Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag
28.10.2008 | 10:37
Aðgerðir seðlabankans orka tvímælis?
Vandaður fréttaflutningur eftirtektarvert að hagspekingurinn segir seðlabankann ekki sýna fram á rök um lækkun vaxta um daginn og telur óvarlegt að hafa vexti lægri en verðbólgustigið. Afar mikilvægt að seðlabankinn fái gagnrýni með rökum og geri grein fyrir gerðum sínum í fréttum til almennings.
Hagfræðingar gera mistök eins og í ljós hefur komið að frjáls markaður með enga íhlutun ríkisvalds hefur beðið skipbrot í heiminum. Orkar tvímælis að hagfræðingar hérlendis komi fram í "æsifréttastíl" en ekki að ábyrgð og yfirvegun.
Ábyrg ummæli hagfræðings eru almenningi mikils viðri eins og fram kemur í framangreindri frétt.
![]() |
Harkalega skipt um gír |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.10.2008 | 09:33
Hörmulegt slys - óttaslegnir unglingar
Gefur að skilja að unglingarnir er lentu í þessu hörmulega slysi hafi fengið sjokk en ef rétt reynist samkvæmt fréttum að ekkert barnanna gaf sig fram eða þorað að lát vita af slysinu er hörmulegt.
Eru unglingar okkar svo tortryggnir út í samfélagið að í undirmeðvitund þeirra búi svo mikil hræðsla að best sé að láta engann vita? Það er alvarleg staða er þarf að kanna ef unglingarnir eru hræddir við að leita sér hjálpar þegar þegar þeir eru í vanræðum hvað þá er þeir lenda í voðalegur slysi.
Ef rétt reynist þarf samfélagið að kanna hvað hægt er að gera svo unglingar finni til trausts og öryggis; þeirra hugsun sé fyrst og síðast, "við leitum hjálpar á hættustundu".
![]() |
Enn leitað til öryggis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:41 | Slóð | Facebook
27.10.2008 | 17:00
"Áróður gegn almannahag - galdrabrennur áfram?"


![]() |
Seðlabanki andmælir Björgólfi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:29 | Slóð | Facebook
27.10.2008 | 12:25
Minni neysla - minni samfélagsleg vandamál

![]() |
Bretar hættir í bjórnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.10.2008 | 07:12
ESB - "upplýsing og frjáls hugsun að ofan"
Munurinn á stefnu Jóns Sigurðssonar forseta og upplýsingarstefnunnar hér á landi var eftirfarandi í grófum dráttum: Upplýsingarmenn er voru embættismenn vildu framfarir en komu eingöngu að ofan, útgáfa bóka og rita var mikil að vöxtum, stórhuga menn með framfarir í huga; voru ekki í beinum tengslum við þjóðina sjálfa og hvaða möguleika hún hafði til að tileinka sér framfarir og framkvæma þær í harðbýlu veglausu landi; má telja áðurnefnda embættismenn fjarlæga (hrokafulla?) alþýðu manna.
Jón Sigurðsson gerði sér hinsvegar far um að vera í beinum tengslum við atvinnulífið er þá var bændasamfélagið og þá möguleika er þar var að finna. Það varð félagsleg vakning víða um land er varð hvatinn að þeim framförum er Jón Sigurðsson stóð fyrir - grundvöllur efnahagslegra framfara og síðar sjálfstæðrar þjóðar. Stefna Jóns í fræðslu - og skólamálum var af sama toga er nýttist beint við aðstæður í þjóðlífinu og studdu ótvírætt stefnu hans.
Hvað er að gerast nú í atvinnu- og uppbyggingu þjóðarinnar er ekki verið að koma henni í ESB með "upplýsingu" að ofan en ekki í samræmi hvað fámenn þjóð getur staðið fyrir? Horft til framtíðar hlýtur þjóðin að nýta náttúruauðlindir og mannauð til að viðhalda atvinnulífinu? Frumþarfir þjóðarinnar verða best tryggðar með sterkum landbúnaði; skynsamlegri nýtingu fiskistofna er ekki eingöngu verða byggð á "reiknilíkani fiskifræðinnar" þar sem forsendur geta tæplega verið trúverðugar vegna þess "náttúrulögmál" fiskifræðinnar er enn ekki uppgötvað.
Að framansögðu er allt eins víst að ESB- stefnan um sameiningu dæmi sig sjálf úr leik vegna þess hún er framkvæmd af "risaskrifræðinu" í Brussel , tekur ákvarðanir óháð lýðræðislegum kosningum ríkja - virtar að vettugi innan sambandsins. Lissabonframkvæmdin/stjórnarskrá sameiginlegra ríkja skal framkvæmd í engu samræmi við þann menningarlega eða efnahagslega veruleika sem er til staðar.
Er frjáls þá hugsum á undanhaldi; er henni einnig stjórnað að ofan með "frjálsum ókeypis blöðum" þar sem auglýsingar stórfyrirtækja ráða ferðinni og er í raun "ritstjórnin" á viðkomandi blöðum - er "lýðurinn" á að tileinka sér hugsunarlaust?
Framagreind hugleiðing varð til eftir lestur sunnudagsblaðs Morgunblaðsins í gær.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:08 | Slóð | Facebook
27.10.2008 | 04:29
Hver á Morgunblaðið - gufar sæluríkið upp?
Undirrituð hefur ekki náð þessi viðtali ennþá þarf að lesa það aftur en hver á Morgunblaðið? Björgúlfur gat ekki svarað en hann er skrifaður fyrir þessum "frjálsa fjölmiðli¨" ennþá? Vonandi verður Ársvakur almenningshlutafélag þegar rofar til.
Krónan ónýt en um hvað er verið að tala, efnagaskerfið og einkaneyslan langt umfram útflutningssverðmæti, öllu sem er eitt umfram eignir hlýtur að verða greitt um síðir? Innganga í ESB breytir ekki þeirri staðreynd enda ekki vissa fyrir að sambandið lifi af þessar efnahagshremmingar, hugsanlega er Evran skráð of hátt? - gufar sæluríkið upp?
![]() |
Krónan stærsta vandamálið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2008 | 21:22
"Valgerður sýpur kálið"
"Ekki er sopið kálið þó í ausuna sé komið", þjóðin á eftir að segja sitt síðasta orð ef hún lifir af bankahremmingarnar. Aldrei hefur þótt drengilegt að ráðast á "liggjandi mann"er ekki getur björg sér veitt. Varaformanni Framsóknar finnst hins vegar tækifærið kærkomið til að koma fram skoðunum sínum til að selja sig til Brussel. Sárt til þess að hugsa að hún sé þingmaður í heimabyggð minni en ekki er öll von úti vonandi að hún detti út af þingi?
![]() |
Vilja ESB-viðræður strax ásamt upptöku evru |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 27.10.2008 kl. 04:09 | Slóð | Facebook
26.10.2008 | 18:04
Fjármálakreppan var séð fyrir?
Jóhannes Björn Lúðvíksson var í Silfri Egils í dag áður hafði hann verið í Viðtalið við Egil í desember árið 2004. Fróðlegt að kynna sér skrif Jóhanns á vald.org. Setti inn nokkrar glefsur til fróðleiks. Undirrituð fær þau hugsanatengsl hvort fjármálaeftirlitið og kauphallaforstjórinn hafi vitað um svipaða "hagfræði" hérlendis og hér er lýst:
Það er varla hægt að byrja að svara þessu rugli. Endurpökkun lána byrjaði fyrir alvöru undir Bush, skjalafals hefur aldrei verið löglegt og enginn neyddi bónusgreiðslum upp á kerfið. Bankarnir stunduðu algjörlega ábyrgðarlausa lánastarfsemi vegna þess að þeir gátu endurselt lánin og þeir kenndu starfsmönnum sínum að fara í kringum kerfið. Hér er lýsing á hvernig JPMorgan Chase lék þennan leik.
Fyrirtæki sem áttu að meta þessa ruslapappíra voru á kafi í svindlinu og bera mikla ábyrgð á að þetta eitur barst út um allan heim og setti bankakerfið á annan endann. Þessi grein lýsir því í[19. september 2004] Margir sem hafa lesið áttunda kafla Falið vald eiga samt erfitt með að kyngja því að bankakerfið geti búið til peninga úr engu. Helsta ástæðan fyrir þessu er vafalaust sú að venjulegt fólk fær venjulega ekki eitthvað fyrir ekkert og er vant því að þurfa að greiða sínar eigin skuldir á gjaldaga. Bókhaldsreglur fyrirtækja og heimila gera ráð fyrir að dálkarnir gangi upp. [meira
[3. október 2008] Tæknilega séð þá er heimskreppa skollin á og nú er aðeins að sjá hvernig ráðamennog þá sérstaklega í Bandaríkjunumbregðast við. Verður hnúturinn leystur á nokkrum vikum eða verður þröngum hagsmunum hyglað með yfirborðslegum aðgerðum á meðan allur almenningur lepur dauðann úr skel árum saman?
Starfsmenn fjárfestingabanka voru í áratug ein best launaða stétt jarðarinnar. Bankarnir byggðu upp kerfi sem gaf af sér feikilegan gróða á meðan allt lék í lyndi. Lánum var endurpakkað, yfirtökur fyrirtækja (oft óraunhæfar) fjármagnaðar og alls konar alþjóðlegt peningastreymi magnaðist. Þegar fasteignabólan sprakk féll þetta kerfi saman með afleiðingum sem við sjáum allt í kringum okkur í dag. Eftir stendur að þótt bankakreppan leystist strax á morgun þá gæti þessi peningamaskína ekki tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið. Þetta módel er dautt. Bankastarfsemi næstu ára á eftir að bera miklu meiri keim af 1975 heldur en 2005.
Það er varla hægt að byrja að svara þessu rugli. Endurpökkun lána byrjaði fyrir alvöru undir Bush, skjalafals hefur aldrei verið löglegt og enginn neyddi bónusgreiðslum upp á kerfið. Bankarnir stunduðu algjörlega ábyrgðarlausa lánastarfsemi vegna þess að þeir gátu endurselt lánin og þeir kenndu starfsmönnum sínum að fara í kringum kerfið. Hér er lýsing á hvernig JPMorgan Chase lék þennan leik.
Fyrirtæki sem áttu að meta þessa ruslapappíra voru á kafi í svindlinu og bera mikla ábyrgð á að þetta eitur barst út um allan heim og setti bankakerfið á annan endann. Þessi grein lýsir því í smáatriðum.
Lesa meira á vald.org (Jóhanes Björn Lúðvíksson)
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:51 | Slóð | Facebook
26.10.2008 | 14:24
Marklaus skoðanakönnun
![]() |
Minnihluti styður stjórnina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.10.2008 | 00:45
Samfylking - með betlistaf til ESB
Undarleg samþykkt að vilja fara með betlistaf til Brussel nú þegar engar forsendur eru einu sinni að kanna viðræður hvað þá annað. Veit þetta fólk hvers vegna er svo illa komið fyrir þjóðinni? Vegna þess við gengum í EES og engar hömlur voru á útrás bankanna er urðu alltof stórir og gerðu þjóðina næstum gjaldþrota. Hver var það sem átti stærstan þátt í inngöngu í EES var það Davíð Oddsson? Nei það er "Guðfaðir" Samfylkingarinnar Jón Baldvin Hannibalsson er nú stendur úti á stræti og mótmælir sínum eigin gerðum?
Engin þörf á stærri bönkum en íslenskt atvinnulíf þarf til að flytja út það sem þjóðin sjálf framleiðir úr auðlindum sínum og hugviti okkar fólks. Ef "fjármálagarkar" þurfa meira rúm en hér á Íslandi þá beri þeir sjálfir ábyrgð en ekki íslenska þjóðin.
ESB hefur engan áhuga fyrir þessum þrjú hundruð þúsund manns er hér búa heldur auðlindunum til lands og sjávar. Sýnt sig undanfarið að "félagslega velferðarkerfið" er á að vera öruggt og fullkomið í ESB hjálpar ekki löndum innan sinna marka er eiga í erfiðleikum/bankakreppu nú um stundir.
Vont að missa bankana en verra ef auðlindir þjóðarinnar hefðu verið veðsettar líka en Davíð Oddson mun hafa komið í veg fyrir það. Ólíklegt að meirihluti þjóðarinnar muni nokkurn tíma samþykkja inngöngu í ESB eftir það sem á undan gegnið.
![]() |
Aðildarviðræður við ESB strax |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:18 | Slóð | Facebook