Undarlega samsettir ríkistjórnarflokkar, Samfylkingin hundflöt fyrir erlendu valdi fórnar þjóðhátíðardeginum með ánægju; "fyrir dásmemdina í Brussel" hinsvegar Vinstri grænir er ekki geta hugsað sér erlent fjármagn með eðlilegum samningum.
Allt stendur fast í atvinnumálum ekkert í sjónmáli; nema Árni Páll boðar herferð í vasa öryrkja og eldriborgara, hins vegar Vinstri grænir með meiri skatta og ennþá meiri skatta.
Hversu lengi þolir þjóðin andfélagslega ríkistjórn.
![]() |
Varpi ekki skugga á 17. júní |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:57 | Slóð | Facebook
21.5.2010 | 12:50
Framtak og áræðni
Góðar fréttir að efla atvinnulífið og fá erlenda aðila til samstarfs með hagstæðum kjörum. Ef Vinstri grænir geta ekki sætt sig við erlent fjármagn verða þeir að fara úr ríkistjórn. Gengur ekki lengur að hrópa "úlfur, úlfur"! í hvert skipti er einhver sýnir framtak og hugrekki að skapa nýja möguleika í atvinnu með erlendu fjármagni.
![]() |
Gagnavinnsla Opera til Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:51 | Slóð | Facebook
20.5.2010 | 21:16
Árás á Alþingi sagan endurtekin
Skondið að sjá dóttur Jóns Múla Árnasonar í Kastljósi RUV í kvöld hún er ein af sakborningum fyrir að ráðast á Alþingishúsið. Rifjar upp æskuminningar er ég fór smákrakkinn ríðandi milli bæja með náðunarskjal til forseta um að náða föður hennar (og félaga) er höfðu ráðist á Alþingishúsið að mig minnir með grjótkasti og bareflum.
Mér er minnistæður afabróðir minn er vildi ekki skrifa undir fyrir ofbeldismenn er misbuðu hinu háa Alþingi. Ég þóttist vita betur og sagði honum að alþingismenn væri að selja landið það væri glæpurinn. Hann hló mikið ekki man ég samt hvort hann skrifaði undir en Jón Múli og félagar voru náðaðir vegna kröfu almennings.
Sagan mun endurtaka sig engin vafi; ef núverandi sakborningar verða dæmdir sekir þá mun þjóðin krefjast náðunar, er auðveldara nú með tölvutækninni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt 22.5.2010 kl. 10:28 | Slóð | Facebook
20.5.2010 | 11:48
Vinstri grænir: velferð snúið á haus
Velferðarríki samkvæmt orðabók þýðir: " (iðnþróað) ríki ríki sem á að sjá hag þegna sinni borgið og vernda þá gegn ýmis konar áföllum, t.d. með ýmis konar tryggingum". Nú er merkingin velferð sett á haus hjá Ólafi Þór Gunnarssyni oddvita Vinstri grænna í Kópavogi, merkir fyrst og fremst atvinna og menntun.
Menntun er grundvallaratriði en er ekki fólgin í of mörgum háskólum; hér á landi er kerfið orðið skrýmsli með fjórar háskóladeildir í lögfræði og enn fleiri í viðskiptafræði. Betra að hafa færri háskóla með vandaðar rannsóknir og víðtæka menntun er þjónar einnig atvinnulífinu enn betur - og efnahagskerfið ræður við, kemur að gagni fyrir og framþróun; hagræðing í háskólakerfinu er að kallandi verkefni.
Stefna Vinstri grænna í atvinnumálum er þrögnsýni og hugleysi við ákvarðanatöku. Helst má hvergi virkja og alls ekki nota erlent fjármagn. Hvernig væri staða þjóðarbúsins ef ekki hefði verið virkjað hér á landi með erlendu fjármagni?
Nýjasta dæmið er upphlaup vinstri grænna um atvinnuuppbyggingu á Suðurnesjum er byggir á samvinnu við erlenda fjárfesta frá Kanada. Ekki má nefna rannsóknir í nágrenni Kerlingarfjalla er ekkert getur skaðað náttúrverndarsvæði þar. Hrunamenn horfa til framtíðar og vilja samstarf um orkunýtingu við erlenda aðila með ódýrari orku til uppbyggingar gróðurhúsaræktun þjóðinni til hagsbóta fyrir atvinnulíf - og ódýrari framleiðslu.
Nei, ekkert í pípunum hjá Vinstri grænum nema skattahækkanir og aftur skattahækkanir er mun enn frekar lama atvinnulífið og skerða lífskjör fólks meira en orðið er.
Ólafur Gunnarsson er hámenntaður læknir með sérgrein í öldrunarlækningum er mundi betur nýtast í starfi sínu sem læknir; umdeilanlegt hvort svo dýrt menntaður maður á að vera í stjórnmálum?
Ekki álitleg stefna Ólafs Gunnarssonar að setja merkingu velferðar á haus og skilgreina hana fyrst og fremst sem menntun og atvinnu; á eggið að koma á undan hænunni?
![]() |
Vinstri græn vilja íbúatengilið í Kópavog |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:30 | Slóð | Facebook
19.5.2010 | 21:02
Frjálslynda flokkinn fyrir Kópavog? - eða strika út Ármann Kr. Ólafsson
Kynning frambjóðenda í komandi kosningum í RUV í kvöld var ekki áhugaverð hvað snerti gömlu fjórflokkana í Kópavogi, enginn þeirra traustvekjandi. Enginn nefndi velferðarkerfið eða félagslegt jafnræði; enda hafnað endanlega svoleiðis "lúxus" í framkvæmd með að seilast ofna í vasa eldri borgara til að bjarga fjárhag bæjarins.
Oddviti Sjálfstæðismanna Ármann Kr. Ólafsson "renndi sér bakdyramegin inn í prófkjörið" rétt áður en Rannsóknarskýrslan kom út; telja má víst að hann hefði ekki orðið oddviti ef hún hefði komið út áður.Ekki verður horft framhjá lánum og styrkjum oddvita Sjálfstæðisflokksins, Ármanns Kr. Ólafssonar, er fékk 265 millj. lán og styrk 1.050.000 millj. (Rannsóknarskýrsla nr.8.bls165-167).
Erfitt fyrir fólk er vill heiðarleika og mannvæna stefnu að sætta sig við framagreindan oddvita enda sjálfsagt að strika hann út í komandi kosningum; hann getur ekki orðið til frambúðar annars mun flokkurinn missa traust og tiltrú
Frjálslyndi flokkurinn var sá eini er sýndi þá víðsýni að nefna velferðarmál á sinni stefnuskrá. Allir þessi nýju flokkar eru óskrifað blað en ekki verra að kjósa þá en siðspilltu gömlu flokkana með oddvita er hafa lítið annað fram að færa en valdahroka og litla yfirsýn yfir atvinnu- og velferðarmál.
Verður Frjálslyndi flokkurinn álitlegasti flokkurinn í komandi bæjarstjórnarkosningum í Kópavogi; ekki hægt að hugsa sér Sjálfstæðisflokkinn með "hrunoddvita" í brúnni.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:16 | Slóð | Facebook
20.4.2010 | 14:58
Alþingiskosningar sem fyrst!
Þótt tveir eða þrír þingmenn fara frá vegna upplýsinga rannsóknarskýrslunnar er kattarþvottur; þeir ráðherrar Samfylkingar er sátu í hrunsstjórninni og sitja enn eiga að fara frá annað er móðgun við lýðræðið og þjóðina. Ríkisstjórn, þingmenn og stjórnsýsla hafa beðið álitshnekki, þjóðin á rétt að kjósa sér nýja þingmenn sem allra fyrst ekki seinna en í haust.
Sú ríkisstjórn er nú situr hunsar rannsóknarskýrsluna ef hún fer ekki frá; Vinstri grænir viðhalda áframhaldandi spillingu ef þeir sitja áfram í stjórn með Samfylkingunni.
![]() |
Óli Björn og Sigurður Kári taka sæti á þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
20.4.2010 | 11:10
Er Ríkisendurskoðun hafin yfir lög og reglur?


![]() |
Þetta var pólitísk ákvörðun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.4.2010 | 18:10
Fólk til forystu og framtíðar - hreinn skjöldur
Skynsamlegt að setja á laggirnar viðbragðshóp/rannsóknarhóp til að fara yfir aðild þeirra í hruninu og nefndir eru í rannsóknarskýrslunni; þeir sem hafa hlotið óeðlilega fyrirgreiðslu í kosningastyrk undan farin ár eru ekki efnilegir til forystu eða framboðs.
Nú hafa framboðslistar til bæjarstjórnarkosninga verið ákveðnir erfitt verður að kalla þá til ábyrgðar er þar sitja og hafa þegið fyrirgreiðslu af hrunbönkunum.
Ekki ásættanlegt að oddviti Sjálfstæðisflokks í Kópavogi verði forystumaður flokksins; hann er einn af "styrkþegum/lántakendum" hrunbankanna.
Sjálfstæðisflokknum fyrir bestu að taka alfarið á þeirri spillingu er kann að koma í ljós; stærsti flokkur þjóðarinnar verður að axla ábyrgð og kjósa til forystu nýtt fólk með hreinan skjöld.
![]() |
Boða til aukalandsfundar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook
19.4.2010 | 10:17
Almannahagsmunir - eða flokkshagsmunir!?
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segist hafa brugðist sjálfri sér, flokksmönnum og kjósendum flokksins með því að hafa ekki haldið fast við grundvallarhugmyndir um umbætur á íslenskum stjórnmálum og stjórnsýslu. Er það eingöngu flokkurinn sem skiptir máli? Var Ingibjörg ekki utanríkisráðherra og eiðsvarinn þingmaður um almannahag. Samfylkingin er "ekki þjóðin", Ingibjörg er ábyrg gagnvart allri þjóðinni í störfum sínum sem ráðherra og þingmaður.
Sama er að segja um Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur hún segir: ,... komist að þeirri niðurstöðu að það sé best fyrir Sjálfstæðisflokkinn, eins og sakir standa, að ég láti af embætti varaformanns og fari í tímabundið leyfi sem þingmaður m.a. með tilliti til þeirrar þingnefndar sem er að fjalla um rannsóknarskýrsluna".
Samt má hafa samúð með Þorgerði Katrínu vegna gerða eiginmanns hennar en breytir ekki ábyrgð hennar sem eiginkonu í sameiginlegum fjármálum.
Eru hagsmunir flokksins efst á blaði hjá þessum framangreindu, ráðherrum í hrunstjórninni auk þess að vera eiðsvarnir þingmenn þar sem almannahagur er ofar flokkshagsmunum?
Hafa framgreinar konur ekki fyrst og síðast bruðgðist almannahag; eru flokksmasskínan, hagsmunahópar og flokksmenn í fyrirrúmi?
Sorglegt ef fjórflokkarnir eru svo fastir í eigin hagsmunum að almannahagur er nánast aukaatriði.
(Frétt í Mbl. í dag bls. 12.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:31 | Slóð | Facebook
18.4.2010 | 10:24
Siðferðisvandi stjórnmálanna
1 Stjórnmálin eru nátengd valdinu og valdið spillir. 2 Frelsið á að takmarka valdið. Þegar frelsið hefur náð yfirhönd kemur í ljós að það er ekki síður vandmeðfarið. Hætt er við að algildar siðferðiskröfur verði taldar skerðing á frelsi - sjálfdæmis- og afstæðishyggja fylgir þar á eftir. 3 Í stað siðareglna koma lög sett í anda vildarréttar sem afstæðishyggjumenn tekja sig geta mótað að hentugleikum - jafnvel geðþótta. 4... Lög - hversu vönduð sem þau eru - leysa ekki vandann... siðareglur eru nauðsynleg viðbót... 5 ... þrýstihópar tefla tefla fram gildum er þjóna þröngum hagsmunum þeirra...
6...Stjórnmálamenn elta þrýstihópana og reyna að þóknast þeim... 7 Stjórnmálastarf og stjórnmálaumræða einkennist af viðmiðunarleysi, tæknibrellum og siðferðilegri ringulreið... ...lýtur lögmálum og hegðunarreglum sem brjóta í bága við þær siðgæðisreglur sem samvizka venjulegs óbrenglaðs þjóðfélagsþegns krefst og haldnar séu í heiðri... .
"Þetta er hin siðferðilega sjálfhelda sem þjakar stjórnmál nútímans"
Má segja að hafi fullt gildi í dag.
Brot úr samantekt Sigurðar Líndals, lögfræðiprófessors úr erindi hans, bls. 67-68, "Stjórnmál, lög og siðferði"
Tekið úr ritinu "Siðferði og stjórnmál" Útg. Siðfræðistofnun Háskóla Íslands, 1995.
17.4.2010 | 16:16
"Sovét Ísland óskalandið - fuðraði upp"
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir:"Ég leiddi flokkinn inn í ríkisstjórnarsamstarf sem var þess ekki umkomið að taka á fjármálakerfi, sem við vissum að var stofnað til með pólitískri spillingu og helmingaskiptum." Ingibjörg vildi taka þátt í "spillingunni", með Baugsveldið sem bakhjarl, ætlaði hún ekki að stofna eitt allsherjar fjármálaveldi til að stjórna samfélaginu á öllum sviðum? Allt átti að leggja undir: Háskólamenntun, menningu og mannlíf - engra gagnrýni var lengur þörf.
Því miður dansaði háskólasamfélagið (-og forsetinn) með og þurfa að gera grein fyrir beinum og óbeinum áhrifum sínum í hruninu; annað er ekki siðferðilega boðlegt.
Sem betur fer: "Sovét Ísland óskalandið fuðraði upp á einni nóttu í bankahruninu".
![]() |
Mér finnst ég hafa brugðist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2010 | 13:24
Hvar er flokkurinn "stétt með stétt"
Rétt ákvörðun hjá Þorgerði Katrínu en hver kemur í staðin? Óli Björn Kárason er hann ekki tengdur sukkinu? Sigurður Kári Kristjánsson fyrir Illuga Gunnarsson, þingmaður er hafði eitt fram að færa, fyrsta mál á dagsskrá eftir hrunið, að reyna að koma sprúttfrumvarpi sínu gegnum þingið, er Sigurður Kári ekki einnig aðstoðarmaður formannsins Bjarna Benediktssonar; ekki efnilegur kandídat í endurreisn Sjálfstæðisflokksins.
Hvar er flokkurinn er hafði orðin "stétt með stétt" að kjörorði sínu?; undanfarin ár hafa gráðugir vargar haft og hafa tögl og haldir í flokknum?
Bjarni Benediktsson nefndi í ræðu sinni að flýta þyrfti landsfundi, rétt álit; formaðurinn sjálfur verður að horfast í augu við raunverulega endurreisn og fá mótframboð.
Flokkurinn þarf menn með hreinan skjöld er grasrótin treystir og ber virðingu fyrir.
Nefna má Sigrúnu Jakobsdóttur frá Akureyri og Halldór Halldórsson frá Ísafirði bæði fyrrverandi bæjarstjórar.
![]() |
Þorgerður stígur til hliðar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2010 | 14:30
Enginn má undan líta
Sorglegt, einn geðþekkasti leiðtogi Sjálfstæðisflokksins telur sig knúinn að stíga til hliðar vegna rannsóknar á peningamarkaðssjóðum þar sem hann var í stjórn. Enginn af forystuliði Sjálfstæðisflokksins má undan líta; nú hefur Illugi gefið tóninn ætlar að axla ábyrgð, síðar mun koma í ljós hvort hann er sekur eða saklaus.
Forysta Sjálfstæðisflokksins er tilneydd að horfast í augu við nýtt gildismat með hagsmuni þjóðarinnar að leiðarljósi; annað er ekki í boði eftir birtingu rannsóknarskýrslu Alþingis ef flokkurinn ætlar að vera áfram stærsti flokkur þjóðarinnar.
![]() |
Illugi fer í leyfi frá þingstörfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.4.2010 | 07:52
Kattarþvottur - forysta stjórnmálaflokkanna axli ábyrgð!
Dæmigerður kattarþvottur tæplega frambærilegur eftir birtingu rannsóknarskýrslu Alþingis; Björgvin tekur smáfrí sem þingmaður verður svo allt klappað og klárt? Ráðherrar Samfylkingar er voru ráðherrar í hruninu eiga að segja af sér. Forysta Sjálfstæðisflokksins hlýtur að hugsa sinn gang innvinkuð í fjármálaspillinguna með lánum og styrkjum til framboðs.
Ekki horft framhjá því að markmið bankanna var að ná tangahaldi á stjórnmálamönnum.
Einn af þeim er hlaut ótæpilega styrki og lán er Ármann Kr. Ólafsson oddviti sjálfstæðismanna í Kópavogi; ekki hægt að bjóða kjósendum slíka ósvífni, hann á að segja af sér ekkert minna!
Eftirfarandi listi yfir styrkþega til prófkjörsbaráttu er tekin af mbl.is:
Á árunum 2006-2008 styrktu viðskiptabankarnir Framsóknarflokkinn, Samfylkinguna og Sjálfstæðisflokkinn um samtals 85 milljónir króna. Sjálfstæðisflokkurinn fékk mest eða um 43 milljónir. Margir stjórnmálamenn fengu styrki til að fjármagna prófkjör.
Þetta kemur fram í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis. Framsóknarflokkurinn fékk 16 milljónir í styrki frá bönkunum, mest frá Kaupþingi eða 11 milljónir. Samfylkingin fékk 24 milljónir frá bönkunum, mest 11,5 milljónir frá Kaupþingi. Sjálfstæðisflokkurinn fékk um 43 milljónir, þar af um 30 milljónir frá Landsbankanum. VG fékk ekki styrki frá bönkunum.
Í skýrslunni er haft eftir Sigurjóni Þ. Árnasyni, fyrrverandi bankastjóra Landsbankans, að ekki sé víst að þessar upplýsingar endurspegli heildartöluna. Hann segir að Samfylkingin hafi fengið hærri styrki en flokkurinn hafi skýrt frá. Styrkirnir hafi dreifst á nokkrar kennitölur.
Í skýrslunni er birtur listi yfir stjórnmálamenn sem fengu styrki frá bönkunum til aðkosta prófkjörsbaráttu sína.
Hæsta styrkinn frá Kaupþingi fékk Björn Ingi Hrafnsson (2 milljónir) og Guðfinna S. Bjarnadóttir (2 milljónir). Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fékk 1,5 milljón, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fékk 1150 þúsund, Kristján Möller fékk 1 milljón og Guðlaugur Þ. Þórðarson fékk 1 milljón. Ármann Kr. Ólafsson fékk 300 þúsund, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir fékk 250 þúsund, Björgvin G. Sigurðsson fékk 100 þúsund, Hanna Birna Kristjánsdóttir fékk 100 þúsund, Stefán Jón Hafstein fékk 100 þúsund, Guðni Ágústsson fékk 300 þúsund, Helgi Hjörvar fékk 400 þúsund, Ragnheiður Elín Árnadóttir fékk 250 þúsund og Kjartan Magnússon fékk 100 þúsund.
Landsbankinn styrkti fleiri stjórnmálamenn en Kaupþing. Ármann Kr. Ólafsson fékk 750 þúsund frá Landsbankanum, Árni Páll Árnason fékk 300 þúsund, Ásta Möller fékk 750 þúsund, Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir fékk 300 þúsund, Bjarni Harðarson fékk 200 þúsund, Björgvin G. Sigurðsson fékk 1 milljón, Björk Guðjónsdóttir fékk 50 þúsund, Björn Ingi Hrafnsson fékk 750 þúsund, Dagur B. Eggertsson fékk 500 þúsund, Kristján Möller fékk 1,5 milljón, Guðbjartur Hannesson fékk 1 milljón, Guðfinna S. Bjarnadóttir fékk 1 milljón, Guðlaugur Þ. Þórðarson fékk 1,5 milljón, Hanna Birna Kristjánsdóttir fékk 500 þúsund, Jóhanna Sigurðardóttir fékk 200 þúsund, Júlíus Vífill Ingvarsson fékk 450 þúsund, Katrín Júlíusdóttir fékk 200 þúsund, Kristrún Heimisdóttir fékk 1 milljón, Marta Guðjónsdóttir fékk 150 þúsund, Sigurður Kári Kristjánsson fékk 750 þúsund, Sigurrós Þorgrímsdóttir fékk 250 þúsund, Stefán Jón Hafstein fékk 500 þúsund, Steinunn Valdís Óskarsdóttir fékk 3,5 milljónir, Helgi Hjörvar fékk 400 þúsund, Björn Bjarnason fékk 1,5 milljón, Guðni Ágústsson fékk 500 þúsund, Ragnheiður Elín Árnadóttir fékk 300 þúsund, Kjartan Magnússon fékk 500 þúsund, Valgerður Bjarnadóttir fékk 200 þúsund, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir fékk 1,5 milljón og Össur Skarphéðinsson fékk 1,5 milljón.
Rannsóknarnefndin spurðist fyrir um ferðir stjórnmálamanna með einkaþotum og boð í laxveiðiferðir. Athygli vekur að á farþegalistum er talsvert um merkinguna Unknown Passenger. Einungis nafn eins stjórnmálamanns er á listanum, en í september 2007 ferðaðist Bjarni Benediktsson með einkaþotu Glitnismanna til Skotlands. Bjarni var þá stjórnarformaður N-1.
Fram kemur að Björn Ingi Hrafnsson þáði boðsferð hjá Kaupþingi árið 2007 til London og að hann þáði boð Glitnis í veiðiferð sama ár. Gísli Marteinn Baldursson flaug í boði Glitnis til Rússlands og renndi þar fyrir lax.
![]() |
Björgvin víkur af þingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:20 | Slóð | Facebook
15.4.2010 | 15:47
Oddviti Kópavogs milljónir í kosningastyrk
Fyrir utan lánið (248millj) fékk Ármann Kr. Ólafsson 1.050.000 í kosningastyrk árin 2006-2008 frá Kaupþingi og Landsbanka. (mbl.is13.04) Sorglegt að núverandi oddviti Sjálfstæðismanna í komandi bæjarstjórnarkosningum skuli hafa þegið svo mikla fjármuni, nánast keypt sér fylgi; verða ekki hagsmunir almennings léttvægir þegar svona spilling þrífst, eru það ekki þeir sem styrkina veita er hafa mestu áhrifin?
Í "afsökunarbréfi" til Sjálfstæðismanna skrifar Ármann: .."Þegar ég hef boðið mig fram til opinberra starfa í prófkjörum hef ég lagt mikið upp úr tengingu minni við atvinnulífið. Ég tel mikilvægt fyrir þátttakendur í stjórnmálum að hafa innsýn í atvinnulífið"...
Yfirsýn yfir atvinnulífið er góð og gild en hver hefur yfirsýn yfir heildarhagsmuni verið í tíð núverandi bæjarstjórnar eftir að Gunnar Birgisisson fór frá?
Sem forseti bæjarstjórnar samþykkti Ármann/ öll bæjastjórnin aðför að eldri borgurum með gjaldtöku í sund án nokkurs samráðs við þá, félagsleg gildi er allir njóta þegar upp er staðið.
Undafarið kjörtímabil höfðu Kópavogsbúar góða yfirsýn og forystu yfir velferð og hag Kópavogsbúa undir leiðsögn Sigurðar Geirdal; farsælan leiðtoga er lést fyrir aldur fram.
Gunnar Birgisson tók þá við bæjarstjórnarkyndlinum, hélt áfram á sömu braut og Sigurður þrátt fyrir hatursfullar og málefnasnauðar árásir af fólki; er þó lagði sjaldan eða aldrei lagði nokkuð til er betur mætti fari um hag bæjarbúa.
Framagreind aðförin að eldri borgurum ásamt stórum fjárfúlgum í styrkjum og lánum lofa ekki góðu um; að oddviti Sjálfstæðismanna í komandi bæjarstjórnarkosningum hafi nægilega yfirsýn til allra átta um velferð Kópavogsbúa.
Erfitt er um vik fyrir Sjálfstæðisfólk þegar prófkjör er afstaðið að gera breytingar; allavega ætlar undirrituð að að strika Ármann Kr Ólafsson út sem oddvita Sjáfstæðisflokksins.
![]() |
Engin lán verið afskrifuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.5.2010 kl. 11:47 | Slóð | Facebook
14.4.2010 | 03:24
Vítavert ábyrgðarleysi þingmanns gagnvart þjóð og forseta.
Meðan situr við völd ríkisstjórn er hefur tæplega meirihluta en tekist að neyða þingmenn sína að koma fram málum sínum, þá er visst öryggi að núverandi forseti sitji áfram. Forsetinn hefur harmað óbeina aðild sína að hruninu, stigið fram af ábyrgð og festu; hafnað klúðurslögum ríkisstjórnarinnar um Ícesaveskuldina er ríkistjórnin hafði ekki meirihluta í raun að koma fram í þinginu.
Stjórnskráin kveður skýrt um samkvæmt 26. gr. að forsetinn getur vísað samþykktum lögum Alþingis til þjóðarinnar.
Ekki skynsamlegt að forsetinn segi af sér við þær að stæður er þjóðin býr við í dag þar sem þingmenn og stjórnkerfið í heild njóta ekki trausts hennar.
Ótímabær afsögn forsetans eykur aðeins á tortryggni meðal þjóðarinnar á óvissutímum í stjórn landsins sem tæplega er á bætandi.
Björn Valur Gíslason þingmaður sýnir vítavert hrokafullt ábyrgðarleysi gagnvart þjóðinni sem þingmaður; virðist ekki gera sér grein fyrir hvað ástand er viðkvæmt í samfélaginu eða það skiptir hann engu máli.
Björn Valur Gíslason ætti hins vegar fremur að segja af sér sem þingmaður vegna ofangreindra ummæla um forsetann.
![]() |
Hvatti forsetann til að segja af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:44 | Slóð | Facebook
13.4.2010 | 13:07
"Eldri borgarar rændir þrjátíu milljörðum"
Eldri borgarar 65ára og eldri töpuðu a.m.k. þrjátíu milljörðum í bönkunum var reynt með öllum ráðum að setja sparnað þeirra í betri "ávöxtun/peningamarkaðssjóði/hlutabréf" með "sölutricum af umhyggju til innlánsþega"
Manninum mínum var boðin "framagreind sölutric" en svaraði: "Aldrei meðan ég er á lifi kaupi ég hlutabréf af ykkur", svarið sem hann fékk af bankamanninum var: "Þú er ekki með öllum mjalla", maðurinn minn svaraði til baka: "Spyrjum að leikslokum".
Því miður lifði hann ekki að geta spurt að leikslokum var mikið veikur en með fulla andlega reisn.
Langur tími mun líða áður en ég treysti bankanum ef til vill aldrei aftur.
![]() |
Reynt að blekkja viðskiptavini bankanna |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:30 | Slóð | Facebook
13.4.2010 | 11:28
Skýrslan: Átta kg af spillingu og mistökum
Þá er Rannsóknarskýrslan komin í hús, átta kg af græðgi, fjármálasvikum og landráðum af þeim er trúað var fyrir fjármálastjórninni í landinu; nútíma "Sturlungasaga" er segir sögu manna er einskis svifust frekar en á 13. öld.
Nægir okkur bloggurum alla öldina til úrvinnslu eða lengur. Tímabil úr sögu lítillar þjóðar með stórmennskubrjálæði er ætlaði að sigra heiminn.
Er það ekki að sigra heiminn að búa í landinu við þau kjör sem við getum skapað okkur á eigin forsendum; verið lítil þjóð í samfélagi þjóðanna?
Betra að hafa úr minna að spila nú i fyrstu; en að verða fjármálaspillingar/eyja með nokkur háhýsi, banka, fjármálahallir, spilavíti og tilheyrandi spillingu/ólifnað eins og ætlunin var.
13.4.2010 | 09:26
Hengja bakara fyrir smið?
Undarleg staða Björgvins G. Sigurðssonar, dregin upp úr skúffu iðnaðarráðuneytisins/ er var staða hans sem bankamálaráðherra. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir virðist hafa haft einræði, fjarverandi stjórnað gjörðum Össurar Skarphéðinssonar þáverandi iðnaðarráðherra; hvenær skúffan var opnuð og Björgvin bankamálaráðherra fékk upplýsingar um bankahrunið.
Lög voru brotin, Björgvin bankamálaráðherra fékk ekki að vita um gang mála; nú er "ruslaskúffan í Samfylkingunni" opnuð til setja Björgvin fyrir Landsdóm vegna vanrækslu í starfi; er ekki verið að hengja bakara fyrir smið?
![]() |
Vanræksla þriggja ráðherra með athafnaleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.4.2010 | 05:19
Ráðlaus ríkisstjórn
Ábyrgðarleysi Samfylkingar var algjört við hrunið og í nútíð og framtíð; móðgun við lýðræðið og þjóðina að Össur Skarphéðinsson skuli enn sitja sem ráðherra. Vinstri grænir bera mikla ábyrgð að sitja í ríkisstjórn með Samfylkingunni eins og ekkert hafi gerst. Þótt þeir eigi ekki beina aðild af því sem gerðist er þeir samsekir Samfylkingu; sýna þjóðinni lítilsvirðingu að sitja með þeim í stjórn.
Eftir kosningar samþykkja vinstri grænir að ganga til samninga um ESB í Brussel. Er það aðalatriði mitt í þrengingum þjóðarinnar? Talsmenn Samfylkingar eru ekki trúverðugir mikil hætta er á að þjóðin missi fjöregg sitt fiskimiðin - og landbúnað.
Hvað er þá eftir af áhrifum og þátttöku í samfélagi þjóðanna? Ekkert, menning og efnahagslegt sjálfstæði þjóðar verða ekki sundurskilin; við hverfum í þjóðarhaf Evrópu, hverfum af sviðinu sem þjóð.
Jóhanna og Steingrímu hanga eins og hundar á roði við stjórn landsins en hafa enga burði til að stjórna landinu það hefur "Icesavekúðrið" sýnt.
Þrátt fyrir allt og allt var hressandi að hlusta á Geir Haarde í sjónvarpinu í gærkveldi, hann var fastur fyrir lét ekki fréttamanninn vaða ofan í sig. Viðurkenndi að stjórn landsins hefði farið úr böndum en kom fram sem ábyrgur leiðtogi, foringi er vildi og gerði sitt besta er í óefni var komið.
Jóhanna Steingrímur hafa tamarkaðan styrk við stjórnvölin halda sig í skotgröfinni, kenna fortíðinni um þegar allt um þrýtur, framtíðarsýn og þjóðarhagur viðrist vera framandi hugsun í þeirra stjórnmálaheimi.
![]() |
Valdarán Davíðs Oddssonar" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 06:43 | Slóð | Facebook