Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Markaður fiskafurða Íslands í hættu á evrusvæðinu?

Íslenskur sjávarútvegur er ein mikilvægasta grunnstoðin í þjóðarbúskapnum og mun verða áfram um langa framtíð. Hvernig verða markaðsaðstæður fyrir fiskafurðir ef Ísland gengur í ESB? Ekki er útséð um að samdráttur verði á evrusvæðinu, þá yrði samdráttur í neyslu þar; gætir orðið erfiðara að selja fisk á háu verði ekki síst hágæðafiskafurðir. Hver verður samkeppnisstaðan gagnvart Norðmönnum, þeir fyrir  utan ESB með sinn eigin gjaldmiðil - en Ísland orðið evruland? Hætt er við að frændsemi Norðmann vegi ekki þungt þegar komið er út í viðskipti með fiskafurðir þar sem þeir eru einn stærsti keppinautur þjóðarinnar í sölu fiskafurða.

Innganga   Íslands í ESB er varhugaverð ekki síst á tímum samdráttar og fjármálakreppu er engan vegin er séð fyrir að ljúki á næstunni.  ESB -ríkjunum er vel ljósir  þeir hagsmunir  til framtíðar, að innlima Island vegna auðugra náttúruauðlinda til að tryggja sína eigin afkomu.

Hagsmunum þjóðarinnar er best borgið með frelsi í viðskiptum með alþjóðlegum tengslum.

Tilvera Íslands sem  sjálfstætt örríki, efnahagslega og menningarlega, er afar ótrygg ef Samfylkingin heldur áfram pólitískum völdum í landinu. Ekki bætir stöðuna þjónkun og undirlægjuháttur forseta ASÍ við Samfylkinguna og inngöngu í ESB; grasrótabarátta verkalýðshreyfingarinnar og hagsmunir hennar er ekki sjáanlegir á þeim bæ.


''Stabat mater dolorosa''

 Enginn veit hvaðan þessi sálmur kemur, enginn veit hver hefur sungið hann fyrst. Ef til vill bróðir Jacopone de Todi úr reglu heilags Frans frá Assisí eða heilagur Bónaventúra, kardínáli og kirkjufræðari eða Innocens III. páfi, allra páfa áhrifamestur á miðöldum? Enginn veit með vissu hver orti kvæðið "Stabat mater dolorosa" sem lýsir harmkvælum Maríu meyjar. En eitt er víst að þetta kvæði hljómaði fyrst á 13. öld og hefur verið sungið síðan í aldanna rás og mun vera sungið eins lengi og þeir menn lifa á þessari jörð sem hugleiða harmkvæli Maríu meyjar með lotningu. Má vera að það sé gott að skáldið er óþekktur maður af því að manni finnst að hvorki munkur, kardínáli né páfi hafi ort þetta kvæði heldur stigi það beint úr harmþrungnu mannshjarta sem leitar huggunar með því að íhuga þjáningar Maríu meyjar, "mater dolorosa".
Mörg tónskáld hafa fært þetta kvæði í búning ógleymanlegrar tónlistar. "Stabat mater" var síðasta verk Palestrina. Jósef Haydn gleymdi sorg sinni með því að hugleiða þetta kvæði. Það hljómaði að nýju í verkum Rossinis og Dvoraks. En samt finnst manni að Stabat mater hafi fengið sína bestu túlkun í gregorssöng. Hér er ekkert annað að finna en grátbeiðni harmþrunginnar mannssálar sem leita hælis hjá móður okkar allra.

Hér fylgir kvæði eða sekventía, svokölluð "Stabat mater dolorosa" í íslenskri þýðingu
(sjá messubók frá 1957).

Stóð að krossi sefa sárum
sorgum bitin, drifin tárum,
móðir þar sem mögur hékk;
og um hennar hyggju skarða,
harmi lostna, böli marða,
eggjabrandur bitur gekk.

Ó, hve hrelld og hrygg til dauða
himna drottins var hin auða
einkasonar móðir mær,
sem réð fanga sorg og stranga
sút, er hanga kvöld við langa
sinn leit mæra soninn skær.

Hverir gráta menn ei mundu
móður Krists á þeirri stundu
ef að horfðu hrelling á?
Hver svo hjartað herða mætti
hans að eigi lundu grætti
góðrar móður sorg að sjá?

Fyrir þjóðar sinnar syndir
sá hún Jesú dreyra lindir,
kross á gálga hengdan hann;
varð að líta sinn hinn sæta
soninn kvölum einan mæta,
meðan lífið láta vann.

Eia móðir, mér að finna
meginsorga byrði þinna
kenndu, lindin kærleikans!
Svo mér brenni hugur og hjarta
helst að elska son þinn bjarta
að ég feti fótspor hans.

Heilög móðir, mér, hin besta,
mundu kvöl í hjarta festa
Kristí, sem á krossi dó!
Sonar þíns er sár í hildi
sjálfur fyrir mig ganga vildi,
veit mér hlut í þjáning þó!

Lát mig gráta með þér, mæta
míns og Jesú krossins gæta,
meðan fjör í æðum er:
því að engin mér skal mærri
mæðubót, né huggun stærri,
en að tárast þar með þér.

Allra skírust mærin meyja
mig ei láttu einan þreyja,
en þér harma æ við hlið;
lát mig kenna Drottins dauða,
dýr, og finna hlutann nauða,
hans og bölið berjast við.

Lát mig hörðum höggum særa,
hans að krossi glaðan færa,
fyrir sakir sonar þín!
Vek mér eld og ást í huga,
að mér megi traust þitt duga
þegar dómadagur skín!

Lát mig kvölum krossinn verja,
Kristí dauða fyrir mig erja,
að ég njóti náðar hans!
Svo þegar lík mitt liggur í moldu
ljóss mín hljóti önd á foldu
hæsta gleði himna ranns!
Amen.


Afritað af síðu Kaþólsku kirkjunnar, góða helgi.Halo


Forsetinn hætti með reisn - siðferðilegur stuðningur við þjóðina

Vonandi sýnir Ólafur Ragnar Grímsson þjóðinni þá virðingu að láta af störfum sem forseti lýðveldisins  síðasta lagi í áramótaávarpi sínu. Með því tekur hann stöðu sem beinn og óbeinn stuðningur í verki, við ný gildi í viðskiptum og innviðum  samfélagsins;  það sé þjóðinni metnaðarmál að uppeldisleg og menningarleg verðmæti verði okkur kappsmál í framtíðinni; en ekki peningagræðgi og ábyrgðarleysi í lánaviðskiptum.

Afsögn hans yrðu sterk skilaboð  til að þeirra sem báru mesta ábyrgð í bankahruninu; þeir komi fram  og axli ábyrgð.

Afsögnin gerir forsetanum það kleift að  hætta með reisn og sýna þjóðinni um leið siðferðilegan stuðning á erfiðum tímum.Woundering 


mbl.is Forsetinn birtir bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Börn njóti siðferðisréttar í samfélaginu

Eftirfarandi blaðagrein  birtist í Mbl 22. okt og  samin vegna máls sr. Gunnars Björnssonar og tilfærslu Biskups þjóðkirkjunnar að færa sr Gunnar til  í starfi innan kirkjunnar:

Eins og vænta mátti hefur úrskurður Biskups þjóðkirkjunnar vakið harðar umræður, að færa séra Gunnar Björnsson, sóknarprest á Selfossi  til í starfi samkvæmt starfsreglum kirkjunnar. Gunnar kærði ásökun um kynferðisáreiti gegn fermingarbörnum sínum til Héraðsdóms/Hæstaréttar en var sýknaður.  Samt sem áður leiddi rannsókn málsins  í ljós,  að hann strauk og kyssti  fermingarbörn/unglingsstúlkur undir lögaldri;um það snýst málið.

Með fyrrnefndri   framkomu  særði hann siðferðiskennd þessara barna er getur ekki flokkast undir sálusorgun.  Frekar vanvirðingu við börn á viðkvæmum aldri er getur skilið eftir sig ör í hugum þeirra   um langa framtíð; jafnvel ævilangt ef ekki er leitað hjálpar strax þegar brotin eiga sér stað. Er ekki mál til komið að taka börn trúanleg í slíkum aðstæðum?

Rétt er að hyggja að fortíðinni  um mál sem hafa komið upp hjá kirkjunni og í samfélaginu þar sem fullorðnar konur/karlar hafa greint frá sárri reynslu sinni vegna kynferðislegrar áreitni á barnsaldri,  að ekki sé minnst á Breiðuvíkurdrengina eða stúlkurnar á meðferðarheimilinu Bjargi Seltjarnarnesi.

Með allri virðingu fyrir Hæstarétti þá virðist það tæpast á hans valdi að dæma hvað er siðferðisbrot nema þegar um svo gróft líkamlegt brot er að ræða, að sannanlegt er áþreifanlegum hætti. 

 Dómsvaldið stendur ef til vill á svo gömlum merg að það nái tæpast yfir víðfeðman rétt í nútímasamfélagi þar sem réttur barna og kvenna er mun meiri en áður var

 


Jóhann risi - eftirminnilegur

Er minnisstætt frá barnsaldri þegar Jóhann Svarfdælingur kallaður risi manna í milli, litlu minni en Tyrkinn er nú ferðast um heiminn, kom í Alþýðuskólann að Eiðum á ferð sinni um landið. Jóhann risi hafði kvikmynd meðferðis en ég man ekki um hvað hún fjallaði. Allir flykktust til að sjá risann enda stórviðburður í þá daga auk þess höfðu fæstir séð bíómynd áður.

Í mínu barnsminni var ímyndin  svo sterk um stærð risans,  hann hlyti að ná upp í loft í samkomusalnum/leikfimisalnum og yrði það mikið sjónarspil. En svo varð nú ekki,  fannst mér lítið til koma um stærð hans. En þegar hann gekk gegnum dyrnar á samkomusalnum þá skynjaði ég stærð hans þótt ímyndunarafl mitt hefði orðið fyrir vonbrigðum. Risinn var skemmtilegur spjalllaði og gaf okkur börnunum sælgæti sem þá fékkst ekki nema um jól í mesta lagi. Heimsókn Jóhanns risa er ennþá skemmtileg og sérstök í barnsminni mínu.


mbl.is Risi í heimsókn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Árni Páll og ''þursaflokkurinn''

Ef hægt er að minnast á þursaflokk þá er það Samfylkingin er virðist vera sérhagsmunaflokkur elítu sem hugsar um eigin hag fyrst fremst  til að halda þeim völdum til framtíðar með  ESB-inngöngu sem endapunkt í valdakerfi þeirra. Athyglisvert er að innan herbúða ESB er mikið álit á fiskveiðistjórnarkerfinu og komið yfirlýsingar þar af lútandi, kerfið er til fyrirmyndar að þeirra mati.

Öll mannanna verk hafa ágalla er með opnum huga og rökhugsun má alltaf bæta um betur einnig í rekstri sjávarútvegsfyrirtækja; en virðist ekki grundvallaratrið hvorki hjá Árna Páli eða vera afgerandi stefnumörkun hjá flokki hans - heldur upphrópanir og skítkast til að skýla eigin málefnaskorti og ábyrgðarleysi í núverandi stjórnasamstarf, í skjóli undir pilsum Jóhönnu Sigurðardóttur; bíða átekta að geta skotið sér undan ábyrgð áfram allt síðan fyrir hrunið sem þeir bera ábyrgð  á með Sjálfstæðisflokknum og Framsókn.

Að sjávarútvegfyrirtæki séu rekin með núverandi fyrirkomulagi er grunvallaratriði fyrir þjóðarbúið um alla framtíð. Þjóðnýting og drottnun menntamanna/fræðimanna í krafti menntunar sinnar án tengsla við fyrirræki í sjávarútvegi, án gagnrýnar umræðu er hættuleg þróun. Gott dæmi eru veiðiheimildir ýsustofnsins er kemur í veg fyrir veiðar á þorsveiðiheimildum þótt reynsla sjómanna vítt og breitt á miðunum sýni að nóg virðist af þorski; lítil áhætta að endurskoða úthlutunina um eins árs skeið. Ákvörðun fræðimanna í fiskveiðastjórnun  verður sífellt tortryggilegri með fyrrnefndum ákvörðunum og þarfnast gagnrýni og endurskoðunar sem allra fyrst.

 

 


mbl.is LÍÚ lýsir ráðherra með lagi Þursaflokksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

''Skaftáreldagos stjórnarandstöðunnar''

Skynsamlegt að fara að ráðum AGS fyrst um sinn, aðgátar er þörf í peningastefnunnni. Ekki síður er nauðsynlegt að fá aðhald  utanlands frá; stjórnmálamenn, stjórnkerfið og fjármálakerfi njóta lítils trausts til að hafa það taumhaldið er þjóðin þarf sárt á að halda nú um stundir. Kann að vera seinni tíma ákvörðun að semja við AGS um minna lán eða lánalínur á næsta ári.

Stjórnarandstaðan er ekki trúverðug í framgöngu sinni virðist helst vilja gera skuldavanda þjóðarinnar að pólitísku bitbeini; er ekki mun verða til annars en sundra þjóðinni og veikja þann vilja sem flestir hafa til að afkoma þjóðarbúsins verði betri.

 Framganga Sjálfstæðisflokksins er vítaverð, virðist vera að standa fyrir illdeilum og sundrungu um Icesavemálið.  Ungi formaður þeirra  Bjarni Benediktsson virðist vera, ''að hlaupa af sér hornin'' eins unglingur á gelgjuskeiði í mesta erfiðleikatímabili þjóðarinnar síðan  Skaftáreldar dundu yfir, 1783. Sama er að segja um formann Framsóknar. 

það litla traust sem eftir stendur  hjá stjórnmálamönnum virðist þrátt fyrir allt vera  hjá Steingrími J. Sigfússyni, fjármálaráðherra; hann reynir af fremsta megin að halda sem best um  stjórnartaumana þótt ef til vill blási um hann einnig í eigin flokki. Hann heldur ótrauður áfram eins  og kom fram í málflutningi hans á Alþingi í dag. En hvað stendur hann lengi af sér þann eld og brennistein er stjórnarandstaðan spúir yfir hann og þjóðina í þessu nýju pólitíska''Skaftáreldgosi þeirra'',er nú geisar af fullum þunga?

Sameinuð stöndum við sundruð föllum við.Woundering 

 


mbl.is Vill varkárni í vaxtalækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ASÍ - og Samfylkingin- ótrúverðug hagspá?

 Minnir á ''morgunkornsglansmyndir'' bankanna fyrir hrunið er birtust reglulega í öllum fjölmiðlum til að fullvissa hluthafa og sparifjáreigendur um gróða sinn um alla framtíð. Myndin með fréttinni sýnir svipaða glansmynd þar sem Árni Páll, félagsmálaráðherra situr með verkalýðsleiðtoga til að undirstrika fréttina. Forsetinn ASÍ er í stjórnmálaflokki með Árna Páli; ekki ónýtur stuðningur við inngöngu í ESB beint og óbeint pólitískur stuðningur. Eins og ASÍ sé deild i Samfylkingunni þar sem óbreyttir félagsmenn hafa lítið að segja um stefnuna. Ábyrgðarleysi af ASÍ að slá ryki í augu almennings með ótímabærri spá um að nú sé senn bein braut framundan.


Tenging ASÍ við Samfylkinguna er ótrúverðug svo ekki sé meira sagt. 
 


ASÍ og Samfylkingin- ótrúverðug hagspá?

Minnir á ''morgunkornsglansmyndir'' bankanna fyrir hrunið er birtust reglulega í öllum fjölmiðlum til að fullvissa hluthafa og sparifjáreigendur um gróða sinn um alla framtíð. Myndin með fréttinni sýnir svipaða glansmynd þar sem Árni Páll, félagsmálaráðherra situr með verkalýðsleiðtoga til að undirstrika fréttina. Forsetinn ASÍ er í stjórnmálaflokki með Árna Páli; ekki ónýtur stuðningur við inngöngu í ESB beint og óbeint pólitískur stuðningur.

Eins og ASÍ sé deild i Samfylkingunni þar sem óbreyttir félagsmenn hafa lítið að segja um stefnuna. Ábyrgðarleysi af ASÍ að slá ryki í augu almennings með ótímabærri spá um að nú sé senn bein braut framundan.


Tenging ASÍ við Samfylkinguna er ótrúverðug svo ekki sé meira sagt.
  

Egill í Slilfrinu - heilög kýr?

Er Egill i silfrinu (RÚV) ‚‘‘heilög kýr‘‘ sem ekki má gagnrýna þótt umræðuþættir hans séu oftar en ekki góðir samt ekki alltaf. Leiðigjarnt að hafa  sömu  álitsgjafana í Kiljunni eins og ekki séu til aðrir bókmenntafræðingar,  verða þeir ef til vill að vera hliðhollir Samfylkingunni?  Oft er hægt að spyrja sig fyrir þáttinn, ‘‘verður  Páll Baldvin í geðvonskukasti í kvöld'',  hefur allt á hornum sér? Verður hægt að skilja Kollu fyrir hraðmælgi og flissi? Stundum er  og ástandið  eins og í sápuóperu,  Páll Baldvin með allt á   hornum sér  um skoðanir Kolbrúnar   Hún kærir sig kollótta, hnippir í Pál og flissar íbyggin,  Palli skánar í skapinu, stjórnandinn himinlifandi alsæll yfir álitsgjöfunum sínum. Mætti ekki með allri virðingu fyrir Páli og Kollu fá fleiri álitsgjafa í þáttinn til að auglýsa nýjustu bækurnar?Gasp

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband