Skósveinar

Þingmaður Samfylkingar lætur sig ekki muna um að fara með ósannindi ef það gæti þjónað Samfylkingunni, sama er að segja um Björn Val Gíslason. Hvers vegna slær RUV upp ummælum Björns, að lánshæfismat Íslands muni versna ef forsetinn skrifar ekki undir Icesavelögin er hann sérstakur sérfræðingur í fjármálum erlendis? Ísland hefur ekki lánstraust nema á okurvöxtum hvort sem er, samningstaða þjóðarinnar gæti orðið betri ef forsetinn skrifar ekki undir lögin.

Engin má hafa skoðun á Icesavemálinu hvorki samtök eða einstaklingar; jafnvel vel fer Ólína með ósannindi til að þjóna hagsmunum Samfylkingar og erlendu valdi.

Ólína og Björn (''vinstri grænn'')virðast fremur vera skósveinar erlends valds/ stefnu Samfylkingar, hagsmunir Íslands ekki í fyrirrúmi

Undirrituð telur að framangreindir þingmenn muni ekki verða til langframa á Alþingi.SidewaysHalo


mbl.is Kannast ekki við fjöldapóst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tekur forsetinn pólitíska afstöðu?

Í upphafi skyldi endirinn skoða, spakmæli er kemur upp í hugann, forsetinn gaf fordæmi  með höfnun  undirskriftar laga fjölmiðlafrumvarpsins þar sem telja má forsenduna fyrst og fremst pólitíska afstöðu hans.

 Nú er komin ný beiðni á nýjum forsendum að skrifa ekki undir Icesavelög ríkistjórnarinnar, ekki virðist þörf á þeim lögum þar sem önnur eru í gildi frá í sumar og náðist samstaða um á Alþingi.

Samkvæmt framagreindu mun þá forsetinn skrifa undir frá pólitísku sjónarhorni sínu eða lítur hann á sig sem forseta þjóðarinnar en þá mun hann hafna undirskrift?FrownHalo


mbl.is Fundi lokið á Bessastöðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Forsetinn: ''siðferðileg gildi og þjóðarvilji''

Þá hefur forsetinn flutt boðskap sinn á nýársdag, rökrétt er að álykta samkvæmt honum að hann muni hafna undirskrift laga um Icesavesamningana; þar sem hann taldi að stjórnkerfið hvíldi á þjóðarvilja og betri siðferðilegum gildum.

Fullreynt er nú að stjórnmálaflokkar geti leyst efnahagslegan vanda þjóðarinnar; afar brýnt að fá utanþingsstjórn  meðan væntanleg rannsóknarnefnd alþingis er að störfum um efnahagshrunið/bankahrunið.WounderingHalo

 


Ólína: - einungis valdboð á Alþingi?

Dæmigerð afstaða forystu Samfylkingarinnar ef reglur eða lög henta ekki flokknum og stefnu hans, þá er bara að afnema þau, Ólína hætti fyrir skömmu á Mbl-blogginu, hvers vegna, nýi ritstjórinn hentaði ekki hennar skoðunum; tæplega sæmandi menntakonu/manni að vilja heldur ná málum fram með yfirgangi og ólögum heldur en af sanngirni og rökvísi?AngryHalo

 


mbl.is Ólína vill breyta þingsköpum til að hindra málþóf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vond staða - vond rök

Hvers vegna henta ekki sumir kostir? Auðvelt að ákveða af meirihluta ríkisstjórn þar sem engin lög eru um þjóðaratkvæðisgreiðslu. Samt eru vondir kostir í stöðunni hvað varðar forsetann. Hann hefur breytt um stefnu sem forseti og innleitt þjóðaratkvæði með neitun undirskrift fjölmiðlalaga: útskýrði síðustu undirskrift um Icesavesamninga vegna fyrirvara alþingis er náðist með samkomulagi allra fokka.

Ef forsetinn skrifar ekki undir lögin vegna fjarveru og handhafar forsetavalds skrifa undir með tvo þeirra í núverandi ríkisstjórn er forsetinn að skjóta sér undar ''prinssippinu'' í forsetaembættinu er hann stofnaði til sjálfur; hámark á niðurlægingu forsetaembættisins. FrownHalo

 


mbl.is Sum mál henta ekki í þjóðaratkvæðagreiðslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nikulás (Sankti Kláus)

Nikulás, biskup frá Myra í Litlu-Asíu, d. 345. Hann er verndari sjómanna og ungra barna. Hann er einnig verndardýrlingur Rússlands. Tákn Nikulásar minna á góðverk hans. Þau eru: akkeri, tvö eða þrjú brauð, þrjár gullstangir eða peningapyngjur, kaleikur með þrem börnum. Dagur hans var 6. desember. Þá voru börnum gefnar gjafir. Sankti Kláus er amerísk afbökun á heilögum Nikulási.

 

Táknmál trúarinnar eftir Karl Sigubjörnsson, 1993, 66.

 Halo


Áþján um aldir?!

Hvað má þjóðin þola lengi þras á Alþingi um það hvort þeir fyrirvarar á Icesavesamningnum er samþykktir voru í sumar eigi að halda; eða þjóðin eigi að vera undir áþján Breta og Hollendinga um aldir? Getur það verið ætlun Vinstri grænna að hunsa sanngjarna fyrirvara til að geta setið í ríkisstjórn áfram?

Samfylkingin mun samþykkja hvað sem er enda hennar takmark fyrst og fremst að fara með þjóðina í ESB, koma fyrir sínum mönnum í Brussel: nóg til af þeim er vilja ganga á mála hjá ESB, allt betra en að vera þrjú hundruð þúsund ''venjulegir Íslendingar'' í eigin landi,lifa á eigin auðlindum; lifa vel í samfélagi og friði við allar aðrar þjóðir!?

Ef forsetinn skrifar undir mun hann missa traust þjóðarinnar; hvað þá ef hann fer úr landi meðan lögin verða samþykkt til að komast hjá afstöðu? Hann sendi Dorit eina í brúkaup dansaprins til að geta verið heima og hafnað fjölmiðlalögunum. HaloSideways

 


mbl.is Þingfundur þar til mælendaskrá er tæmd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Davíð ágætur ritstjóri Mbl.

Hvers vegna tjá norrænir blaðamenn sig sérstaklega um Davíð Oddsson sem óhæfan ritstjóra eða jafnvel sakamann? Upplýsingar héðan hljóta að vera forsendan, eiginlega ekki hægt að tjá sig um svo lágkúrulega frétt: ef til vill veit formaður Blaðamannafélagsins hér á landi frekar um málið?

Tel að Morgunblaðið sé betra blað síðan Davíð Oddsson tók við ritstjórn, er beittara og skemmtilegra þess vegna.  Fleiri sjónarmið komast að líkt og hjá Styrmi Gunnarssyni, minna um frjálsræði í tíð Ólafs Stephensen, sérstaklega hvað varðaði afstöðu á móti inngöngu í ESB; eftir að hann tók við voru mjög fáar greinar/bloggfærslur birtar í Morgunblaðinu á þeim nótum.

Vonandi verður Davíð lengi ritstjóri, hans er þörf í því moldviðri rógs og lyga er hefur grafið um sig um hans gerðir í þágu samfélagsins?

Skyldi Samfylkingin eiga einhvern þátt í óhróðrinum um Davíð, þar virðast skoðanaskipti ekki  tíðkast í stefnu flokksins nú um stundir; ''allir sammála í hjartans einlægni''?

Hins vegar er afturför hjá Mbl,  pistlaskrif Kolbrúnar Bergþórsdóttur, er skrifaðir eru í fyrirlitningartón.  Almenningur og bloggarar virðast viðurstyggð, að ekki sé minnst á femínista enginn hefur marktæka skoðum nema Kolbrún, ''þjóðarsálin án skysemi'', ekki má ræða ''mistök forsetans'' eða ''sóðabúllur'' KSÍ leiðtogasamtök æskulýðsins, það er '' refsigleði kvennasamtakanna'' (pistlar Kolbrúnar: 29.okt, 12. nóv. og 26 nóv, allt ritstjórnarsíður)

Ekki þar fyrir að Kolbrún hafi ekki ritfrelsi að skrifa sínar skoðanir: en á ritsjónarsíðum Mbl má ætla að hún  boði tón ritstjórnar blaðsins  í siðferði;  þá má segja að siðferðisboðskapur Mbl til lesenda sé orðinn ''Akkilesarhæll ritstjórnar Morgunblaðsins''?WhistlingHalo


mbl.is Segir norræn blaðamannafélög fara með rangt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dómsvaldið úr landi - trúnaðarbrestur?

Ef EES eða ESB kemst að niðurstöðu um að Íslendingum beri ekki að greiða Ícesaveskuldinar þá eigi að fara fram einskonar viðræður við umræddar stofnanir, íslenskt dómsvald marklaust samkvæmt skilningi Sigurðar Líndals; í gær komust helstu prófessorar í lögum við háskóla Íslands,á fundi með alþingismönnum, að fyrrnefndir samningar væru ekki brot á stjórnarskrá

Er ekki kominn tími til að íslenskt dómsvald búi við lög er helstu sérfræðingar laga geta verið sammála um? Sigurður Líndal sagði að í norskum lögum (enn í gildi) frá 1687 væri dómsúrskurður endanlegur.

 Engin niður staða verður ef erlend ríki eiga að semja um niðurstöðu og íslenskt dómsvald kemur hvergi nærri?

Vantraust og tortryggni þjóðarinnar er nægilegt fyrir þótt helstu lögspekingar missi ekki trúnað hennar; þá er stutt í trúnaðarbrest/virðingarleysi hjá almenningi fyrir lögum.WounderingHalo

 

 

 

lkjlæ


mbl.is Icesave skerðir fullveldið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Umhverfisverndariðnaður'' - ''gróðabrall''

Með allri virðingu fyrir menningarverðlaunum, eftir að hafa lesið Draumalandið, séð myndina og ekki sé minnst á auglýsingaskrumið henni fylgjandi þar sem höfðað var til almennings, trúarlega til að  sverta ímynd einstakara  stjórnmálaleiðtoga og Landsvirkjunar: allur umbúnaður gerður á tilfinningalegum nótum er sló á skynsemi og rök; það er mergurinn málsins.

Allflestir vilja vernda umhverfið en eru jafnframt dæmdir til að lifa af náttúrunni; Framlag Andra Snæs  orkar fremur tvímælis og gæti allt eins snúist upp í andhverfu sína. Að mati undirritaðrar er framlag Andra Snæs fremur ''umhverfisverndariðanur'' og ''gróðabrall''  en raunveruleg náttúruvernd.ShockingHalo


mbl.is Andri Snær hlýtur Kairos verðlaunin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''ESB dregur inn klærnar''

ESB hefur nú breytt áherslum sínum í makrílveiðum (deilistofn), Íslendingar fá náðarsamlegast að vera með í samningum um heildakvóta ekki  síst fyrir að Færeyingar(og Norðmenn?)vildu ekki semja án okkar. Nauðsynlegt meðan  aðildarumræður við Ísland standa yfir að allt sé slétt og fellt. 

Hins vegar lýstu æðstu ráðamenn ESB yfir, fyrr á árinu, að úthlutun fisveiðiheimilda ESB-landa yrði ekki óbreytt í framtíðinni: eins og menn vita eru og verða fiskveiðiheimildirnar ákveðnar í Brussel; einnig þar verða fiskveiðiheimildir Íslendinga ákveðnar ef þjóðin gengur í ESB.

ESB dregur inn klærnar í bili meðan sambandið er að hremma fiskimiðin/auðlindir þjóðarinnar; síðan getur þjóðin gleymt því að hún verði efnahagslega frjáls um aldur og ævi.AngryHalo

 

 


mbl.is Íslandi boðið til makrílviðræðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kaldar kveðjur á fullveldisdaginn!

Steingrímur fjármálaráðherra er með ''dulbúna hótun''í Mbl. í dag um milliríkjasamskipti sem ekki er hægt að greina Alþingi frá; þess vegna verði að flýta afgreiðslu Icesavemálsins. Hvað hagsmunir Íslands eru faldir í yfirlýsingu Steingríms: er það inngangan í ESB, eru það viðskiptaþvinganir á útflutningi til Hollands og Bretlands eða eitthvað annað er aldrei má líta dagsins ljós?

Hótun Steingríms er undarleg og vekur upp grunsemdir og torrtryggni; ekki  á bætandi í samfélaginu það sem ''allt á að vera upp á borðinu'', þjóðin fái allar upplýsingar.

Hvað kemur næst ekki getur ''dulbúin hótun'' Steingríms verið frambærilegar upplýsingar til lengdar?

Kaldar kveðjur á fullveldisdaginn frá fjármálaráðherranum.

 

 

 

 

 

 

 

 


Árásir ''velferðarríkisstjórnarinnar''!

 Árás velferðarstjórnarinnar á fæðingarorlof og sjómannafslátt er með endemum eins og það bjargi þjóðinni, smápeningar er fást með ''löglegri fjárkúgun''. Miklu nær að fækka sendiráðum og hætta við umsókn ESB og spara tugi milljóna.

Frestun á einum mánuði fæðingarorlofs er skólabókardæmi um ráðaleysi félagsmálaráðherra/ríkisstjórnar:einstæð móðir fær fimm mánuði, á að fresta einum mánuðir í þrjú ár. Hvaða reglur gilda ef hún eignast barn í millitíðinni sama er að segja um hjón?

Prófessor uppi í háskóla sagðist ekki sjá rök fyrir sjómannaafslætti. Hefur hann staðið úti í veltingi og undiröldu við fiskveiðar, hefur hann slasað sig eða skorið sig illa úti á sjó þar sem ekki er um neina læknishjálp að ræða fyrr en eftir langan tíma. Hefur prófessorinn kynnt sér í hvaða áhættuflokki trygginga sjómannastéttin er?

Slíkir smámunir skipta ekki máli að sjómenn geta ekki notið þeirrar þjónustu er þykir sjálfsögð í landi.

AngryHalo

 


mbl.is Fæðingarorlof með því stysta á Norðurlöndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ísland gjaldþrota?

Eva Joly sérstakur saksóknari Íslands lýsti því yfir í fjölmiðlum að þjóðin gæti aldrei greitt skuldir/brask einkabankanna, greiðslur væri af þeirri stærðargráður að líkja mætti við greiðslur/stríðsbætur  Þjóðverja eftir seinni heimsstyrjöld. Núverandi ríkisstjórn virðist ekki hafa  lagt nógu  miklar áherslur eða kannað umfang skuldanna og greiðslugetu þjóðarinnar: engin vissa fyrir betri stöðu eftir sjö ár; gætu allt eins orðið  ''sjö vondu ''  árin í þjóðarbúskapnum.

Samfylkingin hefur ráðið ferðinni að mestu í núverandi ríkisstjórn þar sem utanríkisráðherrann er önnum kafin við að koma þjóðinni í ESB ''á bak við tjöldin''; Vinstri grænir mega sín lítils, verða að leggja stefnumálum sínum, ekki verður við unað að stjórnin sitji áfram við svo hörmulegar aðstæður.

Viðskiptaráðherrann, Gylfi Magnússon hefur margoft lýst yfir að þjóðin ráði við skuldirnar en ekki með frambærilegum rökum, hver eru rök hans?

Eina vonin er að innan Vinstri grænna séu þingmenn er hafa kjark til að hafna Icesavesamingunum; vafasamt að forsetinn veiti þjóðinni liðsinni í þeim skelfilegum skuldum er útrásavíkingar/einkabankar skildu eftir sig.FrownHalo


mbl.is Undirbýr mál gegn Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðventa - fyrsti sunnudagur

Aðventa (úr latínu: Adventus –   ‘‘koman‘‘  ‘‘eða sá sem kemur‘‘) er  í Kristni fjórir síðustu sunnudagarnir fyrir jóladag. Ef jóladag ber upp á sunnudegi verður hann fjórði sunnudagurinn í Aðventu. Jafnframt er fyrsti sunnudagur í Aðventu fyrsti dagur nýs kirkjuárs í Vesturkirkjunni , í Austurkirkjunni hefst kirkjuárið fyrsta september. Í mörgum löndum er haldið upp á Aðventuna með aðventukrönsum með fjórum kertum eitt fyrir hvern sunnudag. Síðari ár hefur einnig  orðið algengt að kveikja á aðventustjökum frá fyrsta sunnudegi aðventu.

Hér á landi er venjan að kveikja á einu kerti fyrir hvern sunnudag  er ber heiti samkvæmt táknmáli kirkjunnar á  jólahátíðinni: Spádómskertið, Betlehemskertið, Hirðakertið, Englakertið. Litur Aðventu er fjólublár, litur iðrunarinnar. Fjólublátt er blandaður litur, samsettur af bláu sem er tákn trúmennsku og sannleika, svörtu sem er litur sorgar og rauðu sem er litur kærleikans.

Úr Táknmáli trúarinnar eftir Karl Sigurbjörnsson, 1993, 86, og af Wikipediu frjálsa alfræðiritinu.

 Eftirfarandi erindi  er aðventusálmur  nr.  559 (úr sálmabók  íslensku kirkjunnar) eftir Sigurbjörn Einarsson.

Fyrsta erindi:

Hér leggur skip að landi,

sem langt af öllum ber,

en mest ber frá um farminn

sem fluttur með því er.

Góða helgiHalo

   

Ísland fyrir Ísland

Greiðar samgöngur eru frumskilyrði fyrir að atvinnulíf og mannlíf getir dafnað úti á landi, orðið fjölbreytt með þjónustu eins og tíðkast á höfuðborgarsvæðinu; fólki fjölgar á landsbyggðinni þar sem arðbær atvinnan blómgast, ekki er þörf á stærra þéttbýli á höfuðborgarsvæðinu.

Betra að fólksfjölgun á landsbyggðinni verði einn af þeim þáttum er mun skapa ''Hið nýja Ísland'' framtíðarinnar, Ísland sem byggir á  framleiðslu  auðlinda þjóðarinnar, Ísland er vill vera lítil íslensk þjóð í eigin landi, í samfélagi þjóðanna.JoyfulHalo


mbl.is Kristján sprengdi í göngunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frekjugangur samkynhneigðra

 Hvers vegna stofna samkynhneigðir ekki sérstakan söfnuð heldur en að að troða sér inn í Fíladelfíusöfnuðinn ''til að fara í sleik'' eins og segir í fréttinni; frekjugangur samkynhneigðra er undarlegur, þeir vilja  auglýsa samkynhneigð sína langt fram yfir það sem gagnkynhneigðir telja siðleg mörk. Flestir sértrúarsöfnuðir hafa reglur og helgileiki  til að gefa helgihaldinu ákveðinn ramma og áherslur.

Hvers vegna ætti að breyta þeim áherslum með því að Friðrik Ómar verði þar ''forsöngvari''?

Kem reglulega í kirkju, utan þjóðkirkjunnar, og er þar í fræðslu til að fá síðar staðfestingu um inngöngu; allir eru velkomnir í umrædda kirkju hvaða trúarhópi sem þeir tilheyra; en þurfa að tileinka sér þær áherslur í kristinni trú er kirkjan boðar til þess að verða formlegir meðlimir. JoyfulHalo

 

 

 


mbl.is Samkynhneigðir kyssast í Fíladelfíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað með menntamannaafslátt - 25% niðurskurð

Skatturinn  ætlaði á sínum tíma að afnema sjómannaafslátt af skattaskýrslum smábátasjómanna með einu pennastriki; en var kært til ríkisskattstjóra og vannst þar. Hvað með skattaafslátt menntamanna fyrir bækur, hlunnindi ríkisstarfsmanna,  jafnframt hverskonar hlunnindi þingmanna; er ekki réttlátt að skera niður í áföngum um 25% árlega eins og sjóðmannaafslátt.

Hvers vegna að neyta aflsmunar á fámenna sjómannstétt fjarri heimilum sínum og allri þjónustu er þykir sjálfslögð í landi?

 

 

 

 

 

 


mbl.is Sjómannastarfið mikið breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

´´Stjórnarkreppa - forsetakeppa?´´

Pínleg staða fyrir Össur Skarphéðinssonar fékk ekki í gegn mat á aðildarumsókn Íslands að ESB:  engin   samstaða um inngöngu innan stjórnarinnar.  Vinstri grænir samþykktu umsókn til að geta setið í stjórn með Samfylkingu en til hvers?: afsökun þeirra  að rétt væri að láta reyna á hvaða samningar væru í boði; í raun er um aðildarumsókna að ræða, almenningsheill eða meirihluti þjóðarinnar ekki að að baki?

Hvað gerir forsetinn skrifar hann undir lög um Icesavesamningana?;  eða verður ákvörðun hans af pólitískum toga? Samkvæmt undirskrift laga í sumar um fyrrnefnda samninga lýsti forsetinn yfir að það væri gert vegna ´´samstöðu Alþingis´´ um fyrirvara á lögunum er nú virðast þurrkaðir út.

Skásta niðurstað í Icevemálinu yrði,  að þjóðin fengi að greiðar atkvæði um Icesavesamningana, stjórnarfrumvarpið félli og utanþingsstjórn tæki við.

 
mbl.is Össur sáttur við töf í Brussel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stendur forsetinn með Samfylkingu - eða þjóðinni?

Getur vont versnað, Isesavesamningurinn hefur þvælst nógu lengi fyrir Alþingi, stjórnmálamenn geta tæplega haft nokkurt traust lengur: eftir mikil umbrot í sumar sat stærsti flokkurinn Sjálfstæðisflokkurinn hjá þegar málið fór í gegnum þingið.

Enn heldur þófið í þinginu áfram, verður Icesavesamningurinn  marinn í gegn með naumum meirihluta; mun Sjálfsæðisflokkurinn sitja hjá?

Allt hefur brugðist, bankarnir í uppgjöri, heilindi þeirra á ystu mörkum, stjórnvöld sitja og láta skósveina sína reikna nýja og nýja skatta á þjóðina til að standa undir skuld er við eigum ekki að greiða.

Nú er ástæða til að setja forsetann upp við vegg og sjá hvort hann stendur með þjóðinni eða með pólitísku ráðabruggi Samfylkingarinnar/stjórnvalda í gruggugum samningum um Icesave -og ESB-samningum. UndecidedHalo

 

 

 

 

 

 

 


mbl.is Forseti synji Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband