Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2008
17.11.2008 | 13:55
Bretar fagna kúgun Íslands
Fram hefur komið í fréttum að skýrt sé kveðið á í lögum EES að lönd innan þess beri ekki ábyrgð á bönkum í öðru landi. Lög skipta ekki máli hér heldur réðu hagsmunir 27 landa Evrópusambandsins óháð lögum EES enda þau lönd í minnihluta. Hagsmunir þjóðarinnar eru engir þegar inn í Evrópusambandið kemur; þar ræður hvað hentar stórþjóðunum eins og alltaf hefur verið.
Auðlindir Íslands verða ESB kærkominn búbót þar sem auðlindir fara mjög þverrandi.
![]() |
Fagna árangri í Icesave-málinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2008 | 13:20
Efnahagshrun ESB ljósið í myrkrinu.
Óskastaða fyrir Samfylkingu og flokkseigendur Framsóknar, nú er hægt að fara skríðandi til Brussel og þiggja mola er falla af borðum skrifræðisins þar. Framangreindir telja sig fá "þægilegar stöður fyrir sig og sína", sjálfstæðið hverfur aftur til 1662, þegar konugseinveldi Dana þvingaði þjóðina undir sig. Nú þarf ekki þvingun vegna þess að allt er falt bara til að komast inn fyrir dyrnar. Þvílík niðurlæging fyrir þjóð er hefur alla möguleika til að vera bjargálna á eigin forsendum.
Það sem getur breytt stöðunni að efnahagshrunið á eftir að leggjast með fullum þunga á Þýskaland eitt stærsta ríkið engin vissa fyrir að bandalagið haldi velli á næstu árum; kaldhæðnislegt, en ef til vill ljósið í myrkrinu fyrir Ísland.
![]() |
Drög lögð að umsókn um ESB-aðild? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.11.2008 | 20:31
Norður-Altlandshafsríki?
Sannast hér að ríki eiga ekki vini nema þegar um hagsmuni teflt, þjóðin upp við vegg gagnvart öllum ESB-ríkjum er áttu hagsmuni að gæta vegna þeirra eigin gallaða regluverks. Áttum ekki annars úrkosta en að samþykkja lausnina og borga með lánum frá "ESBvinum okkar". Hvert framhaldið verður og hægt verði að snúa sig út úr stöðunni síðar með hjálp annarra ríkja er sjá sér hag í að hjálpa litla Íslandi með miklar auðlindir og vel menntað fólk er ekki vonlaus staða?
Erfitt að sjá fyrir framvinduna en samstarf við Kanada gæti komið inn í myndina síðar ríki við Norður-Atlandshaf eiga sameiginlega hagsmuni í nútíð og framtíð; ef til vill er slíkt samstarf ekki útilokað gæti jafnvel orðið með "hlutleysi" Bandaríkjanna eða óbeinan stuðning.
Sameining ESB-ríkja gegn okkur nú gefur tilefni til að skoða rækilega alla kosti áður en við verðum neydd til þátttöku ESB.
![]() |
Icesave-deilan leyst |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2008 | 16:14
"Portkonur málefna um ESB"?
Guðni er tilneyddur að skoða ESB-aðild vonandi verður hann áfram framkvæmdaraðili þeirrar umræðu en ekki Valgerður Sverrisdóttir er leynt og ljóst hefur viljað troða þjóðinni í ESB. Undirrituð man ekki eftir neinum sérstökum frambærilegum rökum í þá veru; að auðlindir þjóðarinnar til lands og sjávar (og menntun) gefi henni viðskiptalegt sjálfstæði/sjálfstæði og velmegun til framtíðar meðal þjóðanna en ekki innganga eins og sér i ESB. Ef til vill er Framsókn að syngja sinn svanasöng. Valgerður Sverrisdóttir mun sóma sér vel við hlið Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur; í málefnasnauðum samsöng þeirra um inngöngu í ESB - þær eru fremur sem "portkonur málefnisins" en málsvarar þjóðarhags?
![]() |
Guðni vill skoða ESB-aðild |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 16.11.2008 kl. 12:17 | Slóð | Facebook
15.11.2008 | 15:17
ESB - brotalöm framtíðar
Rétt ákvörðun að vera viðbúin breyttum aðstæðum þótt breyttar aðstæður séu afstæðar hvort sem litið er innan -eða utanlands. Nú hafa allar þjóðir ESB snúist gegn okkur í Icsave-málinu ekki vegna þess heldur vegna eigin galla á reglum sambandsins hvað varðar ábyrgð til sparifjáreigenda. Hins vegar stendur eftir aðför Browns forsætisráðherra Breta að KBbanka með terroristalögum er vonandi fær lögfræðilega meðferð til að rétta hlut okkar bæði siðferðilega og lögfræðilega.
Þá eru helstu ríki heims á fundi í Bandaríkunum að reyna að koma á betri samskiptareglum í viðskiptum er hafa beðið skipbrot um allan heim. Ekki síst hjá ESB þar sem frjálst flæði fjármagns (og vinnuafls) hefur fremur valdið óstjórn fjármála en velmegun almennings. Nú um stundir er það eina sem ESB-löndin eru sammála um, að standa á móti örþjóð norður í Atlandshafi, en að öðru leyti er ekki ljóst hvort ESB mun lifa af heimskreppuna hvað þá að fleiri þjóðir bætist við í náinni framtíð.
Nú eru Kínverjar með langstærst gjaldeyrissjóð heims er mun hafa áhrif á framvinduna; breyta heimsmyndinni í viðskiptum ef til vill í náinni framtíðinni?
![]() |
Óttumst ekki kosningar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:12 | Slóð | Facebook
5.11.2008 | 11:53
Obama forseti - viðurkenning þeldökkra
Fyrir u.þ.b 150 árum (1860)var Abraham Lincoln kosinn forseti og setti á oddinn frelsi svartra þræla í Bandaríkjum. Nú er svartur maður kosinn forseti má segja að réttindi svartra hafi endanlega hlotið viðurkenningu almennings með kjöri Barack Obama. Borgarastyrjöld Lincolns varð sársaukafull og snerist upp í andhverfu sína eins og oft vill verða með slíkar styrjaldir mikið hatur skaut rótum innan samfélagsins er endaðir með morði forsetans; Abraham Lincoln, forseti vildi réttlæti allra þegna sinn er kostaði hann lífið en vann samt sigur er ef til vill kemur nú í ljós með kjöri Obama.
Vonandi tekst Obama að verða leiðastjarna Bandríkjanna til friðar og réttlætis; geti skapað þjóðinni betra álits í heiminum en verið hefur í tíð fráfarandi forseta með óhóflegum stríðsrekstri.
![]() |
Obama: Þetta er ykkar sigur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook
4.11.2008 | 15:11
Rosabaugur?
Hvers vegna getur einn maður átt alla einkarekna fjölmiðla hér á landi vantar ekki fjölmiðlalögin er forsetinn hafnaði? Nú um stundir er mikið rætt um pólitískan seðlabankastjóra er þyrfti að víkja en forsetinn? Er hann ekki pólitískt umdeildur og studdi "útrásina/Baug" beint og óbeint í forsetaebættinu, - á hann ekki að víkja?
![]() |
Rosabaugur Jóns Ásgeirs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.11.2008 | 16:15
RÚV: Valgeir Guðjónsson skemmtilegur
Laugardagsþáttur RÚV var með manneskjulegra sniði eða hefur þroskast eftir því sem fleiri þættir koma fram. Valgeir Guðjónsson eðlilegur og skemmtilegur engin yfirborðsmennska. Gaman að fá móður hans í þáttinn og fá um leið bakgrunn Valgeirs í uppeldi. Mér hefur alltaf þótt Valgeir Guðjónsson skemmtilegur ekki spillir, að hann á rætur að rekja til Austurlands/Seyðisfjarðar en það vissi ég ekki fyrr en löngu eftir að hann varð vinsæll.
Framangreindur þáttur líktist dálítið þáttum Jóns Ólafssonar er voru vinsælir í RÚV á sínum tíma.
3.11.2008 | 12:33
Réðu fjármálagarkarnir því sem þeir vildu ráða?
Samkvæmt fréttinni hafa hagfræðispekingar hér landi lítið haft að athuga við "útrásina" er var orðin virk á flestum sviðum; Listum, háskólamenntun, á Alþingi, fjármálaeftirliti,ríkistjórninni, seðlabanka - og kauphöllinni? Ef til vill rétt hjá norska hagfræðingnum gott sé að spilaborgin hrundi nú en ekki síðar - en kallar á uppgjör þeirra er mestu réðu í "efnahagsundrinu" áður en gegnið verður til næstu kosninga?
Síðasta bloggið mitt er rétt að birta aftur:
Hverjir bera ábyrgð á núverandi ástanda fjármála og efnahafskreppunni hér á landi? Var grafið undan pólitísku valdi er gat ekki tekið á fjármálastefnunni? Samfylkingunni hefur enn tekist að skjóta sér undan ábyrgð þrátt fyrir að vera í ríkisstjórn með því að persónugera hrunið í Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra með hjálp áhrifafólks innan viðskiptalífisins þar sem fjölmiðlarnir hafa lagt sitt af mörkum til að fela og fegra brask "útrásarvíkinganna" eins og kostur er.
Útrásin var byggð upp með sterkri samstöðu bankanna með stöðugum auglýsingum út á við með greiningaraðilum bankanna er komu reglulega fram í fjölmiðlun til að dásama fjármálaundrið,má nefna Ingólf Bender hjá Glitni og Eddu Rós Karlsdóttur hjá Landsbanka. Fjölmiðlar reyndust útrásinni tryggir þjónar án nokkurrar gagnrýni. Forseti lýðveldisins nýtti forsetaembættið og kom fram sem sérstakur verndari "fjármálagarkanna" í orði og á borði. Þá má nefna til sögunnar virta háskóla -og viðskiptafræðinga er verðlaunuðu sérstaklega fyrir "fjármálasnilldina".Raunveruleg staða var, að pólitískt vald varð af framangreindum ástæðum veikt, lítið sem ekkert varð aðgert. Ef Geir Haarde vissi um að ástandið væri alvarlegt má telja víst ef hann hefði reynt að grípa inn, hefðu orðið stjórnarslit, haft alvarlegar afleiðingar og gert stöðu þjóðarinnar enn verri. Áhrifamenn útrásarinnar og Samfylkingarinnar hefðu að líkindum hafið heiftarlega árás með hjálp fjölmiðla er hefði haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar.
Undirrituð telur að Geir Haarde hafi leitað lags til að breyta stöðunni; og tekist þrátt fyrir erfiðar aðstæður en engir góðir kostir voru til staðar. Pólitískar aðgerðir gátu ekki komið að gagni fyrr en útárásarvíkingarnir urðu að leita sér hjálpar hjá Seðlabankanum með fjármál Glitnis, þá loksins ver mögulegt að snúa til betri vegnar en kostaði hrun bankakerfisins.
Hvernig Sjálfstæðisflokknum gengur að verjast áframhaldandi árásum og koma á stöðugleika hjá þjóðinni er undir því komið að Geir Haarde standi af sér fárviðri þeirra sem enn trúa á óhefta fjármálastefnu á ábyrgð þjóðarinnar.
Áhrifamenn í viðskiptalífinun er studdu útrásina:
Dómnefndina er var skipuð valinkunnu fólki á viðskiptasviði ásamt háskólamenntuðum fræðimönnum til að verðlauna útrásina:
Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Jafet Ólafsson hjá VBS fjárfestingabanka, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Ásta Dís Óladóttir, dósent á Bifröst, Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, Hafliði Helgason, fyrrverandi ritstjóri Markaðarins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson, prófessor í HR, Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Milestone og formaður stjórnar SVÞ, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.
![]() |
Hefði átt að vera búið að stoppa ykkur fyrir löngu" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.11.2008 | 16:22
Samfylking "stikkfrí" í stjórnarsamstarfinu
Minnir á leik er undirrituð lærði í æsku að vera "stikkfrí" ef börn vildu ekki vera með en var auðvitað barnaleikur. Samfylkingin er "stikkfrí" í stjórnarsamstarfinu hefur ekki ennþá slitið barnsskónum hentar ekki að axla ábyrgð; á þeirra maður, formaður fjármáleftirlitsins að sitja áfram eða er hann "stikkfrí", hann er líka varaformaður í seðlabankanum - og gamall pólitíkus.?
Ekkert annað að gera en slíta stjórnarsamstarfinu og vinna með Vinstri grænum ef mögulegt er.
![]() |
Samfylking afneitar Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:52 | Slóð | Facebook