Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Bankarnir - upplýsingar takmarkaðar?

Það er siðferðilega rangt að gefa innstæðueigendum peningabréfa rangar upplýsingar um að þau beri enga áhættu. Fjöldi fólks hefur þá sögu að segja og ætti að vera auðvelt sanna og sækja máið til dómstóla;samkvæmt lögum en það refsivert að gefa rangar upplýsingar.

Nú hefur hæstaréttarlögmaður tekið forystuna  að sækja málin alla leið til dómsstóla og er það vel. Samkvæmt fréttum er um tugi þúsunda fólks að ræða þar af ellefu þúsund eldri borgarar. Eigendur bankanna  og stjórnendur  í þeirra umboði bera ábyrgðina ekki starfsfólkið í bönkunum er urðu að dansa eftir þeirra vilja.

Ástæða er til að nýju bankarnir setji fram á mannamáli hvaða sparnaðarleiðir þeir bjóða upp á. Ekki vantað auglýsingar bankanna um að þjónustufulltrúar séu til viðtals í símleiðis og svari spurningum. Til þess að sú þjónusta komi að gagni þurfa að liggja fyrir  bæklingar á mannamáli um sparnaðarleiðir handa viðskiptavinum. Þá vakna spurningar og hægt að snúa sér til þjónustufulltrúa á þeim forsendum. Eldri borgarar hafa fæstir tölvukunnáttu og þurfa að fá  upplýsingar á prenti til að geta sett sig inn í sparnaðarleiðir og spurt spurninga.

Bankarnir hafa misst traust sem ekki er auðvelt að fá til baka  virðast heldur ekki leggja sig fram til þess fyrir sparifjáreigendur; þurfa að tileinka sér betra siðferði í viðskiptum hvað varðar sparifé. Vonandi taka samtökin réttlæti.is á þeim málum bönkunum til aðhalds.


mbl.is Fjölmenni með réttlæti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Formaður Samfylkingar tekur í taumana

Ekki hægt annað en virða styrk og ábyrga afstöðu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur formanns Samfylkingar um að  starfhæfa  ríkistjórn þurfi í landinu hvað sem líður kosningum en er samt í erfiðri læknismeðferð. Formanninum er vorkunn sú staða, að neyðast til setja óbeint ofan í flokksmenn sína með þeim orðum sínum, sýnir með sæmd hver stjórnar flokknum.

Formanninum er sannarlega vorkunn  að leiða þennan sundurleitan flokk svo vel sé.


mbl.is Ingibjörg vill kosningar í vor
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Össur rassskellti varaformanninn"

Össur sýnir virðingarverða ábyrgð í stjórnarsamstarfinu og "rassskellti" varaformanninn Ágúst Ólaf Ágústsson í leiðinni ekki af ástæðulausu. Það lítur illa út að fyrir Samfylkingafélagið  hélt fund með því sem næst mótmælendum í gærkveldi til að ákveða stjórnarslit;var það viljandi gert til að fá þeirra vinsældir ekki trúverðugt ef rétt reynist?Sideways


mbl.is Viljum ekki stjórnarkreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingrof og þjóðstjórn?

Ef heldur áfram sem horfir að Samfylking stökkvi á flótta  úr ríkistjórninni þá er illskásti kosturinn fyrir forsætisráðherra að rjúfa þing fyrirvaralaust og boða til kosninga; síðan verði skipuð þjóðstjórn meðan kosningabaráttan stendur yfir.

Vankantarnir á framangreindri skoðun er hvort forsetinn skipi þjóðstjórn með hlutlausum hætti með alvarlegt efnahagsástandi í huga?

Að mati undirritaðrar var ákvörðun forsetans ekki  byggð á algjöru hlutleysi þegar hann hafnaði fjölmiðlalögunum. Þá  sýndi hann dómgreindarleysi með aðdáun sinni á fjármálagörkunum er tæplega er hægt að horfa framhjá?

Ef framgreind staða kæmi upp þá eru síðustu forvöð fyrir forsetann taka ákvörðun með þjóðarheill í huga?


Örvæting Árna Páls Árnasonar

Enn heldur lýðskrumið áfram hvernig dettur Árni Páli Árnasyni í hug að bera  á borð fyrir þjóðina  ESBaðild til að bjarga á málum á örlagastundu? Þótt vinstri flokkarnir slái saman í stjórn nú er ekki framkvæmanlegt að sækja um aðild; litlar líkur á  meirihluti Alþingis samþykki nú aðild. Ekki virðist álit þjóðarinnar skipta hér miklu máli hjá þingmanninum en hleypur grátandi  grátandi undan "grjótkastinu" á Austurvelli til Brussel.

Hvað varðar að taka upp annan gjaldeyrir  þá kemur Evran nú ekki   til greina í bráð og lengd vegna efnahagsaðstæðna. Samstarf við Norðurlönd, Noreg/Danmörku er nærtækari lausn og þá dollarinn miklu frekar. 

Eru þingmenn Samfylkingar að fara á taugum og missa dómgreindina?


mbl.is ESB-umsókn þolir enga bið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fundur hjá Samfylkingu - lýðskrum?

Njörður P. Njarðvík, prófessor lét hafa eftir sér í fjölmiðlum að ríkjandi ástand í þjóðfélagi þar sem reiðin og óvissan  er yfir og allt um kring, þá sé hætta á lýðskrumi þar þar sem tækifærissinnaðir stjórnmálamenn sjá sér leik á borði og reyna að ná fylgi.

Virðist vera að Ágúst Ólafur Ágústsson falli inn í lýðskrumið án þess að taka árbyrgð á núverandi stöðu; vill kosningar sem fyrst og kyndir með því undir æsing og stefnuleysi við framagreindar aðstæður, meðan formaðurinn er fjarverandi veik á sjúkrahúsi.

Undirrituð þekkir  lítið  til innan Samfylkingarinnar, en þótt Ágúst Ólafur reyna að afla sér álits í hita leiksins hjá reiðu fólki og sé varaformaður flokksins eru litlar líkur til hann verði framtíðarformaður. Þar verður Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaherra sennilega vænlegri kostur - þá mun Dagur B. Eggertsson, borgarfulltrúi líklega vilja sjá þann "fallega dag", 'sem framtíðarformaður? Sideways


mbl.is „Eigum ekki að óttast þjóðina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Skaut sig í fótinn?"

Get ekki séð neinn annan en núverandi forsætisráðherra sem betri leiðtoga  í erfiðri stöðu, ekki nokkur vafi að hann heldur fast á spilunum enda ekkert annað í boði, þá hefur hann einn vald til að rjúfa þing og boða til kosninga þegar þar að kemur.

Nýi formaður Framsóknar skaut sig illilega í fótinn ef hann hefur lýst yfir stuðningi við minnihlutastjórn Samfylkingar í  ef rétt reynist. Sorgleg fljótfærni hans tími er tæplega í stöðunni; gefur ekki góðar vonir að formaðurinn sé "haltrandi" í stjórnmálunum fyrstu vikuna sem hann er við völd.Frown


mbl.is Ekki á kosningabuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Þunnur þrettándi"

WhistlingÞÞar fór jólatréð á eldinn sparaði vinnu og fyrirhöfn fyrir starfsmenn Reykjavíkurborgar en verður að teljast "þunnur þrettándi", kemur þó á móti skemmdarverkum ef einhver eru. Táknræn bálför þar sem vonandi upp rís nýtt þjóðfélag, "ný þjóð" er vill búa við þjóðfelagsgildi þar sem meiri jöfnuður ríkir; - vill búa í landinu  nýta auðlindir þess sér til handa en umfram allt elska það og virða.

 


mbl.is Jólatréð brennt á bálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Barac Obama forseti ("I Have að Dream")

Frelsið  er langsótt  eða öllu heldur sístæð barátta sem aldrei má ljúka. Innkoma Barac Obama sem forseta Bandaríkjanna er dæmi um það, er nær aftur til ferils Abraham Lincolns, forseta (1861-1665) er var skotinn til bana, 1865 eftir að hann hafði náð fram að þrælahald þeldökkra var bannað með lögum.

Martin Luter King baráttuhetja fyrir réttindum blökkumanna galt einnnig fyrir með lífi sínu, 1968 er hann var skotinn til bana. " I Have að Dream" hin fleygu orð Martin Luter Kings eiga vel við eru táknræn fyrir síðstæða baráttu  frelsis þegar Barac Obama, forseti tekur nú við valdamesta embætti heims.

Hátíðleg stund að horfa á embættistökur Barac Obama viðurkenni að ég táraðist þegar mér var hugsað til baráttu Lincolns og Kings  er hafa  ætíð verið mestu þjóðhetjur  Bandaríkjanna í mínum huga. Bandaríska þjóðin fagnaði innilega og öll heimbyggðin með.

Ef til vell er kosning þeldökks forseta táknrænn boðskapur um að allir eigi að hafa jöfn tækifæri til áhrifa í þjóðfélaginu - að þrátt fyrir allt eru Bandaríkin mesta lýðræðisríki heims?Happy

 

 


Samfélagssáttmáinn var rofinn?

Fólk hefur rétt til að mótmæla - eðlileg reiði eftir svo stórt áfall þegar allt bankakerfið hrundi á einni viku. Viðbrögðin verða "sorgarferli" fyrst voru menn í sjokki og nú brýst reiðin út. Auk þess er hér kynslóð á ferðinni er hefur talið það sjálfsagðan hlut að búa við velmegun þekkir lítið sem ekkert mótlæti. Hins vegar erum við eldri kynslóðin minna í mótmælum en með sömu tilfinningar og unga fólkið okkur er öllum misboðið -"samfélagssáttmálinn hefur verið rofin", orð sem Páll Skúlason, heimspekiprófessor lét falla í RÚV fyrir skömmu.

Stjórnvöld eru að reyna að bregðast við og taka á málum en viðrist ganga seint vegna þess að litlar upplýsingar eru gefnar ef þær eru fyrir hendi. Fyrir okkur almenning er erfitt að skilja að hægt skuli vera að setja þjóðina allt að því á vonarvöl án þess einu sinni stjórnendur bankanna þurfi að svara fyrir gerðir sínar. Fréttir utan úr heima segja frá fjárglæframönnum sem eru handteknir og þurfa að bera ábyrgð á gerðum sínum - vantar okkur betri lagaramma og siðferði í okkar fjármál?

Langt er þangað til að almenningur getur hafið  fyrigefningarferlið ; ef svo heldur áfram  án þess að nokkur þurfi að axla ábyrgð. Best er að segja þjóðinni satt um efnahagástandið þótt það sé svartnætti, þögnin er það versta fyrir reiða, stolta  og særða þjóð með brotna sjálfsmynd.

Stjórnvöld verða að standa sig betur svo almenningur róist og uppbyggingarstarf geti hafist. Þar sem ríkir gagnkvæmt traust svo  hægt verði að sjá hilla undir  nýtt samfélag á siðferðilegum og réttlátum grunni. 


mbl.is „Fólk var að bíða eftir þessum degi“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband