar er gleðitíðindi. Eflaust báðum aðilum til farsæls samstarfs til framtíðar og er það vel. Hef sótt messu í Katólsku kirkjunni um skeið og fundist Guðs náð vera meiri nærvera þar en ég hefur áður átt að venjas hjá Þjóðkirkjunni. Erfitt að setja slíka reynslu í orð en einhvern vegin þá er allur umbúnaður helgihalds katólskra þannig að hann hjálpar til að stilla sig inn á einlæga bæn til Guðs. Það skiptir óendanlega miklu máli í helgihaldi allra kirkna, að hið heilaga, eitthvað ósnertanlegt sem erfitt er að mynda orð um sé umgjörð; til að nálgast tilbeiðslu til Guðs af öllu hjarta.
Eflaust er er erfitt í sameiginlegu helgihaldi að hafa Máltíð Drottins um hönd vegna mismunandi guðfræðilegs skilnings Eftir kynni mín af sakramenti katólsku kirkjunnar finnst mér það standa miklu nær en ég hef kynnst samkvæm lúterskri trú. Verð að játa að ég fann ekki náð Guðs og fyrirgefningu í kirkju fyrr en við katólska messu.
![]() |
Samkomulag um afnot af kirkjum og helgihald |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.5.2008 | 14:08
"Leikhús borgarinnar"?
Vel má taka undir framangreind sjónarmið forystugreinar Mbl í dag að borgarfulltrúar Reykjavíkur hafi allt að því frá upphafi verið eitt allsherjar leikhús. En hverjar eru stjörnurnar í þessari endalausu revíuseríu? Að mati undirritaðrar hefur hundraðdagameirihlutinn algera yfirburði með stjórnartíð sinni. Algjört stjórnleysi þar sem málefnin voru ekki í sjónmáli nema þegar Dagur borgarstjóri birtist til að segja hvað hann ætlaði að gera en aldrei varð neinn veruleiki?
Verkefni hundraðdagameirihlutans/minnihlutans nú er leiksýning, til að koma Ólafi frá, mun tíminn leiða í ljós hvernig tekst til? Ekki virðist standa á fjölmiðlum að gera sem mest úr árásunum á borgarstjórann og leiðir Stöð2 ótvírætt þann hluta sýningarinnar?
Síðasta stóra leikatriðið hundraðdagameirihlutans var þegar Ólafur F Magnússon tók við stjórninni. Þar mætti á áheyrandapalla, að því er virtist stuðningsmenn Dags, með skrílslátum sem lengi verður í minnum haft. Ólætin beindust fyrst og fremst að verðandi borgarstjórna en fráfarandi borgarstjóri hafði greinilega stuðninginn og hélt um stjórnataumana á leiksviðinu þar sem stærsta leikatriðið til þessa fór fram?
Nú er að bíða eftir lokaatriði borgarstjórnar Reykjavíkur en viðbrögðum borgarbúa er vart að vænta fyrr enn í næstu borgarstjórnarkosningum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:48 | Slóð | Facebook
8.5.2008 | 13:03
Hundraðdaga meirihlutinn skýtur yfir markið?
Undarlegt upphlaup út af ráðningu Jakobs Frímanns Magnússonar sem verkefnisstjóra miðborgar og heyrir beint undir borgarstjóra. Undirrituð man ekki betur en Guðmundur Steingrímsson hafi verið ráðinn til aðstoðar Degi B. Eggertssyni án þess að nokkurt upphlaup yrði út af því. Er ekki þessi ráðning ekki nokkurn vegin sambærileg?; og eðlilegt að borgarstjóri hafi einhvern sér við hlið sem hann getur treyst? Ekki virðist um svo auðugan garð að ræða innan hans eigin stuðningsmannahóps í borgarstjórn sem fylgir jafnvel ennþá núverandi minnihluta.
Fyrrverandi 100daga meirihluti ætti að finna sér verðugra verkefni til að vekja athygli meðal almennings en framangreinda ráðningu.
![]() |
Óánægja vegna launakjara Jakobs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.5.2008 | 12:27
Skynsemin ræður ekki?!
Engin rök styðja að framgreint ástsand verð leyst með inngöngu í ESB. Alltaf fylgi böggull skammrifi. Reikna má með fyrirsjáanlegu atvinnuleysi sem Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnarins virðast ekki hafa nokkrar áhyggjur af. Seðlabankinn í Brussel mundi ekki heldur hafa nokkrar áhyggjur af hvort sjávarútvegur og fyrirtæki hér á landi gætu búið við svo sterkan gjaldmiðil og Evruna, þegar við verðum kominn í ESB. Atvinnuleysi mun verða sama vandamál eins og í öðrum ESB-löndum. Staða Evrunnar er sterk eins er, en farin að valda aðildarríkjum erfiðleikum(Ítalíu, Írlandi, Spáni).
Innganga ESB er ekki lausn á vandamálum þjóðarinnar nú heldur verða bankar, fyrirtæki og einstaklingar að búa við aðhald og sparnað til að ná kjölfestu enda engin von um inngöngu í ESB við núverandi aðstæður. Hvað varðar efnahagslögsögu landsins er hún víðs fjarri lögsögu ESB og fiskistofnar hér við land staðbundnir að mestu leyti. Sjávarútvegur er stærsta útflutningsgrein okkar og verður enn um langa framtíð, tryggir efnahagslega stöðu og um leið sjálfstæði þjóðarinnar, sem aldrei má fórna fyrir stundarhagsmuni og óstjórn í efnahagsmálum.
Verðlækkun á innfluttum vörum er ekki gefin við inngöngu í ESB. Ekki einu sinni landbúnaðarafurðum sökum hækkandi heimsmarkaðsverðs vegna skorts á nægilegri framleiðslu. Það er ábyrgðarlaust hjal að ræða um inngöngu ESB við þær erfiðu aðstæður/óstjórn sem nú ríkir hér á landi, erfiðleika sem ekki eingöngu er hægt að heimfæra upp vandamál er nú ríkja í peningamálum erlendis.
Undirrituð efast um hvort skynsemina ræður í framangreindum skrifum Kolbrúnar Bergþórsdóttur?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:09 | Slóð | Facebook
4.5.2008 | 20:54
Guðni Ágústsson formaður - í kröppum dansi
Halldór Ásgrímsson fyrrverandi formaður stóð alltaf fastur á því sjónarmiði að ekki kæmi til greina að ganga í ESB nema fiskimiðin yrðu algerlega undir íslenskri stjórn. Valgerður nefndi það ekki á nafn í sínum yfirlýsingum bara að hefja umræðuna nú þegar - og sækja um aðild.
ESB-sinnar hafa haft forystu í Framsókn um langan tíma. Líklega síðan Steingrímur Hermannsson var formaður svo Guðni mun eiga í erfiðleikum þótt hann kalli alla framsóknarmenn vina sína. Enginn er annars bróðir í leik og það veit Guðni sjálfsagt þótt hann beri sig vel. Vonandi nær hann að sigla beint áfram og sjá fyrir skerin í tæka tíð ef Framsókna ætlar að ná fram fyrri styrk sínum.4.5.2008 | 11:35
Viðvarandi drykkjuvenjur - í miðborg Reykjavíkur?
Samt flögraði ekki að undirritaðri að hér væri um almennan vanda að læra þegar fólk skemmti sér í miðbæ Reykjavíkur enda voru framangreind ólæti ekki í fréttum eins og nú. Hafði haldið að svona skrílslæti ættu sér aðeins stað á sumarhátíð eða um verslunarmannahelgi úti landi enda nógur fréttaflutningur af þ.h. ólátum. Það er ánægjulegt að núverandi lögreglustjóri hefur tekið fast á vandanum og fréttaflutningur af slíkum uppákomum í borginni ekki haldið til hlés.
Lögreglustjórinn er réttur maður á réttum stað og fær almennna borgara til liðs við sig í viðleitni sinni til að halda uppi venjulegum umgengnisvenjum þótt fólk skemmti sér.
![]() |
Líkamsárás, ölvun og ólæti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:52 | Slóð | Facebook
3.5.2008 | 10:28
Maímánuður tileinkaður Maríu Guðsmóður
María Guðsmóðir átti sterk ítök áður fyrr í katólskri trú hér landi um það bera vott mikill fjöldi miðaldakvæða frá þessum tíma.
Eftirfarandi kvæði er eftir Jón Pálsson Maríuskáld er lést 1471:
Máría sárin
mætust bætir,
menn fá af hennar
magni fagnað.
Veitist sveitum
vildust mildi
móðir þjóða og margar bjargir.
Skáld hafa ort kvæði Maríu Guðsmóður til dýrðar fram á okkar daga. Það sýnir að María Guðsmóðir hefur enn ítök sem eiga sér óslitnar rætur frá katólskri trú hér á landi. Stefán frá Hvítadal (1887 1933) orti eftirfarandi kvæði:Varst þú eitt með vorri þjóð, virtir hennar minjasjóð, heimtist öld af himni rjóð hneig að brjósti þínu. Sálir bundust sínu. Heilaga móðir, heimt þú enn, hlíf þú landi mínu.
Útdráttur úr KAÞÓLSKA KIRKJUBLAÐINU: Sr. Júrgen Jámin. Góða helgi

Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:02 | Slóð | Facebook
1.5.2008 | 09:06
Aðlsteinn Jónsson útgerðarmaður - sjónarsviptir
Íslenska þjóðin á mikið að þakka mönnum eins Aðalsteini Jónssyni útgerðarmanni sem lögðu hornsteininn að íslenskum sjávarútvegi nútímans. Enn er íslenskur sjávarútvegur mikilvægasti þáttur í útfutningstekjum þjóðarinnar. Fer verðmæti hans vaxandi vegna fyrirsjáanlegrar hækkunar á heimsmarkaðasverði sem telja má viðvarandi til framtíðar. Íslenskur sjávarútvegur verður vonandi enn um sinn ein sterkasta stoð í framförum til almannaheilla.
Til að svo megi verða mega fiskimiðin aldrei verða undir erlendri stjórn heldur að byggja áfram á dugnaði og framtaksemi framkvæmdamanna í landinu sjálfu.
Gleðilega hátíð 1. maí!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:42 | Slóð | Facebook
29.4.2008 | 12:08
Innganga í Evrópusambandið - íslensk þjóðarvitund.
Ritstjóri 24 stunda (26. apríl) telur álit Sturlu Böðvarssonar forseta Alþingis um áhyggjur af þjóðarvitund og sjálfstæðis Íslands vegna hugsanlegra inngöngu Íslanda í Evrópusambandið óþarfar. En er það svo? Umræðan hjá Evrópusinnum nú er í ljósi verðbólgu og slæms efnahafsástands. Þá verður umræðan virkari en tæplega raunhæfari; þegar skóinn skreppir að þjóðinni vegna versnandi lífskjara?
Ekki er að ófyrirsynju að skoða upphaf ESB sem stofnað var eftir heimstyrjöldina síðari er var hápunktur margra alda stríðsreksturs í Evrópu; þar sem Kola- og stálbandalagið var fyrsta tilraunin til að efla samstarf Þjóðverja og Frakka með því að gera löndin efnahagslega háð hvort öðru. Má segja að löndin hafi haft það grunnmarkmið að standa vörð um eigin auðlindir. Síðan hefur sambandið vaxið og þróast og eru aðildarríkin nú 27 er sjálfviljugt samstarf fullvalda ríkja.Efnahagsstefnan hefur samt verið kjarni (og er enn) Evrópusamstarfsins sem byggir á opnu markaðshagkerfi. Með félagslegri vídd; að markmiði að standa vörð um lýðræði, mannréttindi, og frelsi einstaklingsins til orðs og athafna. Nær nú til margra sviða: Umhverfismál, félagsmála og rannsókna- og tækniþróunar.
Stórþjóðirnar í ESB hafa miklu meiri styrk en smáþjóð eins og Ísland, að standa vörð um hagsmuni sína og velferð. Ekki er hægt að halda því fram að okkar rödd muni heyriast nægilega, þegar/ef ESB ákveður kvótann í sjávarútvegi, vegna örsmæðar þrátt fyrir sterkan vilja.
Það er augljóst að þjóðarvitund og skilningur þarf að vera um, hverju við erum að fórna með inngöngu í ESB. Nú er er fyrirsjáanleg hækkun og skortur á matvælum í heiminum (og orkuskortur), sem hlýtur að kalla á nýja sýn og umræðu þjóðanna í ESB.
Ekki síður fyrir umræðu um okkar landbúnað og hvernig við tryggjum okkar matvælaframleiðslu. Sama má segja um aðrar auðlindir okkar þegar litið er til framtíðar. Það er raunhæft að þær tilheyri okkur alfarið til að tryggja stöðu okkar sem þjóðar þegar litið er til framtíðar.
Ábyrg umræða um framgreinda stöðu þarf að fara fram. Að framansögðu er grunntónn umræðunnar um inngöngu í ESB í þá veru að með inngöngu verði efnahag okkar borgið ; en á þeim forsendum er ekki hægt að ganga til þjóðaratkvæðis um inngöngu í Evrópubandalagið.
Til þess þurfum við sterka sjálfsvitund og ábyrga umræðu sem byggir á okkar stöðu/hagsmunum sem smáþjóðar með dýrmætar auðlindir til lands og sjávar. Þeirri umræðu má í raun aldrei ljúka ef við viljum vera sjálfstæð þjóð í samfélagi þjóðanna.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 30.4.2008 kl. 16:50 | Slóð | Facebook
24.4.2008 | 05:46
Mótmæli vörubílstjóra - og eldsneytisverð
Undirrituð hefur haft samúð með vörubílstjórum fram til þessa. En eru ekki aðgerðir þeirra að snúast upp í andhverfu sína? Má segja að ekki hafi það styrkt málstað þeirra að trufla opinbera heimsókn á Bessastöðum; það hafi verið kornið sem fyllti mælirinn ásamt mótmælunum í gær við Rauðavatn? Samt sem áður þarf að gera úrbætur á aðstöðu bílstjóra á löglegum hvíldartíma.
Ef lögreglan handtekur fólk sem veitir mótspyrnu, sem myndað er og klippt til, þá sýnir það ekki rétta mynd af atburðinum þegar forsendur vantar. Fjölmiðlar þurfa að gæta sín vel þegar slík fréttamynd er sýnd. Ríkissjónvarpið gaf greinargóða mynd af atburðunum þar sem lögreglan og bílstjórar tjáðu sig um átökin.
Við öll höfum áhyggjur af dýru eldsneyti og ef til vill byggist samúð okkar á þeim staðreyndum; þrátt fyrir það er nauðsynlegt að virða lög og reglur. Það er skylda lögreglunnar að gæta laga og réttar sem hún gerði við erfiðar aðstæður í mótmælum vörubílstjóra.
Ekki þarf að búast við lækkun eldneytis á heimsmarkaði í framtíðinni og verðum við öll að horfast í augu við þá staðreynd. Ætlast verður til af stjórnvöldum að þau jafni verð á bensíni og díslelolíu er ætti að vera auðvelt í gegnum skattlagningu. Díselolía var ódýrari enda er húm vistvænni kostur. Verð á díselolíu og bensíni þarf að endurspegla jöfnuð og réttlæti; sem ekki er til staðar þar sem diselolína er mun dýrara. Þennan mun verður að jafna sem allra fyrst.
Gleðilegt sumar!
![]() |
Mjög mikil spenna á Suðurlandsvegi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.5.2008 kl. 14:04 | Slóð | Facebook
23.4.2008 | 07:40
Næsti forseti Bandaríkjanna - þeldökkur?
Ferill bandarískra þeldökkra manna fyrir réttindabaráttu hefur verið langur; kostaði miklar fórnir er náðu hámarki þegar Martin Luther King leiðtogi þeirra var myrtur. Frá sjónarhorni mannrréttindabaráttu þeldökkra má segja að Obama sé verðugur fulltrúi þeirra er vilja réttindi til allra manna óháð litarhætti. Hann er betri kostur af tveimur afar góðum frambjóðendum demókrata.
![]() |
Clinton sigraði í Pennsylvaníu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.4.2008 kl. 17:11 | Slóð | Facebook
22.4.2008 | 04:40
Ábyrgðarlaus umræða - um ESB?
Að mati undirritaðrar hefur umræðan verið áberandi meiri í fjölmiðlum að taka verði upp Evru. Ganga inn í ESB sem allra fyrst til bjargar bönkunum og þeim sem hafa tekið eyðslulán/innlend lán/erlend lán, er fyrirsjáanlegt var að erfitt yrði að greiða vegna eyðslu umfram greiðslugetu. Framangreind staða veldur síðan m.a. verðbólgu vegna þess að eytt er meira en aflað.
Ekki er hægt að segja að bankarnir hafi dregið úr hvata til að lána fyrr en í óefni var komið og þeir gátu ekki lánað meira. Seðlabankanum síðan kennt um stjórnleysið í peningamálum, sem þó er að reyna að varðveita stöðu gjaldmiðilsins eins og honum ber samkvæmt lögum og þess fólks sem hefur með ráðdeild kosið sparnað frekar en óhóflega eyðslu. Við þessar aðstæður er teknar skoðanakannanir sem eiga að stjórna efnahagsmálum þjóðarinnar. Sama virðist vera með Seðlabankann. Samkvæmt skoðanakönnun treystir fólk ekki Seðlabankanum. Davíð Oddson á að fara frá samkvæmt fimm hundruð manna úrtaki hjá Útvarpi Sögu. Síðan kemur formaður Samfylkingarinnar/utanríkisráðherra í kjölfarið og tekur undir fjölmiðlafárið -og tyftar löggjafarsamkundu þjóðarinnar til hlýðni við málstaðinn að því er virðist.
Samkvæmt framagreindu virðist vera þörf á fjölmiðlalögum til að reyna að fyrirbyggja einsleita umræðu þar sem sterkir álitsgjafar/eigendur fjölmiðla gæta aðeins hagsmuna þröngra hagsmunahópa. Lýðræði og ábyrg umræða sem varðar þjóðarhag í víðum skilningi virðist aukaatriði; ekki minnst á auðlindir þjóðarinnar til lands og sjávar. Eiga þær ef til vill að verða skiptimynt til að komast inn í ESB?
Vonandi verður umræðan um inngöngu ESB ábyrgari og raunhæfari í framtíðinni- ekki síst þeirra sem skipa núverandi ríkisstjórn.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.5.2008 kl. 16:07 | Slóð | Facebook
21.4.2008 | 03:12
Benedikt páfi boðberi friðar/kærleika Krists

Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:56 | Slóð | Facebook
20.4.2008 | 17:18
“Nú er hún Snorrabúð stekkur”

Kaldhæðni örlaganna að einmitt þar sem Jónas frá Hriflu skóp samvinnuskólann til uppbyggingar í menntun samvinnuhugjónarinna til að efla þátt landsbyggðar bæði til sjávar og sveita; efldi þar með sjálfsmynd og framfaramátt þeirra er vildu byggja upp atvinnulíf í landinu sjálfu við það harðbýli sem veðurfar og lega þess hefur skapað eyþjóð norður í Atlandshafi.
Nú er öldin önnur sú kynslóð sem situr við völd í Bifröst boðar nú inngöngu okkar í ESB sem lausn á öllum efnahagsvanda væntanlega einnig undir þeim sjónarmiðum að afsala sér auðlindum til lands og sjávar til Brussel. Baráttan fyrir frelsi okkar og auðlindum er aukaatriði. Nú getum við lifað í vellystingum, áhyggjulaus um framtíð þjóðarinnar; henni er borgið í örmum þýsku blokkarinnar sem öllu ræður þar innanstokks?
Gengið hefur verið markvisst skref fyrir skref á framtíðarsýn og atvinnulíf landsbyggðarinnar (-og þjóðarinnar)er Jónas frá Hriflu skóp á síðustu öld; henni kastað fyrir róðra, stefnum hraðbyri - og hverfum brátt sem þjóð inn í Evrópusambandið?
Sannarlega er hægt að taka undir með skáldinu: Nú er hún Snorrabúð stekkur. - í Bifröst.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 21.4.2008 kl. 08:21 | Slóð | Facebook
2.2.2008 | 11:37
Kyndilmessa
Munnmæli hérlendis greina frá um leifar katólks siðar að menn hafi lýst upp bæi sína á Kyndilmessu. Var kertið steypt með fyrir jól stærra en önnur og tendrað á kyndilmessu. Fundist hafa nokkur dæmi hér á landi um framagreinda siðvenju frá Helgu Halldórsdóttur(f.1903) úr Staðarsveit á Snæfellsnesi:
Hjá foreldrum föður míns voru steypt kerti til jólanna á haustin og eitt mjög stórt kerti var steypt og geymt til þess að kveikja á Kyndilmessukveldi. Kjartan Þorkelsson, sem var sonur sr. Þorkels á Staðarstað og heimilisvinur foreldra minna. Hann sagði að móðir sín Ragnheiður Pálsdóttir hefði látið steypa kyndilmessukerti og var það látið loga á miðju matborði þegar kvöldmatur var borðaður á Kyndilmessu. Þetta kerti var látið loga til heiðurs Maríu Jesúsmóður". (Hauksbók, 81,95, 131, sbr. XXVI, 273, 311)
Framangreint efni er tekið úr Sögu daganna eftir Árna Björnsson, bls 491-492.:
Góða helgi
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.4.2008 kl. 05:38 | Slóð | Facebook
27.1.2008 | 20:28
- aftaka eða gálgahúmor?
Grín spaugstofunnar á núverandi borgarstjóra, Ólaf F. Magnússon, eru beinlínis beinar persónuárásir þar sem gert var grín að veikindum hans. Skemmst er að minnast markvissra árása Spaugstofunnar á Halldór Ásgrímsson fyrrverandi forsætisráðherra marg endurteknar. Hver er tilgangur Spaugstofunnar með svona framferði? Er verið að reyna að hafa pólitísk áhrif með afar vafasömum hætti? Getur tæplega verið verjandi fyrir Ríkissjónvarpið að styðja að slíkan mismunun?
Undirrituð telur að Spaugstofan sé löngu farin að lifa sjálfa sig og kominn tími til að hún leggi upp laupana. Ef það er þá ekki stefna Ríkisjónvarpsins að hafa áhrif á stjórnmál með svo lágkúrulegum hætti sem raun ver vitni? Við eigum nóga gamanleikara sem ekki eru líklegir að hafa slíka rætni í frammi og spaugstofumenn leyfa sér. Ráðast með persónulegum hætti að fólki, taka af lífi; eða stimpla í hugum fólks sem óábyrgar/ óæskilegar manneskjur. Gagnrýni í víðum skilningi á vissulega rétt á sér í opinberum fjölmiðlum en þarf að vera innan þeirra marka að draga ekki menn og málefni niður á lágkúrulegt plan. Þá helgar tilgangurinn ekki meðalið.
Undirrituð minnist síra Sigvalda í skáldsögu Jóns Thoroddsen er notaði undirferli og einfeldni fólks til að koma ár sinni fyrir borð; var ekki vandur að meðölum sínum. Gagnrýnin á klerkinn risti svo djúpt, að vafasamt er, hvort nokkur maður gæti hugsað sér að læra til prests, ef hann héti Sigvaldi. Þótt umrædd gagnrýni sé beitt beindist hún ekki persónulega að neinum manni heldur gagnrýni á spillingu sem Jón Thoroddsen hefur talið sig finna í prestastétt, sem gegndi reyndar þá, einnig ýmsum veraldlegum störfum samfara prestsstarfinu á þeim tíma.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 29.1.2008 kl. 02:55 | Slóð | Facebook
25.1.2008 | 23:28
Listaverk allra tíma -
Nú er hafinn lestur passíusálma sr. Hallgríms Péturssonar hvert kvöld kl 22:12, á RUV. Sígilt meistaraverk allra tíma - á heimsmælikvarða í bundnu máli. Sr. Ólafur Hallgrímsson les af hjartans innlifun sem glæðir lesturinn lífi. Gott að hlusta hvert kvöld, færir skammdeginu birtu og il. Ef misst er úr er hægt að hlusta á sálmana síðar í gegnum netsíðu RUV
Upphaf formála sr. Hallgríms Péturssonar sjálfs: Það verður dýrast, sem lengi hefur geymt verið og gefur tvöfaldan ávöxt í hentugum tíma framborðið, sagði Markús Varró. Umþenking guðrækileg herrans Jesú pínu og dauða er vissulega dýrmæt, og hver sigur langvaranlega gefur til þeirrar umþenkingar og ber jafnan Jesú Kristí píslarminning í sínu hjarta, sá geymir hinn dýrasta hlut. Og með því ég hef hennar langvaranlegu íhugun mér í brjósti geymt, eftir þeirri náð, sem minn góði guð hefur mér af náð sinni gefið, þá ber ég hana nú loksins fram opinberlega í þessum sálmum fyrir öll upp á Jesúm lítandi augu og Jesúm elskandi hjörtu, svo mikið sem ég kann og ég get í þau fáorðu sálmavers innbundið. (...)
Hallgrímur Pétursson p.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 26.1.2008 kl. 08:35 | Slóð | Facebook
24.1.2008 | 17:28
Félagshyggjuöfl eða fasistar?
Sjaldan eða aldrei hefur undirrituð orðins eins hissa og að horfa á hegðun félagshyggjuaflanna í borginni í beinni útsendingu frá borgarstjórnafundinum í dag. Hvernig getur fólk kallað sig lýðræðissinna sem kemur fram eins og ótíndur rumpulýður. Ekki heyrðist mannsins mál fyrir skrílslátum, varð að fresta fundi; málfrelsi og siðleg hegðun fótum troðin. Sorglegt að sjá fráfarandi borgarstjóra nota aðstöðu sínu með því að lýsa yfir ánægu sinni með framferði síns fólks. Undirritaðri hefur fundist umræddur Dagur vilja koma kurteislega fram og virða samræðulýðræði með virðingu fyrir andstæðingum sínum. Nú brá svo við að hann misstu dómgreindina þótt hann væri aðeins að missa borgarstjórastólinn með lýðræðislegum hætti.
Sagði Dagur, að í dag ætti að kjósa í Reykjavík, ekki bara í Ráðhúsinu, heldur í borginni allri vegna þess að borgarbúum væri misboðið. Þrátt fyrir ungliðahreyfingu Samfylkingarinnar og fimm þúsund undirskriftir getur Dagur ekki tala fyrir hönd allra borgarbúa með framangreindum hætti; eða Reykjavíkur sem höfuðborgar þjóðarinnar. Lengi mun skömm fráfarandi meirihluta verða minnst hjá þeim sem virða lög og rétt landinu.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.1.2008 kl. 16:47 | Slóð | Facebook