2.2.2009 | 18:06
Ekkert atviunnulíf úti á landi?
Oft fylgir böggull skammrifi er gamalt spakmæli er á vel við nýja umhverfisráðherrann; tæpleg hægt að hugsa sér verri kandídat frá Vinstri grænum hefði verið betra að hafa Þórunni Sveinbjarnardóttur áfram með sinn "ísbjarnarblús"síðan frá innrás ísbjarnanna fyrir norðan í sumar.
Eitthvað sem heitir framkvæmdir og atvinnulíf virðist ofan við sjóndeildarhring Kolbrúnar hvað þá úti á landi það er fjarlæg framtíð fyrir henni. Hún er miklu nær "kaffihúsapólitík"í 101 Reykjavík er heldur að lifibrauð þjóðarinnar geti eingöngu verið að tína blóm og fjallagrös þótt það sé góðra gjalda vert.
Ekki mun vera Kolbrúnar í ríkisstjórn hækka gengi krónnunar frekar lækka hana.
![]() |
Álver í Helguvík en ekki á Bakka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2009 | 16:08
Forsetinn - tekur völdin?
Hvað kemur næst yfirtaka forsætisembættisins yfir landsstjórninni bara að túlka stjórnarskrána eftir því sem hentar hverju sinni ekki vandræði fyrir forsetann sem er prófessor í stjórnmálafræði; framkvæma nýja túlkun eins og hann virðist hafa gert síðan hann tók við embætti?
Með allri virðingu fyrir forsetafrúnni og auði hennar þá er full langt gengið enda virðist hún fyrst og fremst hafa upplýsingar frá manni sínum forsetanum um stöðu hans sem forseta lýðveldisins?
![]() |
Dorrit: Ísland verði svalari útgáfa af Dubai |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:22 | Slóð | Facebook
2.2.2009 | 15:43
Góðar óskir til Geirs H. Haarde
Vonandi verður Geir H. Haarde heill af veikindum sínum bæði vegna fjölskyldu hans og þjóðarinnar. Hann hefur verið farsæll leiðtogi er mikill missir er að ekki síst í þeim erfiðleikum þegar efnahagur þjóðarinnar er allt að því í rúst.
Þau Geir og Ingibjörg saman hefðu verið farsælli leiðtogar ef þau hefðu verið áfram. Því miður komu öfl innan Samfylkingar í veg fyrir áframhaldandi stjórnarsamvinnu; virðast vera mikil óheilindi og ósamstaða innan flokksins er kom í ljós við fjarveru Ingibjargar Sólrúnar í veikindum hennar.
Yrði ekki hissa þótt yrðu stjórnaslit í núverandi samstarfi er kæmi flokknum endanlega út í horn og enginn flokkur treysti sér til samvinnu við hann í framtíðinni.
![]() |
Aðgerð á Geir heppnaðist vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.2.2009 | 14:56
Ísland fyrir fólkið í landinu
Rökleg niðurstaða að Jóhanna Sigurðardóttir verði forsætisráðherra nú vegna þess hún er hefur alla tíð verið staðföst að vinna að almannaheill sterku heilbrigðiskerfi og betri afkomu þeirra lægst launuðu. Til þess svo megi verða þarf sterkt og heilbrigt atvinnu- og viðskipta líf í landinu þar verður þrautin þyngri og fróðlegt að sjá hvernig til tekst með forystu Jóhönnu í verðandi ríkisstjórn?; alla vega styrkja íslenska atvinnusköpun til gjaldeyrissköpunar?
![]() |
Skjaldborg slegið um heimilin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:57 | Slóð | Facebook
1.2.2009 | 14:43
Pappírspeningar - óheft frelsi engar reglur?!
Samkvæmt niðurstöðum Gunnar Tómassonar, hagfræðings í Silfri Egils í dag hefur hagfræði heimsins beðið skipbrot vegna þess að pappírsframleiðslan á peningum var langt umfram raunverulega verðmætasköpun.
Gunnar taldi að megin ástæðan hafi orðið þegar kerfið átti að stjórnast og rétta sig af samkvæmt markabaðsaðstæðum hverju sinni. Þess vegna urðu fjármálaeftirlit og seðlabankar að dansa með kerfinu í stað þess að hafa reglur og vald til aðhalds, því fór sem fór.
Hrunið hér á landi varð fyrr en af sama toga ekkert varð stöðvað fyrr en Glitnir var settur á hliðina og aðrir bankar fylgdu á eftir.
31.1.2009 | 21:22
Formaður með nýja framtíðarsýn
Ekki sopið kálið úr ausunni fyrir Bjarna hann á erfitt verk framundan að vinna traust Sjálfstæðisflokksins meðal þjóðarinnar aftur þótt Samfylkingunni tækist ekki að klína öllu sem aflaga fór á samstarfsflokkinn, þá fékk flokkurinn spark frá Samfylkingu. Eflaust verða fleiri í kjöri en Bjarni þar er Kristján Júlíusson líklegur ásamt fleirum. Ekki verður vænlegt fyrir fyrrverandi ráðherra í ríkistjórninni að bjóða sig fram hversu góðir sem þeir kunna að vera; mikilvægt að formaðurinn hefji ferilinn með hreint borð verði ekki með nokkru móti tengdur við hrun bankanna.
![]() |
Bjarni staðfestir framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.1.2009 | 15:32
Baráttan um seðlabankastólinn?
Vantar forsendur á mannamáli hvers vegna stjórnarsáttmálinn er óraunhæfur á, hvað er megin ágreiningurinn hjá hagfræðingum? Er það undirliggjandi barátta hagfræðinga um seðlabankastólinn ? Heyrst hefur um Má Guðmundsson hagfræðing í Sviss sem væntanlegan seðlabankastjóra. Fréttinni fylgdi að hann hefði verið fyrrverandi ráðgjafi Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta en geta varla talist nægileg meðmæli til seðlabankastjóra nema Samfylkingin telji sig þá geta haft óbein áhrif á seðlabankastjórann. Hvenær verður starf seðlabankastjóra ópólitískt?
![]() |
Ósætti um aðgerðirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:59 | Slóð | Facebook
31.1.2009 | 13:37
Hatur - og blekking inn í ESB
Má vel taka undir að hrun bankakerfisins hafi kristallist í hatri á Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra en ekki rætt hvort lög seðlabankans hafi reynst nógu sterk til raunhæfra aðgerða til að halda bönkunum í eðlilegum farvegi miðað við Island með örlítið hagkerfi.
Bindiskylda bankana var lækkuð en hvers vegna? Til samræmi við reglur ESB er hafði þær afleiðingar að gjaldeyristaða seðlabankans varð óviðunandi. Þá voru reglur ESB á þann veg að Íslenska ríkið ber ábyrgð á Icesave- innlánsreikningum Þótt Íslendingar ætluðu að greiða hluta tapsins samæmt reglum EES snerust allar þjóðir ESB á móti vegna eigin vanda í bankakerfi sínu ef reglur EES giltu hér á landi en ekki reglur ESB.
Svo kemur stækkunarstjóri ESB Oli Rehn og býður fram vináttu sína um hraðferð Íslands inn í ESB til bjargar efnahag þjóðarinnar. Er það raunveruleikinn?, nei ESB vill auðlindir okkar til lands og sjávar undir sína arma vegna þverrandi auðlinda og efnahagsstyrks Evrópu! Okkar hagsmunir verða bornir fyrri borð þegar hagsmunum ESB-ríkja hentar.
Allir þekkja ævintýrið um Rauðhettu litlu (stjórnvöld) er fór út í skóg með matarkörfu handa Ömmu sinni (þjóðin). Hún hitt i úlfinn (ESB) er blekkti Rauðhettu út af réttri leið.
Þegar Rauðhetta (stjórnvöld) kom til Ömmunnar fannst henni útlitið öðruvísi en hún átti að venjast. "Hvers vegna hefur þú svo stóran munn og tennur amma mín"? "Til þess að ég geti gleypt þig með húð og hári", svarðar amman í gervi úlfsins (ESB)
Það sem verður öðruvísi en ævintýrið. Enginn góður veiðimaður verður til staðar til að bjargar Ömmunni og Rauðhettu litla úr maga úlfsins; þjóðin verður að standa fast á rétti sínum sem smáþjóð, á ekkert erindi inn i ESB.
![]() |
Geir: Stjórnuðust af hatri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2009 | 14:57
Tekur Jóhanna undir "kerlingarvælið"?

![]() |
Hvalurinn setur hnút í Frjálsynda |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:26 | Slóð | Facebook
28.1.2009 | 14:21
Þjóðina vantar forseta?
Enn heldur forsetinn áfram með pólitískum áhrifum sem ekki er á könnu hans sem forseta Íslands. Nú boðar hann breytingar á Seðlabankanum er haft eftir honum í BBC og nauðsynlega siðabót er yrðu gott fordæmi fyrir aðrar þjóðir. Getur ekki stillt sig um að baða sig í sviðsljósinu þó ekki væri til annars en bæta eigin sjálfsmynd fyrir hamaganginn í kringum bankajöfrana; meðan þeir ryksuguðu mest allt sparifé bankanna, veðsettu í eigin hlutabréfum bankanna og skuldsettu þjóðina jafnvel í marga áratugi.
Greinilega ofbauð Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, formanni S. í Kastljósinu í gær er hún yfirgaf sviðsljós fjölmiðla þegar forsetinn sat fyrir hjá fréttamönnum til að svara spurningum þeirra. Gott hjá henni. Má segja að húm vaxi sífellt í starfi þótt á móti blási bæði í veikindum hennar og stjórnmálum. Vel til fundið ef Jóhanna Sigurðardóttir verður forsætisráðherra vegna vinsælda hennar. Hún mun eflaust eiga betur með að samræma erfiðar ákvarðanir á erfiðum tíma þar sem fara saman traust og vinsældir.
Páll Skúlason átti eftirminnilegt viðtal í Kastljósi um áramótin þar talað sorgmæddur maður er þótti vænt um þjóð sína og þótti illa komið fyrir henni. Orð hans: "Landráð af gáleysi er landráð" urðu fleyg. Orð sem allir skyldu og hafa greinilega orðið minnisstæð mörgum.
Þjóðina vanta vitran mannvin eins og Pál Skúlason fyrir forseta Íslands sem allra fyrst.
26.1.2009 | 19:30
Ætlar forsetinn að hrifsa völdin?
Það má álita að forsetinn haldi sig geta verið á sviði stjórnmálanna með ákvarðanatöku eða hann er svo valdasjúkur að hann vilji túlka völd forseta langt umfram það sem hefð segir til um, og er umdeilt í samfélaginu. lkjk
Baldur Þórhallsson (RÚV í kvöld), stjórnmálafræðingur taldi að þann fyrirvara er forsetinn sagðist setja í forgang í komandi stjórnamyndunarviðræðum í samtali við formenn stjórnarflokkanna; setja olíu á eldinn í komandi stjórnarmyndunarviðræðum vegna þess þá væri forsetinn kominn út fyrir svið embættisins sem hingað til hefði verið túlkað.
![]() |
Óvenjulegt frumkvæði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook
26.1.2009 | 16:40
Forsetinn - ótrúverðugur?
Alvarleg staða er í stjórn landsins; ekki traustvekjandi að forsetinn fái þar stórt hlutverk í stjórnarmyndun er hefur leynt og ljóst stutt fjármálagarkana erlendis og hérlendis. Þjóðin sjálf, grasrótin virðist ekki hafa verið ofarlega í huga forsetans þar sem helsta hlutverk hans er að vera sameiningartákn?
Nú á þessari stundu hlýtur forsetinn að vera ótrúverðugur til stjórnamyndunar?
![]() |
Forsætisráðherra á fund forseta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:45 | Slóð | Facebook
26.1.2009 | 13:05
Morgunblaðið - hæpinn rekstur?
Sorglegt hvernig er komið fyrir Mbl er stendur á gömlum merg og hefði átt að gera betur þó útgáfa Fréttablaðsins ókeypis hafi þar áhrif. Lítt skiljanlegt að gefa út 24stundir ókeypis með fjölda starfsmanna er ætla má að hafi veikt mjög Morgunblaðið; hafi aldrei verð rekstrarlega mögulegt jafnvel gert út um reksturinn.
Lítur út fyrir að blaðið þurfi nýjan rekstrar- og ritstjórn að miklu eða öllu leyti.
![]() |
Laun lækka um 5% hjá Árvakri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.1.2009 | 07:43
Utnaþingsstjórn - með samþykki stjórnarflokkannna!
Sjálfstæðisflokkurinn getur ekki látið forsætisráðuneytið af hendi hann er nógu laskaður fyrir ekki sjáanlegar forsendur til að Samfylkingin taka forystu í misheppnuðu stjórnasamstarfi. Skásti kosturinn nú er utanþingsstjórn með stuðningi núverandi stjórnarflokka.
Núverandi stjórn hefur tekist seint og illa upp að setja fram ástæður fyrir hruni bankanna þótt viðskiptaráðherra hafi sagt af sér og rekið fjármálaeftirlitið, fjármálakreppa erlendis er heldur ekki nægileg ástæða. Með samkomulagi um utanþingsstjórn viðurkenna stjórnarflokkarnir við núverandi aðstæður hafi stjórninni misst tökin á stjórnartaumunum.
Allir stjórnmálmenn hafa svo lítið traust almennings; þeir hljóta að standa utan við stjórn meðan kosningar fara fram.
![]() |
Vilja taka að sér verkstjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:01 | Slóð | Facebook
26.1.2009 | 07:07
Upp koma svik um síðir?
Tóku stjórnendur/eigendur gamla Kaupþings: Sigurður Einarsson; Ólafur Ólafsson og Heiðar Már Sigurðsson 84,5 milljarða út úr Kaupþingi rétt áður en bankinn féll og fluttu þá úr landi með erlendan Sjeik frá Katar sem sýndarkaupanda án þess tryggingar kæmu á móti? Peningarnir teknir að "láni" fyrirfram án vitundar lánanefndar er hún kvittaði fyrir eftir á? Var einn nefndarmanna í lánanefndinni formaður VR Gunnar Páll Pálsson að gæta hagsmuna félagsmanna sinna?
Hvert fóru fimmhundruð milljarðar Evra er framagreindir aðilar fengu út úr Seðlabankanum rétt fyrir fall bankans? Tók Kaupþing sér stöðu gegn krónunni svo hún féll er verður til þess að þjóðin mun búa við lakari lánakjör erlendis um langan tíma? (Ásamt öðrum bönkum) Mbl í gær bls 10.
Þá vann Vilhjálmur Bjarnason formaður samtaka fjárfesta mál gegn stjórn gamla Glitnis er hlutabréf bankans voru seld Bjarna Ármannssyni á undirverði við stafslok hans.
Óviðunandi ástand ef ekki tekst að sækja framangreinda aðila til saka fyrir ósvífna meðhöndlun fjármuna sparifjáreigenda og hlutafjáreigenda.
25.1.2009 | 17:08
Björgvin hetja dagsins
Björgvin G. Sigurðsson er hetja dagsins fyrir að sýna stjórnkerfinu fordæmi og axla ábyrgð. Verst í stöðunni ef ekki verður hægt að koma böndum á þá sem mesta ábyrgð bera, eigendur og stjórnendur bankanna í kjölfarið. Hvernig þeir hafa leynt og ljóst braskað sín í milli með fjármunum er þeim var trúað fyrir.
![]() |
Afsögn Björgvins vekur athygli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:10 | Slóð | Facebook
24.1.2009 | 21:49
Lýðskrum lifir góðu lífi í kreppunni
Nú er tækifærið fyrir stjórnarandstöðuna að nýta sér kreppuástandið með slagorðum og lýðskrumi og kemur það vel í ljós í skoðanakönnun með 32.6% fylgi Vinstri grænna. Reiður almenningur grípur í hálmstrá og setur fylgi sitt á Vinstri græna en verður það til frambúðar?
Þegar forseti alþingis náði fram breytingum í haust um betri þingsköp styttri ræðutíma til að fá snarpari og málefnalegri umræðu en "Maraþonumræður" í þinginu sem hafa viðgengist lengi og valdið því að fáir eða engir hafa úthald til að hlusta ,hvað þá tíma. Þá risu Vinstri grænir upp óðir og uppvægir, nei ekki mátti breyta neinu og voru einir á móti. Samt varð þessi breyting til þess að umræður á þinginu eru málefnalegri , minna um lýðsskrum.
Sami hátturinn er nú kreppuástandinu Vinstri grænir hrópa, "bjarga heimildum og fjölskyldunni",leysa greiðsluvanda heimilanna, "leysa óhóflegt skattarán eldri borgar o.s. frv. Engar lausnir frá þeim eru í sjónmáli.
Nú virðast góðar horfur á nýju framboði er má telja að nái fylgi vonandi að miklu leyti frá lýðskrumurum þeim er leggja fyrst og fremst áherslu á að halda völdum. Þeim gæti tekist að fá fylgi; slá á lýðskrum stjórnmálamanna svo um munar bæði hjá Vinstri grænum og öðrum er ekki munu hika við að slá ryki í augu almennings með innantómum fagurgala í mæltu máli og "glamúrauglýsingum".
![]() |
Fylgi VG mælist rúmlega 32% |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:51 | Slóð | Facebook
24.1.2009 | 16:25
Hörður Torfason - biðst afsökunar
Hörður Torfason er maður að meiri baðst afsökunar á ummælum sínum í garð forsætisráðherra. Mikilvægt að þeir sem eru í forsvari fyrir mótmælum borgarinnar haldi ró sinni í viðkvæmum aðstæðum þar sem lítið þarf út af að bera til að skapist þofremdarástand. Mótmælin gætu snúist upp á andhverfu sína og valdið ósstjórn og uppreisn.
Þótt umrædd mótmæli séu ekki þjóðin eða í umboði þjóðarinnar má telja þau hafi samúð margra úti í samfélaginu meðan þau fara friðsamlega fram.
Það er ekki til fyrirmyndar að berja utan bíl forsætisráðherrans þar sem hann var á ferð; og það af Hallgrími Helgasyni, rithöfundi er telur sig vera sjálfskipaðan siðmenntaðan álitsgjafa í framagreindum mótmælum. Forsætisráðherra upplýsti atvikið sjálfur á RUV í morgun, má reikna með að mynd sé til af heift Hallgríms.
![]() |
Baðst afsökunar á ummælum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
23.1.2009 | 21:56
"Réttur formaður - úrslitaáhrif um samstöðu og fylgi"
Krafan um nýtt fólk og minna flokksræði er sterk í samfélaginu er ekki mun taka breytingum um hvern Landsfundur Sjálfstæðisflokkurinn velur til forystu. Getur skipt sköpum um hvaða fylgi flokkurinn fær. Bregðast þarf við með framboði fólks sem ekki er tengt fortíð flokksins eða situr í ríkisstjórn nú, allt verður notað til áróðurs miskunnarlaust í komandi þingkosningum.
Kjör formanns Framsóknar mun hafa óbein áhrif ekki verður spurt um stjórnmálareynslu heldur trúverðugleika betri tengsl við grasrótina þar sem meiri jöfnuður ríkir; allir fái tækifæri til að þroska hæfileika sína á öllum sviðum.
Nokkrir hafa verið nefndir til leiks og virðist Bjarni Benediktsson álitlegur kostur. Ekki verður heldur horft framhjá Hönnu Birnu Kristjánsdóttur, borgarstjóra og Kristjáni Þór Júlíussyndin, alþingismanni, þau munu sennilega blanda sér i slaginn.
Þrátt fyrir bágt efnahagástand eru spennandi tímar í stjórnmálum framundan vonandi kemur nýtt fólk til þings sem hefur sterka siðferðilega sýn þar sem almannaheill er í fyrirrúmi en ekki þröngir hagsmunir hópa er beita þingmenn þrýstingi til að skara eld að eigin köku.
"Réttur formaður mun hafa úrslitaáhrif um samstöðu og fylgi flokksins í næstu kosningum".
![]() |
Þorgerður leysir Geir af |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 24.1.2009 kl. 13:39 | Slóð | Facebook
23.1.2009 | 15:59
Hörður Torfason - skammastu þín!
Getur verið að Hörður Torfason sé máttugur en hann getur ekki ráðið því hvenær hann sjálfur eða forsætisráðherrann veikist. Liggur í augum uppi að Geir gegnir ekki embætti sem formaður og forsætisráðherra með lífshættulegt mein. Eflaust hefur Geir Haarde gert það upp við sig nú þegar kosningar eru í vændum.
Hörður Torfason ætti að skammast sín hann getur æpt eins og hann vill meðan hann hefur róm til niður á Austurvelli jafnvel þótt röddin missi þrótt; það er ekki eins mikilvægt hlutverk og að standa í brúnni á þjóðarskútunni.
![]() |
Hænuskref í rétta átt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |