Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
2.10.2008 | 22:59
Eldsneytisskortur í sjónmáli?

![]() |
Olíuverð lækkar á heimsmarkaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:04 | Slóð | Facebook
2.10.2008 | 20:50
Umræða um þjóðstjórn skynamleg?


![]() |
Seðlabankastjóri þekki sinn stað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:55 | Slóð | Facebook
2.10.2008 | 18:32
"Fóbían og hefndarþorstinn í seðlabankanum".
Fóbían um illsku og hefndarþorsta Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra gagnvart Baugi hefur skinið skært í sviðsljósinu vítt og breytt um samfélagið með hjálp fjölmiðla og einstaklinga; gert hann vanhæfan í starfi sínu í vandamálum Glitnis Nýjasta stirni Framsóknar Höskuldur Þór Þórhallsson skrifar grein (Fréttablaðið í dag) um vanhæfi Davíðs. Hann segir: Ákvörðunin hefur gríðlegar afleiðingar fyrir þá menn sem hann [Davíð] hefur átt í stríði viðundanfarin ár. Segist Höskuldur finna stoð í lögum um vanhæfi Davíðs. Tilgreinir rök sín með tilvísun í hæfisreglur stjórnsýslulaga.(nr?)
Hvernig ætlar Höskuldur að sanna að Davíð hafi verið óhæfur vegna haturs þegar hann var ráðinn Seðlabankastjóri? Nær væri að horfa á þá staðreynd að bankakerfið er löngu vaxið upp fyrir höfuð á íslenska hagkerfinu og ef fleiri bankar eiga í erfileikum þá ræður ríkið einfaldlega ekki við stuðning um fjárþörf.
Áreiðanlega hafa vandamál Glitnis verið ígrunduð vandlega líklega í ljósi þess að fleiri vandamál kynnu að vera í farvatninu. Nú hefur seðlabankastjórnin (og forsætisráðherra ) fundað með forsvarmönnum Landbankans og Kaupþings. Má draga þá ályktun að enn séu stórvandamál framundan. Ekkert er óeðlilegt að forætisráðherra sé kallaður til og skýrt hvernig málin standa. Umrætt Glitnisvandræði voru að sjálfsögðu kynnt öllum stjórnmálaflokkum og sýnir hvað vandinn er alvarlegur og djúpstæður.
Höskuldur telur nauðsynlegt að aðeins veljist fagmenn til starfa í seðlabankanum. Nógir eru hagspekingarnir í Seðlabankanum. Samt ramba bankarnir á barmi gjaldþrots. Sérhæfir hagfræðingar á sviði fjármála eiga að sjálfsögðu rétt á sér og eru mikill styrkur fyrir stjórnum peningamála. Seðlabankastjórinn þarf að hafa víðtæka reynslu úr atvinnu- fjármálalífi þjóðarinnar. Tvímælalaust hefur Davíð Oddson þá reynslu -og menntun sem lögfræðingur og getur ekki talist vanhæfur sem seðlabankastóri. Umrædd reynsla er gagnast vel til að vega og meta fræðilegar ráðleggingar með skynsemi og innsæi þegar ákvarðanir eru teknar.
Umrædd fóbía er merki um þroskalitla umræðu er þjónar ekki þeim tilgangi að varpa réttu ljósi á þá hagstjórn og bankakreppu sem nú stendur. Sorglegt að vel menntaður og efnilegur stjórnmálamaður; og Höskuldur Þór Þórhallsson skuli falla í slíka gryfju rétt nýbyrjaður í stjórnmálum.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:35 | Slóð | Facebook
2.10.2008 | 11:07
Davíð sjálfsagður í Þjóðstjórn.
Ef rétt reynist að Davíð hafi viðrað hugmynd um þjóðstjórn þá er fjármálakerfið í meiri kröggum en komið hefur fram. Davíð Oddson, seðlabanalstóri er sá maður sem hefur hugrekki og vitsmuni til að taka á erfiðum málum og verður sjálfsagður þjóðstjórnina. Núverandi stjórnarflokkar ættu að eiga þar þar fulltrúa (Geir og Ingibjörgu). Þá mætti hugsa sér Ögmund Jónasson og jafnvel Guðjón A. Kristjánsson. Einhvern ábyrgan staðafastan Framsóknarmann en dettur enginn í hug svona í skyndi fyrir þetta blogg. Þá mætti hugsa sér formann bændasamtakann, fulltrúa frá verkalýðshreyfingunni og einn frá sjávarútvegsmönnum. Þessar uppástungur eru með fyrirvara og gætu breyst við nánar íhugun.
![]() |
Seðlabankastjóri viðrar hugmynd um þjóðstjórn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:06 | Slóð | Facebook
1.10.2008 | 20:28
Kristinn H. Gunnarsson - talsmaður Baugsveldis?
Undirrituð hefur haft samúð með Kristni Gunnarssyni vegna þess að oft virðist sem hann hafi tæplega haft málfrelsi í þeim flokkum sem hann hefur fylgt. Enga samúð er hægt að hafa með málflutningi Kristins í Kastljósi í kvöld um að Seðlabankinn hafi ólöglega tekið Glitni eignarhaldi við mjög slæmar aðstæður. Hvernig getur nokkrum manni dottið í hug, að ekki hafi verið kannaður vilji beggja stjórnaflokkanna auk þess var stjórnarandstaðan samþykk yfirtöku Glitnis? Málið er í eðlilegum farvegi og eflaust verður leitað formlega eftir samþykkt Alþingis en breytir ekki stöðunni að málefni Glitnis gátu ekki beðið eftir umræðu og afgreiðslu Alþingis er hefði getað leitt þjóðarbúið í strand með skelfilegum afleiðingum er hefði gert út um trúverðugleika fjármálakerfisins um ófyrirsjánanlegan tíma.
Skýrt kom fram í máli Péturs Blöndal í umræddum þætti að ríkistjórnin geti tekið skjótar ákvarðanir ef mikill vandi steðjar að eins og í Glitnismálinu. Þessa ákvörðun varð að taka áður er markaðir opnuðust á mánudagsmorgun um það er ekki nokkur vafi.
Nú hefur Kristinn Gunnarsson fengið tækifæri til að losa sig alveg frá þingmennsku og gerast talsmaður Baugsmann áreiðanlega vantar þá sárlega slíkan mann sem allra fyrst; ekki munu margir sækjast eftir þeirri stöðu eins og málum er komið. Næg verkefni eru til staðar. Sigurður Guðjónsson formaður Glitnis (fyrrverandi?) sagði á Stöð2 í kvöld, að fyrir hendi væru mjög góð veð þótt Seðlabankinn tæki ekki mark á þeim. Nú er bara að hefjast handa fyrir Kristinn H. Gunnarsson að kynna sér málin svo Baugsmenn geti keypt bankann aftur áður en hluthafafundur skellur yfir í næstu viku.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:16 | Slóð | Facebook
1.10.2008 | 12:51
Barnanleg nauðvörn Bónusforstjórans - "Mýrarljós í fjármálakreppunni"?
Enn heldur Jón Ásgeir Jóhannesson áfram að persónugera fjármálavandræði sín í Davíð Oddssyni seðlabankastjóra í örvæntinga sinni eða "barnaskap." Hluthafar verða að axla sína ábyrgð og taka á sig taprekstur í óraunhæfri fjárfestingu að því er virðist. Annars er hætt við að mat í fjárfestingum yrðu ekki nægilega ígrundaðar.
Hvað með almenning í landinu á hann að taka á sig töp í fjárfestingum stóreignamanna? Hefur nóg með sig í kreppunni. Jón Ásgeir virðist ekki hafa mikla samúð með sauðsvörtum almúganum þegar á að lána eða "gefa" stóran hluta þjóðartekna í Glitni sem ekki var nein tygging fyrir að næði landi í vandræðum sínum.
Það er sauðsvartur almúginn sem heldur uppi Bónusverslunum með viðskiptum sínum sem greidd eru út í hönd. Ráðlegg Jóni Ásgeiri að ávaxta þann gróða með mikilli yfirvegun.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:50 | Slóð | Facebook
1.10.2008 | 09:18
ENGA - VINSTRI STJÓRN!
Versta sem gæti komið fyrir í kjölfar núverandi fjármálaheimskreppu yrði vinstri stjórn hér á landi.
Man vel eftir síðustu vinstri stjórn fyrir u.þ.b. 25árum en hún er versta stjórn sem hefur setið við völd hér á landi að mati undirritaðrar. Minnistæður er skattaafslátturinn sem þeir lægst launuðu áttu að fá. Þeir sem voru snjallastir að "fela tekjur sínar" fengu bæturnar.
Þá var nýsköpunarstjórnin (Sjálfstæðismenn og Sósíallistaflokkurinn) betri hún kom afli í sjávarútveg og atvinnulíf sem varð undirstaða núverandi velmegunar.
Það væri áhugavert fyrri sagnfræðinga að skoða þessi tímabil í stjórnmálum þjóðarinnar ekki síður en Hafskipsmálið.
Undirrituð hefur alltaf haft þá skoðum að Samfylkingin væri sá flokkur sem hún gæfi síst atkvæði sitt svo er enn. Fyrst og fremst vegna undirlægjustefnu sinnar í Evrópumálum gagnvart ESB.
Samt sem áður er æskilegt að núverandi stjórn sitji áfram út kjörtímabilið og reyni að leysa vandamálin. Annað stjórnarmynstur hefði tæplega nægilegan styrk til að halda velli í moldviðrum fjölmiðlanna sem ekki eru nægilega málefnalegir heldur virðast fremur fjalla um málin í æsifréttastíl.
1.10.2008 | 08:31
Ef Glitnir hefði orðið gjaldþrota - hvert væri lánshæfismat ríkisins þá?
Hvert hefði lánshæfismat ríkisins orðið ef það hefði bjargað Glitni með lánum (þriðjung þjóðartekna) og fleytt bankanum með afborganir ef til vill í þrjá mánuði? Illskást fyrir ríkið að eignast meirihluta. Ríkið hefur ekkert grætt á yfirtöku bankans ennþá þótt hlutabréf hafi hækkað lítillega í verði; hver vill kaupir hlutabréf í Glitni og hvar fæst fjármagn til þess? Enn er tækifærið fyrir hendi áður en hluthafafundur Glitnis skellur á.
Eina sem Jón Ásgeir getur gert er að axla ábyrgð á fjármálum sínum í stað þess að ráðast með örvæntingu á Davíð Seðlabanksstjóra í von um að drepa umræðuna á dreif um hans eigin vanda - og hluthafana í fyrirtækjum Baugs.
![]() |
Jón Ásgeir: Sagði að þetta yrði feigðarför |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.9.2008 | 21:26
Bankarnir eru hluti af frjámálakerfi/fjármálabraski um allan heim?
Nú dynur yfir fjölmiðlaumræðan um vandræði Glitnis en fáum ber saman: "Harkalegar aðgerðir", "Bankarán Íslandssögunnar","persónuleg óvild Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Baugi og Davíðs Oddssonar seðlabankastóra", Þorsteinn Már Balsvinssorn formaður Glitnis "hálfgrátandi og svefnlaus", allt að því neyddur til að skrifa undir samning við Seðlabankann. Erfitt fyrir venjulegt fólk að skilja hvað gerðist og hvað verður næst.
Það sem raunverulega átti sér stað þegar reynt er að lesa úr fréttum fjölmiðla: Glitnir var á barmi gjaldþrots vegna þess að geta ekki staðið í skilum á gjalddögum og leitaði til Seðlabankans til að fá 6% (83 milljarða) af þjóðartekjum í lán en niðurstaðan varð að ríkið keypti 75%hlut í bankanum.
Stoðir í eigu Baugs? fóru í greiðslustöðvun, fá frest til að selja eigur til að forða gjaldþroti. Það sem verra er að Stoðir eiga a.m.k. 30% í Glitni en Landsbankinn er svo stærsti lánardrottin Stoða. Kallast víst á fagmáli "hlutbréfavafningar/fléttur" sem á mannamáli skilst sem hlutbréf ýmissa fyrirtækja fléttuð saman á marga vegu út og suður um allan heim eftir atvikum, því við erum líka hluti af fjármálabraski rétt eins og eðlilegum fjármálaviðskiptum í heiminum
Undirrituð dregur þá niðurstöðu af framgreindum fréttum og umræðum að ekki eru öll kurl komin til grafar ennþá. Ef Landsbankinn verður að afskrifa lánin hjá Stoðum hvað þá? Hvað verður um eignir Stoða í Glitni? Er Landsbankinn næsti höfuðverkur Seðlabankans og þess vegna þótti ekki ráðlegt að lána Glitni 83 milljarða úr ríkiskassanum?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:30 | Slóð | Facebook
30.9.2008 | 10:25
Starfsmenn í uppnámi hjá Íbúarlánasjóði
Lækkunin greinilega farið illa í starfsmenn. Hringdi í sjóðinn í morgun til að fá upplýsingar um uppgreiðslu lána, geðvond símadama svaraði, hafði allt á hornum sér svo ég gafst upp og hringdi í vin minn sem er vel að sér í fjármálum.
Já, það eru erfiðir tímar í fjármálum en samt er nú Íbúðarlánasjóður nokkuð öruggur allavega meðan þjóðarskútan siglir ekki í strand. En umrædd símastúlka þarf greinilega sálgæslu ekki síður en starfsmenn bankanna sem hlýtur að líða illa og hræddir um vinnu sína.
![]() |
Lánshæfismat Íbúðalánasjóðs lækkað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:27 | Slóð | Facebook