Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
24.1.2010 | 15:05
Fyrirheitna land Samfylkingar í uppnámi.
Leynt og ljóst hefur Evrunni verið haldið uppi en gengur ekki frekar þar en krónan á litla Íslandi; fyrirheitna landið ESB er Samfylkinguna dreymir um er langt undan; óvíst um kjötkatlana handa útvöldum krötum í Brussel.
Engin glóra að eyða dýrmætum gjaldeyrir í samningaviðræður nú bæði vegna óvissu Evrunnar; en ekki síst vegna slæmrar skuldatstöðu Íslands; þjóð með allt á hælunum getur aldrei náð góðum samningi segir sig sjálft.
Vænlegast fyrir Island að reyna að semja við Norðmenn bæði um skuldir og gjaldmiðil, Dollarinn er mjög óviss líka þrátt fyrir lækkun Evrunnar vegna útlits fyrir samdrátt fyrirtækja í USA , atvinnuleysi og jafnvel verðhjöðnun.
![]() |
Óttast að evran hrynji |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:43 | Slóð | Facebook
24.1.2010 | 09:07
Umhverfisráðherra - hrokafullur - andfélagslegur?
Ríkistjórnin leggur á ótímabæran eldneytisskatt, sýndarmennska í umhverfisvernd, fólkið í landinu er býr við versnandi lífskjör er aukaatriði hjá "velferðarstjórninni". Barnafjölskyldur og þeir er lægst launin hafa geta vart risið undir álögum; þá er settur á óþarfa eldneytisskattur en til hvers?
Umhverfisráðherrana er með "fóbíu/valdahroka á háu stigi" í umhverfismálum; ekki í neinu samræmi við íslenskan veruleika þar sem bílinn vegur þungt í strjálbýlu landi. Þá eru almennar samgöngur á höfuðborgarsvæðinu engan vegin sambærilegar eins og í borgum erlendis þar sem eru lestir og sporvagnar.
Umhverfisráðherrann er langt frá raunveruleika í atvinnuuppbyggingu eða lífskjörum barnafjölskyldna þar sem bílinn vegur þungt í almennu lífi.
Afnema ber umrætt elsneytisgjald em allra fyrst.
24.1.2010 | 00:04
Ljós lífsins
Allir raunverulegir demantar eru þeirrar náttúru að þeir geta lýst í myrkri. Þó eru til demantar sem lýsa ekki. Vísindamaður einn uppgötvaði hvernig á því stendur. Demantarnir verða fyrst að vera í sólarbirtu eða sterku rafmagnsljósi til þess að geta lýst í myrkri. Þannig ætlaðist Guð til þess að allir menn yrðu ljósberar í myrkri heimsins, dýrmætari en nokkrir eðalsteinar. Við áttum að kveikja ljós í kringum okkur, vekja bros og gleði, vinsemd og hamingju.
Þegar við vorum skírð gátum við líka borið birtu. Já, það var oft eins og ljós himinsins ljómaði í einlægu og hreinu barnsandlitinu. Hvers vegna varð síðar svo dimmt í kringum margan manninn? Hví dofnaði birtan í barnsaugunum? Af hverju svo mörg meiðandi orð, óvild, hatur, og öfund? Barnið villtist burt frá Jesús.
Okkur er eins háttað eins og demöntunum. Við getum því aðeins lýst í myrkri að við höfum fyrst verið í birtu. Ekkert okkar hefur ljós í sjálfu sér. Við erum eins og tunglið sem fær ljós sitt frá sólinni. Við erum eins og daggardropinn sem getur lýst og glitrað þegar sólin skín á hann.
Jesú er ljós lífsins. Hann er uppspretta ljóssins, hann einn. En hann gefur af ljósi sínu, öllum þeim er fylgja honum. Þeir öðlast brot af hugarfari og hjartalagi hans, af heilögum anda hans.
Langar þig ekki til að eiga ljós lífsins?
"Nú talaði Jesú aftur til þeirra og sagði: "Ég er ljós heimsins. Sá sem fylgir mér mun ekki ganga í myrkri heldur hafa ljós lífsins" "(Jóh. 8,12).
Þitt blessaða ljós, sem lýsir mér,
til ljóssins iðju kallar hér.
Æ, lát mig allt í ljósi vinna,
í ljósi sannleiks orða þinna,
í ljósi þínu ljósið sjá
og ljóssins barna hnossi ná. (Páll Jónsson) Góða helgi
Máttarorð bls 61.
23.1.2010 | 14:25
"Matsfyrirtæki og Morgunkorn"
Aldrei minnast fræðingar/spekingar á hvað skuldatryggingarálag verður ef gengið verður að Icesavesamningnum með háum vöxtum og óvíst hvað skuldir eru miklar eða hvað þær verða endanlega. Þessi erlendu matsfyrirtæki virðast ekki ólík Morgunkorni gamla Landsbankans er sífellt gaf út fréttatilkynningar um hvað allt gengur vel hlutabréf sífellt á uppleið "út í himingeyminn" er aldrei gæti tekið enda; en voru á mála hjá lánardrottnum meira og minna.
Ekki vantaði háskólamenntað ungt fólk að fylgja eftir "glansmyndinni af svikamyllunni" er fjölmiðlar birtu reglulega í fréttatímum sínum. Þyrfti að rannsaka þátt fjömiðla í braskinu og hvers vegna þeir voru hallir gagnrýnislaust undir einkabankakerfið.
![]() |
Skuldatryggingaálag lækkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:46 | Slóð | Facebook
23.1.2010 | 11:06
Sanngjarnt - en lífshættulegt?
Obama hugrakkur ætlar að takast á við fjármálabrask bankanna þeir geti ekki endalaust talað upp hlutabréf er hafa enga stoð í vel reknum fyrirtækjum er sýna raunverulegan arð. Þá hefur Bandaríska ríkið bjargaði mörgum bönkum frá gjaldþroti með skattpeningum almennings sem réttlátt er að greitt sé til baka.
Nú hefur ESB lýst yfir stuðningi við forsetann enda ráða þeir ekkert við fjármálavaldið í heima fyrir.
Útrásarvíkingar/bankabraskarar hér á landi nýttu sér valdaleysi eða kæruleysi ESB hvað varðar reglur um fjármálafyrirtæki og hlutabréfamarkað er ESB viðrist nú í krafti stærðar sinnar ætla að kúga almenning hér á landi til að borga brúsann.
Obama er hugrakkur en tæplega útilokað að hann hætti lífi sínu reyni hann að takmarka brask fjármálavaldsins.
![]() |
Obama hefur áhrif á hlutabréfaverð í bönkum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:13 | Slóð | Facebook
22.1.2010 | 22:47
Þjóðarsálin mætti skammast sín
Þjóðarsálin (borgarsálin) ætti að skammast sín skrifar fyrirsögn í bloggi sínu, "við þurfum ekki fréttir utan af landi"hvort sem henni líkar betur eða verr er ríkisútvarpið/sjónvarpið eign allra landsmanna og reynir að hagar sér samkvæmt því.
Mætti miklu frekar skera niður hrútleiðinlegar margendurteknar fótboltafréttir/handboltafréttir fluttar allan daginn í sjónvarpi og útvarpi. Viðtölin við undarlegar listaspírur er kallast listamenn er fáir eða enginn botna neitt í eru viðamikil í útvarpi og sjónvarpi. Þá mættu bjórauglýsingar hverfa af skjánum lítil sem engin menning í þeim nema síður væri. Endalausar fréttir af gömlum ljótum húsum í Reykjavík er ríkið á að halda við hvort sem það er hægt eða ekki. Mætti ég heldur fá að heyra aflafréttir af landsbyggðinni eða snjó á Akureyri.
![]() |
Svæðisfréttamönnum sagt upp |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:52 | Slóð | Facebook
22.1.2010 | 16:12
"Skera glanspíurnar"
Fyrsti niðurskurður ætti að vera "glanspíurnar" er kynna dagsskrá sjónvarpsins alger óþarfi hægt að komast af með texta í staðinn eins og á öllum þeim erlendu stöðvum er ég hef séð. Óskiljanlegt val að aðeins fallegar stúlkur eigi að koma fram á kostnað útvarpsnotenda,sem sýningaratriði auk þess er það ekki jafnrétti,að karlar séu þá ekki líka - og fleiri aldurshópar?
Ef ekkert annað þarfara starf finnst innan stofnunarinnar þá eiga stúlkurnar að hætta störfum frekar en fréttaþættir verði lagðir af.
![]() |
Fækkað um 29 stöðugildi hjá RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:51 | Slóð | Facebook
22.1.2010 | 12:07
Sturlungar hverfa í skuggann
Þvílíkt brask á sér engan samlíkingu miðað við fólksfjölda, Sturlungaöld hverfur í skuggann með öllum sínum drápum, bardögum og sundrungu þegar erlent vald vildi komast yfir Ísland til skattpíningar; það tókst.
Minnir á stöðu þjóðarinnar í dag þar sem ríkistjórninni tókst næstum því að hneppa þjóðina í skattaáþján til margra ára eða aldir.
![]() |
Deutsche stærsti kröfuhafinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2010 | 08:59
Ríksieign/þjóðnýting í sjávarútvegi - ekki þjóðarhagsmunir
Fyrningarleið eða ráðstafa fiskveiðiheimildum utan kvóta eins og nú er áformað með pólitísku valdi er hættuleg þróun fyrir almannahagsmuni. Rekstur og fiskveiðiheimild þarf að líta til í samhengi, veiðar hafa verið takmarkaðar með lögum fyrir hvert skip/bát; reksturinn byggist á því hvernig tekst að ná úthlutuðum kvóta með sem minnstum tilkostnaði er aftur á móti er háð markaðsverði á fiski bæði erlendis og hérlendis.
Vegna takmarkaðra veiða kemur inn aukakostnaður ef kaupa þarf leigukvóta á einni fisktegund til að veiða aðra en upphaflega var kvótaframsal ætlað til að flytja fiskveiðiheimildi milli útgerðarfyrirtæka til hagræðingar í veiðunum.
Brask með kvótann þar fyrir utan er fyrst og fremst vandinn er þarf að sníða af kerfinu; þar þurfa að koma að hagsmunaaðilar og fagaðila er þekkja vel til í veiðum og rekstri.
Skip/bátur og fiskveiðiheimild hljóta ávallt að vera í samhengi hvaða lög sem sett verða; skip/bátur með veiðiheimild/kvóta er óhjákvæmilega í háu verði vegna verðmætasköpunar en veiðin takmörkuð. Samt má telja kvótafyrirkomulag hagkvæmara en meðan veiðar voru frjálsar þá var stjórnlaust tap á rekstri í sjávarútvegi þó vel veiddist.
Að ráðast á sjávarútvegsfyrirtækjum vítt og breitt um landið ætla að hirða þau til ríkisins með pólitísku valdi gengur ekki upp; ríkisstjórnin verður að semja það er þjóðarhagur, að öðrum kosti verður ríkisstjórnin að að fara frá.
Frjálsar veiðar eru ekki vænlegar aftur heldur bæta núverandi fiskveiðikerfi; þar sem rekstur í sjávarútvegi verði ekki með þeim hætti að betra sé að leigja kvótann en veiða hann.
![]() |
Þess krafist að stjórnvöld falli frá fyrningarleið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:01 | Slóð | Facebook
21.1.2010 | 14:12
Ríkisstjórnin í stríð við útgerð/fiskvinnslu og sjómenn?
Ætlar ríkistjórnin virkilega að fara í stríð við útgerð/fiskvinnslu og sjómenn er vinna hörðum höndum að öflun gjaldeyris; lífsspursmáli fyrir þjóarafkomu? Hvernig verður lánhæfismat þjóðarinnar og álit út á við til samninga um Icesave ;ef ríkisstjórnin stendur í stríði við sjávarútveginn er ber uppi afkomu þjóðarinnar. Það verður endanlega banabiti ríkisstjórnarinnar.
Hagsmunaaðilar og ríkisstjórnin eiga að fara samningaleiðina, endurbæta kvótakerfið setja á auðlindagjald í samræmi við rekstrarkostnað og markaðsverð á fiski; getur orðið sáttaleiðin til frambúðar?
![]() |
Eyjaflotinn kominn í höfn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |