5.6.2010 | 07:37
Stóru flokkarnir milli steins og sleggju
Öllu gamni fylgir nokkur alvara er breyttist í raunveruleika Jón Gnarr varð "alvöruborgarstjóri". Enginn síst hann bjóst tæpast við þvílíku fylgi. Framboð hans varð vænlegasti kosturinn fyrir Reykvíkinga en hvers vegna? Almennir borgarar gera kröfu um stjórnmál þar sem hagsmunir þeirra eru ekki fyrir borð bornir.; kröfu um betri stjórnsýslu, betri viðskiptahætti, svik og prettir verði ekki lengur við líði.
Gnarr reynir að spila úr erfiðri stöðu ætlar að halda áhrifum sínum. Ekki árennilegt að taka saman við Samfylkingu og Sjálfstæðisflokk. Engin oddastaða í þeirri stöðu stóru flokkarnir með yfirburða meirihluta hefðu fljótlega með bolabrögðum ýtt Gnarr til hliðar eftir stuttan tíma.
Nú hefur Gnarr "hreðjatök" á Degi B. Eggertssyni ef hann stekkur frá borði þá kemur Sjálfstæðisflokkurinn. Hvorugur stóru flokkanna mun þora í náinni framtíð að fara saman og hunsa Jón Gnarr. Eru hræddir við almenna reiði borgara en það er ágætt. Eiga skilið ráðningu svo ekki sé meira sagt.
Jón hefur sett stóru flokkana milli steins og sleggju; afar mikilvægt að halda sjó í ágjöfum er óhjákvæmilega á honum skella.
Spennandi verður að fylgjast með gengi Jóns Gnarr sem borgarstjóra undirrituð óskar honum til hamingju með sigurinn og borgarstjórann.
![]() |
Ætlar að vera skemmtilegur borgarstjóri |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook
4.6.2010 | 17:41
Skilaboð kjósenda - Ómar nýtur ekki trausts.
Vonandi uppgötvar Ómar Stefánsson að hans tími er liðinn dómur kjósenda hefur fallið og nýir að taka við. Líklega hefði útkoma flokksins orðið betri með Unu Maríu í fyrsta sætinu. Nú verður flokkurinn að sitja í sárum næsta kjörtímabil hefur áreiðanlega gott af því.
Fall getur verið fararheill ef nýtt heiðarlegt og duglegt fólk nær að brjóta sér leið í flokknum og uppgötva sinn vitjunartíma.
![]() |
Varnarsigur í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 5.6.2010 kl. 01:57 | Slóð | Facebook
2.6.2010 | 09:09
Kópavogur: - ólýðræðisleg vinnubrögð
Oddviti Samfylkingar er fallkandídat tapaði fylgi missti einn fulltrúa í kosningunum; er ekki trúverðug sem bæjarstjóri . Ef nýju framboðin efna ekki kosningaloforð sitt um hlutlausan bæjarstjóra hafa þeir svikið kjósendur sína. Auk þess sat fjöldi manns heima á kjördegi er túlka má sem þögul mótmæli á ríkjandi flokkakerfi. Nýju framboðin komu of seint fram til að geta náð til fjölda fólks er sá engan möguleika í stöðunni.
Samfylkingin sýnir yfirgang og ólýðræðisleg vinnubrögð í meirihlutaviðræðunum hefur ekki lært af þeim skilaboðum með nýju framboðunum að þeirra stjórnunarstíl er hafnað.
![]() |
Viðræðum haldið áfram í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:25 | Slóð | Facebook
2.6.2010 | 00:25
Kópavogur: Ópólitískan bæjarstjóra
Rökrétt afstaða hjá oddvita Kópavogslistans sérframboðin unnu glæsilegan kosningasigur Samfylkingin tapaði manni þrátt fyrir stjórnarandstöðu í langan tíma. Hvernig ætti fólk Kópavogslistans að leggja niður stefnumál sín til að þóknast Samfylkingunni? Nei, þó þau ætli ekki að missa andlitið með óraunhæfum kröfum Guðríðar Arnardóttur; yrði frá upphafi dauðadæmt samstarf.
Túlka má niðurstöður kosninganna á þann veg að krafist sé stefnubreytinga í málefnum bæjarins með ópólitískum lýðræðislegum málefnagrundvelli; fjórflokkarnir verði að láta af hagsmunapoti fyrir eigin flokk. Krafa Samfylkingar er siðferðilega rangur og tilraun til a traðka á nýrri hugsun með hag bæjarbúa að leiðarljósi fyrst og síðast.
Eftir Kosningar í Kópavogi er ekkert annað í spilunum hvaða meirihluti sem myndast; en ópólitískur bæjarstjóri.
![]() |
Samrýmist ekki stefnu listans |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.6.2010 | 09:12
Kópavogur - útstrikanir í kosningum.
Miklar útstrikanir (36%) á lista Sjálfstæðismanna í Kópavogi er áfellisdómur yfir prófkjörum yfirleitt, reglur þar um þurfa endurnýjunar við, óviðunandi að hægt sé að ganga í stjórnmálaflokk sama dag og kosið er, ganga síðan í næsta flokk og leika sama leikinn. Hætt við að hagsmunaklíkur ráði ferðinni er ná að taka sig saman til þess eins að ráða hverjir verða í framboði.
Á Akureyri var skrifað um KA-kosningu í prófkjörum, var HK-kosning í Kópavogi?
Afleiðingin blasir við miklar útstrikandir áttu sér stað en eru marklausar vegna vegna lítils vægis í talningu. Prófkjör Sjálfstæðismanna í Kópavogi er orsök óvildar og átaka er birtust í útstrikunum Ármanns K Ólafssonar og Gunnars I Birgissonar.
Ekki er hægt að útiloka að stór hópur fólks skráði sig í flokkinn (Samfylkingarfólk?)til þess eins að styðja Ármann K. Ólafsson en hefur síðan ekki kosið flokkinn?
![]() |
Útstrikanir í Kópavogi og á Akureyri flestar hjá D-lista |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:18 | Slóð | Facebook
1.6.2010 | 05:34
Lífeyrisjóðir og Tyggingastofnum sæti rannsókn á starfsháttum!
Óviðunandi að lífeyrissjóðir og starfshættir tryggingastofnunar verð ekki rannsökuð með sama hætti og hrunbankarnir. Enn endurtók sagan sig frá fyrra ári "sumarglaðningurinn" barst inn um lúgu eldri borgara og öryrkja: ''því miður verðum við að skerða lífeyri yðar vegna "greiðsluerfiðleika". Tryggingastofnum: ''því miður verðum við að skerða greiðslur frá okkur vegna fjármagnstekna yðar''
Engu gleymt hinir látnu frá bréf í veikri von um svar að handan.
Ríkisvaldið munar ekki um að brjóta á eldri borgurum þótt að lífeyrissjóður þeirra sé varinn réttur í stjórnarskrá.
Hvar er ríkistjórnin er gefur sig út fyrir almenna velferð, almannahag? Hvar er Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra sjáfskipaður kandídat þeirra er minna mega sín?
Hvar er Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra? Verður fjármálabrask lífeyrisjóðanna ekki rannsakaður; þeir kallaðir til ábyrgðar er brugðust?
Lífeyrisþegum gerð grein fyrir mistökunum og vinnubrögðum. Starfsháttum breytt, nýtt fólk ráðið, þeir sem ábyrgð báru taki pokann sinn.
Sýnt í verki í verki að dregin sé réttur lærdómur af því er gerðist; annars er félagsleg velferð borin fyrir borð um alla framtíð.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 07:36 | Slóð | Facebook
31.5.2010 | 09:16
Valdagráðug óþjóðholl ríkisstjórn?
Aldrei í sögu lýðveldisins hefur setið lélegri ríkistjórn minnir helst á valdagræðgi Sturlunga á þrettándu öld er endaði með ánauð undir erlent vald eins og kunnug er. Erfiðar aðstæður í efnahagamálum er ekki orsök að óvinsældum; fremur yfirgangur og andstaða ríkisstjórnarinnar við þjóðina alveg sama hver réttarstaða hennar er.
Nú vill Jóhanna svokallaður forsætisráðherra taka málsskotsréttinn af forsetanum, til hvers? Til að geta ákveðið einhliða eftir geðþótta skuldaklafa á þjóðina og seinna inngöngu í ESB þegar til kemur.
Þótt stjórnin hafi hlotið pólitískt afhroð í sveitastjórnarkosningum mun hún sitja sem fastast enda kosningar ekki henni í hag. Reynt í lengstu lög að lappa upp á sakirnar þó ekki væri til annars en að ljúka við sjö milljarða gjafabréfið/samningana að koma þjóðinni til Brussel, sambands á fallandi fæti er ekki getur þrifist lengur; fátækari ríki/jaðarríkin munu falla hvert af öðru standa ekki undir kröfum af of hárri Evru eru eingöngu þjónar stórþjóðum ESB.
Vinstri grænir ættu að viðurkenna pólitískan stuðning sinn við inngöngu ESB hann er augljós hverju barni þrátt fyrir "undarlegan línudans" Ögmundar Jónassonar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:06 | Slóð | Facebook
30.5.2010 | 07:25
Trínitatis: "Hvað stoðar þig allt heimsins góss og gæði"
"Hvað stoðar þig allt heimsins góss og gæði og gull og silfur,skart og dýrleg gæði " (Trínitatis, sunnudagurinn næsti eftir hvítasunnu er í dag)
Sálmur 179.
Hvað stoðar þig allt heimsins góss og gæði
og gull og silfur, skart og dýrleg klæði,
er ber þú utan á þitt dauðlegt hold?
Hvar liggur það, þá líkaminn er dauður
og langt frá öllu prjáli hvílir snauður
í myrkri mold?
Veist þú þá ei, að dómsins lúður dynur,
þá djásnið fölnar, veldisstóllinn hrynur
og gullkálfurinn hjaðnar eins og hjóm?
Veist þú þá ei, að ekkert gildi hefur
öll auðlegð heims og neina bót ei gefur
við Drottins dóm?
Vor auðlegð sé að eiga himnaríki,
vor upphefð breytni sú, er Guði líki,
vort yndi' að feta' í fótspor lausnarans,
vor dýrðarskrúði dreyrinn Jesú mæti,
vor dýrlegasti fögnuður og kæti
sé himinn hans.
Sb. 1886 - Valdimar Briem
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:03 | Slóð | Facebook
30.5.2010 | 06:11
Kópavogur: Gunnar Birgisson lykilmaður í nýrri bæjarstjórn?
Þrátt fyrir tap Sjálfstæðismanna yrði best fyrir Kópavog að nýju flokkarnir þrír og Sjálfstæðisflokkur mynduðu meirihluta; að ráðinn yrði óháður bæjarstjóri. Fylgismenn Ármanns Kr. Ólafssonar unnu mest og best að tapi flokksins með herferð gegn Gunnari Birgissyni fyrrverandi bæjarstjóra leynt og ljóst.
En verkin tala sínu máli enginn sjálfstæðismaður hefur unnið eins ötullega að framfarmálum í Kópavogi og Gunnar Birgisson á öllum sviðum þar sem félagsleg gildi voru undirtónninn: uppbygging fyrir aldraða, öryrkja og geðfatlaða.
Kópavogur byggir um langa framtíð fyrst og fremst á starfi Sjálfstæðismanna í tuttugu ár; þar er hlutur Gunnars Birgissonar langstærstur.
Engin vafi að Framsókn þyrfti að vera utan við bæjastjórn næsta kjörtímabil hefðu líklega komið betur út ef Una María hefði skipað fyrsta sætið. Sama má segja um Samfylkinguna og Vinstri græna, fyrst og síðast voru stefnumál þeirra hatursáróður gegn Gunnari Birgissyni
Mín tilfinning er sú að Ármann Kr. Ólafsson reyni samstarf við Samfylkinguna jafnvel að þessir tveir flokkar hafi myndað "skuggaráðuneyti" áður en Ármann Kr. ákvað að fara í prófkjör gegn Gunnari Birgissyni og síðar til samstarfs í bæjarstjórn.
Fylgistap flokksins má rekja til forystu Ármanns Kr. Ólafssonar er læddist bakdyramegin í prófkjörið áður en Rannsóknarskýrslan kom út; styrkir og lán frá hrunbönkunum og líklega áhrifum Baugs hefur haft sín áhrif.
Nú reynir á Gunnar Birgisson; hann gæti verið með lykilstöðu og ráðið með hverjum sjáfstæðismenn mynda meirihluta í bæjarstjórn.
![]() |
Fjögurra flokka stjórn án Sjálfstæðisflokks" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:11 | Slóð | Facebook
29.5.2010 | 08:03
Fjórflokkarnir virði vilja kjósenda!
Verði niðurstaðan að Besti flokkurinn fái sex fulltrúa er ekki annað í stöðunni en hann sitji í borgastjórn með Sjálfstæðisflokknum eða Samfylkingu. Reyni Hanna Birna núverandi borgarstjóri að semja við Samfylkinguna sniðgengur hún vilja kjósenda, samstarfið yrði tortryggileg í ljósi Rannsóknarskýrslunnar, margir frambjóðendur (og þingmenn) hafa þegið ótæpilega styrki/mútur af Baugi og hrunbönkunum; aleiðingarnar eru ófyrirsjáanlegar mikil reiði gæti brotist út.
Eins og kunnug er hrundi efnahagskerfið, lífskjör fjölskyldna hafa ófyrirsjáanlegar afleiðingar um langa framtíð. Börnin sem nú eru að fæðast og vaxa úr grasi eiga ekki sömu möguleika og áður var. Verst verða þau þeirra úti er fátækust eru. Að því leyti erum við komin fimmtíu ár aftur í tímann þar sem mörg ungmenni þá áttu ekki möguleika á menntum sökum fátæktar.
Miðar við þessa kosningaspá verða fjórflokkarnir að virða niðurstöðuna ekki síst Sjáfiltæðisflokkurinn er hefur litið framhjá styrkjamálum Guðlaugs Þórs Þórðarsonar með þögninni, Guðlaugur upplýsti ekki fyrir kosningar hverjir væru styrkjendur hans.
Drottningarviðtalið í Kastljósi fyrir skömmu við Guðlauf Þór um styrki/féboð hans var ekki Sjálfstæðisflokknum til framdráttar; Guðlaugur Þór skýldi sér á bak við lög er hefðu verið í gildi; siðferðilegu hliðina kom honum ekki til hugar að ræða.
Fleiri mál mál munu smátt og smátt dúkka upp ekki verður hjá því komist að ræða hina svokölluðu Mynsky skýrslu er Tryggvi Þór Herbertsson þingmaður og prófessor samdi með prófessor Mynsky þar sem haldið er á lofti óraunhæfum væntingum til einkabankanna fyrir hrun; enn situr Tryggvi Þór á þingi eins og ekkert sé brást hann ekki sem þingmaður - og fræðasamfélagi háksólans sem prófessor?
![]() |
Kjörstaðir opnaðir klukkan 9 |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 08:30 | Slóð | Facebook
28.5.2010 | 14:34
Jóhanna forsætisráðherra - stingur höfðinu í sandinn.
Furðuleg yfirlýsing, Samfylkingin verður að axla ábyrgð, getur hvorki komið henni yfir á Framsókn eða Sjálfstæðisflokkinn. Jóhanna var sjálf í hrunstjórninni, forystufólk Samfylkingar studdi heilshugar einkavæðingu bankanna, Ingibjörg Sólrún setti þrýsting á Seðlabankann í gegnum Geir þáverandi forsætisráðherra að lækka binduskyldu bankans til samræmis við ESB eða öllu heldur til "frjálsræðis" til handa einkabönkunum og Baugsveldinu.
Styrkjamálin verður að upplýsa þar á Samfylkingin eftir óunnið verk. Var ekki styrkjum til flokksins dreift um allt til að minna bæri á sukkinu?
Steinunn Valdís getur ekki og má ekki verða samnefnari fyrir alla spillingu eða fjármálatengslum sérstaklega við BAUGSVELDIÐ. Hún ber í raun litla sök á hruninu var ekki í HRUNRÍKISSTJÓRNINNI.
Jóhanna Sigurðardóttir, Össur Skarphéðinsson og Kristján Möller, HRUNRÁÐHERRAR!, eiga að víkja úr ríkisstjórn ekkert minna dugar ef Samfylkingin ætlar að taka til í sínum ranni.
Jóhanna getur stungið höfðinu í sandinn líkt og strúturinn heldur að hún sjáist ekki; en það er skammgóður vermir.
![]() |
Spjótin staðið um of á Samfylkingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.5.2010 | 10:32
Kópavogur: - góðar kosningar
Mikil og góð tíðindi að ný framboð setji mark sitt á kosningarnar í Kópavogi getur ekki orðið annað en til góðs. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins munu vera orsök fylgistaps þeirra þar sem oddvitinn Ármann Kr. Ólafsson laumaði sér inn bakdyramegin áður er hrunskýrslan kom út. Full ástæða til að færa hann úr fyrsta sæti en hins vegar Gunnar Birgisson í fyrsta sætið.
Tap Samfylkingar er vegna málefnasnauðra umræðna og hatursfullra árása á Gunnar Birgisson er nú hafa snúist upp í andhverfu sína þar sem Guðríður Arnardóttir hefur skotið sjálfa sig sig í fótinn, nær ekki eyrum kjósenda.
Sama er segja um vinstri græna þeir hafa ekkert nýtt fram að færa nema troða illsakir við fyrrverandi bæjarstjór Gunnar Birgisson.
![]() |
Meirihlutinn fallinn í Kópavogi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.5.2010 | 03:02
Samfylking axli ábyrgð- burt með hrunráðherrana!
Vel má taka undir sjónarmið um eftirsjá að Steinunni Valdísi. Hún var farsæll borgarstjóri óx í starfi sínu þrátt fyrir sundurleitan hóp R-listans. Þegar Ingiibjörg Sólrún hrökklaðist úr borgarstjórnarstólnum varð Steinunn Valdís límið er hélt hópnum saman.
Má segja að hún sé fórnarlamb fjármálaveldisins er reyndi markvisst að ná tangarhaldi á samfélaginu með krumlu fjármagnsins, Steinunn Valdís varð fórnarlamb óhugnanlegra afla; fjármagnið átti að ráða öllu án gagnrýni og félagslegra umbóta þrátt fyirir góðs vilja hennar til réttlætis og framfara í borginni.
Samfylkingin getur ekki skýlt sér á bak við Steinunni Valdísi og látið sem ekkert sé; þeir ráðherrar er nú sitja í ríkistjórn og voru til staðar er bankarnir sprungu framan í almenning með lífskjara skerðingu og skuldsetningu inn í langa framtíð eiga að segja af sér; burt með Jóhönnu, burt með Össur Skarphéðinsson, burt með Kristján Möller.
![]() |
Eftirsjá af Steinunni Valdísi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 05:25 | Slóð | Facebook
27.5.2010 | 18:01
Skilaboð til "pólitískra styrkþega" úr öllum flokkum
Nú hitnar undir Guðlaugi Þór Þórðarsyni er hlaut hæstu styrkina/féboðin og jafnvel fleiri "minni spámenn"innan Sjálfstæðisflokksins t.d Ármanni Kr. Ólafssyni oddvita í Kópavogi. Steinunn Valdís sýnir gott fordæmi og sendir sterk skilaboð til allra styrkþega Baugs og hrunbankanna að segja af sér
Endurnýjun í liðí þingmanna og stjórnkerfinu þarf að fara fram annars verður engin sátt í samfélaginu.
Steinunn Valdís stóð sig vel sem borgarstjóri í Reykjavík, sýndi hugrekki er hún hækkaði lægstu launin í borginni þegar samingar náðust ekki.
![]() |
Steinunn Valdís segir af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:04 | Slóð | Facebook
27.5.2010 | 02:13
Dýr þjónusta
Þurfti að láta mæla blóðþrýsting varð hissa á verðmuninum. Kostaðir kr. 200 í apótekinu en kr. 800 hjá hjúkrunarfræðingi á heilsugæslu. Viðtal við lækni kostaði kr 800, mæling blóðþrýstings innifalinn auk þess að greina vandann og skrifa lyfseðil.
Hvers vegna eru hjúkrunarfræðingar svona mikið dýrari en læknir; varla frambærilegt á ríkistofnum í heilbrigðiskerfinu?
Eldri borgari er ég þekki og hefur ekkert nema tryggingar frá tryggingastofnum greiddi kr 800 fyrir viðtalið við lækni, fékk síðan tæki til að hafa yfir nótt og skila síðan, það kostaði kr. 600. Umrædd kona þarf að velta hverri krónu um mánaðarmót til að ná endum saman;lyf, húsleigu,hita,rafmagni,hreinlætisvörum og fæði. Hún verður alltaf að ákveða hvað hún má veita sér í mat og drykk.
Hvernig er heilbrigðiskerfið orðið, plokkar krónur hér og þar af þeim er minnst eiga?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:19 | Slóð | Facebook
26.5.2010 | 06:17
Kópavogur: kosningar
Undafarið kjörtímabil höfðu Kópavogsbúar góða yfirsýn yfir velferð og hag bæjarins undir leiðsögn Sigurðar Geirdal; farsælum leiðtoga er lést fyrir aldur fram. Mikil eftirsjá í Sigurði heitnum Geirdal sem bæjarstjóra og samstarfi þeirra Gunnars Birgissonar er var farsælt og mannvænt.
Gunnar Birgisson tók þá við bæjarstjórnarkyndlinum, hélt áfram á sömu braut og Sigurður þrátt fyrir hatursfullar og málefnasnauðar árásir forystu Samfylkingar er lagði sjaldan eða aldrei lagði nokkuð til er betur mætti fari um hag bæjarbúa nema leggja sundskatt á eldri borgara.
Markmið Samfylkingar virðist vera að ná völdum hvað sem það kostar með persónulegum árásum á Gunnar Birgisson, dóttur hans og fyrirtækis hennar Frjálsrar Miðlunar. Hún ráðin var ráðin af Sigurði heitnum Geirdal bæjarstjóra til starfa með hagstæðum samningum fyrir bæinn.
Verkhluta Frjálsar Miðlunar var unnið samkvæmt samningum en hvers vegna lauk ekki afmælisskýrslunni um Kópavogsbæ? Var hún ekki í höndum flokksbróður Guðríðar oddvita Samfylkingar og aldrei skrifuð?
Hverjir greiddu atkvæði gegn lægsta tilboði í sambærilegt verk hjá Kópavogsbæ? Guðríður Arnarsdóttir og Ólafur Þór Gunnarsson bæjarfulltrúar, tilboðið var hagstætt en ekki heppilegt vegna þess að fyrirtæki dóttir Gunnars Birgissonar átti tilboðið.
Oddviti Sjálfstæðismanna Ármann Kr. Ólafsson "renndi sér bakdyramegin inn í prófkjörið" rétt áður en Rannsóknarskýrslan kom út; telja má víst að hann hefði ekki orðið oddviti ef hún hefði komið út áður.Ekki verður horft framhjá lánum og styrkjum oddvita Sjálfstæðisflokksins, Ármanns Kr. Ólafssonar, er fékk 265 millj. lán og styrk 1.050.000 millj. (Rannsóknarskýrsla nr.8.bls165-167).
Ekki ásættanlegt að oddviti Sjálfstæðisflokks í Kópavogi verði forystumaður flokksins; hann er einn af "styrkþegum/lántakendum" hrunbankanna eðli málsins samkvæmt er rétt að strika Ármann Kr. Ólafsson út af lista Sjálfstæðisflokksins í komandi kosningum.
Bæjarfulltrúinn Ómar Stefánsson í Kópavogi, jafnframt formaður bæjarráðs boðar lækkun á launum bæjarfulltrúa eftir kosningar en hvers vegna voru þau ekki lækkuð um leið og sundskatturinn var dreginn upp úr vösum eldri borgara!?
Gleðilegt að ný framboð hafa komið fram, ljós í myrkrinu, um gagnrýna og málefnalega umræðu.; vonandi tekst þeim að setja mark sitt á komandi kosningar þótt tíminn sé naumur.
![]() |
Kópavogsbúar um kosningarnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 09:19 | Slóð | Facebook
25.5.2010 | 07:59
Bloggvinur Morgunblaðsins?
Er bloggvinur Morgunblaðsins ætlaði að lesa þar Staksteina í morgun en komst ekki inn á lykilorði mínu. Mbl. hefur lokað fyrir bloggvini sína nema þeir gerist áskrifendur blaðsins; kostar þá kr 3.890 pr. mán. að vera bloggvinur.
Er það ekki nokkuð langt gengið að við bloggarar Mbl þurfum að greiða fyrir vináttuna? Hingað til hefur verið hægt að lesa Staksteina og forystugreinar sem bloggvinur.
Kaupi yfirleitt alltaf Morgunblaðið en ekki hægt stundum vegna ferðalaga þá er það keypt í lausasölu þegar kostur er.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:11 | Slóð | Facebook
24.5.2010 | 05:32
Kópavogur: Fjórflokkarnir gráðug valdaklíka
Kópavogspósturinn (20.maí) birtir með áberandi hætti að bæjarráð hafi samþykkt samhljóða að draga til baka styttingu opnunartíma sundlauganna vegna mikillar óánægju bæjarbúa; nú eru það atkvæðin er þarf að halda utan um fram yfir kosningar.
Framsóknarmaðurinn Ómar Stefánsson, jafnframt formaður bæjarráðs boðar lækkun á launum bæjarfulltrúa eftir kosningar en hvers vegna voru þau ekki lækkuð um leið og sundskatturinn var dreginn upp úr vösum eldri borgara!?
Er það ekki óeðlilegt að formaður bæjarráðs sé jafnframt íþróttarvallarstjóri, sitji báðu megin við borðið. Greinilega hafa fjórflokkarnir tekið í sínar hendur ákvörðunarvald og framkvæmda vald, sauðsvartur almúginn skal kyngja því sem að honum er rétt.
Önnur frétt í sama blaði greinir frá boði Blika þar sem fjórflokkarnir þreyttu íþróttakeppni , allir unnu jafnmikið. Hvers vegna var nýju framboðunum ekki boðið að vera með? Ekki vænlegt að þeir fái áberandi auglýsingu; betra að þegja þá í hel.
Yfirgangur fjórflokksins lofar ekki góðu næsta kjörtímabil þar sem ákvarðanir munu verða teknar á Exelskjölum án tillits til vilja bæjarbúa ; - samfélagsleg gildi og siðgæði fjarlægur draumur.
Gleðilegt að ný framboð hafa komið fram, ljós í myrkrinu, um gagnrýna og málefnalega umræðu.; vonandi tekst þeim að setja mark sitt á komandi kosningar þótt tíminn sé naumur.
Pólitísk völd í bæjarstjórn Kópavogs eru samansúrruð valdaklíka minni og meirihluta þar sem hagsmunir bæjarbúa skipta litlu máli heldur klíkustarfsemi og eiginhagsmunapot.
Mikil eftirsjá í Sigurði heitnum Geirdal sem bæjarstjóra og samstarfi þeirra Gunnars Birgissonar er var farsælt og mannvænt. Nú sitja við völd gráðugir valdhafar ; lítið reynt að skilgreina þarfir hagsmuna alls almennings.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:52 | Slóð | Facebook
22.5.2010 | 21:15
Hvítasunnusálmur: Sigubjörn Einarsson biskup
Hvítasunna er stofndagur kirkjunnar og hátíð heilags anda. Þá töluðu postularnir tungum framandi þjóða er heilagur andi kom yfir þá á hinni fyrstu hvítasunnuhátíð: þá gaf Kristur þeim boðið að fara út um allan heim, skíra og predika, orð Drottins.
Sálmur 724:
Leiftra þú, sól, þér heilsar hvítasunna,
heilaga lindin alls, sem birtu færir
hann, sem hvern geisla alheims á og nærir,
eilífur faðir ljóssins skín á þig,
andar nú sinni elsku yfir þig.
Ljóma þú, jörð, þér lýsir hvítasunna,
lífgjöf þín, Kristur, risinn upp frá dauðum,
opnar sinn himin heimi vonarsnauðum,
heilagur andi streymir yfir þig,
andar nú sinni elsku yfir þig.
Geisla þú, sál, mót sól þíns lífs og fagna,
sjá, það er vor á jörð, sem Drottinn gefur,
vittu það, barn, og vakna þú, sem sefur,
vitjar þín andi Guðs og skín um þig,
andar nú sinni elsku inn í þig.
Lýstu mér, sólin hvíta, heita, bjarta,
heilagi andi Guðs og Krists, hans sonar,
uppspretta ljóss og friðar, lífsins vonar,
ljúk mér upp, kom þú, streym þú yfir mig,
anda nú þinni elsku inn í mig.
Sigurbjörn Einarsson biskup, sálur nr. 724
22.5.2010 | 16:06
Ármann Kr. Ólafsson úr fyrsta sæti.
Niðurlæging fjórflokkanna er augljós sama hvað Gnarr fær marga fulltrúa; í Kópavogi virðist enginn nýju flokkanna hafa sambærilega stöðu. Sjáfstæðisklokkurinn situr uppi með oddvita hér í Kópavogi er ekki telur neitt athugavert við 250millj. lán, telur sig ekki þurfa að tilgreina nánar hver lánaði og hvers vegna. Kjósendur Sjálfstæðisflokksins ættu að strika hann út í kosningunum næsta laugardag.
![]() |
Vopnlausir stjórnmálaflokkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |