Forsetinn - forystuhlutverki í heimsviðburði

Hringborð Norðurslóða er  heimsviðburður  þjóðir heims taka sig saman gegn stærstu ógnuninni , loftlafsbreytingunni – stærsta málið að koma á verndarsvæðum til að vernda líffræðilega fjölbreytni.

Ráðstefnan gæti orðið afgerandi vísbending til þjóða heims á loftlagsráðstefnunni í París í des.nk.

Forseti Íslands virðist nú þegar  orðinn sterkur leiðtogi meðal þjóða í – framangreindum málefnum – til mikils gagns og sóma fyrir þjóðina.innocent


mbl.is Með vísindi og rannsóknir að leiðarljósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ofurhetja í mannlifinu.

Átakanleg saga lítils barns er gengur í gegnum meiri erfiðleika í lífinu en nokkur  getur gert sér í hugarlund ; þrátt fyrir allt er það umhyggja og kærleikur er verndar hann gegnum „brim og boða“ andlegra  veikinda móður hans sem ekki er sjálfráð gerða sinna.

 Með undarverðum hætti kemst hann í gegnum hatur og reiði til geðveikrar móður  er verður  litlu systur hans að bana.- við bætist  eigin notkun eiturlyfja.  

Ekki síst vegna kærleika og umhyggju afa og ömmu er reynast honum mikilvæg kjölfesta.

„Það er alltaf von, lífið er það dýr­mæt­asta sem við eig­um og það eina sem við meg­um ekki gera er að stoppa,“ segir þessi unga unga afrekshetja að lokum.

Er það ekki þrátt fyrir allt neisti vonarinnar  er verður hans  sterkasta haldreipi;   hinn guðlegi neisti trúar, vonar og kærleika er býr í brjósti sérhvers manns? innocent


mbl.is Maðurinn sem lifir með harminum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Rannsóknarréttur Vinstri grænna"

Engin af þessum svokölluðu "ástandskonum" eru bættari þó að  hörmungartímabil stríðsáranna fari fyrir rannsóknarrétt.

Töluvert verið um málið fjallað –RÚV flutti nokkra heimildarþætti í leikformi að mig minnir í fyrra .

Fremur ættu sagnfræðingar gera málinu góð skil – tilvalið í ritgerð í háskólanámi.

Vinstri grænir/stjórnarandstaðan ættu að líta sér nær í tíma nógu er af að taka  í  velferðarmálum;  eða er stefna þeirra í hjálpsemi við náungann aðeins í orði ekki á borði?  innocent


mbl.is „Svartur blettur í sögunni“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimtufrekja samkynhneigðra?

Það eru sjálfsögð mannréttindi að blóðþegar fái eins heilbrigt blóð og kostur er. Læknir er kom fram í fréttum RÚV í gærkveldi  útilokaði ekki að  blóð samkynhneigðra karlmanna gæti verið óheilbrigt. Blóðgjöf er ekki sjálfsögð mannréttindi; eru það mannréttindi að sjúklingar taki áhættu með lífi sínu með blóði úr samkynhneigðum karlmönnum?

Er það heilbrigð réttindabarátta að blóð úr samkynhneigðum skuli vera á boðstólum þrátt fyrir viðvaranir færustu sérfræðinga?-  Er það heilbrigt að samkynhneigðir fái að gefa blóð í nafni mannréttinda – jafnvel  þó það kosti aðra lífið? – Er það  heilbrigð skynsemi að samkynhneigðir fái að hlaupa eftir sjúklegum hugmyndum um að þeir verði að gefa blóð í nafni réttlætis og mannréttinda?


mbl.is Hommar fái að gefa blóð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vistvænn eða lífrænn landbúnaður?

Munur á vistvænum  og lífrænum landbúnaðar er fólginn í að meiri kröfur eru gerðar til sjálfbærni og hreinleika afurða í lífrænni framleiðslu.

Ekki hefur verið nægilegt eftirlit með framleiðslu vistvænna afurða: Merkið „vistvæn landbúnaður“ jafnvel misnotað sem merkingar á venjulegri landbúnaðarafurð.

Verður vistvæn landbúnaðarframleiðsla lögð niður með niðurfellingu reglugerðar sökum skorts á eftirliti?

Ef til rökrétt að vera ekki með svokallað millistig milli lífrænna afurða  og venjulegra afurða - villandi fyrir neytendur.innocent


mbl.is Reglugerð um vistvæna landbúnaðarframleiðslu felld brott
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetaviðtalið -

Gott viðtal við forsetann þar talaði vitur menntaður maður með mikla reynslu; leiðtogi er ber hag þjóðar sinnar fyrir brjósti

Hvort sem hann fer fram eða ekki þá hefur hann breytt forseta embættinu – þau sem fara fram verða að opna hug sinn fyrir þjóðinni í mikilvægum málum: Neitunarvaldi forseta samkvæmt stjórnarskrá, þjóðaratkvæði  og auðlindir í eigu þjóðarinnar jafnvel kjördæmaskipan.

Framangreint viðtal getur haft áhrif á framvinduna   hvaða  tillögur í stjórnskipan verða bornar undir þjóðina er nú eru í vinnslu.innocent

 

 


mbl.is Tilkynnir um framboð í nýársávarpi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sálmur eftir konu -nr. 375

Sálmurinn „Hærra minn Guð til þín,“ vinsæll sálmur, oft fluttur við útfarir er fallegur trúarsálmur sungin víða í hinum kristna heimi.

Sálmurinn er eftir enska kven- ljóðskáldið Söru Adams (1805-1848) er  lést í blóma lífsins.

Sara var Unitarian þ.e að Guð sé einn aðili andstætt  við faðir, son og heilagan anda, heilaga þrenningu  í okkar kristni.

 Sr. Mattías Jochumson þýddi sálminn - var hallur undir unitarisma, kirkjunni til mikils ama; hélt þó stöðu sinni sem prestur vegna mikillar alþýðuhylli sem sálmaskáld:

 

Hærra, minn Guð, til þín,

hærra til þín,
enda þótt öll sé kross
upphefðin mín.
Hljóma skal harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.

Villist ég vinum frá
vegmóður einn,
köld nóttin kringum mig,
koddi minn steinn,
heilög skal heimvon mín.
:,:Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.

Sofanda sýndu þá
sólstigans braut
upp í þitt eilífa
alföðurskaut.
Hljómi svo harpan mín:
:,: Hærra, minn Guð, til þín, :,:
hærra til þín.

 

Eigið góðan sunnudag innocent


Túnis ljós friðar og lýðræðis-

Kom skemmtilega á óvart að  Natoonal Dialoluge Quarter í Túnis hlaut Friðarverðlaun Nóbelsl. Túnis er ljós í myrkrinu ,  hvatning og  fordæmi fyrir stríðshrjáðrar þjóðir í Afríku - fólki á flótta undan ofbeldismönnum. Athyglisvert hvernig  Kvartettinn er skipaður : Samtök iðnaðar og handverks/ viðskipta, mannréttindaráð Túnis og samtök lögfræðinga.

Ekki traustvekjandi að stórveldin reyni frið með vopnum – eykur   aðeins ófirð  milli þjóða – innbyrðis ófrið þar sem bræður berast á banaspjótum; er veldur hatri um langan aldur.

Með allri virðingu fyrir Merkel Kanslara Þýskalands er sannarlega reynir að ná utan um flóttamannavandann til Evrópu og skapa samstöðu milli aðildarríkja sinna í ESB.

Verður Merkel erfitt markmið í framkvæmt ef skrifstofuveldið í Brussel á senda tilskipanir að ofan.innocent


mbl.is Friðarverðlaunin til Túnis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisvaldið sýnir lögreglu óbilgirni?

Lögreglunni ber virðing og þolinmæði  í kjarabaráttu sinni – stétt er oftar en ekki  vinnur  hættulegt og krefjandi störf að gæta öryggis  borgarann - stétt sem hefur ekki verkfallsrétt en setið eftir launum.

Vonandi sýnir ríkisvaldið virðingu  í samskiptum; yfirlýsing um  að boðuð veikindaforforföll lögregluþjóna séu ólögmæt verkfallsboðun bætir ekki andrúmsloftið nema síður sé – öryggi borgaranna var ekki stefnt í hættu að mati ríkislögreglustjóra.

Óumdeilt á lögreglan á skilið verulega kauphækkun vonandi takast samningar sem allra fyrst.innocent

 


mbl.is Um 70 lögreglumenn tilkynntu forföll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Umhverfisvænir " bílar blekking -

Þýskar vörur hafa þótt hágæðavörur – nú virðist gróðahyggja með hjálp tækni hafa skaðað ímynd  þýsks bílaiðnaðar  - enda er lagt mikið kapp á upplýsa málavexti. Umhugsunarvert að með aukinni tækni og menntun er engin virðing borin fyrir umhverfisvernd og mengun – gróðahyggjan ofar öllu .Milljónir manna um allan heim aka á þýskum „umhverfisvænum“ bílum í góðri trú; mengun eitt stærsta vandamál  heimsins gengur að kaupum og sölum . 

Þegar þýskur iðnaður verður uppvís að svo stórfelldu svindli – hvernig er þá staðan á öðrum sviðum/löndum – vonandi tekst öflugu eftirliti að halda vöku sinni?


mbl.is Húsleit í höfuðstöðvum Volkswagen
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfengisfrumvarðið til umræðu á Alþingi

Áfengisfrumvarpið er til umræðu á Alþingi í dag  má segja það málefnalega umræðu; greinilega er er málið þverpólitískt. Alþjóða heilbrigðismálastofnunin telur óbreytt fyrirkomulag hér til fyrirmyndar öðrum þjóðum. Fjöldi samtaka og almennir borgarar hafa lýst andstöðu sinni við áfengisfrumvarpið: Landlæknir hefur lýst yfir andstöðu –Hjúkrunarkvennafélagið, læknafélagið, kirkjan, SAMAN-hópurinn, Lýðheilsustöð, skólabörn, þingmenn í öllum flokkum, fræðslustjóri/skólamenn og yfirlæknir á Vogi.

Talið er að þrjátíu þúsund manns hér á landi eigi við áfengisvanda að stríða. Þá má reikna með að a.m.k um hundrað og fimmtíu þúsund manns, fjölskyldur þessa fólks er eiga í samfélagslegum erfiðleikum vegna áfengisneyslu vandamanna sinna; fyrir utan alvarleg umferðarslys og sjúkdóma er áfengi veldur.

Allar rannsóknir sýna að takmarkað aðgengi áfengis dregur úr áfengisnotkun.Tæplega lýðræðisleg lausn ef þingmenn ætla með þverpólitískri samstöðu að þröngva áfengi í matvöruverslanir í nafni frelsis –þá gæti frelsið snúist í andhverfu sína ófrelsi.

Tilvalið mál að vísa til forsetans um þjóðaratkvæðgreiðslu- þjóðin fái að taka endanlega álkvörðuninnocent


Egilsstaðir - London beint flug.

Góð tíðindi fyrir Austurland – nú verður hægt að skreppa til London  í lengri eða skemmri tíma  taka flug áfram er verður ódýrara  en hér þekkist. Vonandi lækkar innanlandsflugið við samkeppnina. Flug Egilsstaðir - Reykjavík er ekki raunhæft  nema líf liggi við – heyrði frásögn manns nýverið hann greiddi 47.000 fram og til baka.

Sjálfsögð krafa að íslensku flugvélögin útskýri verðmuninn – bjóði upp á lægri fargjöld. Bensínið er eflaust dýrara hér - ef til við væri hægt selja  það í innanlandsflug á  innkaupsverði?   innocent


mbl.is Flogið milli Egilsstaða og Lundúna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn hafi meirhluta -

Núverandi forseti virðist hafa breytt forsetaembættinu til frambúar með vísun til þjóðaratkvæðis samkvæmt orðanna hljóðan í stjórnarskránni. Að kjósa næsta forseta með afgerandi hætti  gerir stöðu hans sterkari með meirihluta þjóðarinnar að baki. Vonandi tekst að semja skýrar reglur þar um á mannamáli sem almenningur skilur;  verði ekki lagtæknilegar flækjur  með óskýru orðalagi  og endalausri túlkun lögfræðinga/fræðimanna um hvað þær snúast.


mbl.is Forseti þurfi meirihluta atkvæða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vítahringur - svikinna loforða

Vítahring stjórnmálamanna  sífellt svikinna  loforða til eldri borgara um betri lífskjör  verður að linna.

Ef litið er til baka ársins 2009 er vinstri flokkarnir fengu völdin hófst eindæma árás á kjör eldri borgara þrátt fyrir „skjaldborgina“ frægu: Lækkun lífeyris, upptaka eigna, og afnám grunnlífeyris; skerðing eldri borgara varð langt umfram aðra samfélagsþegna.

 Launaskrið varð verulegt  meðal  launafólks; en eldri borgarar  sátu eftir.

Nú afsaka þessir sömu vinstri flokkar Samfylking og Vinstri grænir framangreindar árásir flytja  frumvarp á alþingi um bætt kjör eldri borgar; sami vítahringurinn að venju.

Fyrir síðustu kosningar  reit Bjarni Benediktsson, núverandi fjármálaráðherra í Mbl. 9.04-13: „Það er réttlætismál að veita öldruðum raunverulegt frelsi til að njóta ávaxta ævistarfs síns. Í þágu þess réttlætismáls ætlar Sjálfstæðisflokkurinn að vinna".

Nú hafa lögin um afnám grunnlífeyris verið numin úr gildi og 9% hækkun launa lofað um næstu áramót - en getur ekki verið ásættanlegt ef reiknað er með 300þús.lágmarkslaunum í mánaðarlaun.

Vonandi tekst formanni sjálfstæðisflokksins að sjá til þess að núverandi stjórnarflokkar  standi við stóru loforðin  til eldri borgara– vítahringurinn verði rofinn.innocent


Eru sjúkir eldri borgarar "niðursetningar"?

Þegar sjúkir eldri borgara eru svo illa komnir að þurfa dveljast á hjúkrunarheimili eru þeir sviptir lífeyri sínum og skammtað skammarleg upphæð (52.000)fyrir persónulegum þörfum: Klipping/snyrting, snyrtivörur, sími/tölva, fatnaður og afþreying leikhús og þ.h.

Smánarleg framkoma;  brot á sjálfvirðingu þeirra og mannréttindum.

Við ofangreindar aðstæður ætti að fara fram hlutlaust mat á persónulegum þörfum viðkomandi að viðstöddum fulltrúa frá hinum sjúka.

Ekki að Tryggingastofnun eða hjúkrunarheimili hirði laun þeirra og skammti þeim smánar vasapeninga.

Brýnt er að breyta ofangreindu fyrirkomulagi og virða mannréttindi sjúkra eldri borgara.

 


Hvert er hæfnismat grunnskólabarna?

Eftir að hafa lesir upplýsingar um bókstafsgjöf í Mbl er undirrituð engu nær –hvað er „hæfnismat“?

Dæmi í  prófi : Anna fékk fimm karamellur, hún borðaði 2 –hvað eru margar eftir?

Óli svarar þrjár.

Lóa svarar hún gaf mér eina, borðaði sjálf tvær þá eru tvær eftir =2 karamellur

Sveinn svarar hún gaf mér tvær, borðaði sjálf tvær, gaf Lóu eina –það er engin eftir= 0 karamellur.

Hvaða hæfnismat fá framangreind börn í stærðfræði– hvaða bókstaf?innocent


mbl.is Hvaða þýða bókstafseinkunnir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bæn Gísla frá Uppsölum:

Gísli frá Uppsölum minnir um margt á meinlætamenn/einsetumenn fyrri tíma er drógu sig út úr samfélaginu; fjarri  samtíma sínum lifði hann  meinlætalífi í innilegri bæn til Guðs.

 

 Bæn Gísla frá Uppsölum:

 Þegar raunir þjaka mig

þróttur andans dvínar

þegar ég á aðeins þig

einn  með sorgir mínar.

 

Gef mér kærleik, gef mér trú

gef mér skilning hér og nú.

 

Ljúfi drottinn lýstu mér,

svo lífsins veg ég finni.

Láttu ætið ljós frá þér

ljóma í sálu minni.

 

Eigið góðan sunnudaginnocent


Ótrúverðug könnun - stærsta fall ríkisstjórnar -

Ótrúleg/ótrúverðug  skoðanakönnun í þætti Gísla Marteins (RÚV) í gærkveldi, að Jóhanna Sigurðardóttir sé vinsælasti forsætisráðherrann af sex síðustu? Ríkisstjórn Jóhönnu kolféll eftir eindæma lélega stjórn efnahagsmála – stærsta fall ríkisstjórnar frá upphafi.

Auk þess var Steingrímur J. Sigfússon  "forsætisráðherrann" í orði og á borði;  Jóhanna kom aðeins fram sem „glanspía“ þegar við átti.

 

Skoðanakönnun ætti ávallt að  sýna hvar í landinu fólkið er sem svarar - hvaða aldurshópur tekur þátt –  var hún aðeins framkvæmd á Reykjavíkursvæðinu eða jafnvel „Reykjavík 101"?  

Var ekki umræddur þáttur Gísla M. Baldurssonar - ísmeygileg tilraun til að reyna finna samhljóm/glansmynd hjá  "vinstra liðinu"-? innocent


Táningaldur -viðkvæmt þroskastigi.

Hvers vegna ögra unglingar með þessum hætti –hverju eru þeir að mótmæla? Þeir eru að feta slóðina til fullorðinsára er  brýst út sem ögrun við heimili, skóla og samfélag. Hegðun þeirra verður þvert á þau norm/fyrirmyndir er þau þekkja  vel. Ómeðvitað/meðvitað eru þau að kalla eftir viðbrögðum sem eru eðlileg  í glímunni á táningsaldrinum.

þá þarf nánasta umhverfi heimili og skóli að bregðast  rétt við með  skilningi; ræða við unglinginn á  hans á erfiða og viðkvæma þroskaskeiði.

Fjölmiðlar eru tæplega vettvangur til blása út hegðun unglinga á viðkvæmu þroskastigi.innocent


mbl.is Biðst afsökunar á athugasemdunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Goðafoss - eldsvoði í óveðri

Undirritaðri er  fersku minni ferð með Goðafossi í nóvember 2010 er skall á aftaka veður  og stórsjór   milli Íslands og Færeyja. Þá kom  upp eldur í skipinu; tæplega  spurt að  leikslokum hefði ef skipið orðið vélarvana; rekið stjórnlaust fyrir veðri og  vindi.

Hugrekki og áræði áhafnarinnar  tókst vafalaust að forða stórslysi; þá skiptu sköpum rétt handtök. Áhöfnin  var í mikilli hættu við slökkvistörfin vegna elds og óveðurs er brotsjór reið yfir skipið; litlu munaði að þrír færu útbyrðis, einn hékk aðeins á annarri hendi við borðstokkin.

Slys gera ekki boð á undan sér  sífellt vofir hætta yfir sjófarendum vegna óveðra/ólags er engu eira. Með  örari tækni og góðum búnaði skipa verður hættan ef til vill fjarlægari í undirmeðvitund  þeirra er vinna á hafi úti;  huga þarf vel að  bjögunarbúnaði, æfingar séu reglulega um borð, allir viti hvernig bregðast á við  fljótt og fumlaust.

Tæplega fá orð lýst þeirri lífsreynslu að  verða sjónarvottur  í  umræddum aðstæðum.innocent


mbl.is Slökkvistarf við mjög erfiðar aðstæður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband