Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

ESB-viðræður viðkvæmt mál!

Samfylkingin hefur ekki betri stöðu um hvort gengið verður til aðildarviðræðna við ESB,nú eftir kosningar enda mörg brýnni efnahagsmál er þurfa afgreiðslu til að skilyrðum  við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn verði fullnægt.  Jóhanna Sigurðardóttir ásamt Steingrími J. Sigfússyni eru þungaviktarfólkið í komandi ríkisstjórn; ef af verður enda lýstu þau yfir samstarfi fyrir kosningar.

Jóhanna hefur fyrst og fremst persónufylgi er flokkur hennar er tilneyddur að virða til að halda vinsældum. Árni Páll Árnason og Dagur B. Eggertsson þurfa að sætta sig við skjólið undir pilsfaldi Jóhönnu forsætisráðherra nú um stundir enda eru þeir best geymdir þar, þegar um alvarlega samninga eins aðildarviðræður við Evrópusambandið snýst um; þar sem ekki má láta af hendi yfirráð yfir fiskimiðunum við landið. 


mbl.is Árni Páll: Ákall á aðildarumsókn um Evrópusambandið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Umhverfisráðherra veldur umhverfisspjöllum?''

Umhverfisráðherra olli ''umhverfisspjöllum'' í eigin flokki með óhugsuðum yfirlýsingum'', sem betur fer hafa orð áhrif en þeim líka fylgir ábyrgð;  stundum má jafnvel satt kyrrt liggja. Orð Kolbrúnar kostuðu hana fall út úr stjórnmálum; verra fyrir  Vinstri græna þeir töpuðu líklega um þrjú til fimm þingsætum.Whistling


''Misjafn sauður í mörgu fé''

Innan Samfylkingar er ''misjafn sauður í mörgu fé'',  fylgið tæplega viðvarandi til framtíðar; fremur er sigur Samfylkingar persónulegur sigur Jóhönnu Sigurðardóttur. Hins vegar missir Sjálfstæðisflokkurinn fylgi vegna frjálshyggju og peningahyggju; peningar virðast vera stefna flokksins yfir og allt um kring; enginn frambjóðenda sagði af sér eftir að flokkurinn hafði þegið óhóflega framboðsstyrki.

Formenn Sjálfstæðisfélaga í Reykjavík lýstu yfir stuðningi við Guðlaug Þór Þórðarson; hrokafull afstaða, virðist ekki gert ráð fyrir miklum siðgæðishugmyndum hjá almenningi, því fór sem fór.

Að framansögðu viðrist ''misjafn 'sauður í mörgu fé''  einnig  meðal frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins.Shocking 

 


mbl.is Kosningarnar vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptaráðherrann áfram - ''betri tíð með blóm í haga''?

Seðlabankastjórinn virðist hugrakkur  og ákveðinn seðlabankastjóri,  góðs viti ekki langt frá stefnu Davíðs Oddssonar hvort sem líkar betur eða verr. Verði Gylfi Magnússon áfram viðskiptaráðherra (ásamt dómsmálaráðherra) má búast við  ''betri tíð með blóm í haga''; takist að halda í horfinu í stjórn landsins?

Glapræði að setja stjórnmálamenn í framangreindar stöður það vekur aðeins tortryggni og óróleika; til þess þurfa Jóhanna og Steingrímur að þora að taka erfiðar ákvarðanir; vinna aftur traust til stjórnmálamanna. Halo


mbl.is Slakað á gjaldeyrishöftum í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Notum íslenskar afurðir

Má þakka fyrir ómengaðan landbúnað að mestu eða öllu leyti; verðmæti er allir eiga  að standa vörð um nú um stundir. Aldrei of varlega farið í innflutningi á landbúnaðarafurðum heldur nýta innlenda framleiðslu í auknum mæli. Er í fersku minni þegar Samfylkingin/kratar nöguðu innflutt kjúklingabein á flokksþingi sínu í beinni útsendingu, til að sína andstyggð sína á íslenskum landbúnaðarafurðum; ef til vill sýndu þeir sitt sanna andlit þá;'' allt betra en íslenskt''.BlushSideways 


mbl.is Mikill viðbúnaður hjá WHO vegna svínainnflúensu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bergur Ebbi: '' Gálgahúmor Morgunblaðsins''

Grein Bergs Ebba hjá Mbl (ritstjórnarsíða 24.04 bls18)  setur fram ''gálgahúmor í ''Spaugstofuhúmor'' um fyrrverandi og núverandi stjórnmálamenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknar, í kosningaauglýsingum/auglýsingamenningu í nútíð og fortíð. Hvar voru blaðamenn á einkavæðingar- og útrásarvíkingatímabilinu, sjónvarpsfréttamenn og aðrir fjölmiðlar; hvers vegna gagnrýndu þeir ekki glamúrauglýsingar/kosingauglýsingar   í kringum peningafurstana er stálu nánast þjóðarbúinu fyrir framan augun á þeim?

Er áðurnefnd grein framlag Mbl til að fela áðurnefndan''þjófnað á þjóðarbúinu'' með gálgahúmor á lágu plani en málefnin, auglýsingar og fjölmiðlar látið  látin lönd og leið, gagnrýnislaust; hvernig siðgæði og gagnrýni gæti komið fram í auglýsingum og fréttamennsku hér og nú?

Þessi ungi penni, Bergur Ebbi hefur ef til vill ekki verið kominn í gagnið á ritvellinum (ungur samkvæmt mynd) þá; en ætti að lesa sig til og sjá sóma sinn í að gera málefninu betri skil ekki síst á ritstjórnarsíðu Mbl.

lkhlhlk


Kjósum ekki Samfylkinguna

Að undurstöðuatvinnuvegirnir sjávarútvegur og landbúnaður standi í blóma er forsenda fyrir að geta kallast þjóð meðal þjóða; að aðrar auðlindirnar verðí nýttar í samráði við erlent fjármagn eins og verið hefur. En að erlent fjármagn/ríki hafi þar  tögl og haldir er annað mál; ef þjóðin glatar sjálfstæðinu vegna óhagstæðra samninga verður þjóðin þrælar í eigin landi/auðlindum í nánustu framtíð.  

Vert að hafa í huga ef gengið verður til samninga við ESB þar má ''óþjóðhollur flokkur'' eins og Samfylkingin ekki verða forystuaðili.

Kjósum ekki Samfylkinguna í komandi kosningum!

 


mbl.is AFP: Íslensk sjómennska í blóma
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræðsluáróður Framsóknar

Hræðsluáróður formanns Framsóknar til að reyna að veiða atkvæði er ábyrgðar laus; eru það framtíðaráform hans í stjórnmálum að nota sér óvissa og endanlega skuldastöðu ríkisins sér til framdráttar, ekki er að efa að viðskiptaráðherra segir satt, staðan liggur ekki fyrir.

Hvað kosningar varðar eru þær ótímabærar og skila ekki nokkru nema auknum kostnaði. Frá sjónarhóli ríkistjórnarinnar virðist það ekki skipta máli heldur hitt að fá fylgi út á ástandið með því að kenna Sjálfstæðisflokknum um hvernig komið er. Framsókn telur sig enga ábyrgð bera  en ver stjórnina falli. Samfylking leggur alla áherslu á ótímabæra inngöngu í ESB til til  bjargar þjóðinni, safnar undir sinn væng, þá er vilja aðild úr öllum flokkum.

Vinstri grænir voru ekki aðilar að hruni bankanna en bera fulla ábyrgð á stjórn mála nú og vonandi standa  þeir undir væntingum kjósenda sinna gegn aðild að ESB.

 


mbl.is Misskilningur að staðan sé miklu verri en talið var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðskrum SAmfylkingar

Enn eitt ''showið'' og ''glamúrinn'' til að fegra ásýnd Samfylkingar þrátt fyrir að telja sig forystuflokk í siðgæði og jafnaðarstefnu: Á kafi í spillingar-styrkjamálum flokksins; gott ef ekki Jóhanna sjálf fékk styrk frá Baugi? Var það ekki Jóhanna er var einn sterkasti talsmaður þess að lækka áfengisaldur, til hvers, ekki til ''velferðar'' ungs fólks, fremur til að veiða atkvæði þeirra, ósiðlaus framkoma af jafnaðarmanni er setur siðferðið ofar öllu?

Samfylkingin varði í lengstu lög útrásina, utanríkisráðherra var ötull að verja umdeilda stöðu bankanna, síðan er allt slétt og fellt; svo kemur lýðskrumið hjá félagsmálaráðherra er  telur sig einan raunverulegan aðila, að afhenda styrk úr sjóði aldraðra; var félagsmálaráðherra ekki einnig að afhenda SÁÁ styrk fyrir skömmu?; veitir ekki af eftir að Samfylking hafði staðið að lækkun áfengisaldurs er olli meiri drykkju ungs fólks það hafa rannsóknir sýnt; velferðin snýst upp í andhverfu sína þar sem reynt er að fela óheillaspor SAmfylkingar.


mbl.is Tæpum milljarði úthlutað úr Framkvæmdasjóði aldraðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Kosningabrella - eða bjánaháttur?''

Léleg kosningabrella til að ganga í augun á kjósendum með óraunhæfri umhverfisstefnu eða bjánaháttur, dæmi hver fyrir sig. Er það ekki mannvæn stefna að nota auðlindir landsins til að byggja upp gott mannlíf með atvinnu fyrir alla?

Að vilja ekki láta leita að olíu á Drekasvæðinu sýnir ekki umhyggju fyrir þjóðinni eða afkomu hennar ekki síst á síðustu og verstu dögum. Dæmigerð þröngsýni  afturhaldssamra umhverfissinna er virðist fremur til staðar en ekki skynsamleg nýting auðlinda.

Umhverfisráðherra þyrfti betra starf við hæfi ef það finnst; þar sem þröngsýni eða ''bjánaháttur'' á vel við?  

 

 

 

 


mbl.is VG ekki gegn olíuleit
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband