Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
5.12.2013 | 12:27
RÚV - pólitískur hagsmunastormur í vatnsglasi
Vel skipulögð aðför að menntamálaráðherra Steingrímur hóf sóknina á Alþingi nefndi ekki niðurskurð velferðarsjónarinnar sálugu - minnir um milljarð. Síðan komu saman listamenn af öllum tegundum í Háskólabíó til að bjarga þjóðinni frá "menningarlausu RÚV; voru/eru að verja eigin hagsmuni virðast hafa misst spón úr askinum.
Þjóðin greiðir 83% af rekstri Hörpu; óviðundandi staða, varast berað RÚV geti vaxið með sama hætti orðið "menningarskrýmsli" í nafni þjóðarinnar er malar óheft peninga handa listamönnum
Nú er fléttað saman beinum hagsmunum og vinstri pólitík enda Steingrímur í essinu sínu skók hnefana ótt og títt af mikilli andtakt; en verður aldrei nema pólitískur stormur í vatnsglasi ef Illugi menntamálaráðherra stendur sig sem hann gerir.
Fleyg orð Ingibjargar Sólrúnar eru við hæfi er féllu á fundi í Háskólabíó í hita leiksins; "Þið eruð ekki þjóðin"
![]() |
Fordæma atlögu að Ríkisútvarpinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:44 | Slóð | Facebook
4.12.2013 | 15:01
Ný nálgun um jólabækurnar
Skemmtileg umfjöllun um bækur hjá Morgunblaðinu þar er ekki eru endilega teknar bækur sem eru efstar á sölulista í augnablikinu. Ný nálgun til mótvægis við umfjöllun um nýjar bækur sem fjallað er um í Silfri Egils; þar eru ummæli ritdómara í bókmenntaþættinum Kilju ( RÚV) markvisst notuð til að auka sölu bóka er fá umfjöllun þar.
![]() |
Litið framhjá metsölulistunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.12.2013 | 11:26
Hörmuleg skotárás
Skammarlegt að ásaka lögregluna um hugsanleg mistök í þessu hörmulega máli- maður sem er á svo alvarlegu stigi að skjóta af byssu er stórhættulegur umhverfi sínu. Eins og fréttir greina frá stöðu málsins er það lögreglan sem verður að verja samfélagið; hefur kunnáttu til þess. Að kalla fram einhver félags geðteymi að tala um fyrir manninum er tæplega möguleg lausn á þessu stigi til þess eru aðstæður of hættulegar.
Sjálfsagt er fyrir alla framangreinda aðila að skoða málið frá upphafi til enda ekki síður fyrir félags-geðteymi að taka á málum manna í hörmulegur ástandi vegna eiturlyfja- og geðvandamála; að þeir verði ekki viti sínu fjær; valdi sér og samfélaginu skaða.
![]() |
Lögreglan gerði allt sem hún gat |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.12.2013 | 09:39
Bókmenntir og auglýsingar
Vel má vera Agli Helgasyni sammála um að gengið hafi verið framhjá Þórunni Erlu Valdimarsdóttur (Fréttabl. í dag) við tilnefningu íslensku bókmenntaverðlaunanna; ekki af því hún er kona heldur vegna þess hún hefur fyrir skipað sér í raðir góðra rithöfunda. Má nefna Upp á Sigurhæðir, ævisögu Mattíasar Jochumssonar, skálds/sálmaskálds skrifuð af henni; ljóðabók Þorsteins frá Hamri hefði einn komið sterklega til greina.
Útnefning bókmenntaverðlaunanna á að endurspegla bókmennti okkar á breiðum grundvelli en ekki að vera markmið til auglýsingar á viðkomandi bókum.
Annars er undirrituð hætt að kaupa bækur sem Kolbrún Bergþórsdóttir mælir með nema kanna nánar efnið, sölumarkmið/ auglýsingar virðist vera markmið Silfur Egils að töluverðu leyti; viðmælendur notaðir í auglýsingum með frösum eftir þá.
Þó eru viðtöl Egils við rithöfunda mun betri þar sem bókmenntir eru meira áberandi en auglýsingar.
2.12.2013 | 23:19
Eru bókmenntir - fyrir sérstaka markhópa?
Eru bókmenntir orðnar fyrir sérstakan háskólamenntaðan markhóp þar sem glæpasögur eru í yfirgnæfandi meirihluta. Þekki marga er keyptu Illska (nú tilnefnd til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðseftir Eirík Örn Norðdahl) en hafa lagt hana frá sér hálflesna . Bókin er þung hefur heimspekilegt ívaf en þráður sögunnar nær ekki að tengja saman spennu og hið heimspekilega -bókin verður þess vegna lítt skiljanleg fólki nema að hafa þekkingu á heimspekilegum nótum.
Eiginlega er Angóraflísin eftir Sjón hliðstætt vandamál en fékk Bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs.
Öðruvísi var áður fyrr er sögur höfunda rokseldust almenningi um leið og bækur þeirra komu út má nefna Kiljan, Guðrúnu frá Lundi og Davíð Stefánsson svo dæmi séu nefnd.
Bækurnar um Ísfólkið seljast ár eftir ár en þykja víst ekki merkilegur pappír eru ekki margverðlaunaðar en góð afþreying samt sem áður, fyrir almenning.
Vonandi eiga bókmenntir okkar eftir að auðgast aftur af efni um mannlífið í víðum skilningi en snúast ekki eingöngu um glæpi.
1.12.2013 | 17:49
Situr vel launað fólk á baki fátæku fjölskyldufólki?
Guðmundur Andri Thorsson, rithöfundur telur sig hafa þá sjálfsmynd að vera í millistétt ásamt fólki "upp til hópa". (Fréttabl. 25.11.13.) Ef til vill er erfiðara, að skilgreina millistétt í okkar fámenna unga lýðveldi en hjá milljóna þjóðum sem í mörg hundruð ár hafa skipað sér í ótal stéttir?
Guðmundur Andri virðist skilgreina millistétt eftir tekjum langskólamenntaðs fólks en ekki störfum sem "ómenntaður" almenningur vinnur, minnist ekki á iðnmenntun, menntun sjómanna eða menntun lögreglufólks /slökkviliðs svo eitthvað sé nefnt. Hann segir," sumir sjómenn eru á forstjóralaunum", veit hann hvernig sjómenn vinna, veit hann hvað stór hluti af vinnulaunum þeirra er vegna langs vinnutíma, veit hann hvað þeir vinna marga mánuði á ári? Er Guðmundur Andri búinn að gleyma að háskólamenntað fólk fær stóran hluta menntunar sinnar í háskólum hér á landi sem ríkið heldur uppi, er hann búinn að gleyma að Nóbelskáldið okkar hafði ekki langskólamenntun en varð ágætlega bjargálna.
Síðan kemur gamla tuggan um verndun hagsmuna útvegsmanna og bænda á kostnað almennings engin skýring hvers vegna? Eru sjávarútvegsfyrirtæki og bændur ekki fyrst og fremst fyrirtæki sem skaffa gjaldeyrir og atvinnu? Það er ef til vill ekki þjóðhagslegt? Flestar þjóðir er telja sig sjálfstæðar vernda atvinnu í eigin landi sérstaklega landbúnað á öllum sviðum.
Engin trygging er fyrir ódýrari matvælum þótt innflutningur yrði frjáls, engin leið inn í ESB næsta áratug eða lengur vegna efnahagsástands hér á landi. Hvort ESB verður þá á leið - eða orðið nýtt efnahagsbandalag með Bandaríkjunum/Brasilíu/ Kanada gæti orðið raunveruleiki?
Ef skilgreina á millistétt eftir tekjum má nefna barnafjölskyldur þar sem bæði hjón hafa um 200 til 400 þús. tekjur pr. mán. samanlagt tólf tíma á dag og aðra hverja helgi til ná endum saman. Fyrir efnahagshrunið höfðu umræddar fjölskyldur kaupgetu til að greiða afborganir lána. Eftir hrun eiga þessar fjölskyldur fyrir brýnustu þörfum flestar greiða þó ennþá af lánum sínum. Barnafjölskyldur með umræddar tekjur geta ekki greitt tannviðgerðir/tannréttingar, íþróttir, tónlist eða annað nauðsynlegt fyrir börnin sín er ríkið greiðir ekki.
Er það réttmætt/siðlegt að háskólagengið fólk/listamenn með mun hærri laun setjist á bak fátækrar alþýðu og heimti enn hærri laun sem ekki er unnt að veita, á að halda áfram að níðast á fátæku barnafólki þótt það sé ekki háskólamenntað?
Framangreint fólk ætti að spyrja sig, "getum við lifað á þeim tekjum sem við höfum, látið nægja hóflega launahækkun"? - Ætti það ekki að spyrja sig í leiðinni, "hvað getum við gert til að fátækar fjölskyldur geti séð fyrir börnum sínum með sómasamlegum lífsmáta"?
Grein í Mbl. 30. nóv s.l.: SIgríður Laufey Einarsdóttir.
1.12.2013 | 17:37
Þjóðarsátt um framhaldið -
Getur tæplega orðið annað en almenn ánægja með tillögur ríkisstjórnarinnar ef þeim Bjarna og Sigmundi tekst að ná góðum þingmeirihluta um nauðsynlegar lagasetningar. Réttlætismál að almenningur í landinu fáið leiðréttingu lána sinna að ákveðnu marki; vonandi ná þeir samstarfi við stór hagsmunasamtök, launþegasamtökin og lífeyrissjóði mikilvægt að svolölluð þjóðarsátt náist þá, kemst hægt og hægt festa í efnahagsmálin til langs tíma.
![]() |
Bjarni: Viðbrögð í samfélaginu jákvæð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.11.2013 | 21:54
Aðventan - undirbúningur jólanna
Kristur gekk meðal þjóðar sinnar sem þátttakandi í samfélaginu allt sitt líf í sorg í gleði. Þekkti einsemd og fátækt; allt mannanna böl. Var ofsóttur sakir skoðana sinna.
Að lokum niðurlægður og deyddur á krossi eins tíðkaðist meðal sakamanna á þessum tíma. Boðskapur Krists stendur engu að síður óhaggaður, sigurinn er hans þrátt fyrir allt. Hann niðurlægði sig fyrir alla menn til að hjálpa þeim með sigri sínum.
Aðventan er undanfari jólanna til að skilja boðskap Krists betur og geta tekið á móti honum á sjálfri jólahátíðinni. Flestir keppast við að hreingera heimili sín og gefa gjafir, börnum, vinum og ættingjum. Það er tjáning hið ytra til að skapa hlýlega samveru um jólin, allt á að vera hreint þegar Kristur kemur.
Með því að hjálpa nauðstöddum, fátækum og einstæðingum er markmiðið að taka af öllu hjarta móti Kristi með hreinum huga og feta fótspor hans. Það er hinn innri undirbúningur jólanna og skapar hina sönnu jólagleði.
Ekki má gleyma, að Kristur með sigri sínum hjálpar öllum mönnum til að sigra hið góða, vera boðberar hans í lífi og starfi með verkum sínum.
29.11.2013 | 16:38
Uppsögn starfsmann RÚV - kattarþvottur í rekstrinum?
Var ekki uppsögn starfsmanna RÚV til þess fallin eða úthugsuð til að skapa samúð meðal almennings á þeim forsendum að þeir væru heimilisvinir hlustenda; gera málið að pólitísktu bitbeini; kattarþvottur útvarpsstjóra til að komast hjá endurskipulagningu reksturs RÚV?
Hvernig eru markhópar hlustenda RÚV valdir; eru þeir á öllum aldri, var eldra fólk spurt á hvað það vildi hlusta?
Háskóli Íslands mikilvægasta mennta og menningarstofnum þjóðarinnar fær tíu milljarðar framlag frá ríkinu en RÚV fær fimm milljarða. Ekki þarf reiknimeistara til að sjá að hægt er að reka RÚV fyrir miklu minna fjármagni til að standa undir lögbundnum skyldum.
Engin vafi að þörf er á breytingum á rekstri ríkisútvarpsins athuga hvað er raunhæft að fella niður; svo dæmi séu nefnd er ekki óþarfi að vera með kvikmyndaþátt í útvarpinu þegar hann er í sjónvarpinu- hvað horfa margir á lélegu íslensku myndirnar er hafa veri sýndar í sjónvarpinu undanfarið er verið að styrkja kvikmyndagerð með þessum hætti; kvikmyndagerð er sjálfsögð en þær verða að hafa áhorf.
RÚV getur ekki verið óbeinn/beinn styrktaraðili fyrir listamenn þeir verða að sýna ágæti sitt hvort sem þeim líkar betur eða verr.
Útvarpsstjóri ber ábyrgð á rekstri RÚV honum var vorkunn, árás Helga Seljan eftir starfsmannafundinn en komið sterkari út með skapstillingu.
Ef til vill skynsamlegt að ráða nýjan útvarpsstjóra er getur stillt skap sitt sig í erfiðum aðstæðum er nú fara í hönd?
![]() |
Klaufalegar uppsagnir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.11.2013 | 14:25
Menning þjóðarinnar ekki í hættu - þótt RÚV dragi saman
Kórsöngur stuðningsmann RÚV glumdi við nú í fréttatíma kl. 14 í dag, björgum RÚV; gott að geta komið mótmælum/stuðningi við starfsmenn á framfæri með skjótum hætti en er það alltaf svo? Ekki farið hátt í fréttum þegar skúringakonum, fiskverkunarfólki og starfsmönnum Landspítala var sagt upp í tíð vinstri velferðastjórnarinnar- en það er annað mál.
Þjóðin er ekki í neinni menningarkreppu þótt RÚV dragi saman gæti meira segja orðið til góðs. Vonandi minnkar beinn/óbein stuðningur fjölmiðilsins við pólitískar ákvarðanir eins t.d. og stuðning við ESB-
Umræða um sjávarútveg og fiskveiðar þarf að breytast - að þjóðinni sem heild sé ljóst hvað gjaldeyristekjur hans eru mikilvægar þjóðarbúinu - mætti rifja upp hvað sjávarútvegurinn var mikilvægur þegar bankarnir/efnahagskerfið féllu.
![]() |
Hundruð mótmæltu niðurskurði RÚV |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |