Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

ESB - brotalöm framtíðar

Rétt ákvörðun að vera viðbúin breyttum aðstæðum þótt breyttar aðstæður séu afstæðar hvort sem litið er innan -eða utanlands. Nú hafa allar þjóðir ESB snúist gegn okkur í Icsave-málinu ekki vegna þess heldur vegna eigin galla á reglum sambandsins hvað varðar ábyrgð til sparifjáreigenda. Hins vegar stendur eftir aðför Browns forsætisráðherra Breta að KBbanka með terroristalögum er vonandi fær lögfræðilega meðferð til að rétta hlut okkar bæði siðferðilega og lögfræðilega.

Þá eru helstu ríki heims á fundi í Bandaríkunum  að reyna að koma á betri samskiptareglum í viðskiptum er hafa beðið skipbrot um allan heim. Ekki síst hjá ESB þar sem frjálst flæði fjármagns (og vinnuafls)  hefur fremur valdið óstjórn fjármála en velmegun almennings. Nú um stundir er það eina sem ESB-löndin  eru sammála um, að standa á móti örþjóð norður í Atlandshafi, en að öðru  leyti er ekki ljóst hvort ESB mun lifa af heimskreppuna hvað þá að fleiri þjóðir bætist við í náinni framtíð.

Nú eru Kínverjar með langstærst gjaldeyrissjóð heims er mun hafa áhrif á framvinduna;  breyta heimsmyndinni í viðskiptum ef til vill í náinni  framtíðinni?


mbl.is Óttumst ekki kosningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Obama forseti - viðurkenning þeldökkra

Fyrir u.þ.b 150 árum (1860)var Abraham Lincoln kosinn forseti og setti á oddinn frelsi svartra þræla í Bandaríkjum. Nú er svartur maður kosinn forseti má segja að réttindi svartra hafi endanlega hlotið viðurkenningu almennings  með kjöri Barack Obama. Borgarastyrjöld Lincolns varð sársaukafull og snerist upp í andhverfu sína eins og oft vill verða með slíkar styrjaldir mikið hatur skaut rótum  innan samfélagsins er endaðir með morði forsetans; Abraham Lincoln, forseti   vildi réttlæti allra þegna sinn er kostaði hann lífið en vann samt sigur er ef til vill kemur nú í ljós með kjöri Obama.

Vonandi tekst Obama að verða leiðastjarna Bandríkjanna til friðar og réttlætis;  geti skapað þjóðinni betra álits í heiminum en verið hefur í tíð fráfarandi forseta með óhóflegum stríðsrekstri. Joyful


mbl.is Obama: Þetta er ykkar sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rosabaugur?

Hvers vegna getur einn maður átt alla einkarekna fjölmiðla hér á landi vantar ekki fjölmiðlalögin er forsetinn hafnaði?  Nú um stundir er mikið rætt um pólitískan seðlabankastjóra er þyrfti að víkja en forsetinn?  Er hann ekki pólitískt umdeildur og studdi "útrásina/Baug" beint og óbeint í forsetaebættinu, - á hann ekki að víkja?


mbl.is Rosabaugur Jóns Ásgeirs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

RÚV: Valgeir Guðjónsson skemmtilegur

Laugardagsþáttur RÚV var með manneskjulegra sniði eða hefur þroskast eftir því sem fleiri þættir koma fram. Valgeir Guðjónsson eðlilegur og skemmtilegur engin yfirborðsmennska. Gaman að fá móður hans í þáttinn og fá um leið bakgrunn Valgeirs í uppeldi. Mér hefur alltaf þótt Valgeir Guðjónsson skemmtilegur ekki spillir, að hann á rætur að rekja til Austurlands/Seyðisfjarðar en það vissi ég ekki fyrr en löngu eftir að hann varð vinsæll.

Framangreindur þáttur líktist dálítið þáttum Jóns Ólafssonar er voru vinsælir í RÚV á sínum tíma.

 

 


Réðu fjármálagarkarnir því sem þeir vildu ráða?

Samkvæmt fréttinni hafa hagfræðispekingar hér landi  lítið haft að athuga við "útrásina" er var orðin virk á flestum sviðum; Listum, háskólamenntun, á Alþingi, fjármálaeftirliti,ríkistjórninni, seðlabanka - og kauphöllinni? Ef til vill rétt hjá norska hagfræðingnum  gott sé að   spilaborgin hrundi nú en ekki síðar - en kallar á uppgjör þeirra er mestu réðu í "efnahagsundrinu" áður en gegnið verður til næstu kosninga?

 

Síðasta bloggið mitt er rétt að birta aftur:

 

 

Hverjir bera ábyrgð á   núverandi ástanda fjármála – og efnahafskreppunni hér á landi? Var grafið undan pólitísku valdi er gat ekki tekið á fjármálastefnunni?  Samfylkingunni hefur enn tekist að skjóta sér undan ábyrgð þrátt fyrir að vera í ríkisstjórn með því að persónugera hrunið í Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra með hjálp áhrifafólks innan viðskiptalífisins þar sem fjölmiðlarnir hafa lagt sitt af mörkum til að fela og fegra brask "útrásarvíkinganna" eins og kostur er.

Útrásin var byggð upp með sterkri samstöðu bankanna með stöðugum auglýsingum út á við með greiningaraðilum bankanna er komu reglulega fram í fjölmiðlun til að dásama fjármálaundrið,má nefna  Ingólf Bender hjá Glitni og Eddu Rós Karlsdóttur hjá Landsbanka. Fjölmiðlar reyndust útrásinni tryggir þjónar án nokkurrar gagnrýni. Forseti lýðveldisins nýtti forsetaembættið og kom fram sem sérstakur verndari "fjármálagarkanna" í orði og á borði. Þá má nefna til sögunnar virta háskóla -og viðskiptafræðinga er verðlaunuðu sérstaklega fyrir "fjármálasnilldina".Raunveruleg staða var, að pólitískt vald varð af framangreindum ástæðum  veikt, lítið sem  ekkert varð  aðgert. Ef Geir Haarde vissi  um að ástandið væri alvarlegt má telja víst  ef  hann hefði reynt að grípa inn, hefðu orðið stjórnarslit, haft alvarlegar afleiðingar og gert stöðu þjóðarinnar enn verri. Áhrifamenn útrásarinnar og Samfylkingarinnar hefðu að líkindum hafið heiftarlega árás með hjálp fjölmiðla er hefði haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

Undirrituð telur að Geir Haarde hafi leitað lags til að breyta stöðunni; og tekist þrátt fyrir erfiðar aðstæður en engir góðir kostir voru til staðar. Pólitískar aðgerðir gátu ekki komið að gagni fyrr en “útárásarvíkingarnir” urðu að leita sér hjálpar hjá Seðlabankanum með fjármál Glitnis, þá loksins ver mögulegt að snúa til betri vegnar en kostaði hrun bankakerfisins.

Hvernig Sjálfstæðisflokknum gengur að verjast áframhaldandi árásum og koma á stöðugleika hjá þjóðinni er undir því komið að Geir Haarde standi af sér fárviðri þeirra sem enn trúa á óhefta fjármálastefnu á ábyrgð þjóðarinnar. Woundering

 

 Áhrifamenn í viðskiptalífinun er studdu útrásina: Sideways

Dómnefndina er var skipuð valinkunnu  fólki á viðskiptasviði ásamt háskólamenntuðum fræðimönnum til að verðlauna útrásina:

 Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Jafet Ólafsson hjá VBS fjárfestingabanka, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Ásta Dís Óladóttir, dósent á Bifröst, Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, Hafliði Helgason, fyrrverandi ritstjóri Markaðarins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson, prófessor í HR, Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Milestone og formaður stjórnar SVÞ, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.

 

 

 


mbl.is „Hefði átt að vera búið að stoppa ykkur fyrir löngu"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samfylking "stikkfrí" í stjórnarsamstarfinu

Minnir á leik er undirrituð lærði í æsku  að vera "stikkfrí" ef  börn vildu ekki vera með en var auðvitað barnaleikur. Samfylkingin er "stikkfrí" í stjórnarsamstarfinu hefur ekki ennþá slitið barnsskónum  hentar ekki að axla ábyrgð; á  þeirra maður, formaður fjármáleftirlitsins  að sitja  áfram  eða er hann "stikkfrí", hann er líka  varaformaður í seðlabankanum - og gamall pólitíkus.? Whistling

Ekkert annað að gera en slíta stjórnarsamstarfinu og vinna með Vinstri grænum ef mögulegt er.


mbl.is Samfylking afneitar Davíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ný stjórnarmyndun og síðan kosningar?

Það er siferðilega rangt  af virtum stjórnmála -og  fræðimönnum að boða inngöngu í ESB og upptöku Evru sem eingöngu lausn vandamála  á erfiðum tímum  er áhjákvæmilega eru framundan. Eftir yfirlýsingu Samfylkingar um að hún beri ekki ábyrgð á gerðum  Seðlabankastjóra getur ekki verið mjög langt í stjórnaslit. Frá sjónarhóli undirritaðrar  eru það áhrifamenn Samfylkingar er jafnframt eru fyrrverandi (núverandi?) stuðningsmenn fjármálagarkanna er sitja í baksætinu og vilja taka völdin í Seðlabankanum ef þess er nokkur kostur?  Forsætisráðherra hlýtur að leita lags og semja við Vinstri græna til að taka með ábyrgð á ákvörðunum varðandi efnahagsmál er hljóta að fara fram áður en raunhæft verður  að efna til kosninga.

Vinir okkar eru ekki lengur Bretar og Bandaríkjamenn nema þegar hagstætt er að líta til landfræðilegrar stöðu og auðlinda landsins. Áhugi ESB á  er af sama toga að komast yfir auðlindirnar  fá afraksturinn með sjálfdæmi eftir inngöngu í ESB; sjálfstæði lítillar þjóðar  byggjast á frjálsum viðskiptum sem víðast en ekki innan stórra efnahagbandalaga er snúast um að halda  eigin framleiðslu í háu verði.

 

Þá fara hagsmunir okkar betur saman með Norðurlandaþjóðum, Kanada og Rússlandi. Auðlindir norðursins á þessum slóðum eru sameiginlegir hagsmunir er skynsamlegt veður að framfylgja  ;hvað varðar  “félagsvelferðarkerfi” og styrkjum í allt mögulegt og ómögulegt  hjá  ESB hafa   ekki orðið raunveruleiki í núverandi kreppu, smærri þjóðir eiga lítið bakland hjá ESB þegar á reynir.


Allraheilagramessa

Allraheilagramessa var ein af helgustu hátíðum í kaþólsku og þekkt hér með íslensku nafni frá elstu tímum. Messunni var haldið fram yfir siðaskipti (Lútherskan sið) til 1770. Eftirfarandi texti úr Jesaja er lesin á Allraheilagramessu:

 

Biblían:

Jes 60. 19-21

19Sólin verður ekki framar ljós þitt um daga
og tunglið ekki birta þín um nætur
heldur verður Drottinn þér eilíft ljós
og Guð þinn verður þér dýrðarljómi.
20Sól þín gengur aldrei til viðar
og tungl þitt minnkar ekki framar
því að Drottinn verður þér eilíft ljós
og sorgardagar þínir á enda.
21Allir þegnar þínir eru réttlátir,
þeir munu ævinlega eiga landið.
Þeir eru garður Drottins sem ég hef gróðursett,
handaverk hans

 

Góða helgiHappyHalo

 

 

 

 


Hverjir bera ábyrgð í útrásinni?

Hverjir bera ábyrgð á   núverandi ástanda fjármála – og efnahafskreppunni hér á landi? Var grafið undan pólitísku valdi er gat ekki tekið á fjármálastefnunni?  Samfylkingunni hefur enn tekist að skjóta sér undan ábyrgð þrátt fyrir að vera í ríkisstjórn með því að persónugera hrunið í Davíð Oddssyni, seðlabankastjóra með hjálp áhrifafólks innan viðskiptalífisins þar sem fjölmiðlarnir hafa lagt sitt af mörkum til að fela og fegra brask "útrásarvíkinganna" eins og kostur er.

Útrásin var byggð upp með sterkri samstöðu bankanna með stöðugum auglýsingum út á við með greiningaraðilum bankanna er komu reglulega fram í fjölmiðlun til að dásama fjármálaundrið,má nefna  Ingólf Bender hjá Glitni og Eddu Rós Karlsdóttur hjá Landsbanka. Fjölmiðlar reyndust útrásinni tryggir þjónar án nokkurrar gagnrýni. Forseti lýðveldisins nýtti forsetaembættið og kom fram sem sérstakur verndari "fjármálagarkanna" í orði og á borði. Þá má nefna til sögunnar virta háskóla -og viðskiptafræðinga er verðlaunuðu sérstaklega fyrir "fjármálasnilldina".Raunveruleg staða var, að pólitískt vald varð af framangreindum ástæðum  veikt, lítið sem  ekkert varð  aðgert. Ef Geir Haarde vissi  um að ástandið væri alvarlegt má telja víst  ef  hann hefði reynt að grípa inn, hefðu orðið stjórnarslit, haft alvarlegar afleiðingar og gert stöðu þjóðarinnar enn verri. Áhrifamenn útrásarinnar og Samfylkingarinnar hefðu að líkindum hafið heiftarlega árás með hjálp fjölmiðla er hefði haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar.

Undirrituð telur að Geir Haarde hafi leitað lags til að breyta stöðunni; og tekist þrátt fyrir erfiðar aðstæður en engir góðir kostir voru til staðar. Pólitískar aðgerðir gátu ekki komið að gagni fyrr en “útárásarvíkingarnir” urðu að leita sér hjálpar hjá Seðlabankanum með fjármál Glitnis, þá loksins ver mögulegt að snúa til betri vegnar en kostaði hrun bankakerfisins.  

Hvernig Sjálfstæðisflokknum gengur að verjast áframhaldandi árásum og koma á stöðugleika hjá þjóðinni er undir því komið að Geir Haarde standi af sér fárviðri þeirra sem enn trúa á óhefta fjármálastefnu á ábyrgð þjóðarinnar. Woundering

 

 Áhrifamenn í viðskiptalífinun er studdu útrásina: Sideways

Dómnefndina er var skipuð valinkunnu  fólki á viðskiptasviði ásamt háskólamenntuðum fræðimönnum til að verðlauna útrásina:

 Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, Edda Rós Karlsdóttir, forstöðumaður greiningardeildar Landsbankans, Svafa Grönfeldt, rektor Háskólans í Reykjavík, Halla Tómasdóttir, stjórnarformaður Auður Capital, Finnur Oddsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs, Ágúst Einarsson, rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst, Ólafur Ísleifsson, lektor við HR, Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital, Jafet Ólafsson hjá VBS fjárfestingabanka, Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, Ásta Dís Óladóttir, dósent á Bifröst, Þorsteinn Þorgeirsson, skrifstofustjóri efnahagsskrifstofu fjármálaráðuneytisins, Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, Hafliði Helgason, fyrrverandi ritstjóri Markaðarins, Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, Gunnar Ólafur Haraldsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar, Friðrik Már Baldursson, prófessor í HR, Hrund Rudólfsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Milestone og formaður stjórnar SVÞ, Jón Þór Sturluson, aðstoðarmaður viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson, framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja.Errm

 

 


mbl.is Aðvörunin verði rannsökuð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hamingju fjórburafjölskylda!

Frábærir fjórburar, foreldrarnir eru örugglega stoltir af  barnaláninu;  lán sem ekki  þarf að greiða kemur frá Guði sjálfum veitir sanna gleði er mölur og ryð fær ekki grandað.Smile Halo
mbl.is Íslensku fjórburarnir tvítugir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband