"Portkonur málefna um ESB"?

Guðni er tilneyddur að skoða ESB-aðild vonandi verður hann áfram framkvæmdaraðili þeirrar umræðu en ekki Valgerður Sverrisdóttir er leynt og ljóst hefur viljað troða þjóðinni í ESB. Undirrituð man ekki eftir neinum sérstökum frambærilegum rökum í þá veru; að  auðlindir þjóðarinnar til lands og sjávar (og menntun)  gefi henni viðskiptalegt sjálfstæði/sjálfstæði og velmegun til framtíðar meðal þjóðanna en ekki innganga eins og sér i ESB.  Ef til vill er Framsókn að syngja  sinn svanasöng. Valgerður Sverrisdóttir mun sóma sér vel við hlið Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur; í málefnasnauðum samsöng þeirra um inngöngu í ESB - þær eru fremur sem "portkonur málefnisins" en málsvarar þjóðarhags?

 

 


mbl.is Guðni vill skoða ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ESB - brotalöm framtíðar

Rétt ákvörðun að vera viðbúin breyttum aðstæðum þótt breyttar aðstæður séu afstæðar hvort sem litið er innan -eða utanlands. Nú hafa allar þjóðir ESB snúist gegn okkur í Icsave-málinu ekki vegna þess heldur vegna eigin galla á reglum sambandsins hvað varðar ábyrgð til sparifjáreigenda. Hins vegar stendur eftir aðför Browns forsætisráðherra Breta að KBbanka með terroristalögum er vonandi fær lögfræðilega meðferð til að rétta hlut okkar bæði siðferðilega og lögfræðilega.

Þá eru helstu ríki heims á fundi í Bandaríkunum  að reyna að koma á betri samskiptareglum í viðskiptum er hafa beðið skipbrot um allan heim. Ekki síst hjá ESB þar sem frjálst flæði fjármagns (og vinnuafls)  hefur fremur valdið óstjórn fjármála en velmegun almennings. Nú um stundir er það eina sem ESB-löndin  eru sammála um, að standa á móti örþjóð norður í Atlandshafi, en að öðru  leyti er ekki ljóst hvort ESB mun lifa af heimskreppuna hvað þá að fleiri þjóðir bætist við í náinni framtíð.

Nú eru Kínverjar með langstærst gjaldeyrissjóð heims er mun hafa áhrif á framvinduna;  breyta heimsmyndinni í viðskiptum ef til vill í náinni  framtíðinni?


mbl.is Óttumst ekki kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama forseti - viðurkenning þeldökkra

Fyrir u.þ.b 150 árum (1860)var Abraham Lincoln kosinn forseti og setti á oddinn frelsi svartra þræla í Bandaríkjum. Nú er svartur maður kosinn forseti má segja að réttindi svartra hafi endanlega hlotið viðurkenningu almennings  með kjöri Barack Obama. Borgarastyrjöld Lincolns varð sársaukafull og snerist upp í andhverfu sína eins og oft vill verða með slíkar styrjaldir mikið hatur skaut rótum  innan samfélagsins er endaðir með morði forsetans; Abraham Lincoln, forseti   vildi réttlæti allra þegna sinn er kostaði hann lífið en vann samt sigur er ef til vill kemur nú í ljós með kjöri Obama.

Vonandi tekst Obama að verða leiðastjarna Bandríkjanna til friðar og réttlætis;  geti skapað þjóðinni betra álits í heiminum en verið hefur í tíð fráfarandi forseta með óhóflegum stríðsrekstri. Joyful


mbl.is Obama: Þetta er ykkar sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rosabaugur?

Hvers vegna getur einn maður átt alla einkarekna fjölmiðla hér á landi vantar ekki fjölmiðlalögin er forsetinn hafnaði?  Nú um stundir er mikið rætt um pólitískan seðlabankastjóra er þyrfti að víkja en forsetinn?  Er hann ekki pólitískt umdeildur og studdi "útrásina/Baug" beint og óbeint í forsetaebættinu, - á hann ekki að víkja?


mbl.is Rosabaugur Jóns Ásgeirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV: Valgeir Guðjónsson skemmtilegur

Laugardagsþáttur RÚV var með manneskjulegra sniði eða hefur þroskast eftir því sem fleiri þættir koma fram. Valgeir Guðjónsson eðlilegur og skemmtilegur engin yfirborðsmennska. Gaman að fá móður hans í þáttinn og fá um leið bakgrunn Valgeirs í uppeldi. Mér hefur alltaf þótt Valgeir Guðjónsson skemmtilegur ekki spillir, að hann á rætur að rekja til Austurlands/Seyðisfjarðar en það vissi ég ekki fyrr en löngu eftir að hann varð vinsæll.

Framangreindur þáttur líktist dálítið þáttum Jóns Ólafssonar er voru vinsælir í RÚV á sínum tíma.

 

 


Réðu fjármálagarkarnir því sem þeir vildu ráða?

Samkvæmt fréttinni hafa hagfræðispekingar hér landi  lítið haft að athuga við "útrásina" er var orðin virk á flestum sviðum; Listum, háskólamenntun, á Alþingi, fjármálaeftirliti,ríkistjórninni, seðlabanka - og kauphöllinni? Ef til vill rétt hjá norska hagfræðingnum  gott sé að   spilaborgin hrundi nú en ekki síðar - en kallar á uppgjör þeirra er mestu réðu í "efnahagsundrinu" áður en gegnið verður til næstu kosninga?

 

Síðasta bloggið mitt er rétt að birta aftur:

 

 

Hverjir bera ábyrgð á   núverandi ástanda fjármála – og efnahafskreppunni hér á landi? Var grafið undan pólitísku valdi er gat ekki tekið á fjármálastefnunni?  Samfylkingunni hefur enn tekist að skjóta sér undan ábyrgð þrátt fyrir að vera í ríkisstjórn með því að persónugera hrunið í Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra með hjálp áhrifafólks innan viðskiptalífisins þar sem fjölmiðlarnir hafa lagt sitt af mörkum til að fela og fegra brask "útrásarvíkinganna" eins og kostur er.

Útrásin var byggð upp með sterkri samstöðu bankanna með stöðugum auglýsingum út á við með greiningaraðilum bankanna er komu reglulega fram í fjölmiðlun til að dásama fjármálaundrið,má nefna  Ingólf Bender hjá Glitni og Eddu Rós Karlsdóttur hjá Landsbanka. Fjölmiðlar reyndust útrásinni tryggir þjónar án nokkurrar gagnrýni. Forseti lýðveldisins nýtti forsetaembættið og kom fram sem sérstakur verndari "fjármálagarkanna" í orði og á borði. Þá má nefna til sögunnar virta háskóla -og viðskiptafræðinga er verðlaunuðu sérstaklega fyrir "fjármálasnilldina".Raunveruleg staða var, að pólitískt vald varð af framangreindum ástæðum  veikt, lítið sem  ekkert varð  aðgert. Ef Geir Haarde vissi  um að ástandið væri alvarlegt má telja víst  ef  hann hefði reynt að grípa inn, hefðu orðið stjórnarslit, haft alvarlegar afleiðingar og gert stöðu þjóðarinnar enn verri. Áhrifamenn útrásarinnar og Samfylkingarinnar hefðu að líkindum hafið heiftarlega árás með hjálp fjölmiðla er hefði haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

Undirrituð telur að Geir Haarde hafi leitað lags til að breyta stöðunni; og tekist þrátt fyrir erfiðar aðstæður en engir góðir kostir voru til staðar. Pólitískar aðgerðir gátu ekki komið að gagni fyrr en “útárásarvíkingarnir” urðu að leita sér hjálpar hjá Seðlabankanum með fjármál Glitnis, þá loksins ver mögulegt að snúa til betri vegnar en kostaði hrun bankakerfisins.

Hvernig Sjálfstæðisflokknum gengur að verjast áframhaldandi árásum og koma á stöðugleika hjá þjóðinni er undir því komið að Geir Haarde standi af sér fárviðri þeirra sem enn trúa á óhefta fjármálastefnu á ábyrgð þjóðarinnar. Woundering

 

 Áhrifamenn í viðskiptalífinun er studdu útrásina: Sideways

Dómnefndina er var skipuð valinkunnu  fólki á viðskiptasviði ásamt háskólamenntuðum fræðimönnum til að verðlauna útrásina:

 Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Jafet Ólafsson hjá VBS fjárfestingabanka, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Ásta Dís Óladóttir, dósent á Bifröst, Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, Hafliði Helgason, fyrrverandi ritstjóri Markaðarins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson, prófessor í HR, Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Milestone og formaður stjórnar SVÞ, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.

 

 

 


mbl.is „Hefði átt að vera búið að stoppa ykkur fyrir löngu"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylking "stikkfrí" í stjórnarsamstarfinu

Minnir á leik er undirrituð lærði í æsku  að vera "stikkfrí" ef  börn vildu ekki vera með en var auðvitað barnaleikur. Samfylkingin er "stikkfrí" í stjórnarsamstarfinu hefur ekki ennþá slitið barnsskónum  hentar ekki að axla ábyrgð; á  þeirra maður, formaður fjármáleftirlitsins  að sitja  áfram  eða er hann "stikkfrí", hann er líka  varaformaður í seðlabankanum - og gamall pólitíkus.? Whistling

Ekkert annað að gera en slíta stjórnarsamstarfinu og vinna með Vinstri grænum ef mögulegt er.


mbl.is Samfylking afneitar Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný stjórnarmyndun og síðan kosningar?

Það er siferðilega rangt  af virtum stjórnmála -og  fræðimönnum að boða inngöngu í ESB og upptöku Evru sem eingöngu lausn vandamála  á erfiðum tímum  er áhjákvæmilega eru framundan. Eftir yfirlýsingu Samfylkingar um að hún beri ekki ábyrgð á gerðum  Seðlabankastjóra getur ekki verið mjög langt í stjórnaslit. Frá sjónarhóli undirritaðrar  eru það áhrifamenn Samfylkingar er jafnframt eru fyrrverandi (núverandi?) stuðningsmenn fjármálagarkanna er sitja í baksætinu og vilja taka völdin í Seðlabankanum ef þess er nokkur kostur?  Forsætisráðherra hlýtur að leita lags og semja við Vinstri græna til að taka með ábyrgð á ákvörðunum varðandi efnahagsmál er hljóta að fara fram áður en raunhæft verður  að efna til kosninga.

Vinir okkar eru ekki lengur Bretar og Bandaríkjamenn nema þegar hagstætt er að líta til landfræðilegrar stöðu og auðlinda landsins. Áhugi ESB á  er af sama toga að komast yfir auðlindirnar  fá afraksturinn með sjálfdæmi eftir inngöngu í ESB; sjálfstæði lítillar þjóðar  byggjast á frjálsum viðskiptum sem víðast en ekki innan stórra efnahagbandalaga er snúast um að halda  eigin framleiðslu í háu verði.

 

Þá fara hagsmunir okkar betur saman með Norðurlandaþjóðum, Kanada og Rússlandi. Auðlindir norðursins á þessum slóðum eru sameiginlegir hagsmunir er skynsamlegt veður að framfylgja  ;hvað varðar  “félagsvelferðarkerfi” og styrkjum í allt mögulegt og ómögulegt  hjá  ESB hafa   ekki orðið raunveruleiki í núverandi kreppu, smærri þjóðir eiga lítið bakland hjá ESB þegar á reynir.


Allraheilagramessa

Allraheilagramessa var ein af helgustu hátíðum í kaþólsku og þekkt hér með íslensku nafni frá elstu tímum. Messunni var haldið fram yfir siðaskipti (Lútherskan sið) til 1770. Eftirfarandi texti úr Jesaja er lesin á Allraheilagramessu:

 

Biblían:

Jes 60. 19-21

19Sólin verður ekki framar ljós þitt um daga
og tunglið ekki birta þín um nætur
heldur verður Drottinn þér eilíft ljós
og Guð þinn verður þér dýrðarljómi.
20Sól þín gengur aldrei til viðar
og tungl þitt minnkar ekki framar
því að Drottinn verður þér eilíft ljós
og sorgardagar þínir á enda.
21Allir þegnar þínir eru réttlátir,
þeir munu ævinlega eiga landið.
Þeir eru garður Drottins sem ég hef gróðursett,
handaverk hans

 

Góða helgiHappyHalo

 

 

 

 


Hverjir bera ábyrgð í útrásinni?

Hverjir bera ábyrgð á   núverandi ástanda fjármála – og efnahafskreppunni hér á landi? Var grafið undan pólitísku valdi er gat ekki tekið á fjármálastefnunni?  Samfylkingunni hefur enn tekist að skjóta sér undan ábyrgð þrátt fyrir að vera í ríkisstjórn með því að persónugera hrunið í Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra með hjálp áhrifafólks innan viðskiptalífisins þar sem fjölmiðlarnir hafa lagt sitt af mörkum til að fela og fegra brask "útrásarvíkinganna" eins og kostur er.

Útrásin var byggð upp með sterkri samstöðu bankanna með stöðugum auglýsingum út á við með greiningaraðilum bankanna er komu reglulega fram í fjölmiðlun til að dásama fjármálaundrið,má nefna  Ingólf Bender hjá Glitni og Eddu Rós Karlsdóttur hjá Landsbanka. Fjölmiðlar reyndust útrásinni tryggir þjónar án nokkurrar gagnrýni. Forseti lýðveldisins nýtti forsetaembættið og kom fram sem sérstakur verndari "fjármálagarkanna" í orði og á borði. Þá má nefna til sögunnar virta háskóla -og viðskiptafræðinga er verðlaunuðu sérstaklega fyrir "fjármálasnilldina".Raunveruleg staða var, að pólitískt vald varð af framangreindum ástæðum  veikt, lítið sem  ekkert varð  aðgert. Ef Geir Haarde vissi  um að ástandið væri alvarlegt má telja víst  ef  hann hefði reynt að grípa inn, hefðu orðið stjórnarslit, haft alvarlegar afleiðingar og gert stöðu þjóðarinnar enn verri. Áhrifamenn útrásarinnar og Samfylkingarinnar hefðu að líkindum hafið heiftarlega árás með hjálp fjölmiðla er hefði haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

Undirrituð telur að Geir Haarde hafi leitað lags til að breyta stöðunni; og tekist þrátt fyrir erfiðar aðstæður en engir góðir kostir voru til staðar. Pólitískar aðgerðir gátu ekki komið að gagni fyrr en “útárásarvíkingarnir” urðu að leita sér hjálpar hjá Seðlabankanum með fjármál Glitnis, þá loksins ver mögulegt að snúa til betri vegnar en kostaði hrun bankakerfisins.  

Hvernig Sjálfstæðisflokknum gengur að verjast áframhaldandi árásum og koma á stöðugleika hjá þjóðinni er undir því komið að Geir Haarde standi af sér fárviðri þeirra sem enn trúa á óhefta fjármálastefnu á ábyrgð þjóðarinnar. Woundering

 

 Áhrifamenn í viðskiptalífinun er studdu útrásina: Sideways

Dómnefndina er var skipuð valinkunnu  fólki á viðskiptasviði ásamt háskólamenntuðum fræðimönnum til að verðlauna útrásina:

 Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Jafet Ólafsson hjá VBS fjárfestingabanka, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Ásta Dís Óladóttir, dósent á Bifröst, Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, Hafliði Helgason, fyrrverandi ritstjóri Markaðarins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson, prófessor í HR, Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Milestone og formaður stjórnar SVÞ, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.Errm

 

 


mbl.is Aðvörunin verði rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju fjórburafjölskylda!

Frábærir fjórburar, foreldrarnir eru örugglega stoltir af  barnaláninu;  lán sem ekki  þarf að greiða kemur frá Guði sjálfum veitir sanna gleði er mölur og ryð fær ekki grandað.Smile Halo
mbl.is Íslensku fjórburarnir tvítugir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árvakur í vanda - sorglegt

Áhyggjuefni ef Morgunblaðið er í útrýningarhættu þótt áskrifendum hafi fjölgað hlýtur samt  vonlítið að keppa við fríblöð. Framtíðin ótvírætt óljós nú  þegar eru komnir eigendur Fréttablaðsins inn í Árvakur. Er ekki lausnin að sameina Morgunblaðið og Fréttblaðið, stofna almenningshlutafélag eða gefa bæði út sem eitt fríblað?
mbl.is Árvakur fækkar störfum um 19 og lækkar laun stjórnenda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jón Ásgeir Jóhannesson og Hannes Smárason bestir í viðskiptum?

Undir lok síðasta árs valdi Markaðurinn, fylgirit Fréttablaðsins Jón Ásgeir Jóhannesson sem mann ársins í íslensku viðskiptalífi. Árið áður taldi blaðið að Hannes Smárason, fyrrum forstjóri FL Group, hefði staðið öðrum framar í viðskiptum. Bestu viðskipti ársins voru: Sala Novators á búlgarska símanum BTC, Icesave reikningur Landsbankans og  Hlutafjáraukning Baugs FL Group.

 

Dómnefndina var skipuð valinkunnu  fólki á viðskiptasviði ásamt háskólamenntuðum fræðimönnum:

 Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Jafet Ólafsson hjá VBS fjárfestingabanka, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Ásta Dís Óladóttir, dósent á Bifröst, Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, Hafliði Helgason, fyrrverandi ritstjóri Markaðarins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson, prófessor í HR, Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Milestone og formaður stjórnar SVÞ, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.Errm

 

 Heimild:T24 – Þjóðmál og viðskipti


Transfitursýra heilsuspillandi - veldur dauðsföllum

Lyfjaeftirlitið í Bandaríkjunum hefur náð fram reglum um merkingar matvælaframeiðenda, nú  verður að setja upplýsingar um hlutfall transfitusýra í matvælum þar.  Forvarnir í heilsu ef Norðurlandaráð fylgja fordæmi Dana og bannar matvæli er innihalda meira en 2% af transfitusýru (hertri fitu).

 Dauðsföll  vegna hjarta – og æðasjúkdóma mé rekja til neyslu transfitusýra. Samkvæmt nýjum reglum verða allir matvælaframleiðendur í USA að upplýsingar um hlutfall transfitusýra  á vörur sínar. Dauðsföllum er  rekja má til hjartasjúkdóma hefur nú þegar fækkað þar vegna upplýsinga  til neytenda; gerir Matvæla og lyfjaeftirlitið í USA ráð fyrir að árið 2009 hafi hjarta- og æðasjúkdómum fækkað verulega.

 


mbl.is Vilja norrænt bann við transfitusýrum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björk á villigötum - ungir Íslendingar erfa auðlindir Íslands til framfara

Veit Björk Guðmundsdóttir um hvað hún er að tala þegar hún segir „Það hefur áður sýnt sig að það er of áhættusamt fyrir okkur að geyma öll eggin í sömu körfunni, eins og við rákum okkur t.d.  þegar 70% af tekjum okkar voru háð fiskveiðum"? Það var sjávarútvegur er stóð undir öllum framförum hér á landi á sviði menntunar og atvinnuhátta og fyrsta skrefið til verulegra betri lífskjara.
 
Þá þegar höfðu menn fullan hug á að virkja vatnsföll til frekari framfara. Björk ætti að kynna sér sögu um virkjanir þótt ekki væri nema fyrir Reykjavíkursvæðið til að fá yfirsýn yfir atvinnusköpun þjóðarinnar.
 
Þótt ál lækki í verði vegna heimskreppunnar þá er það tímabundið, þegar rofar til þá hækkar álið aftur eins og áður og verður notað til iðanaðar t.d. bíla, flugvélar - og í hljóðfæri framtíðarinnar hver veit?
 
Hvorki Bjarkar kynslóð eða kynslóðin í undan hefðu fengið viðunandi menntun og tækifæri til að nýta hæfileika sína ef auðlindirnar hefðu ekki verið nýttar. 
 
Næsta kynslóð á ekki bjarta framtíð ef ekki verður haldið áfram til framfara á sömu braut ;þá verða ekki mörg tækifæri fyrir menntað fólk að skapa ný störf til hliðar við nýtingu auðlindanna  er hingað til hafa  verið nýttar með skynsamlegum hætti.SmileWoundering

mbl.is Gríðarleg viðbrögð við grein Bjarkar í The Times
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Smærri einingar í félagslegri þjónustu

Farsæl lausn til framtíðar að gera samning við SÁÁ um aðhlynningu og úrlausn fyrir drykkjusjúka. Undirrituð hafði  kynni af félagsmálastofnunum á Reykjavíkursvæðinu á námsárunum þar er menntað hæfileikaríkt fólk; ferillinn  frá skrifstofunum  til vandamálanna er of langur að mati undirritaðar. Um þessar mundir má víst ekki nefna einkarekstur en svipað fyrirkomulag og hér er verið að koma á fót, þjónustan  í beinum tengslum við skjólstæðingana verður manneskjulegri jafnframt faglegu eftirlit. Vonandi að núverandi borgarstjóri reyni fleiri svipaðar breytingar er áreiðanlega mun leiða til betri þjónustu við þá sem eiga í erfiðleikum og þurfa hjápar við.Happy

mbl.is Borgin semur við SÁÁ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Utanríkisráðherra leggi fram frumvarp um aðild ESB?

Hvers vegna leggur  Ingibjörg Sólrún Gísladóttir ekki fram frumvarp þess efnis, að  viðræður og umsókn um ESB verði sett á dagsskrá; skoðnankönnun og palladómar duga ekki,  ber að virða vilja Alþingis þar fer ákvarðanatakan fram en ekki í hlutdrægri skoðanakönnum með undirspili um að öll vandamál verði leyst í Brunssel. Whistling
mbl.is Vill endurskoða ESB og Seðlabanka
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pistill Kolbrúnar Bergþórsdóttur - einræður Morgunblaðsins?!

Pistil Kolbrúnar Bergþórsdóttur á miðopnu Mbl. í dag má telja einræður Morgunblaðsins þjóðin skal beygja sig í eitt skipti fyrir öll undir  skoðanakönnun hefja viðræður og  ganga í ESB. Lýðræðisleg ákvörðun Alþingis og stjórnmálaflokkar eru til trafala. Skoðanakönnun og einræður skulu  ráða póltískum ákvörðunum fyrir þjóðina. Hvaða forsendur lágu fyrir spurningum, voru þær  hlutlægar eða  teknar á forsendum efnahagslegra erfiðleika með pólitískri íhlutun í huga, hvað reglur gilda um skoðanakannanir; eru þær ótvírætt marktækar og  trúverðugrar og koma í staðinn fyrir lýðræðislegar ákvarðanir Alþingis?

Framangreind skoðanakönnun gefur Kolbrúnu Bergþórsdóttur tilefni  til að ráðast á formenn þriggja flokka í nafni þjóðarinnar: Sjálfstæðisflokkur, Vinstri grænir og Framsókn, vænir þá um þrjósku og þvermóðsku. Hver er ástæðan, flokkarnir eiga ekki að miða við lýðræðislegar kosningar og eigin samvisku heldur  hlaupa eftir skoðanakönnun hverju sinni samkvæmt áliti Kolbrúnar   “í umboði þjóðarinnar".

Hvað viðkemur inngöngu í ESB eða aðildarviðræður hlýtur Alþingi að taka ákvörðun um þann feril;  “blessun” Kolbrúnar Bergþórsdóttur "í nafni þjóðarinnar" getur  ekki ráðið svo afdrifaríkri  ákvörðun – þótt það sé stefna Morgunblaðsins. Angry


Þrjár flugur í höggi

Snildarhugmynd bæði hægt að spara, sniðganga  Breta með kuldalegum kurteislegum hætti í þeirra eigin stíl - og mótmæla yfirgangi þeirra við íslensku þjóðina. Svona snjöll hugmynd er ekki minna en þrjár flugur í höggi.Happy
mbl.is Horfið frá beiðni um loftrýmiseftirlit?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin í gíslingu atvinnulífs- og verkalýðssamtaka!?

Fremur er reynt að setja þjóðina í gíslingu af Samtökum atvinnulífsins og Alþýðusambandsins ekki horfst í augu við erfiðleika efnahagslífisins; allt skal falt auðlindir til lands og sjávar búa til skrifræðisstjórnkerfi í samræmi við ESB í Brussel þar sem lítil þjóð eins og við  hverfum í þjóðarhafið en landið verður nýlenda fyrir ESB.

Alþýðusambandið hefur um langan aldur ekki verið takt við grasrót sinna meðlima virðist vera yfirbygging er vinnur í eigin heimi - þjóð sem getur byggt allt sitt á eiginframleiðslu og útrás hugvits menntaðs fólks  er samtökunum framandi eða alls ekki á þeim bæ?


mbl.is Þjóðin í gíslingu Sjálfstæðisflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband