15.8.2008 | 15:02
Klækjastjórnmál?
Hvers vegna gengur Marsibil ekki í Samfylkinguna eða Vinstri græna fyrst hún segist vera bundin Tjarnarkvartettinum vissum böndum? Eru það ekki klækjastjórnmál að vera í Framsókn en samt bundin fyrrnefndum kvartett? Að leika tveimur skjöldum með slíkum hætti skapar hvorki traust né árangur í stjórnmálum. Marsibil virðist ætla að halda tveimur kostum inni til að tryggja sig í pólitíkinni annars vega með óbeinum stuðningi við Tjarnarkvartettinn hins vegar að sitja í núverandi meirihluta Framsóknar án þess að styðja hann.
Marsibil hefur fallið á eigin bragði og hlýtur að verða áhrifalaus í stjórnmálum Framsóknar til frambúðar?
![]() |
Marsibil styður ekki nýjan meirihluta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.8.2008 | 14:19
Egóistar í sviðsljósinu
Enn eitt upphlaupið í eigin flokki þar sem ekki er til staðar staðfesta til að ná fram málefnum í samstarfi við aðra. Það virðist vanta þolinmæði og samvinnu er stendur í vegi fyrir að geta unnið farsællega í stjórnmálum. Auðvitað eiga menn að vinna eftir eigin samvisku en ef þeir telja sig ekki geta unnið að málefnum síns flokks eiga þeir að segja af sér. Það er ekki lýðræði að menn geti setið í stjórnmálaflokki ef þeir beinlínis skjóta sér undan merkjum og neita að taka þátt ákvarðanatöku vegna eigingirnis og sjálfhverfu.
![]() |
Hleypir spennu í sambandið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:20 | Slóð | Facebook
15.8.2008 | 13:09
Blekkir sjálfan sig
Ólafur blekkir sjálfan sig með þessari yfirlýsingu? Hann vill ekki virkja til áframhaldandi velferðar á kostnað náttúrunnar segir hann en þótt það sé vistvæn orka eins og Bitruvirkjun. Hvað varðar gömlu húsin í Reykjavík þá er sú verndun fyrir utan allan veruleika þegar verið er að kaupa þau fyrir hálfan milljarð til endurbóta. Með hjálp fjölmiðla fá framangreind málefni meira rými í umræðunni en velferðarmálin er virðast aukatriði. Allt snýst um friðun húsa í 101um eins og aðrir borgarhlutar séu ekki til.
Er ekki Ólafur að blekkja sjálfan sig með óhraunhæfum hugmyndum?
![]() |
Ólafur: Blekktur til samstarfs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:12 | Slóð | Facebook
15.8.2008 | 02:02
Breytingar á kosningalögum - óskynsamlegar
Raddir hafa komið fram um að breyta ætti kosningalögum til sveitarstjórnar þannig að hægt sé að kjósa á kjörtímabilinu ef oft verða meirihluta skipti sökum málefnaágreinings. En í upphafi skyldi endirinn skoða. Það yrði afar leiðinleg kosningabarátta sem færi fram jafnvel annað hvert ár með tilheyrandi fjölmiðlafári; er án efa myndu leiða bæði ósamkomulag innan sveitarstjórnar með síbyljufréttum/skoðanakönnunum - fyrir þá sem vildu fá nýjan meirihluta.
Fjölmiðlavaldið/peningavaldið er nú þegar nógu mikið þótt ekki verði ýtt undir þau með kosningum í tíma og ótíma.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:06 | Slóð | Facebook
15.8.2008 | 00:08
Borgarfulltrúar - hlupu loksins af sér hornin
Þá hafa pólitísk átök leitt af sér nýjan meirihluta í Reykjavík og litið dagsins ljós. Ástæða er til að ætla að nú geti orðið samkomulaga um deilur í Orkuveitunni og að Bitruvirkjun verði afturkölluð. Það er óverjandi að deilur um náttúruvernd sé eingöngu á tilfinningalegum nótum án þess að horfast í augu við þá staðreynd að efnahagsmálin þarf að leysa með öflugri atvinnuuppbyggingu.
Hins vegar samkvæmt fréttum viðist hafa verið átök í langan tíma hjá borgafulltrúum Sjálfstæðisflokksins um hver ætti að taka forystu eftir að Vilhjálmur H Vilhjálmsson steig til hliðar er var afgerandi leiðtogi og almennt vinsæll þangað til orrahríð um málefni orkuveitunnar dundu yfir.Vonandi hafa umræddir borgarfulltrúar hlaupið af sér hornin eftir þá reynslu. Þeir virðast hafa gert sér grein fyrir að efnahagsmálin og öll önnur málefni borgarinnar sitja í fyrirrúmi.
Undirrituð óskar Framsókn til hamingju með samstarfið. Vonandi tekst Óskari Bergssyni að halda vel á málefnum borgarinnar í samstarfi við Sjálfstæðisflokkinn
![]() |
Hanna Birna borgarstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:41 | Slóð | Facebook
13.8.2008 | 15:11
Stjórnleysi borgarstjórnar Reykjavíkur
Stjórnleysið í borgarstjórn Reykjavíkur síðan Vilhjálmur H. Vilhjálmsson fór frá er óviðundandi fyrir alla landsmenn og verður að linna. Ef Framsókn fer aftur í borgarstjórn þá er skynsamlegt að það sé með þeim hætti að núverandi borgarstjóri Ólafur F. Magnússon verði með í samstarfinu. Sjálfstæðismenn í borginni verða að sætta sig við að þeir hafa ekki meirihluta. Ólafur hefur staðið sig með ágætum þótt sótt hafi verið að honum markvisst í fjölmiðlun annars vegar þegar hann réði Jakob Magnússon hins vegar þegar hann lét aðstoðarmann sinn fjúka. Hvernig á borgarstjórinn að starfa ef hann hefur ekki stuðning af samstarfsmönnum sínum? Ekkert annað að gera en að þeir taki pokann sinn og aðrir trúverðugir ráðnir í staðinn.
Þáttur fjölmiðla í framagreindum aðgerðum gegn borgarstjóra er ámælisverður. Skemmst er að minnast viðtals i Ríkissjónvarpinu þar sem var komið fram við borgarstjórann með ósvífni og hroka. Borgarstjórinn komst vel frá viðtalinu en er RÚV til háborinnar skammar. Hvað gengur stjórnendum Kastljóss til að koma fram með siðlausum hætti? Er það til að geta komið höggi á borgarstjórann og hvaða hagsmunir standa þar að baki? Er ekki kominn tími til að sjónvarpsstjórinn Páll Magnússon ráði stjórnendur við Kastljós;er koma fram með hlutlausum og siðlegum hætti samkvæmt lögum um ríkissjónvarpið?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:50 | Slóð | Facebook
13.8.2008 | 01:54
Virkjun við Húsavik strax - þótt það kosti stjórnarslit
Einkennileg tilviljun þegar jafnaðarmenn eru í ríkisstjórn eru kjör dreifbýlis skert, allt fjármagn skal á höfuðborgarsvæðið. Þegar kratarnir komust til valda þar áður voru veiðiheimildar smábáta skertar þannig að veiðin stóð ekki undir rekstrarkostnaði; betra var að leigja kvótann til stærri báta en veiða hann eða hætta rekstri. Þessi ríkistjórn gerði "enn betur" og skerti þorskkvótann svo að bæði stærri og smærri bátar voru skertir hringinn í kringum landið og atvinnulífið lamað verulega. Allt í nafni verndunar þorskkvótans sem verður að teljast vafasöm aðgerð.
Aðgerðir sem eru nauðsynlegar er að draga strandlínu um fiskimiðin þar sem stærri skip mega ekki veiða; hafa þar jafnframt rýmri kvóta eða engan en bátar fái að veiða og leggja upp í heimabyggð án þess að sett verði á þá vistarband sem fylgir byggðarkvótanum.
Nú er sami leikurinn leikinn með virkjunina á Húsavík og náttúrlega í nafni náttúruverndar - en er ekki hugtakið náttúruvernd afstætt hugtak? Eru það ekki umhverfisspjöll og mannréttindabrot að eyða byggðum landsins með lagasetningu eins og þessi ríkisstjórn/jafnaðarmenn viðrist stefna að? Síðan á að byggja upp "listagallerí" og ferðamannaiðnað sem mótvægisaðgerðir til afkomu fyrir það fáa fólk sem eftir er eða er á förum. Ferðamannaiðnaður einn og sér er ekki til framtíðar; heldur er áherslan nú að fyrir sé blómlegt mannlíf er byggir á eigin afkomu og menningu samtímis.
Kárahnjúkavirkjun hefur styrkt atvinnulíf - og jafnframt ferðamannaiðnaðinn á Austurlandi og er til fyrirmyndar. Stórvirkjun á Húsavík mun hafa sömu áhrif og á fullan rétt á sér.
Sjálfstæðisflokkurinn virðist vera hræddur um stjórnasamstarfið ef hann beitir sér fyrir blómlegu atvinnulífi úti á landsbyggðinni sem er óþarfi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir mun ekki fá nægan meirihluta til stjórnarmyndunar þótt hún stökkvi úr ríkisstjórn - og það hlýtur henni að vera vel ljóst.
Þá stendur Geir Haarde með pálmann í höndunum hvort sem er með Framsókn og Frjálslyndum eða Vinstri græna með skilyrðum um að axla ábyrgð í ákvarðanatöku.
![]() |
Þórunn ræddi við Húsvíkinga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:56 | Slóð | Facebook
12.8.2008 | 18:33
Ráðherrar ekki í kreppu - aðgerðarleysi raunhæft
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar ritstjórnarpistil í Mbl í dag um allt og ekkert. Væntanlega um efnahagsmálin án þess að koma með frambærileg rök um aðgerðarleysi ríkistjórnarinnar; hvers vegna ráðherrar ríkistjórnarinnar eru í kreppu?
Vissulega er efnahagslegur vandi mikill. Nýfengið frelsi notuðu fjármálafyrirtæki/bankar til óhóflegra lánastarfsemi bæði til fyrirtækja og almennings; að því er viðrist án raunhæfs greiðslumats og oftrú á gróða fyrirtækja er nú verða mörg hver gjaldþrota. Offramleiðsla varð á nýjum íbúðum, verðið féll niður fyrir eignarvirði. Sem betur fer tókst ekki að leggja íbúðarlánasjóð niður og mun hann væntanlega skuldbreyta íbúðarlánum fyrir þá sem verst eru settir.
Ef einkabankarnir geta ekki stjórnað fjármálum sínum þá er skárri kostur að ríkið taki þá yfir á nýjan leik. Ekki furða þótt ríkistjórnin hiki við að taka erlent lán með háum vöxtum fyrir hönd ríkisins. Ríkið verður að eiga fyrir skuldum sínum en ekki eyða meiru en aflað er.
Þess vegna er aðgerðarleysi ríkisstjórnarinnar raunhæf stefna þangað til menn gera sér grein fyrir því að eyða ekki um efni fram.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:34 | Slóð | Facebook
14.7.2008 | 10:51
Nornaveiðar
Erfiðara er að skilja afstöðu Hönnu Birnu. Hún virðist ekki hafa skilning á að reka þurfi orkuveituna eins og hvert annað fyrirtæki þótt það sé í eigu borgarbúa og fl. Ljóst er að Hanna Birna þarf að komast frá málum orkuveitunnar með skynsamlegum rökum annars verður fall Sjálfstæðisflokksins í borginni stór skellur.
![]() |
Guðmundur skilaði gögnunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.7.2008 | 06:01
Stórkaupmenn í vanda - segja sig til sveitar?

Verða stórkaupmenn ekki að hagræða í rekstri sínum og draga saman seglin eins og aðrir? Ekki kom fram í bænaskránni að umræddir kaupmenn ætluðu að leggja sitt af mörkum í þjóðarsáttina. Tæplega raunhæft að hlaupa til og "ganga á mála" hjá ESB við erfiðar aðstæður?; með skjótum hætti til þess að stórkaupmenn þurfi ekki að segja sig til sveitar?
![]() |
FÍS lýsir miklum áhyggjum af ástandinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:59 | Slóð | Facebook
12.7.2008 | 10:40
Ískensk menning; - frjáls hugsun fjötruð innan ESB
Telja má að menning okkar verði blómlegri utan ESB. Við verðum aflögfær af menningu eins og umrædd menning blómstraði áður fyrr er við vorum sjálfráða. ESB reynir allt til að koma ríkjum undir pilsfald sinn með styrkjum til einstaklinga og stofnana. Hænir að sér menntamenn/listamenn í öllum greinum til að öðlast tiltrú þeirra. Öll frjáls hugsun á að vera innan rammans í Brussel; falla að skrifræðinu þar.
Skemmst að minnast þeirra rithöfunda sem voru í hávegum hafðir í Þýskalandi í þúsund ára ríkinu, greinda, góða en trúgjarna hugsjónamenn er héldu að nú yrði öllum þjóðum borgið.
Má nefna Knut Hamsum einn mesta rithöfund Norðmann eða Gunnar Gunnarsson dansk-íslenskan einn mesta rithöfund okkar - og Dana.
Góða helgi
11.7.2008 | 09:35
Innflutningur landbúnðarafurða - ekki hagsmunir neytenda
Viðtal í morgunútvarpi RUV greindi frá því að Bændasamtökin vinna að athugasemdum við frumvarp innflutnings á landbúnaðarafurðum er liggur fyrir Alþingi. Ekki að ástæðulausu bæði vegna sýkingarhættu og innflutnings sem á að vera neytendum í hag ;en fyrst og fremst innflytjendum í hag. Umdeilt er hrátt kjöt sem koma á markaðinn er óvíst um framkvæmanlegt eftirlit. Hvað hefur gerst í Danmörku við svipaðar aðstæður? Þar hefur innflutningur aukist um 70% og valdið alvarlegri salmonellusýkingu og dregið fjörutíu manns til dauða á skömmum tíma sem vitað er um nýlega. Landbúnaður hér á landi er laus við marga sjúkdóma í búfé sem eru landlægir bæði vestan hafs og austan.
Hér eru hagsmunir neytenda ekki hafðir að leiðarljósi heldur gróðasjónarmið verslunarinnar sem vill umrætt frelsi í skjóli þess að matarinnkaup verði ódýrari. Þegar til lengri tíma er litið þá verða sýkingar landlægar í mönnum og skepnum; - við bærist hækkandi heimsmarkaðsverð á matvælum sem er óhjákvæmileg staðreynd. Mesta hagsmunamál okkar er að varðveita okkar landbúnaðarafurðir með skynsamlegum hætti til framtíðar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook
10.7.2008 | 11:13
Þjóðin á ekki kvótann?!

![]() |
Aflaverðmætið 80 milljarðar króna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:15 | Slóð | Facebook
3.7.2008 | 22:10
Mbl - engin tengsl við Austurland?
Nú er ekki einu sinni hægt að hafa blaðamann fyrir austan. Gæti ekki Mbl gefið Ísafold og Vörð út aftur og staðið undir því nafni að vera blað allra landsmanna?
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.7.2008 kl. 00:06 | Slóð | Facebook
3.7.2008 | 10:41
Leikfangabangsar fullir af örverum - smithætta milli barna?
2.7.2008 | 17:50
Ferðaþjónusta - veldur umhverfisspjöllum?
Takmarkaður aðgangur að náttúrperlum er eðlileg afleiðin aukinnar ferðamennsku hér á landi. Aukin ferðamennska kallar á skipulagningu; - aðgangur að viðkvæmum stöðum sé takmarkaður eða sumum tilfellum bannaður. Erlendis er slík þróun miklu lengra komin. Það er ekki nóg að fjölga sífellt ferðamönnum án þess að byggja jafnframt upp verndun á náttúrperlum, þær séu ekki skemmdar eða eyðilagðar.
Áherslan hjá umhverfisverndarsinnum hefur legið nær eingöngu í að banna virkjanir en lítið heyrst um verndun náttúrunnar gagnvart of miklu álagi ferðamanna. Hver maður getur séð að þegar ferðamenn hingað fara að skipta milljónum manna geta orðið óbætanleg náttúruspjöll í framtíðinni.
![]() |
Aðgangur að Kerinu í Grímsnesi takmarkaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2008 | 09:19
Pólland - rauð mold
Með neitun sinni vekur forsetinn ef til vill landa sína til umhugsunar um að afhenda ESB ekki fullveldi þjóðarinnar
![]() |
Forseti Póllands undirritar ekki Lissabon sáttmála |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.7.2008 | 00:26
"skin og skúrir á landsmótum hestamanna"
Hvassviðrið á Landsmóti hestamann við Hellu leiðir hugann að öðru landsmóti á Þingvöllum í júlí árið 1970. Við lögðum upp í góðu veðri tíu saman frá Borgarfirði sem leið lá yfir Uxahryggi til Þingvalla. Allt gekk vel náðum á leiðarenda fyrir kvöldið gengum frá hestum og tjölduðum. Að kveldi annars dags á landsmótinu gekk á með stormi, snjóaði í fjöll og máttum við þakka fyrir að missa ekki tjöldin um nóttina en þau rifnuðu illa.Svo kalt var um nóttina að vatn fraus á vatnsbrúsum okkar. Veðrið versnaði enn næsta dag og tekið það ráð að gista á Laugarvatni, aka á milli og gekk það vel. Þorkell Bjarnason þáverandi hrossaræktarráðunautur útvegaði okkur húsnæðið og er ég honum enn þann dag í dag þakklát fyrir að leysa okkur úr vosbúðinni. Gengu sýningar þrátt fyrir allt vel og náðum við góðum árangri í kynbótasýningum.
Enn dró ský fyrir sólu. Þegar við komum eldsnemma til Þingvalla á sunnudagsmorguninn blasti við hörmurleg sjón rjúkandi rústa af bústað forsætisráherrans. Forsætisráðherrahjónin höfðu farist í eldsvoða um nóttina ásamt barnabarni sínu. Eftir það varð engin gleði í huga þennan síðasta dag landsmótsins.
Það var þögull hópur sem lagði af stað yfir Uxahryggi að kveldi sama dags. Náðum við til Oddstaða í Lundarreykjadal undir morgun þar sem við fengum góðan viðurgjörning eftir kalda nótt.
![]() |
Mikið hvassviðri á Hellu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 4.7.2008 kl. 03:10 | Slóð | Facebook
1.7.2008 | 14:45
Kárahnjúkar – ferðaþjónusta
Samkvæmt umræddri frétt fer stóriðja og ferðaþjónusta vel saman. Ekkert til fyrirstöðu að ólíkar atvinnugreinar geti geti dafnað hlið við hlið og skapað sterka byggðakjarna eins og á Austurlandi. Vonandi verða sömu framför á Norðausturlandi/Húsavík ef háhitaframkvæmdir þar ná fram að ganga. Virkjanir og náttúrvernd/umhverfisvernd eru þættir sem hægt er að vinna samtímis; að friða ákveðin svæði á hálendinu með festu og skynsamlegri umræðu jafnframt virkjunarframkvæmdum. Ekki með einsleitum áróðri þar sem höfðað er til tilfinninga fólks; en engin sanngjörn rökleg umræða má helst ekki fara fram.

Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook
1.7.2008 | 09:40
Læknar - launahækkun ekki nægileg?
Hins vegar verður að gera þá kröfu til núverandi ríkisstjórnar með mikinn meirihluta að hún taki á vandanum með afgerandi hætti. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra stendur með sínu fólki og er föst fyrir til varnar íbúðalánasjóði og þeim sem minna mega sín. Heyr fyrir henni! Iðnaðarráðherrann reynir að stuðla að uppbyggingu atvinnulífsins með frekari virkjunarframkvæmdum. en nýtur ekki stuðning síns eigin flokks að því er virðist og veikir það trúverðugleika ráðherrans og ríkisstjórnarinnar í heild. Vonandi stendur Össur Skarphéðinsson af sér undirölduna í sínum eigin flokki annars getur núverandi ríkistjórnarsamstarf tæplega gengið til lengdar.
![]() |
Læknar stefna á verkfall í haust |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:43 | Slóð | Facebook