Ónýt ''velferðarstjórn'' - spilltur Sjálfstæðisflokkur!

Mestu mistök Framsóknar voru þegar hún varði fyrri stjórn Jóhönnu og Steingríms falli gegn meirihluta þingsins. Síðan boðaði vinstri stjórnin til kosninga fékk meirihluta út loforð í efnahagsmálum sem aldrei gat  orðið veruleiki, þjóðin var og er svikin af ''velferðarstjórninni''.

Ekki er annað að sjá en Steingrímur, fjármálaráðherra sé helsta hækja Samfylkingar að komast í ESB; setja þjóðina í skuldklafa Icesave;er hefur enga lagastoð ekki einu sinni innan ESB; en það hentar fjármálavaldinu hérlendis og erlendis að allt sé óbreytt til að geta haldið áfram sama leiknum og mergsogið almenning.

Ef þessi stjórn fer ekki frá og við tekur utanþingsstjórn þá verða erfiðleikar þjóðarinnar óyfirstíganlegir.

Fjórflokkarnir eru rúnir trausti eina von til að endurheimta það er að þeir veiti utanþingsstjórn brautargegni.

Sjálfstæðisflokkurinn stærsti flokkurinn er með sama fólkið innanborðs og fyrir hrun ekki virðist neinna breytinga að vænta?

Þingmenn Sjálfstæðisflokksins er fengu nafn sitt á spjöld Rannsóknarskýrslu Alþingis sitja sem fastast eins og ekkert hafi farið úrskeiðis.

Er ekki Sjálfstæðisflokkurinn að stinga höfðinu í sandinn heldur að kjósendur gleymi spillingunni og siðleysinu er viðgekkst í stjórn landsins?


mbl.is Ný áætlun innan sólarhrings
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar í Krossinum: Fagleg rannsókn.

Kynferðislegu áreiti og ofbeldi verður aldrei hægt að mæla bót. Undirrituð horfði á viðtölin í Kastljósi í síðustu viku þar var  orð gegn orði, engar sannanir láu fyrir. Það sem veikir stöðu fyrrverandi mágkvenna Gunnars í Krossinum  er tölvupósturinn er hann las upp. Var þess eðlis að allt væri með felldu milli þeirra og Gunnars; ótrúlegt að það sé skrifað af konu/konum er hafa  orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi af Gunnars völdum.

Hér verður að fara fram hlutlaus  rannsókn hvort um sannleika er að ræða.

Dr.Guðrún Jónsdóttir mótaði og kynnti sér aðferðir til rannsókna á kynferðislegu ofbeldi er hefur leitt sannleiksgildi þolenda ótvírætt í ljós.

Málið er komið í hámæli og getur veikt stöðu kvenna er þola kynferðislegt ofbeldi ef ekki verður tekið faglega á málinu sem allra fyrst.


mbl.is Gunnar stígur til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einræðisstjórn í Kópavogi?

Undarlegt ef  bæjarfulltrúar mega ekki gera athugasemdir við nýja fjárhagsáætlun er einhverju að leyna? Í fjárhagáætlun fyrra árs var helsta lausnin að ráðast á eldri borgara með sundskatt eins og frægt er orðið; - nú sitja margir sömu fulltrúar í bæjarstjórn og vissulega er þörf á aðhaldi. Þá var Gunnar I. Birgisson einn á móti; allir aðrir sammála um nýtt gildismat í velferðarmálum.

Þeir sem nú sitja í bæjarstjórn eru ekki trúverðugir fulltrúar fyrir almannahag;  ekki heldur  þeir sem eru í minnihluta er fylgja meirihlutanum í von um á fá einhverja mola af borðum þeirra.

Vonandi tekst Gunnari I. Birgissyni vel í baráttunni fyrir velferð hér Kópavogi. Hann hefur sýnt með verkum sínum að hann hefur yfirsýn yfir bæjarmálin þar sem hagur aldraðra, fatlaðra og sjúkra hefur verið í verki; það sýnir uppbygging á húsnæði fyrir umrædda hópa var  í alla staði til fyrirmyndar  í tíð Gunnars sem bæjarstjóra.

Undarlegt að flokksbróðir Gunnars í bæjarstjórn Ármann Kr. Ólafsson skuli ekki vera í samstarfi. Væri vænlegra að vinna í velferðarmálum bæjarbúa í raun. Ármann Kr. Ólafsson hlýtur að standa tæpt á pólitískum vettvangi nú um stundir eftir að vera einn af þeim er fékk nafn sitt skráð í sögu fjármálahrunsins í Skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis.


mbl.is „Valdníðsla af verstu sort“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aðventan 1. sunnudagur

Aðventan
eða jólafastan er undirbúningstími jólahátíðarinnar. Með henni hefst kirkjuárið.

Aðventan stendur yfir í fjóra sunnudaga. Orðið aðventa er komið úr latínu "adventus" og það þýðir, "koman," "nálgast" eða "aðkoma."

Jesús er að koma. Það er hans fyrsta koma sem við minnumst um hver jól. En það sem við erum í raun að undirbúa, er hans endurkoma, sem mun verða á síðasta degi.

Á aðventu er sumum hlutum breytt í kirkjunni.

Til dæmis erum við með aðventukransinn. Hér er um að ræða hring með grænu laufi sem umlýkur fjögur kerti. Kertin, verða kveikt, eitt fyrir hvern sunnudag í aðventu og minna okkur á að Jesús er sanna ljósið í þessum heimi.

Annar hlutur sem breyttur er, er hökull prestsins. Fjólublár er liturinn sem kirkjan notar á aðventu og er hann tákn iðrunnar og sorgar.

Umræðuefni ritningarlestranna og bænir í messunni, eru einnig breyttar. Í aðventu er eftirvæntingar að gæta í þeim.

Á sérhverri aðventu er okkur boðið að dýpka og styrkja samband okkar við Guð og náungann.

(Tekið af neti Kaþólsku kirkjunnar)

 

Aðvetnusálmur nr. 66

Hefjum upp augu' og hjörtu með,
hjálpræðisstund vor er nærri.
Jesú vér fáum sjálfan séð,
sorg öll og kvíði' er þá fjarri.
Senn kemur eilíf sumartíð,
sólunni fegri', er ljómar blíð
Drottins í dýrðinni skærri.

(Valdimar Briem)

Sálmabók Íslensku Kirkjunnar,2001

 

 


Makrílveiðar - hagsmunir skarast við ESB

Hagsmunaárekstur í makrílveiðum er vísbending um hvað koma skal ef Ísland gengur í ESB; engar óhagganlegar reglur/lög er hægt að setja til tryggingar sérstöðu Íslands í fisveiðum hér við land eða öðrum auðlindum.  Ekki kemur fram í fréttinni hvað Færeyingum er ætlaður stór kvóti.

Danir eru að vísu í ESB en Færeyingar eru með eigin sjálfstjórn sama má segja um Grænland þeir hafa sjálfstæði í málum sínum þótt þeir séu enn í tengslum við Danmörku. Hvorki Færeyjar eða Grænland eru í ESB ef til vill sjá Danir sér hag í að halda Grænlandi utan ESB enda eru þar ríkulegar auðlindir. Má segja að Danir séu bakhjarlar Grænlands og Færeyja svo langt sem áhrif þeirra ná.

Verst er að Norðmenn skuli ekki standa með okkur í deilunni um makrílinn ekki ósanngjarnt miðar við núverandi veiðar íslendinga að þeir fái  10% af aflahlutdeild miða við heildarkvóta hverju sinni.

Engin lausn í sjónmáli líkleg meðan þær þjóðir er eiga makríl í sinni lögsögu standa ekki saman; Stuðningur ESB verður þeim seint eða aldrei hagstæður.

Risaríkið ESB verður erfitt viðureignar í samningum okkar um inngöngu í ESB. Ef við ætlum að standa á nýtingu einnar mikilvægustu auðlindar okkar fiskinum nú um stundir;  er inngana í ESB útilokuð.

Sama má segja um aðrar auðlindir orku, olíu - og jafnvel vatn þegar til lengri tíma er litið.

 

 


mbl.is Ekki samkomulag um makríl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leigugjald fyrir veiðiheimildir raunhæfur kostur.

Eðlilegt er að stórútgerðin greiði sanngjarna leigu af veiðiheimildum en um það verða að gilda ákveðnar reglur og í hvað peningarnir fara, ekki stjórnlaust inn í ríkishítina. Tekst vonandi betur til en þegar ríkisvaldið   reyndi markvisst að útrýma smábátum; þá voru veiðiheimildir skertar svo mikið að ekki var hægt að reka bátinn, veiði dugði rúmlega fyrir fasta kostnaðinum, þeir sem skulduðu í sinni útgerð urðu gjaldþrota vítt og breitt um landið sérstaklega í smærri byggðum eða seldu til stærri útgerða.

Það er hluti af sögu trilluútgerðar sem er óskrifuð en verður vonandi gert.

Ekki skynsamlegt að gefa veiðar smábáta frjálsar það skapar sömu spillingu og var þegar frjálsar veiðar voru á þessum bátum, þá gátu bátar með kvóta sett fisk í gegnum smábát er aldrei fór á sjó.

Smábátaútgerðin á að þróast  í stærri báta vel útbúna, 10-15 tonn, eins og verið hefur. Smátrillur með einn mann eru ekki þjóðhagslega hagkvæmar veiðar  (sportveiðar)og ættu að heyra sögunni til í trilluútgerð. 


mbl.is Veiðiheimildir gegn gjaldi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heyr fyrir forsetanum!

Gott til þess að vita að forsetinn ætlar að vísa Icesavemálinu aftur til þjóðarinnar; getur orðið vegvísir í heilbrigðari fjármálastarfsemi innan ESB ef einkabankar verða að taka skellinn af braski sínu; að ekki verði hægt að vaða endalaust í vasa almennings. Ríkisbanki  Norður-Dakota USA hefur staðið sig einna best, stendur vel þrátt fyrir hrun einkabankanna þar, athyglisvert. Vafalaust eru ríkisbankar þarfir í bankaflórunni en nú verður að setja einkabönkum strangari reglur en nú gilda.

Lán í óláni ef litla Ísland/almenningur verður fyrst til og  neitar að greiða sukk íslensku einkabankanna, heyr fyrir forseta vorum!SmileHalo


mbl.is Lokaorðið hjá kjósendum segir forseti Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dragnótaveiði - rányrkja í lífríkinu

Í ljósi umræðu er sonur Davíðs Oddsonar var skipaður sem héraðsdómari er  umræðan um skipan sonar Jóns Bjarnasonar rökrétt um að taka þátt í starfi í undirnefnd fyrir ráðuneyti föður síns. Er  alveg gleymdur berserksgangur þáverandi stjórnarandstöðu gegn syni Davíðs í nafni spillingar? 

Vaflaust er sonur sjávarútvegsráðherrans vænsti maður og fær á sínu sviði; en tengslin skapa óhjákvæmilega tortryggni í nefndinni og veikja málið. Ráðherrann hefði átti að vera klókur í þessu erfiða máli og skipa einhvern er ekki var í fjölskyldutengslum við hann.

Sorglegt að ráðherrann skyldi veikja málið með þessum hætti; dragnótaveiði í landgrunninu umhverfis landið má telja rányrkju er ætti að leggjast af; auk þess  skemmdir á lífríkinu í hafinu . SidewaysHalo


mbl.is Ráðherrasonurinn var vanhæfur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Velferðarstjórnin - eykur vanda heimila''

 Varla getur verið um margar leiðir fyrir skuldug heimili að ræða er ekki geta staðið undir afborgun á lánum auk framfærslu. Frambærileg hugmynd  að lengja tíma í lánum fyrir skuldug heimili fyrir þá sem telja sig geta staðið undir afborgun þann tíma er ákveðinn verður.

 Aðrar leiðir hafa verið nefndar eins og leiga á húsnæðinu eða kaupleiga líkt og hjá Búseta.

Forsætisráðherra hefur svo oft sagt að lausnin sé á næsta leiti eða öðru hvoru megin við ''næstu helgi'' í svo langan tíma að fáir taka hana trúanlega.

Almenn niðurfærsla jöfn á alla er tæplega raunhæf lausn; fólk hefur mismunandi launatekjur en það ræður úrslitum um hvað hverjum hentar.

Skattapíning og aukin opinber gjaldheimta ''velferðastjórnarinnar'' er það sem á eftir að fella mörg heimili er rétt geta staðið í skilum í dag.

Vandinn eykst með hverjum degi sem þessu auma ''félagshyggjustjórn'' situr við völd:WounderingHalo

 

 


mbl.is Skuldaaðgerðir að skýrast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar verkmenntað fólk á vinnumarkaðinn?

Góð breyting á stefnu í menntunarmálum að hækka menntunarstig þeirra er litla menntun hafa. Með allri virðingu fyrir háskólamenntun þá hefur verið ofuráhersla á svokallaðri æðri menntun; háskólar eru of margir fyrir fámenna þjóð er getur orðið til þess að gæði menntunar verði minni.

Það eru takmörk fyrir hvað mikið þarf af háskólamenntuðu fólki á vinnumarkaðinn. Ekki hefur vantað að fólk hefur sótt sífellt hærra menntunarstig á háskólastigi; er af því góða ef menn eru ekki beinlínis í harðri samkeppni um þau störf er bjóðast en markmiðið ekki í sjálfu sér að sækja sér betri menntun.

Þjóðina vantar meiri verkmenntun í hverskonar smíði t.d. á sviði málmtækni; - með hæfni í smíði úr áli er ætti að vera hægt að fá með góðum kjörum hér á landi.

 

 


mbl.is Menntunarstig þjóðarinnar verði hækkað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipun verjanda - ekki ágreinignsmál!

Lítt skiljanlegt fyrir ólögærða  ef saksóknari Alþingis og forseti Landsdóms þurfa að hafa upp ágreining um að Geir H Haarde,  fyrrverandi forsætisráðherra,  fái formlega skipaðan verjanda . Fer ekki hjá að afstaða svo hárra embættismanna í málinu geti skaðað ímynd löggjafarvaldsins/dómsvaldsins út á við.

 Undirritaðri finnst oft þegar mál koma upp þá sé ágreiningur lögfæðinga svo mikill að sjálft málið verður aukaatriði; eru það ekki dómarar sem eiga að kveða upp dóma eða vísa málum frá eftir atvikum?WounderingHalo 


mbl.is Ekki mótfallin skipun verjanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný Stjórnarskrá - heildarhagsmunir?

Það sem hæst hefur borði í umræðum um kosningar  til stjórnlagaþings er að jafna kosningaréttinn, einn maður á bak við eitt atkvæði; en mismunandi vægi atkvæða hefur verið til að gæta jafnvægis  úti á landsbyggðinni, að fólk geti haft áhrif á hagsmunamál sín. Nú hefur fólksfjöldi  raskast mjög,  stærsti hluti þjóðarinnar býr á Reykjavíkursvæðinu  mun þar af leiðandi ráða hagsmunum fólks í fámennum kjördæmum.

Það hljóta að vakna spurningar um hvernig hagsmunum  fólks víðs vegar um landið verður tryggður með öðrum hætti  í nýrri stjórnarskrá. Ekki verður réttlætinu fullnægt fyrir heildarhagsmuni með jöfnun atkvæða hvað varðar landsbyggina.WounderingHalo 


Með M.s. Goðafossi - Ferðalok.

Kom heim með Goðafossi kl. 22:21 í gærkveldi  úr siglingu er átti að taka 14 daga en urðu 27 vegna eldsvoða um borð í aftaka veðri og stórsjó  á Atlandshafi. Efst  í huga  og seint líður úr minni er hugdjörf  björgun áhafnarinnar; er hætti lífi sínu við erfiðar aðstæður,    slökkva eldinn  þegar ólög gengu yfir skipið.

Skipshöfnin var sjómannastéttinni til sóma vegna framgöngu sinnar;  sýndu að þeir voru starfi sínu vaxnir  -  gæti styrkt ímynd og  viðskiptavild fyrirtækisins  út á við. Varla traustvekjandi fyrir Eimskip sem flutningafyrirtæki  ef skipið hefði farist með áhöfn og farmi.

Hæst ber gleði  aðstandenda að fá ástvini sína heimta úr heljargreipum  eftir giftusamlega björgun.

Skin og skúrir skiptust á. Eftir ''eldnóttina löngu''í óveðrinu var renniblíða alla ferðina, skemmtileg ferð þrátt fyrir allt.

Þakka skipverjum  ógleymanlega samveru og vinsemd; forréttindi að fá að kynnast þessum hógværu hraustu drengjum.HappyHalo


Virðingarleysi gagnvart sakborningi.

Lítt skiljanleg framkoma að ætla að breyta lögum eftir að fyrrverandi forsætisráðherra var dregin fyrir landsdóm. Virðist vera að íslensk lög séu oft illa marktæk að mati lögfæðinga; lögin um landsdóm  fyrst talin nothæf en nú þurfa þau breytinga við.

 Þvílíkur skrípaleikur og virðingarleysi gagnvart sakborningi.

Nú er ný stjórnaskrá í smíðum með þátttöku þjóðarinnar. Verður einhver bót að nýrri stjórnarskrá þegar sjaldan eða aldrei hefur verið tekið mark á núverandi stjórnarskrá? Lögfræðingar virðast oftar en ekki vera fremstir í flokki með lagakróka og útúrsnúninga, þegar dæma á eftir íslenskum lögum? Hér hlýtur að vera stjórnaskrárbrot gagnvart Geir H. Haarde sem sakborningi?

Sigurður Líndal, lagaprófessor benti réttilega á, að fyrst skyldi virða núverandi stjórnarkrá áður en ný tæki gildi; - hvenær verður það veruleiki?FrownHalo


mbl.is Átelur vinnubrögð landsdóms
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þolgæði, trú og bæn

 2Kæri  söfnuður, álítið það mesta fagnaðarefni er þið ratið í ýmiss konar raunir. 3Þið vitið að trúfesti ykkar vekur þolgæði 4en þolgæðið á að birtast í því sem þið gerið, til þess að þið séuð fullkomin og alger

og ykkur sé í engu ábótavant. 
 

5Ef einhvern mann í ykkar hópi brestur visku, þá biðji hann Guð sem gefur öllum örlátlega og átölulaust og honum mun gefast. 6En hann biðji í trú án þess að efast. Sá sem efast er líkur sjávaröldu er rís og hrekst fyrir vindi.

7Sá maður má eigi ætla að hann fái nokkuð hjá Drottni. 8Hann er tvílyndur og reikull í öllu atferli sínu.

Biblían: Jakopsbréf 1: 2-8


Hatursfull árást á kjör sjómanna.

Eitt fyrsta verk "velferðarstjórnarinnar" undir forystu Steingríms var afnám sjómanaafsláttar ;réttmætar greiðslur til sjómanna fjarri heimilum sínum við hættulegar aðstæður úti á sjó. Hljómar undarlega þar sem ríkisstarfsmenn hafa lífeyri sinn verðtryggðan; fari þeir út úr skrifstofu sinni eru þeir á dagpeningum og greitt  fyrir akstur þeirra vel og ríkulega.

Má telja að Steingrímur hafi notið ráðgjafar sérfræðinga skattsins er virðast hafa litla yfirsýn yfir störf sjómanna og valda  fjandsamlegum aðgerðum þeirra. Sitja í "glerhúsi",  sjá ekki  skóginn fyrir trjánum, þegar horft er til hagsmuna sjómanna; sjálfir með  hlunnindi  langt umfram hlunnindi sjómanna.

Steingrímur J. Sigfússon má skammast sín fyrir að hafa gengið svo grimmt að sjómannastéttinni ; úr byggðarlagi (Langanesbyggð) þar sem veður eru válynd og oftar en ekki  erfitt til sjósókna.FrownHalo 

 


Syndaaflausn - Vinstri grænna

Fádæma heimskuleg tillaga hjá samgönguráðherra ef að þeir sem brjóta umferðalög/drepa mann hafi minni sök vegna lítilla tekna. Hvað er eiginlega í gangi er verið að vekja upp syndaaflaus í nýjum búningi? Engin rök til að mismuna fólki á þennan hátt gagnvart lagabrotum. Hverjar verða afleiðingar slíkra laga? Getur látekjufólk hætt lífi almennings með of hröðum akstri, er það ekki mannréttindabrot?

Öfgafull  stefna Vinstri grænna í hnotskurn.LoLHalo


mbl.is Lægri sektir hjá tekjulitlum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðin blóðmjólkuð - Forsvarsmenn banka axli ábyrgð!

Hvað verður langur tíma þangað til að þeir sem gegndu lykilstöðum í bönkum og fjármálafyrirtækjum verði kallaðir til ábyrgðar? Í Enro-fjársvikamálinu í USA var forsprakkinn dreginn í járnum fyrir dómsvald og hann dæmdur; hvað er hægt að bjóða þjóðinni lengi hér á landi , að þeir er stóðu að fjársvikum verði dregnir fram  dagsljósið?

Þjóðin er blóðmjólkuð undir forystu "velferðarstjórnarinnar": Nýir skattar, meiri skattar,opinber gjöld hækka; - og laun lækkuð aftur  og aftur.

 Ekki hægt að búa lengur við slíkt stjórnleysi og óréttlæti við þurfum nauðsynlega utanþingsstjórn. Alþingi er máttlaust; rúið trausti almennings - og stjónkefið allt; eina rétta sem stjórnmálaflokkar gerðu í stöðunni er að styðja slíka stjórn!AngryHalo


mbl.is Stjórnstöð samsærisins flutt til New York
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórþjóð hindrar afhendingu Nóbelsverðlauna.

Sorglegt þegar milljarða þjóð býr við svo mikla harðstjórn, ekkert tjáningarfrelsi einstaklinga, þá verður stjórnkerfi og menning lituð af kúgun; mannleg samskipti ómanneskjuleg; rétturinn til að gagnrýni er fjarri veruleikanum.

 Ef til vill er algjört tjáningarfrelsi í raun tæplega til; margir þurfa að gjalda þess með lífi sínu og setja framtíð sína og  fjölskyldna í hættu; einræðisríkin eru verri þar sem þau innbyggja í stjórnkerfi sitt að tjáningarfrelsi sé ekki til staðar.

Við getum velt fyrir okkur hér á litla Íslandi hvort tjáningarfrelsi njóti sín fullkomlega; hvað skyldu margir vera reknir úr vinnu eða verið hótað fyrir að standa á skoðunum sínum; um það sem betur mætti fara?SidewaysHalo

 


mbl.is Friðarverðlaun ekki afhent?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í STORMI

Nú fór hann í bátinn og lærisveinar hans fylgdu honum. Þá gjörði svo mikið veður á vatninu, að bylgjurnar gengu yfir bátinn. En Jesús svaf. Þeir fara til, vekja hann og segja: "Herra bjarga þú, vér förumst."

Hann sagði við þá : "Hví eruð þér hræddir, þér trúlitlir?" Síðan reis hann upp og hastaði á vindinn og vatnið, og varð stillilogn.

 Mennirnir undruðust og sögðu: "Hvílíkur maður er þetta? Jafnvel vindar og vatn hlýða honum.

(Biblían: Matteus 8. kafli 23.til  27. ritningargreinar.)

 

Kristur er alltaf nálægur í erfiðleikum okkar hvort sem er í lífinu  -eða í aftaka veðri á sjó; þótt við sjáum enga von fram framundan,  þá er trúin á hann er öllu bjargar.SmileHalo


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband