Blikur á lofti-

Enn syrtir í álinn á vinnumarkaði – verköll á næsta leiti . Samningar hljóta að verða á svipuðum nótum og aðrir hafa fengið;  eitthvað verður þrefað í nokkrar  vikur áður en málið lendir fyrir gerðardóm. Mikilvægt  að  halda þeim stöðugleika er náðst hefur;eftir því sem nær dregur alþingiskosningum verður erfiðara að semja; kjaradeilan verður tæki til að  fella núverandi stjórnarflokka.

Sama hringekjan hjá öllum flokkum, lofa öllu fögru en umsvifalaust svikið eftir kosningar.

Þó gæti orðið breyting á með nýju afli, svokölluðum Pírötum, óánægjan gæti sópað að þeim fylgi?

Spennandi tímar framundan.innocent

 


mbl.is Reynt til þrautar á Landspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Bræður berast á banaspjótum"

Dapurlegt hvað Sameinuðu  þjóðirnar virðast valdalítil stofnun – þar sitja  fulltrúar valdamestu ríkja heims og karpa meðan bræður berast á banaspjótum í Sýrlandi– engin lausn í augsýn. Hætt  við að borgarastyrjöldin  dragi dilk á eftir sér í margar kynslóðir- engin skyndilausn sjáanleg.

„Var­an­leg­um stöðug­leika verður aðeins náð ef al­menn­ing­ur í Sýr­landi nær sam­komu­lagi um að lifa sam­an í friði og sátt,“ sagði Obama í ræðu sinni á þinginu; getur forsetinn vænst þess að átökunum í Sýrlandi ljúki með skjótum hætti þegar „200 þús manns hafa  fallið og 4 milljónir landflótta til Evrópu.?

Ban-Ki-moon framkvæmdastjóri SÞ sagði að Rússland, Bandaríkin,Sádi Arabía, Tyrkland og Íran yrðu að finna lausn annars yrði yrði borin von um frið.

Heimsbyggðin hlýtur að vænta þess að framangreind ríki taki  höndum saman; hætti að karpa um eigin sérhagsmuni og sýni viljann í verki um varanlegan frið.innocent


mbl.is Sundrung á meðal leiðtoga heimsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þeir sletta skyrinu sem eiga"

Ánægjulegt að útflutningur á skyri er arðsamur - oftar en ekki hefur hann borið lítið sem engan árangur á öðrum vörum í landbúnaði. Megin markmið framleiðslunnar verður  engu að síður að vera innlendur markaður.

Með auknum ferðamannastraumi hefur  ekki  tekist nægileg framleiðsl kjöts;  verið innflutt í auknum mæli. 

Vaxandi framleiðsla á býlum víðs vegar um land er aukabúgrein fyrir viðkomandi og vonandi fer hann vaxandi. Beint frá býli er athyglisvert framtak fyrir ferðamenn og  ísl. almenning og eykur fjölbreytni í sölu landbúnaðarafurða.

Sú staða er ekki fyrir hendi að umræddar vörur verði ekki niðurgreiddar- við verðum eins og önnur lönd að tryggja  eigin landbúnaðarframleiðslu til frambúðar.innocent


mbl.is Útnefndir heimsmeistarar í skyrsölu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áfengi er vímuefni-

Eftirfarandi er úr bloggi mínu 2007 áfengisneysla virðist enn vera álíka vandi: Nú liggur á ný fyrir þinginu frumvarp um frelsi til setja áfengi í matvöruverslanir:  Hæst ber í morgunfréttum  ofneysla áfengis/ómenning í Reykjavík og  framhaldsskólum. Lögreglustjórinn í Reykjavík hefur vakið athygli á ásýnd og ástandi gesta í borginni um helgar. Frá er greint í fréttinni að ástandið sé “vægast sagt ömurlegt”.

 Við bætist önnur frétt, rannsókn af svipuðum toga að 47% framhaldskólanemenda séu í talsverðri ofneyslu áfengis og 7% í mjög alvarlegri neyslu. Ekki ofmælt að vandi áfengisneyslu er  viðvarandi í samfélaginu.

 Talið að þrjátíu þúsund manns hér á landi eiga við áfengisvanda að stríða. Þá má reikna með að a.m.k um hundrað og fimmtíu þúsund manns, fjölskyldur þessa fólks er eiga í samfélagslegum erfiðleikum vegna áfengisneyslu vandamanna sinna; fyrir utan alvarleg umferðarslys og sjúkdóma er áfengi veldur. 

Ekkert er sterkara til úrbóta en ef almenningur er vel meðvitaður um vandann; tekur afstöðu gegn óheftri áfengisneyslu.

Fjöldi samtaka og almennir borgarar hafa lýst andstöðu sinni við áfengisfrumvarpið: Hjúkrunarkvennafélagið, læknafélagið, kirkjan, SAMAN-hópurinn, Lýðheilsustöð, skólabörn, þingmenn í öllum flokkum, fræðslustjóri/skólamenn og yfirlæknir á Vogi svo eitthvað sé nefnt.  

Ellerts Scram þingm. Samf: í Fréttablaðinu 10. nóv.s.l. Þar segir hann: “Ef ég er alveg hreinskilinn, þá hef ég sem fjölskyldufaðir mestar áhyggjurnar af því, hvort og hvenær unglingarnir mínir falla fyrir þeim freistingum að smakka áfengi. Það veit enginn hvar sú drykkja endar”.

 Það er mergurinn málsins, börnum og unglingum er fyrir bestu, að alast upp við að áfengi sé vímuefni er beri að umgangast með varúð; takmarkað aðgengi styður það sjónarmið.innocent


Stefán frá Hvítadal (1887 - 1933):

Skáld hafa ort kvæði Maríu Guðsmóður til dýrðar fram á okkar daga. Það sýnir að hún hefur enn ítök sem eiga sér óslitnar rætur frá upphafi kristni hér á landi. 

 

Varst þú eitt með vorri þjóð,

virtir hennar minjasjóð,

heimtist öld af himni rjóð

hneig að brjósti þínu.

Sálir bundust sínu.

Heilaga móðir, heimt þú enn,

hlíf þú landi þínu.                          

 

 Stefán frá Hvítadal.

 

Góðan sunnudaginnocent


Lögleiðing samkvæmt kyni - æskileg?

Umræðan um skipun hæstaréttardómara ætti fremur að snúast um menntun viðkomandi annars vegar og reynslu í lögmannstörfum/stjórnsýslu  hins vegar. Reynsla í störfum hlýtur að koma til álita í svo ábyrgðarmiklu starfi. Mætti vera skýrt í lögum að reynsla umsækjanda skuli ráða úrslitum um starfið, þegar viðkomandi aðilar hafa jafnmetna stöðu í menntun.

Umræðan snýst aðallega um hvort jafnréttislög séu brotin eða ekk að skipa jafnt konur sem karla; þá má halda fram að jafnréttislögin séu óframkvæmanleg  um skipun í embætti.

 Verður ef til vill að skipa konu óháð menntun og reynslu – þá snýst málið um  lögleiðingu samkvæmt kyni – er það æskileg staða fyrir réttarkerfið?innocent

 


mbl.is Horft til stjórnsýslustarfa Karls
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Boðar drauminn um frið til heimsbyggðarinnar.

Frans páfi gengur   á Guðsvegum í Vesturheimi boðar kærleika Krists  sem sterkasta  aflið  í vandamálum heimsbyggðarinnar - gegn stríði og hörmungum – gegn menguðum heimi – gegn fátækt og misrétti.   

Táknræn stund var bæn hans við minnisvarðann um hryðjuverkaárásina á tvíburaturnana að viðstöddum fulltrúa fjölda trúarbragði.

Tilvitnun páfa í orð  Martins Luther King segja allt er segja þarf: „Ég á mér draum“ (Í have a dream), sem fórnaði lífi sínu í baráttu blökkumanna fyrir mannréttindum (í USA ) með kristin kærleika að vopni- afl sáttar- afl friðar –afl réttlætis.innocent

 


mbl.is Páfa fagnað eins og rokkstjörnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mál Miðausturlanda margflókin-

Gyðingar bjuggu margar aldir víðs vegar í Evrópu – við mikla óvild í Þýskalandi, voru ofsóttir í Rússlandi. Í lok 19. aldar kom fram hugmynd um stofnun ríkis Gyðinga;fengu þeir styrk til flutninga til Palestínu og stofnuðu sjálfstætt ríki, 1948.

Flestir íbúanna  eru Gyðingar en minnihlutahópar íslamskra, kristinnar og drúsa/arabar eru þar einnig.

Sex daga stríðið 1967 var milli Ísrael annars vegar og Egyptalands,Jórdaníu og Sýrlands hins vegar, Írak; Sádi-Arabía, Súdan, Túnis,Marokkó og Alsír lögðu fram hersveitir til stuðnings Arabalöndunum. Ísrael vann stríðið þrátt fyrir mikinn liðsmun.

Afleiðingar stríðsins hafa í dag áhrif á stjórnmál Miðausturlanda.

Talið er að Arabaríkin hafi ekki síður en Ísrael brotið alþjóðlegar samþykktir og mannréttindi, fjöldi Gyðinga flýði til Ísrael.  

Palestínufólk flutti frá Ísrael til  Arabaríkjanna  en samlagaðist ekki  heldur dvalist þar í flóttamannabúðum, hatur og óvild lifa þar góðu lífi. Jórdaníukonungur hrakti baráttumenn Palestínumanna úr landinu,- var talið að  tuttugu þúsund hafi verið felldir.

Ísrael og Palestína eiga í vopnuðum blóðugum átökum – vonlítið um frið á næstunni.

Mál Miðausturlanda eru margflókin en verða ekki leyst með viðskiptabanni á Ísrael – gæti frekar aukið á hatur og ófrið með tilheyrandi hörmungum fyrir almenning.innocent

 


mbl.is „Borgarstjórn má ekki sópa þessu undir teppið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkynhneigðir - vilja umbylta kristinni trú?

Oftar en ekki eru orðin mannsréttindabrot og mismunun  ofnotuð til að réttlæta eigin yfirgang og hroka. Sammála vígslubiskupi hann segir að sam­visku­frelsið sé stjórnarskrárvarinn rétt­ur og á meðal dýr­mæt­ustu mann­rétt­inda.

Hvers vegna vilja samkynhneigðir endilega láta þann prest vígja sig sem af samvisku sinni og trúarlegum forsendum getur ekki hugsað sér verkið?

 Af hverju ekki að leita til þess prests sem getur hugsað sér að framkvæma vígsluna? Mætti hafa þá venju að skrá þá presta á biskupsssofu er vígja samkynhneigða. Hver maður er sérstakur samkvæmt kristinni trú. Samkynhneigðir hafa engan rétt til að afnema boðskap Krists þeir hafa fengið almenn borgararéttindi og viðurkenningu á sérstöðu sinni mega búa saman og gifta sig; virðist  ekki nægilegt heldur vilja þeir umbylta kristinni trú.innocent


mbl.is Prestar megi ekki mismuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ástir samlyndra hjóna"

Þegar neyðin er stærst er hjálpin næst flokkarnir  geta stutt hvorn annan í blíðu og stríðu – komist til valda á nýjan leik.? Báðir flokkarnir fóru hlálega út úr síðustu kosningum fengu maklega ráðningu eftir slaka stjórn á landinu sama hvert er litið ; Iscesave- skuldin er átti að setja á almenning, útsala föllnu bankanna, illskeyttar árásir á lífskjör eldri borgara og öryrkja: Auðlindaskattur, afnám grunnlífeyris, ítrekuð lækkun lífeyristekna. Rennt var hýru auga til Brussel – innganga í ESB  en mistókst. Þá má nefna lítt skiljanlegt fikt við stjórnarskrá landsins er virtis fremur vera vanhugsuð  kollsteypa á hornsteini lýðræðisins.

 Hefur Samfylkingunni tekist  tekist að smala þeim „köttum“/Vinstri grænum sem eftir eru?

Má  segja að „skel hæfi kjafti“- eins og stundum er sagt á góðri stundu?innocent


mbl.is Samfylking og VG í eina sæng?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Birgitta fer með fleipur?

Í upphafi skyldi endirinn skoða  hvaða afleiðingar hefur það ef ríkisstofnanir og fyrirtæki ákveða að hætta viðskiptum við annað ríki.

Ríkistofnanir og einkafyrirtæki leita markaða í hagnaðarskyni en ekki eftir pólitískum leiðum. Ef ríki ógnar sjálfstæði annars ríkis þá eru stundum teknar ákvarðanir um viðskiptabann af stjórnvöldum. Skilur Birgitta ekki alvarleika viðskiptabanns, viðskiptasamningar  eru í upplausn. Skemmst að minnast banns borgarstjórnar Reykjavíkur; flug-og ferðamannaiðnaði  er ógnað og stórri hótelbyggingu við Hörpu.

Viðskiptabönn valda  ómældum hörmungum  – almenningur fer verst úti,  býr við fátækt og skort; samfélagið ekki fært um að veita samfélagslega þjónustu: Menntun og læknisþjónusta verða  af skornum skammti – ef nokkur?

Birgitta virðist fara með ábyrgðarlaust hjal – sem RÚV flytur fúsleg án nokkurrar gagnrýni?innocent


mbl.is Vill sniðganga vörur frá Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Ósigur ESB - um frið og réttlæti"?

Evrópuþjóðir vöknuðu  við vondan draum fyrir nokkrum árum -   þjóðir  á barmi gjaldþrots vegna  græðgi og villimennsku banka og fyrirtækja; lög og reglur túlkuð eftir hagsmunum er hentuðu hverju sinni?

Nú  bætist fóttamannavandinn við, ófriður gæti verið í aðsigi jafnvel borgarastyrjöld.

ESB var stofnað til að koma á friði eftir tvær heimsstyrjaldir milli stríðshrjáðra Evrópuríkja; félagsleg gildi með samfélag fyrir alla var markmiðið.

Er hugsjónin um lýðræði og réttlátt samfélag um frið milli þjóða kulnuð; hefur skrifræðið í Brussel brugðist almenningi – en stutt svik banka og stórfyrirtækja?innocent


mbl.is „Ósigur almennrar skynsemi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Borgastjóri í öngstræti"?

Meirihluti borgarstjórar uppgötvaði sér til skelfingar að þeir eru ekki þjóðin,borgastjórinn dettur úr „glanspíuhásætinu“;  neyðist til að taka ákvarðanir. Halldór Auðar,pírati þekkir allt í einu og virðir sín takmörk; sjálfsagt að draga  viðskiptabannið til baka.

Enda málið ekkert smámál landslög brotin og stór viðskipti í hættu; hvar er allt gagnrýna fólkið gegn Hönnu Birnu í lekamálinu? Pressan leynt og ljóst hamaðist marga mánuði til að koma henni úr ráðherrastóli og tókst að lokum. Engin mótmæli – engir stjórnsýslufræðingar koma fram á RÚV með álit um viðskiptabannið.

Vonandi heldur Dagur B. Eggertsson áfram sem „alvöruborgarstjóri“; ekki úr vegi að taka á fjármálum borgarinn er virðast öll  í ólestri; hætta við byggingu nýs flugvallar, málið  liggur ljóst fyrir  til þess eru ekki fjármunir.


mbl.is Samþykktu að draga tillöguna til baka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptabann stríðsástand?

Viðskiptabann milli þjóða á sér stað í auknum mæli og má líkja við stríðsástand. Eykur á eymd almennings, fyrirtæki verða gjaldþrota - atvinna minnkar. Viðskipti milli landa hafa í gegnum söguna aukið menningarstrauma um allan heim.

Efast má um að viðskiptabann minnki stríðsátök þvert á móti skapar það óviðunandi lífskjör,  hatur og hryðjuverk; viðheldur  stríðsátökum – er það tilgangurinn?innocent


mbl.is Umdeild tillaga hefur opnað umræðuna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lækkun kosninga-aldurs orkar tvímælis -

Árni Páll og Katrín reyna allar leiðir að afla sér fylgis; man ekki betur en Jóhanna Sigurðardóttir hafi á sínum tíma verið verið aðalmanneskjan um að áfengisaldur yrði lækkaður í sama tilgangi. Það munar verulega á þroska þess sem er átján ára og sextán ára. Ungmennum er enginn greiði gerður að lækka kosningaaldurinn þau eru áhrifagjörn;  auðveld bráð fyrir óvandaðan áróður stjórnmálanna.

Áróður fyrir kosningar verður sífellt harðari af stjórnmálamönnum  og  óbeint af fjölmiðlum sem er öllu verri ekki síst fyrir unglinga á viðkvæmu þroskastigi.

Frekar að leggja sterka  áherslu  á gagnrýna hugsun  og siðfræði í skólum, leggja til þess sérstaka fjármuni; gera þau að sjálfstæðum hugsandi þjóðfélagsþegnum.

Leyfum unglingunum okkar þroskast í friði;þá verða þau hæfari til að taka þátt stjórnmálum í fyllingu tímans.


mbl.is Kosningaaldur lækki í 16 ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brot á mannréttindum og stjórnarskrá -

Brot á mannréttindum og stjórnarskrá-

Eldri borgarar eiga rétt  á   óskertum launum/eftirlaunum  óháð arði af sparifé sínu en greiði fjármagnstekjuskatt eins og allir aðrir. Svívirðileg framkoma við eldri borgara að svipta þá lífeyri frá tryggingastofnun/lífeyrissjóði er þeir hafa greitt í alla sína ævi.

Ef fólk hættir að spara hvaða fé á þá að taka að láni? Hver er þá tilgangurinn að spara  ef ekki má njóta  sparnaðarins? Framangreind  eignaupptaka eða öllu heldur "rán" með lögum  af einum hópi í samfélaginu er níðingsháttur sem jafnaðarmenn réttlæta. Hvers vegna einn hópur í samfélaginu;  aðeins fólk á efri árum er hefur heiðarlega aflað sér sparnaðar gegnum ævina er það jöfnuðurinn?

Allir aðrir  halda arði af sparifé/eignum sínum án þess að laun þeirra séu skert. Tekjur  þegnanna í samfélaginu fara eftir menntun, reynslu; en ekki síst eftir dugnaði og ráðdeild; svipting/skerðing á eftirlaunum aldraðra er brot á mannréttindum og  stjórnarskrá.frowninnocent


Stöðugleiki í efnahagsmálum - lægri vextir -?

Vonandi tekst núverandi ríkisstjórn að ná tökum á vanda fólks og útvega leiguíbúðir á viðráðanlegu verði eða íbúðir í hóflegri stærð.

 Að banna verðtryggingu með lögum er tæplega vænleg leið heldur þarf ríkisstjórnin að ná tökum á efnahagsmálunum. Verðtrygging er algengust í löndum sem styðjast við veikan gjaldmiðil og þróun verðlags er ótrygg. Við þær aðstæður er ekki forsenda að gera langtímasamninga   án verðtryggingar. Ef gjaldmiðill er sterkur og lítil verðbólga í langan tíma er forsenda  fyrir langtíma samningum án verðtryggingar og  jafnvel föstum vöxtum.

Hér er ekki sterkur gjaldmiðill óvissa  er um þróun verðlags; engin forsenda til að afnema verðtryggingu fyrr en stöðugleiki næst.

Breytilegir vextir gætu að einhverju leyti komið í stað verðtryggingar. Þá breytast nafnvextirnir með verðbólgunni-  þeir eru háir þegar hún er mikil -en lækka ef dregur úr verðbólgu. En hafa  slík lán marga  kosti umfram  verðtryggð lán? Vaxtagreiðslur  geta sveiflast mjög mikið og henta ekki fólki með lágar tekjur þar sem verðbólga er mikil eins og oftast hefur verið hér á landi.

Nú hefur tekist að minnka verðbólgu verulega en vinnumarkaður enn afar ótryggur ; blikur eru á lofti og skiptir máli að laun hækki í samræmi við aðstæður. Ef ríkisstjórn og seðlabanka tekst að ná góðum tökum á efnahagsmálum og samningar takast um laun, þá munu aðstæður verða vænlegri fyrir minni efnað fólk að kaupa eða leigja sér íbúð – vaxtaumhverfið verður stöðugra er leiðir af sér lægri vexti.innocent

 

 


"Nútíma guðsmaður"

Heilagur Francis frá Assisi í Ítalíu fjallaði oft um vistfræðilega ábyrgð kristinna manna fyrir arðráni sem átti sér stað í náttúrunni. Má  líta á umhyggju hans sem dæmi um kristilegan kærleika í vistfræðilegu samhengi. Líf hans snerist um róttæk mótmæl: að sýna eigi allri sköpun Guðs umhyggju, bera velferð hennar fyrir brjósti hvort sem eru um haf, jörð, dýr eða  plöntur að ræða; boðskapur Heilags Francis var göfugur og skýr boðskapur í vistfræði á kristnum forsendum.

Framangreindur miðaldaboðskapur Heilags Francis frá 13.öld á fullt erindi til allra kristinna manna óháð trúfélagi.

Kristnar kirkjur mættu halda boðskap hans meira á lofti í safnaðarstarfi sínu.

innocent Eigið góðan sunnudag.


Skammtímahagsmunir eða græðgi?

Hvers vegna vissu bændasamtökin ekki um samningana er landbúnaðarráðherrann valdalaus gagnvart ágangi verslunar að flytja inn sem mest af matvælum? Ekki virðist vera um stóra vöruflokka að ræða en verða lækkaðir verulega til að vekja athygli neytenda hvað það sé hagkvæmt að flytja sem mest inn af matvælum - er ekki verið að rétta neytendum "ódýra gulrót" til að auka þrýsting almennings um meiri innflutning síðar meir?

Mikilvægt að vernda okkar landbúnaðaframleiðslu -tryggja eins mikla sjálfbærni og mögulegt er - skammtímahagsmunir neytenda og græðgi verslunarinnar mega ekki ráða för.

 


mbl.is Getur lækkað verð um tugi prósenta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki "nýja vinstri velferðarstjórn"

Nú hefur Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingar fundið ráð við fylgistapinu(frétt RÚV í kvöld),hyggst safna saman vinstra liðinu í „nýja vinstri velferðarstjórn“ fyrir næstu kosningar. Varla hefur fólk gleymt sviknu loforðum þeirra gömlu: Skjaldborginni frægu, Icesave-skuldinnni er þjóðin átti að greiða,útsölu föllnu bankanna til vogunarsjóða fyrir smánarverð, 110%-leiðinni handa fáum útvöldum til að halda fylgi,grimmileg árás á eldri borgara með eignaupptöku/auðlindaskatti og afnámi grunnlífeyris.

Árni Páll minnir einna helst á úlfinn sem fór í náttföt ömmu gömlu, að villa Rauðhettu litlu sýn; kemur nú til kjósenda mjúkur í máli en verður erfitt um vik; þrátt fyrir „náttföt ömmu gömlu“,sést skrumið í gegn og verður honum að falli.innocent


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband