Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Tilneydd að skila auðu utankjörstaðar - útstrikanir ekki í boði!

Kaus utankjörstaðar hér í Kópavogi í dag; en tilneydd að skila auðu,ekki  í boði að fá að strika út og færa til á framboðslistum utankjörstaðar; vegna þess gat ég ekki hugsað mér að kjósa flokkinn nema að strika fyrst út; spillta frambjóðendur að mínu mati.

Eru ekki allir kjósendur jafnir fyrir lögum líka þeir sem kjósa á utankjörstaðaar eins og kjósendur  er fá að strika út á kjördag; þarf sannarlega nýja stjórnaskrá er kveður á um jafnræði allra á kjörstað.


Krónan er raunhæfur gjaldmiðill.

Hvers vegna þessi hatursáróður um krónuna; er hún ekki mælikvarði á verðmætasköpun þjóðarinnar ; er hún ekki hvati til frekari útflutnings?  Fisveiðar  eru frumundirstaða undir útflutningi; trygging fyrir fæðuöryggi.

Kosturinn við lágt skráð gengi   krónunnar er; að útfutningsatvinnugreinarnar hafa betri samkeppnisstöðu  þótt markaðsverð  hafi lækkað vegna kreppu erlendis.

Hvernig voru aðstæður sjávarútvegs/útflutningsgreina á útrásartímabilinu?; krónan var allt of hátt skráð og greiddi um leið niður innflutning, olli óheyrilegum viðskiptahalla.

Miða þarf núverandi aðstæður við   verðmæti útflutnings; innflutningur verður að miðast við gjaldeyrisöflun ekki ráðlegt að lifa umfram efni.

Samskipti okkar við erlendar þjóðir mun hægt og hægt komast í gott horf en við þurfum þolinmæði til að standast framangreinda erfiðleika. Fjárfestar eru tortryggnir vegna alheimskreppu en það verður ekki viðvarandi ástand síst gagnvart þjóð, auðugri af auðlindum; er fjárfestar munu horfa til.

Fyrst þegar næst   eðlilegt viðskiptalegt jafnvægi  má ef til vill huga að öðrum gjaldmiðli ef það er fyrir víst betri kostur; til að mæla verðmætasköpun þjóðarinnar.

 Besta  trygging framtíðar nú; er  að búa að því sem fyrir er í landinu efla og nýta innlenda framleiðslu (landbúnað) til að spara gjaldeyri nú um stundir.

Hræðsluáróður um að þjóðin sé fyrirlitin og einskis metin  má ekki skerða sjálfsmynd og framtak;

Vel menntað ungt fólk  mun upp rísa og skapa verðmæti í framtíðinni; stofna fyrirtæki er verða byggð á nýsköpunarkrafti þeirra, undirstöðuna til að taka á skuldum þjóðarinnar og efla framfarir í landinu.

Þá mun upp rísa þjóð með nýtt siðlegt gildismat á íslenskum grunni, fyrirmynd annarra þjóða.HappyHalo 

 


''Litla hryllingsbúðin - Ísland''

Sorglegt hvað ''krabbaklær'' valdagráðugra fjármálagarka hafa verið nálægt því að ná tökum á öllu stjórnkerfinu, stjórnmálamönnum, íþróttum og listum, öllu mannlífi í smáu og stóru; hafði nánast tekist að gera Ísland að ''raunverulegri hryllingsbúð''. Megum þakka fyrir að halda velli og komast út; vonandi nær þjóðin sér og kemur sterkari úr hremmingunum.

Þjóðin lifði af kulda og hungur fyrri alda, stóð af sér erlenda kúgara, nú eru betri skilyrð. Það er brýnt að náist þjóðarsátt; allir stjórnmálaflokkar taki höndum saman um að vinna landið út úr hremmingunum.

Pólitískar galdrabrennur fyrir komandi kosningar munu ekki skila neinu; heldur hitt að ná samstöðu og axla ábyrgð á gerðum sínum hér og nú!

 


mbl.is Háir styrkir frá Baugi og FL
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlutabréfakaup frekar en ríkisskuldabréf

Gott framtak hjá Helga en hverjir virðast hafa mest áhrif í lífeyrissjóðunum eru það ekki fyrirtækin sem hafa  þar stjórnarmenn líka; alla vega hafa lífeyrissjóðirnir keypt ótæpilega hlutabréf í fyrirtækjumn fremur en að  kaupa ríkisskuldabréf?

Spurning hvort ekki þarf að minnka áhrif fyrirtækja í stjórnun lífeyrissjóðanna?


mbl.is Hugsjónamaðurinn Helgi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RUV: Mikil framför

Framboðsfundur RUV úr Suðurkjördæmi í gærkveldi var mun betri en fyrri fundir; vegna þess að fréttaskýringaþátturinn á undan var mjög góður og komu spurningar til frambjóðenda í tengslum við hann.

Sigríður Hagalín var afgerandi stjórnandinn er sá um að allt gekk ''smurt'' og sanngjart fyrir sig. Frambjóðendur urðu að svara málefnalega sem þeir gerðu yfirleitt í stuttu máli.

Nýi framsóknarmaðurinn (man ekki nafnið) kom vel fyrir og auglýsti sig málefnalega í stuttu máli einnig nýi frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins (man ekki nafnið).

Áheyrilegur stjórnmálafundur  RUV til mikils sóma.


Sterk skilaboð um betri stjórnarhætti/embættismannavald.

Fylgi O-flokksins eru vantraust á stjórnmálum/stjórnkerfi hér á landi; sterk óbein skilaboð um að þörf sé á nýrri stjórnarskrá er innheldur skýra skorinorða texta; sem ekki er hægt að teygja og hártoga af lögspekingum, gera þá nánast merkingarlausa er almenningur ber ekki nokkra virðingu fyrir.

Til þess að svo megi verða þarf mjög blandaður þverskurður af þjóðinni að hafa bein áhrif á stjórnarskrárbreytingu. Það verða stjórnmálamenn að viðurkenna með því að ná sjálfir samstöðu um breytingu; breyting á stjórnarskrá getur ekki verið karp og lýðskrum stjórnmálamanna. 


mbl.is O-listi fengi fjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sendiherrann - ekki með samningsumboð

Westerlund sendiherra mun ekki hafa úrslitaáhrif eða umboð um hvort samið verður við ESB um Evru; það voru tilmæli AGS að veita þjóðum í Austur-Evrópu hjálp með upptöku Evru þótt þau væru ekki meðlimir sambandsins; ekki óeðlilegt að Ísland sem er í EES fengi svipaða ívilnun.

 Aðeins verið að hræða Íslendinga með því að senda þennan ''skósvein''; hann hefur ekkert með diplómatískar leiðir í samningum að gera eða tekur ákvarðanir á nokkurn hátt.

Ekki mun þrýstingur ESB minnka ef finnast einnig olíuauðlindir við Norðurland eins og fram kom í fréttum í dag. Jafnvel eru ekki öll kurl komin til grafar enn hvað varðar frekari auðlindir hér við land?

Hvers vegna kemur aldrei neitt frá ESB um hvaða skilyrði þeir setja við inngöngu? Vegna þess að ESB ætlar að semja af okkur auðlindirnar með flækjusamningum; nota sér neyð okkar í leiðinni.

 

 


mbl.is AGS getur ekki haft milligöngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Línudans Framsóknar

Stjórnmálamönnum er ekki trúandi til að stjórna vaxtastiginu í landinu hvað þá tvístígandi Framsóknarmönnum er ekki geta tekið ábyrgar ákvarðanir. Stefna þeirra að lækka skuldir allra um 20% er gott dæmi um óábyrga afstöðu.

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson  er tæplega búin að hlaupa af sér hornin á stjórnmálum ef til vill getur Framsókn það aldrei; var með og móti minnihlutastjórninni og segir nú, að uppi hafi verið áform um að styðja ekki minnihlutastjórnina. Hvernig ætlar Framsókn að ávinna sér traust á ný með svona línudansi þegar þjóðin er í alvarlegri kreppu?


mbl.is Stjórnmálamenn ákvarði vexti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framtíð ESB óviss?

Hvað liggur á inn í ESB?: Ef þjóðarframleiðsla Þýskalands dregst saman um 10 til 12% á árinu? Hvernig verður staða ESB-ríkja þá? Er að marka seðlabanka ESB er reynir að fegra ástandið? Er ekki Austurríki í vandræðum búið að veðsetja þjóðarframleiðsluna í Austur - Evrópuríkjum og bankahrun yfirvofandi?

Framangreint minnir óþægilega á bankahrunið hér á landi. Auglýsingadeild/Morgunkorn einkabankanna lýsti yfir með miklum ''glamúr'' að hér stæði bankakerfið  traustum fótum, allt væri í lagi. ''Trúarsöfnuður hagspekinga'' við Háskóla Íslands varaði ekki við taldi allt í himnalagi? Þáverandi stjórn landsins tók í sama streng og forystumenn fóru sérferðir erlendis til að skerpa á góðri fjármálastjórn.

Davíð Oddson þáverandi seðlabankastjóri var sá eini er ''þorði'' að vara við þegar hann sá að hrun væri yfirvofandi.

Hver urðu viðbrögðin við afstöðu Davíð? Hatursáróður allra aðila: Fjölmiðla, hagspekinga og stjórnmálamanna sérstaklega SAMFYLKINGAR.

Nú ætlar Jóhann Sigurðardóttir, forsætisráðherra að ganga enn betur fram; virðist ætla að ''gefa auðmjúklega'' landið í til ESB? Engum dettur í hug að halda að ESB hafi áhuga á að bjarga okkur heldur að ná tangahaldi á auðlindum þjóðarinnar meðan við erum í fjárhagslegum erfiðleikum.

 

 

 


mbl.is ESB-viðræður í júní?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Agnes sá ekki skóginn fyrir trjánum''

Agnes Bragadóttir skrifar oft ágætar gagnrýnar blaðagreinar og  hefur þjóðin staðið öndinni vegna afhjúpunar hennar í Mbl  yfir styrkjamálum Sjálfstæðisflokksins.   Undirrituð ætlar ekki að kjósa Ástþór Magnússon en grein Agnesar um hann og önnur  ný stjórnmálasamtök er ekki lýðræðinu til framdráttar;- getur allt eins komið óorði á lýðræðið.

Hér var ekki að skrifa lítill bloggari heldur blaðamaður er ætlaði í krafti áhrifa sinna að ''berja niður'' sérframboðin einu sinni fyrir allt?

Sá Agnes ekki skóginn fyrir trjánum vegna þeirrar athygli og áhrifa er hún hefur hjá Morgunblaðinu?


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband